Morgunblaðið - 16.05.1973, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 1973
Margt á döfinni
á Fáskrúðsfirði
— en tregt um fyrirgreiðslu og leyfi
Skrúðurinn á Fáskrúðsfirði.
Er við spurðum Altoert
Kemp, fréttaritara Mbl. á Fá
skrúðsfirði tíðinda að aust-
an, þegar hann var á ferð 'i
höfuðborginni sem fulltrúi á
iandsfundi sjállstæðis
manna, kom í ljós að í hans
heimabyggð r ýmislegt á döf
inni og hugur í fólki,
en stendur oftast á leyfum og
fyrirgreiðslu um f jármagn.
Albert Kemp.
— Vertíðin i vetur er sú
lélegasta, sem komiö hef-
ur um langt skeið, sagði Al-
bert. — Að því var þó mikil
atvinnubót hve mikið barst
að af loðnu í vetur. I fiski-
mjölsverksmiðjuna, sem rek-
in er af kaupfélaginu, komu
alHs 13.500 tonn. Og þar voru
einnig fryst um 380 tonn af
loðnu. Úr þessum 13.500 tonn
um í bræðsiu fengust 2000
tonn af mjöli og 900 tonn af
lýsi, sem er að útflutnings-
verðmæti 110 milljónir króna.
Lítið þróarrými háði mjög
starfsemi verksmiðjunnar, en
fyrirtækið hugsar til endur-
bóta á því í surnar, ef fjár-
hagslegur stuðningur fæst.
— Kaupfélagið áformar
einnig að reisa nýtt frystá
hús og er unnið að því á
teikniborðimu. Er það von
okkar á staðnum, að fjárhags
leg fyrirgreiðsla fáist til að
koma því i framkvæmd.
— Nýr skuttogari er á leið
til Fáiskrúðsfjarðar frá Jap-
an og er hann væntanlegur
seint i maí. Skipstjóri á þessu
nýja skipi er Guðmumd-
ur Gislason frá Eskiifirði og
framkvæmdastjóri fyrirtækis
ins er Jón E. Guðmundssom,
sem áður var um langt ára-
bil sveitarstjóri Búðahrepps.
Með tilkomu þessa nýja tog-
ara, vænta menn sér mikils í
atvinnuKifinu og ekki örgrant
um að sumir þeirra, sem eru
með smærri báta, óttist
að þeir verði að hætta, þar
eð ekki verði hægt að anna
því hráefni sem að berst. Til
að fyrirbyggja að svo verði,
hefur Páll Jónsson, fram
kvæmdastjóri, tjáð mór, að
unnið sé að kaupum á
vinnsluvélum í frystihúsið og
er eitthvað af þeim vélum nú
þegar komið á staðinn.
— Þrjár fiskverkunarstöðv
ar eru reknar á Fáskrúðs-
firði. Frystihúsið Póiar-
síld leigði bát í vetur. Síld-
arsöltun Fáskrúðsfjarðar hef-
ur unnið sig smám saman upp
og er það hugmynd forráða-
manna hennar að setja upp
lítið frystihús, en stendur á
fyrirgreiðslu.
— Eins og minnzt var á
hér að framan, var ráðinn
nýr sveitarstjóri i Búða
hrepp, hélt Albert áfram. Er
það ungur viðskiptafræðing-
ur úr Kópavogi, Jón Gauti
Jónsson, og er ýmislegt á döf
inni, sem hann hefur unnið
að. Má þar m.a. nefna, að um
tíma hefur verið unnið að
byggingu dráttarbrautar á
staðnum, sem miklar vonir
eru bundniar við, en óráðið
er hvort fnamkvæmdir hefj-
ast I sumar eða síðar, því
endanlegt svar um fjárveit-
ingu hefur ekfci fengizt
— Skrifstofur Búðahrepps
eru nýlega fiuttar í nýtt hús
næði. I húsinu er jafnframt
Frá
Fáskrúðs-
firði
Frásögn
Alberts Kemp
fréttaritara
Morgunblaðsins
slökkvistöð, en nýi slökkvi-
bíilinn, sem var á leiðinni til
okkar þegar Vestmannaeyja
gosð hófst, fór til Eyja og
er þar enn. Hús þetta bætir
mjög alla aðstöðu sveitar-
stjórnarinnar á staðnum.
Þá er nýbyggt póst- og
símahús og verið að flytja í
það um þessar mundir.
En eitt mikilvægasta málið,
sem er á ferðinni hjá Búða-
hreppi, er bygging barna-
skólahúss. Standa vonir til
að honum verði kamið undir
þak í sumar. Þá mun bygg-
ing verkamannabústaða vænt
anlega hefjast í byrjun júní,
en að því máli hefur verdð
unnið síðastliðin 3 ár, og nú
fyrst fengin heimild til að
mega hefja verkið. Þetta er
fjölbýiishús með sex íbúðum
og hefur verkið verið boðið
út.
— Þá verður unnið áfram
að lagningu holræsa. 1 fram-
haldi af því, hefur undanfar
in 2 ár verið unnið að þvi
að afla fjár til varanlegrar
gatnagerðar, eins og annans
staðar á Austurlandi. Er það
von okkar að það geti haf-
izt í sumar. Þessar fram-
kvæmdir eru, eins og allt ann
að, orðnar háðar leyfum. Á
Fáskrúðsfirði er í uppsigl-
ingu athyglisverð fram-
kvæmd og raunar hafin, en
það er skipuleg gatnagerð
þar sem Verk í Kópavogi
skipuleggur húsin og byggð-
ina. Við höfum ekki fyrr við
haft slik vinnubrögð og sýn
ist sitt hverjum. Sveitarstjór
inn hefur mjög bedtt sér fyr-
ir þessu máli, og eru sumir
farnir að kalla götuna Gaut-
lönd.
— Af öðrum byggingar-
framkvæmdum má nefna, að
Landsbankmn hefur áform
um að reisa útibú hjá okkur
og gengur þá Sparisjóður Fá
skrúðsfjarðar inn í það. En
ekki er vitað hvort af þessu
verður í surnar.
— Hjá byggingarfyrirtæk-
inu Trésmiðjunni hf. er sem
fyrr unnið að skipasmiðum.
Þar eru tveir bátar í smiðum,
og þegar búið að skila öðr-
um, 15 tonna báti, sem hlaut
nafnið Stefán Guðfinnur. Eig
andi hans er Friðrik Stefáns-
son á Fáskrúðsfirði. Hefur
verið mikil aukning i simiði
slíkra báta á staðnum undan
farin ár, en nú eru verkefn
in heldur farin að dragast
saman. Þó liggur fyrir smíði
á 2 bátum. Annar ér 26 tonn
að stærð, en hinn 15 tonn.
Þetta fyrirtæki fæst jafn-
framt við húsbyggingar og sá
það um meiri hlutann af fram
kvæmdum við póst- og síma-
húsið á staðnum.
-— Loks má geta þess að á
sl. ári var fyrirhugað að
hefja framkvæmdir við smá-
bátahöfn á Fáskrúðsfirði, en
einhver tregða virðist hlaup-
in í þetta og málið sýnist
hreinlega hafa lognazt út af,
sagði Albert að lokum.
Félagslíf líflegt
í Gnúpver j ahreppi
Úr Gnúp-
verja-
hreppi
Rætt við
Jón Olafsson
í
Geldingaholti
— Þessi vetur hefuir verið
umhleypingasamur og gjafa-
frekur, svo hey hafa gengið
mjög upp hjá bændum. Hey
voru meiri að vöxtum í haust
en venjulega og þvi var bú-
izt við að þau roundu vel end
as>t, en svo hefur ekki orðið.
Nú er sauðburður að hefjast,
en kalt er í veðri og ef svo
heldur áfram, þá verður anna
samt og erfitt hjá bændum á
næstunni. "
Þetta eru ummæli Jóns Ól-
afssonar, bónda í Geldinga-
holti í Gnúpverjahreppi,
fréttaritara Mbl. á þeim slóð-
um, er hann var staddur hér
í Reykjavík á landsfundi
sjálfstæðismanna og við not-
uðum tækifærið til að spyrja
hann almennra frétta úr
sveitinni.
— Félagslíf hefur verið Mf
legt hjá okkur á liðnum vetri
sagði Jón. Jafnvel hefur
ekki allt sem fyrirhug-
að var komizt að. 1 því sam-
bandi má nefna, að Ung-
mennafélag Gnúpverja-
hrepps æfði og sýndi hinn
vinsæla leik „Ævintýri á
gönguför“ undir leikstjóm
Eyvindar Erlendssonar, sem
nú er bóndi í Heiðarbæ í
Flóa. Alls urðu 12 sýningar á
leiknum við aðsókn og mjög
góðair undirtektir. Leikstarf
semi í Gnúpverjahreppi hef-
u-r lengi notið mikilla vin-
sælda en á næsta hausti eru
um 60 ár siðan Unigmennafé-
lagið i Gnúpverjahreppi tók
að sýna leikrit.
— Sama er að segja um
sönglíf. Það hefur um iangt
árabil staðið með miklum
blóma og hreppamenn ætíð
átt stóran hóp af ágætu söng
fólfci. í vetur hefur um 30
manna kór æft söng undir
stjórn Lofts S. Loftssonar í
Breiðanesi Kórinn heitir Ár-
neskórinn og er formaður
hans Gestur Jónsson, bóndi í
Sfcaftholti. Kórinn hefur að
undanförnu haldið nokkrar
söngskemmtanir við góða að-
sókn.
— Starfsemi félaganna í
sveitinni, ungmennafélags,
kvenfélags og búnaðarfélags,
gengur með venjulegum
hætti og ekkert sérstakt af
þvi að segja bætir Jón Óliafs-
son við.
■— Ríðið þið ekki út ykkur
til ánægj u i Hreppunum ?
— Jú, nokkrir menn hafa
hesta á gjöf og ríða út og
temja á vetrum. Rosemarie
Þorleifsdóttir og Sigfús Guð-
mundsson í vestara Geldinga
holti hafa verið að temja.
Þau ætla i sumar að hafa reið
skóla og móttöku ferða-
manna, eins og sl. sumar.
— Þá verður í sumar eins
og undanfarin 3 ár, rekin
veitiragasala í Árnesi, hinu
glæsilega félagsheimili okk-
ar. Verður opnað þar næstu
daga, og bæði matar- og kaffi
veitingar á boðstólum. En ef
um hópa er að ræða, þarf að
panta fyrirfram.
— Annars er ekki þægilegt
að aka um sveitirnar. Vegir
eru illa heflaðir, sérstaklega
ailir útvegir og verður nær
alltaf að aka þá eins og mað
ur sé í kargaþýfi.
Jón Ólafsson i Geldingaholti.
— Að lokum sagði Jón
í Geldingaholti: — Mikill ugg
ur er í bændum vegna þess-
arar kvíðvænlegu hækkunar
á fóðurbæti og áburði, þar
sem fóðurbætir hefur hækk-
að um allt að 80% síðan í
fyinm og áburðurinn hefur
hækkað um 27%. Það lítur
ekki glæsilega út.