Morgunblaðið - 16.05.1973, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1973
Eliszabet Ferrars:
Ssmíds i dsurisru
hafa talað við telpuna? spurði
hann. — Eða nokkurn annan?
— Nei, sagði Paul. — Ég sá
bara bílinn, sem ég sagði Gower
frá, þar sem hann stóð á stígn-
um. Creed stóð upp. — Jæja,
það var þá víst ekki fleira í bili
en ég vildi gjarna taka þessar
dalíur með mér.
Þegar Rakel tók þær upp úr
vasanum, leit hann aftur á Paul.
— Þér verðið hérna, ef ég
skyldi þurfa að ná í yður aftur?
spurði hann.
— Já, vitanlega. Paul flýtti
sér til dyra á undan honum og
óskaði þess heitast, að Creed
hefði sagt eitthvað um hina fá-
ránlegu ásökun Applinhjónanna.
Sjálfur gat hann ekki vakið
máls á því, eða komið fram með
neina spurningu. Hann vissi, að
gerði hann það, færi röddin að
Sumarbústaðaland
Vi ha. lands ti'l sölu. Landið
liggur að vatni. Veiöiréttur, um
2C km frá Reykjavík. Þeir sem
áhuga hafa, leggi nafn og síma-
númer inn á afgr. Mbl. merkt
Land 8348 fyrir 20. maí.
skjálfa og gefa til kynna hina
óskiljanlegu skelfingu, sem
rödd Applin hafði valdið hon-
um.
Hann rykkti upp hurðinni fyr
ir Creed og kom þannig upp um
hina miklu taugaspennu, sem
hann var haldinn og sagði: —
Og ef það er eitthvað fleira,
sem við getum upplýst. . . Hann
þagnaði í miðri setningunni.
Kona, sem hann hafði aldrei
séð fyrr, stór og þunglamaleg,
stóð við hliðið. Birtan, sem féli
á hana úr dyrunum sýndi hörku
legt andlit og grátt, úfið hár.
Hún var i forugum gúmmístíg-
vélum, stuttu vaðmálspilsi og
tvíhnepptri treyju. Hún kom
stikandi upp að dyrunum og
enda þótt Paul þekkti hana ekki
var enginn vafi á því, að Creed
gerði það, þvi að á andliti hans
sást meiri óró en Paul hafði
nokkurn tima séð hjá honum, og
altt í einu þurfti hann að flýta
sér af stað.
Hann virtist gera sig enn
mjórri en hann var í raun og
veru, og honum tókst að sleppa
fram hjá konunni og út um hlið-
ið, og hann sagði um leið og
hann hvarf út í myrkrið: —
Gott kvöld, frú Meredith. Þér
eruð sjálfsagt að gá að dóttur
yðar. Ég vona, að þér séuð
ekki að gá að mér. Ég á stefnu-
mót. ...
Konan, setti upp einhvern tor-
tryggnissvip, er hún sneri við
til að horfa á eftir Creed og
unga manninum, sem bar dali-
umar og flýtti sér af stað á hæla
yfirmanni sínum. Poul sá að
svipur hennar var furðulega lík
ur Jane. Það var rétt eins og
þessi skjálfandi taugaóstyrka
stúlka væri falin innan í þessari
sterklegu og sjálfsöruggu konu.
— Hr. Hardwicke? sagði hún.
Röddin var skrækari en Paul
hefði getað búizt við, ein þeiri'a,
sem ekki þarf neitt að brýna, til
þess að hún kæfi allar aðrar
raddir. Enginn mundi geta látið
til sín heyra, ef frú Meredith
vildi varna honum þess. —
Creed hefði að minnsta kosti
getað gefið sér tóm til að kynna
okkur. Ég var búin að heyra, að
hann hefði þetta mál með hönd-
um. Það er óheppilegt. Þá þok-
ast það ekkert áfram. Hann hef
ur ekkert ímyndunarafl, og
heldur enga vandvirkni til þess
að bæta það upp. Hvenær sem
ég sé hann, er hann alltaf að
flýta sér og þjóta á næsta stað,
á:i nokkurs sérstaks tilefnis. Ég
held ég verði að nefna það við
Sir Arthur — Sir Arthur Fisby,
lögreglustjórann okkar, skiljið
þér — Hann er ágætismaður,
viijasterkur, en samt svo mikill
mannvinur. Hún tók eftir því,
að Paul ætlaði að segja eitthvað
við hana. — Nei, þakka yður
fyrir, ég ætla ekki að koma inn
. . . stígvélin mín. Hún benti á
forina á þeim.
Paul sagði, að það gerði ekk-
ert til með þau.
— Eruð þér viss? sagði hún.
— Þau eru ánnars svei mér
rækilega forug. Nú skal ég
segja yður, — ég fer bara úr
þeim. Ég biðst afsökunar á
sokbaleistunum, en það er þó al
tént skárra en fora allt út. Ég
var rétt að koma frá að liðka
hundana, þegar einhverjir menn
frá Fallford komu og tóku að
spyrja mig spjörunum úr um
það, hvenær Jane og Roder-
ick hefðu komið á laugardag. Og
þetta var það fyrsta sem við
maðurinn minn fréttum um ÖU
þessi vandræði. Jane mundi auð
vitað ekki láta sér detta í hug
að segja okkur neitt, og við höf
um ekkert sjónvarp. Höfum
ekki efni á því. Og ég er ekki
sílesandi þessi blöð, enda virð-
ist aldrei neitt gerast.
Hún var að stritast við að
í þýáingu
Páls Skúlasonar.
komast úr stígvélunum. Þegar
því var lokið lét hún þau standa
eins og varðmenn á dyramott-
unni og stikaði inn. Hún var
með langa granna fætur og nögl
in á stórutánni stóð út úr öðr-
um sokknum.
Þegar hún hitti Rakel í dyr-
unum að setustofunni og heils-
aði henni með handabandi, sagði
hún. — Mér þykir leitt að koma
á sokkaleistunum en það var
nú annars engin þörf á að vera
að koma inn. Ég ætlaði bara að
þakka ykkur fyrir, hvað þið vor
uð Jane hjálpleg í gær, og Rod-
eriek. Ég kem beint frá þeim og
sagði þeim að hafa sig til í
snatri og koma með mér, og þá
velvakandi
Velvakandi svarar í sima
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Óbrúklegar eldspýtur
Maður nokkur, sárreiður,
hafði samband við Velvakanda.
Hann kvaðst reykja pípu og
nota þess vegna kynstur af eld
spýtum. Gallinn væri bara sá,
að þær eldspýtur, sem einka-
salan fína hefði á boð-
stólum væru stórhættulegar og
þess vegna ónothæfar. Neista-
flug og sprengjulæti í eldspýt-
um þessum hefðu ágerzt upp
á s’iðkastið og það minnsta, sem
hægt væri að ætlast til væri,
að ekki stafaði bein hætta af
vöru, sérstakl- ga þegar ekki
væri um neitt annað að velja.
£ Húllum-hæið mikla
Sigurjón Sigurbjörnsson
skrifar:
„1 „Velvakanda" 13. maí s.l.
hefur veizluglaður „Reykvík-
ingur" hafið lofsöng undir dúl
nefni um hátið á Þingvöllum
1974. Sendir hann háðsyrði og
skæting til þeirra, sem varað
hafa við slikum fagnaði með
samþykktum í félögum og fé-
lagasamböndum og blandar mál
sitt ensku og latínu, sýnir fróð
leik sinn í gangi heimsmála og
virðist ekki vera neinn lítili
karl, þótt hann sýni þá hóg-
værð að láta ekki nafns sins
getið.
Eftir þau andmæli, sem áður
eru nefnd og komið hafa hvað-
anæva að af landinu, vonaði
maður að hugmyndin um þjóð-
hátíð á Þingvöllum 1974 væri
úr sögunni, en þá kemur allt í
einu tilkynning um að þar
skuli haldin eins dags hátíð.
£ Hátíðina ætti fremur að
halda í Reykjavík
Ennþá er börnum okkar
kennt, að Ingólfur Arnarson
hafi verið fyrsti landnámsmað-
urinn og hafi hann byrjað bú-
setu ’i Reykjavík árið 874. Eins
og sjálfsagt var að minnast
1000 ára afmælis Alþingis á
Þingvöllum árið 1930 væri og
sjálfsagt að minnast kristnitök
unnar þar árið 2000, (ef ása-
TOPPTÍZKfilI
MIÐBÆJARMARKAÐNUM
Mikið úrval
af lituðu tissue
AVON
sn yrti vörur
Sokkabuxur
og hnésokkar
í öllum litum
trúin verður þá ekki orðin alls
ráðandi).
Þingvellir komu ekkert við
sögu fyrr en rúmum 50 árum
eftir 874. I samræmi við það,
sem tilgreint er hér að framan
tel ég, að þessa hátið vegna
1100 ára Islandsbyggðar ætti
að halda í Reykjavík.
§ Dýrt eins dags spaug
Allur tilkostnaður við undir
búning — 2000 W.C. og fleira
— verður jafn fjárfrekur og
um þriggja daga hátíð væri að
ræða, enda þótt aðeins sé tjald
að tii einnar nætur. Frek-
ar væri hægt að forsvara fjár-
austur tii þriggja daga hátíð-
ar en að fórna slíkum fjármun
um til eins dags drykkjufagn-
aðar. Hvert ætli verð veitinga
þyrfti að vera til þess að eins
dags velta gæti borgað allan
stofn- og reksturskostnað?
Það, sem skiptir þó mestu
máli er háskinn í umferðinni.
Liklegt mætti telja, að væri um
að ræða þriggja daga hátið, þá
dreifðist umferðin á fimm daga
— hátíðardagana þrjá, einn
dag fyrir setningu hátíðarinn-
ar og annan eftir hátíðarslit.
Margir myndu koma og vera
aðeins einn eða tvo daga. Þann
ig yrði umferðarþunginn jafn-
ari, ef dagamir væru fleiri.
Q Háskaleg umferð
Þar sem gert er ráð fyrir
eins dags hátíð, þá má gera ráð
fyrir þvi, að umferðaras-
inn verði meiri á styttri tírna.
Með þeirri akstursaðstöðu, sem
nú er fyrir hendi á leiðinni tii
Þingvalia — jafnvel þótt hún
yrði eitthvað endurbætt —
myndi sl’ikt umferðarspan bjóða
heim óhugnanlegum fjölda um-
ferðarslysa — jafnvel dauða-
slysa. Hver vill bera ábyrgð á
siíku, þegar umferðarmenning
höfuðstaðarbúa er ekki meiri en
svo, að hádegisumferðin um
malbikaðar götur er að mestu
óviðráðanlegt vandamál, vegna
árekstra og siysa.
Að lokum má minna á, að há
tíðahöld hér í Reykjavík 17.
júní á undanfömum áram
hafa tekið á sig þann ómenn-
ingarbrag, að ráðamenn borg-
arinnar hafa haft i athugun að
efna ekki til siíkra hátíða-
halda, nema fimmta hvert ár.
Heldur „Reykvíkiingur“, að
sama fólkið iðki ekki sömu
drykkjusiði á Þingvallahá-
tíð og heima fyrir?
Sigurjón Sigurbjömsson.“
Velvakandi heldur nú bara,
að engan langi á þessa marg-
umræddu hátíð eftir allar þær
ferlegu lýsingar og hrakspár,
sem hampað hefur verið, þann-
ig að menn geti hreinlega spar
að sér áhyggjurnar.
Velvakandi sneri sér til tals-
manns þjóðhátiðamefndar,
vegna þessa bréfs, en hann
sagði að þjóðhátíðamefnd hefði
ekki áhuga á að svara slíkum
bréfum, enda er það þá frem-
ur ríkisstjórnarinnar að gera
það.
Velvakandi vill bæta við þetta,
að það gæti kannski glatt þess-
ar hrjáðu sáiir, sem svo mjög
óttast þjóðhátíðina og afleiðing
ar hennar, að Velvakandi hefur
frétt, að ekki eigi að stiga eitt
einasta dansspor á Þingvöllum
þennan eina dag, sem þjóðhá-
tíðin mun eiga að standa.
Varðandi það, að þjóðhátíð-
ina ætti fremur að halda i
Reykjavík en á Þingvöllum,
ÚTBOЮ
Tilboð óskast um sölu á 68.500 m af koparvír af ýmsum stærð-
um og gerðum, fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 7. júní nk.
klukkan 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
má benda á það, að höfuðborg-
in er alls ekki það sameiningar
tákn okkar, sem Þingvellir eru.
f öðra lagi má minna á það,
að i ráði er að haida þriggja
daga hátið í Reykjavik af sama
tilefni.
Að s’íðustu vili Velvakandi
mælast til þess að honurn verði
hlíft við þessari ósmekklegu sal
emadiilu, sem hefur stundum
virzt vera aðalatriðið í sam-
bandi við margnefnda hátíð.
Hver heyrðist til dæmis nefna
þetta óstjórnlega vandamál í
sambandi við alþingishátíðina
1930? Eða á hvaða stig er
fólk eiginlega að komast
þegar slikur plebeismi veður
uppi svo að segja átölulaust?
Nei, við eigum að sameinast
um að halda virðulega og okk-
uir samboðna hátíð árið 1974,
eins og ríkisstjórnin hefur nú
ákveðið að gera að viðhöfðu
samráði við alla þingflokkana.
Electrolux
ai
Frystikista
4IO Itr
W
Electrolux Frystiklsta TC 14S
410 Ktra, Frystigeta
28 kg á dag. Sjálfvirkur hítastill-
ir (Termostat). Öryggisljós með
aðvörunarblikki. Hraðfrystistill-
ing. Plata með stjórntökkum.
Lás á loki. Tvær körfur. Skilrúm.
Útbúnaður, sem fjarlægir vatn
úr frystihólfinu. Segullæsing.
Fjöður, sem heldur lokinu uppi.
Yörumarkaðurinn hf.
ARMÚLA 1A, SÍMI B6II2. ReVKJAVIK.
r