Morgunblaðið - 16.05.1973, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAl 1973
M ^ /WL i/.F/f.i i
22-0-22*
RAUDARÁRSTÍG 31
BILALEI6A
CAR REIMTAL
n 21190 21188
14444
&
\& 25555
muEmm
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
CAR RENTAL
BÍLALEIGA
TRAUSTI
ÞVERHOLT 15ATEL. 25780
SKODA EYÐIR MINNA.
SHODH
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
SAMVINNU
BANKINN
Stúlka óskast
til heimílisstarfa, mætti vera
ungHngur. Uppl. i síma 84100.
Herbergi óskast
Okkur vantar rúmgott herbergi
eða stofu til leigu á rólegum
stað í Reykjavíkurborg.
Bifreiðastóð Kaupfélags Borg-
firðinga,
Borgames, sími 93-7200.
Bjarni Guðna
afsegir
stjórnina
Það hefur vakið mikla at-
hygli, hversu dr. Bjarni
Guðnason hefur brugðizt við
tilnefningu Björns Jónssonar
í ráðherrastól. Bjarni hefur
látið að því liggja í viðtölum,
að trúnaður hans við stjórn-
ina sé ekki Iengur fyrir hendi
og þess sé skammt að bíða,
að hann afsegi sig allri
ábyrgð á hennar verkum.
í leiðar, sem alþingismaður-
inn skrtfar í Nýtt land 10. maí
sl. ræðir Bjarnt um þessi mál
og fer leiðarinn hér á eftir í
heild.
Bjami Guðnason hefur í
vetur reynt að sannfæra al-
menning um, að hann standi
ætíð við orð sín. Nú á hann
eftir að standa við þær yfir-
lýsingar sem fram koma í
leiðara þessum:
„B^tur má
ef duga skal
Fyrir röskri viku gaf ríkis-
stjórnin út bráðabirgðalög,
þar sem kveðið var á um 2%
lækkun vöru og þjónustu i
landinu. Þessi lög ásamt geug
ishækkuninni mega segjast
vera þáttur í því að reyna að
hamla á móti óðaverðbólg-
unni í landinu, og er vitnis-
burður um, að ríkisstjórnin er
loks að vakna tii vitundar um
að eitthvað þurfi að aðhafast
í þessum efnum, ef ekki á að
gefast hreinlega upp við að
Ieysa verðbóiguvandann.
Óvíst er, að hve miklttm
notum bráðabirgðalögin
koma, því að þatt eru illfram-
kvæmanleg og taka í rattn
mið af því einu að lækka kaup
gjaldvísitöluna 1. júní. Hins
vegar vekur það sérstaka at-
hygli, að lög þessi eru sett án
nokkurs samráðs við Bjarna
Guðnason, og hafa því ekki
vísan þingmeirihluta þegar
þau koma til afgreiðslu á Ai-
þlngi í haust.
Ríkisstjóminni virðist ekki
enn vera ijóst, að að henni
standa í raun fjórir aðilar en
ekki þrír, ef hún á að hafa
meirihluta á Alþingi. Að vísu
eru þessir fjórir stuðningshóp
ar mtsf jölmennir, en allir jafn
nauðsynlegir, eins og styrk-
leikahlutfölliim er háttað á
Alþingi.
Nú hagar svo til, að hægrl
armur SFV, sem liefur fjóra
þingmenn, hefur haft tvo ráð
herra í ríkisstjórninni en
frjálslyndi armurinn í Reykja
vík engan. Þar sem Hannibal
hefur sagt af sér ráðherra-
dómi, er það misskilningur að
halda, að hægri armurinn
geti ráðið eftirmanni hans. Ef
það er svo í raun og veni, að
ríldsstjórnin telji, að hinum
frjálslynda armi SFV sé það
óviðkomandi, hvað gerist i
ríkisstjórninni og þurfi því
engan fulltrúa í henni, jafn-
framt því sem ástæðulaust sé
að bera undir hann hráða-
birgðalög, verður það ekki
skilið óðru vísi en svo, að ekki
sé óskað eftir stuðningi hatts
né samstarfi við hann. Ligg-
ur þá í hlutarins eðli, að rík-
isstjórnin tekur afleiðingum
af því. BG.“
spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið i síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins.
BÆTCJR TIL
SJÓNDAPURRA
Anna Finnsdóttir, Fremri-
stekk 3, ’.pyr:
„Til Tryggingastofnunar
ríkisins:
Greiðir stofnunin einhverj
ar bætur til þeirra, sem hafa
skerta sjón og verða að nota
gleraugu alla ævi? Er eitt-
hvert ákvæði um þetta vegna
barna sérstaklega, sbr. börn,
sem að læknisráði þurfa að
nota sérsmíðaða skó?“
Örn Eiðsson, upplýsinga
fulltrúi Tryggingastofnun-
ar ríkisins, svarar:
„Tryggingastofnunin greið-
ir ekki styrk til gleraugna-
kaupa. Stofnunin tekur aft-
ur á móti þátt í kostnaði við
gerð gervilima bg ýmissa
hjálpartækja eftir sérstökum
reglum, sem Tryggingaráð
hefur samþykkt. Þátttaka
Tryggingastofnunar vegna
skósmíða eftir máli (sérsmið-
aðir skór) er þannig, að not-
andi greiðir ávallt fasta upp-
hæð, en Tryggingastofnunin
það sem á vantar fulla
greiðslu. Greiðslur notenda
eru nú: barnaskór kr. 600,00
og kven- og karlaskór kr.
1.200,00.
Áðurnefnd reglugerð er of
löng til að birta hana hér í
heild, en þó skal þess getið,
sem Tryggingastofnunin
greiðir að fullu: hjólastólar,
gervilimir, spelkur, heyrnar-
tæki barna, allar viðgerðir
þessara tækja. Talkennsla
hjá logoped, gerviauga, skrið
grind, hjartagangráður, kerr
ur fyrir lömuð börn, göngu-
stólar fyrir böm, og ljósgrein
ingartæki blindra."
ATVINNULEYSIS-
SKRÁNING
Jóhann Fr. Hannesson,
Freyjugötu 26, spyr:
„Hvernig er hægt að vera
á atvinnuleysisskrá, þeg-
ar fjölda fólks vantar í flest
ar atvinnugreinar?"
Hjálmar Vilhjálmsson, ráðu
neytisstjóri í félagsmálaráðu
neytinu, svarar:
„Hver sá, sem atvinnulaus
er að einhverju eða öl'lu leyti
á rétt á því að snúa sér til
vinnumiðlunar með beiðni um
aðstoð við útvegun vinnu
handa sér. Sá, sem leit-
ar slíkrar aðstoðar er færður
á skrá sem atvinnulaus. Þar
með er ekki sagt, að sá, sem
skráður er, sé kominn á at-
vinnuleysisbætur. Bætur fær
hann því aðeins, að hann full
nægi þeim skilyrðum, sem lög
in setja fyrir bótarétti, sam-
kvæmt vottorði vinnumiðl-
unar.
1 lögunum um atvinnuleysis
tryggingar segir, að bótarétt
ur glatist ekki, þó að hafn-
að sé vinnu í starfsgrein, sem
umsækjandi hefur ekki áður
stundað, enda fyligi slíkri
starfsgrein verulega meiri
áreynsla eða vosbúð en
þeirri, sem hann áður stund-
aði. Þegar úthiutunamefnd
metuir bótarétt, ef um er að
ræða vinnu í öðru byggðar-
lagi eða i annarri starfsgrein,
ber m.a. að taka tillit til heim
ilisástæðna umsækjanda. Þeg
ar hafnað er vinnu í öðru
hyggðarlagi eða í ann-
arri starfsgrein, sem velduir
ekki bótamissi, samkvæmt
ákvæðum þessa stafliðs, get-
ur úthiutunamefnd fellt nið-
uir bótagreiðslur, þegar um-
sækjandi hefur notið bóta í
4 vikur.
Það atvinnuleysi, sem ver-
ið hefur hér á landi og er í
raun og veru mjög lltið, staf-
ar fyrst og fremst af veður-
farinu og á sér aðallega stað
á Norður- og Norðaustur-
landi.“
West - Bruce - Laing
FRÁ MARGRÉTI
ÁSGEIRSDÓTTUR
I LONDON:
Ný hljómsveit Jack Bruce
hélt fyrir skömmu hljómieika
i litUi leikhúsi hér í Loudon,
sem nefnist Rainbow Theatre
og er i Finsbury Park. Leik-
hús þetta, sem árum saman
var mjög’ vinsælt til hljóm-
leikahalds, lenti í lægðinni
uni tima, en er nú að rifa sig
upp að nýju með hljómleika-
haldi. Virðist þetta takast
mjög vel; forráðamenn húss-
ins eru heppnir með hljóm-
svettir og húsið hefur náð að
skapa sér nafn sem poppstað
ur, enda vel til siíkra nota
fallið.
WEST—BRUCE—LAING
nefnist hljómsveitin — vasa-
útgáfa af Cream — skipuð
þeim Jack Bruce (fyrrum
bassaleikara CREAM),
Corky Laing, trommuleikara,
og Leslie West, gítarleikara,
en báðir voru þeir áður liðs-
menn bandarísku hljómsveit-
arinnar MOUNTAIN. Hljóm-
sveitin lék fyrir fullu húsi
mestmegnis ánægðra áheyr-
enda — og uppselt var iöngu
fyrir fram og utan dyra stóð
þyrping miðalausra aðdá-
enda, sem reyndu að komast
inn.
Laing lamdi heljarmikið
tvöfalt trommusett og lét
„kjuðunum“ (slagtrjánum)
rigna um allt svið, jafnvel út
í salinn, með mikliim tilþrif-
um. Virtist hann hernta dá-
lítið eftir Ginger Baker
(Cream), en hafði þó allt ann
an áslátt — ekki þenn-
an djúpa, titrandi Baker-
hijóm. En hann var samt all-
góður á sinn hátt.
West — aldeilis ótrúlega
feitur náungi í ljósgrænum,
glitrandi buxum — spilaði
einnig vel á sinn Iiátt — lék
sér með tónana, ekkt ósvip-
að og gerist í „avant garde-
jassi“ á stundum. Hann var
töiuverður „leikari“ á köfi-
um — lét sig t.d. „frjósa“ á
einunt tóni í næstum heila ntín
útu. Þeir Bruce iiöfðu tals-
verða samvinnu í slikum leik
araskap; t.d. kraup Bruce fyr
ir honum, kyssti og klapp-
aði o.s.frv. Hljómsveitirn-
ar hér v'rðast komnar ótrú-
lega mikið út í slíka „leik-
list“ og magna þá gjarn
an útlit sitt með málningu og
farða og öðru slíku, sem
í fljótu bragði virðist benda
tii þess, að popptónlistin sé
á undanhaidi og leiti annar-
legra aðferða tU að liaida
veili, þar sem tónlistin virð-
ist ekki nægja ein sér til
þess.
Bruce, sá frægi náungi úr
Cream, hefur vissulega sína
töfra á sviðinu — og hann
átti nokkuð gott sóió þarna
og margar góðar glefsur
— en persónulega finnst mér
hann heldur hafa dalað frá
Cream-timanum.
En þeir voru samt ágætir
— þegar öUu er á botninn
hvolft.
Jack Bruce á hljómleikunum.