Morgunblaðið - 31.05.1973, Page 9
MORGUNKLAÐIÐ, FIMMTUOAGJR 31. MAl 1973
9
Bandaríkin og
Vestur-Evrópa í
breyttum heimi
Brandt kanslari og Nixon forseti. Mynd Jjessi var tekin í
heimsókn þess fyrmefnda til B andaríkjanna i vor.
Engimn vafi leikur á því, að
með ferðum sínum á síðasta ári
til Peking og Moskvu lagði
Nixon forseti grundvöllinn að
stórbættri sambúð Bandarikj-
annav ið kommúnistaríkin. Ár-
angurinn hefur ekki heldur lát
ið á sér standa. Friður er að
komast á í Vietnam og í Evr-
ópu hefur hættulegum deilu-
efnum fækkað mjög. Enda þótt
öllum sé ljós munurinn milli
hins frjálsa heims og kommún
istaríkjanna, þá rikir ekki
framar stríðsástand á mörkum
þeirra eins og stundum áður til
mikiis léttis öllum heimi.
En samtímis þessu hafa
vandamálin verið að safnast
fyrir í hinum frjálsa hluta
heims — innan NATO, milli
Bandaríkjanna og Vestur-Evr-
ópu annars vegar og miUl
Bandaríkjanna og Japans hins
vegar. Eftir sem áður hafa
Bandarikin augljósa forystu á
hemaðarsviðinu. En efnahags-
léga hafa þau mátt láta undan
siga, bæði undan Efnahags-
bandalagi Evrópu (EBE) og
Jápan. Nú, þegar EBE hefur
verið fært út og nær til 9 landa
með um 250 millj. íbúum, kem-
ur þetta enn betur fram en áð-
ur.
Þannig duldist það engum,
sem fylgdist með heimsókn
Willy Brandts, kanslara Vest-
ur-Þýzkalamds og Walter
Scheels utanrikisráðherra tii
Bandarikjanna nú í maibyrj-
un, að mi'kil breyting er á orð-
in. KanslariTtn hyggst vinna að
þvi að gera Vestur-Evrópu að
óháðum bandamanni Banda-
ríkjanna. Samt eiga Vestur-
t»jóðverjar sennilega meir und-
ir Bandaríkjunum komið á
hemaðarsviðinu en nokkur
önnur þjóð í Vestur-Evrópu. 1
V-t>ýzkalandi eru á þriðja
hundrað þúsund bandarískra
hermanna og vera þeirra þar
hefur verið homsteinn stefnu
stjómar Brandts í öryggis- og
utanrikismálum jafnt sem fyrri
ríkisstjóma V-Þýzkalands.
Yrði ráðizt á V-Þýzkaland úr
austri, væri samtimis verið að
ráðast á Bandaríkiin. Vera
bandaríska hersins í V-Þýzka-
landi ásamt veru hers frá Bret
landi og Frakklandi hefur ver-
ið órækasta sönnun þess, að
árás á eitt NATO-riki yrði
skoðuð sem árás á þau ölL
Þrátt fyrir þetta hafa undir-
tektir vesturþýzkra ráða-
manna undir ræðu Henrys
Kissingers um nýjan Atlants-
hafssáttmála verið mjög dræm-
ar og í yfirlýsimgunni, sem þeir
Nixon og Brandt birtu að lokn
um viðræðum sínum nú um
mánaðamótin síðustu, var ekki
minnzt á ræðu Ki'ssimgers einu
orði.
Ástæðan er vafalítið sú, að í
hugmyndum Kissingers um
framtíð NATO er að mati vest-
ur-þýzkra ráðamanna sem
þeirra frönsku enn gert ráð fyr
ir of miklu forystuhlutverki
Bandarikjanna iinnan banda
lagsins. Ræðu Kissingers var
hvergi fagnað nema í Bretlandi
og það vakti að nýju þær skoð
anir í Frakklandi, að samband-
ið milli Bandarikjanma og Bret
lands sé enn of náið eins og
verið hefur frá fomu fari, til
þess að unnt verði að líta á
Bretland sem óháðan aðila inn-
an EBE gagnvart Bandarikjun
um. Þannig er eins víst, að til-
lögur Kissingers verði yfirleitt
ekki til meðferðar á fundi
þeirra Pompidous og Nixons I
Reykjavik nú. Frakkar líta ein
faldlega á þær sem einhliða til-
lögur Bandaríkjamanna bom-
ar fram með bandaríska hags-
muni fyrir augum og sem slík-
ar geti þær ekki verið grund-
völlur fyrir sameiginlegar fram
tíðaráætlanir NATO.
Það er þó eimkum tvennt,
sem Bandarikjamenn eiga eftir
að leggja áherzlu á gagnvart
bandamönnum sinum í Evrópu
og þeim síðamefndu verður
ótækt að daufheyrast við. 1
fyrsta lagi geta Bandarikja
menn með rétti krafizt þess, að
þjóðir Vestur-Evrópu, einkum
Vestur-Þjóðverjar,- taki miklu
meiri þátt en áður i kostnaðin-
um af Veru bandarísks herliðs
í Evrópu. Erfiðleikar Banda-
ríkjanna i gjaldeyrismálum
stafa ekki sizt af stórfelldum
kostnaði þeirra við að halda
uppi fjölmennu herliði erlend-
is. Utgjöld þeirra af þessum
sökum renna i ríkum mæli í
vasa þeirra landa, þar sem
bandarískt herlið dvelst. Enda
þótt tekið hafi verið tillit til
þessa I mun meira mælá á und-
anfömum ámm en áður svo
sem í Vestur-Þýzkalandi, þá er
því eftir sem áður þannig far
ið, að þama er um stórfelldan
fjárhagslegan bagga at ræða
fyrir Bandarikin, sem svo
Evrópulöndin hafa hagnazt á.
í öðru lagi hafa Bandaríkja-
menn gert sér grein fyrir þvi,
að tollverndarstefna Efnahags
bandaíagsins kann að valda
miklum erfiðleikum í framtíð-
inni og verða til þess að spilla
sambúð Bandaríkjanna og að-
ildarianda EBE ef ekki næst
nýtt samkomulag um tollamál-
in. Bandarikjamenn, sem hald-
ið hafa mörkuðum sínum opn-
um fyrir aðiildariöndum EBE,
geta ekki sætt ság við það til
lengdar, að þeim verði meinað-
ur aðgangur að 250 millj.
manna markaði EBE með
vemdartollum eða á aninan
hátt.
Það era ekki hvað sízt Frakk
ar, sem lagt hafa mdkla áherzlu
á, að ýmis iðnaður og þó eink-
um landbúnaðurinn innan EBE
verði vemdaður með tollmúr-
um, sem framar öðrum
myndu bitna á Bandarikja
mönnum. Þama er sennidega að
fimna stærsta ásteytingarsteín
inn milld Bandaríkjamanna og
Frakka nú. Sjálfur hefur Nix-
on forseti lagt fram á Banda-
ríkjaþingi frumvarp, sem veit-
ir forsetanum víðtækt vald til
þess að hækka eða lækka tolla,
ef með þarf. Aðgerðir forset-
ans í þessu efni hafa hlotið góð
an hljómgrunn heima í Banda-
ríkjunum og víst er, að þeir
þingmenn eru þar margir sem
vilja láta beita innflutnings-
hömlum gagnvart þeim ríkjum,
sem beita tollmúrum tid þess að
útiloka bandarískar vörar.
Aðrir þættir stjórnmálaþró-
unarinnar í Evrópu, svo sem
austurstefna Willy Brandts
eiga naumast eftir að verða
deiluefni innan NATO. Mark-
mið Bandaríkjamanna, Frakka
og annarra þjóða NATO hefur
fyrst og fremst verið að halda
Rússum í skefjum. Endursam-
eining Þýzkalands hefur hins
vegar verið skoðað sem mál-
efni Þjóðverja sjálfra. Willy
Brandt hefur ekki látið af
hendi þumlung Iands í hepdur
kommúnistum, sem þeir ekki
réðu yfir áður. Hann hefur að-
eins viðurkennt staðreyndir
með austurstefnu sdnni og tek-
izt að draga að miklum mun
úr þeirri hættu, sem stafað hef
ur vegna Vestur-Berlínar í
deilum austurs og vesturs. Þess
ari þróun hafa Bandaríkja-
menn jafnt sem Frakkar séð
ástæðu til þess að fagna og
enda þótt skipting Þýzkalands
sé viðurkennd sem staðreynd
af Willy Brandt og þessi skipt-
ing landsins eigi eftir að verða
Þjóðverjum dapur veruleiki
um ófyrirsjáanlega framtíð, þá
er full ástæða til þess að ætla,
að Frakkar harmi þessa skipt-
ingu ekki. Yrði Þýzkaland sam
einað að nýju myndi það eflast
að mun og þjóðir Evrópu eru
löngu full saddar á Þýzkalandi
sem stórveldi.
Það er ekki í fyrsta s'nni nú
— með ræðu Kissingers — að
raddir heyrast um, að NATO
þurfi endurskoðunar og endur-
nýjunar við i breyttum heimi.
Þegar árið 1958 bar Charles de
Gaulle forseti fram þá skoðun,
að bandalagið sam ræmdist
ekki lengur i þáverandi mynd
sinni aðstæðunum í breyttum
heimi, frá því að bandlagið var
stofnað. Slíkar skoðanir hljóta
jafnan að koma upp með
breyttu mati og breyttum að-
sitæðum. En sameiginlegar lifs-
skoðanir og menningararfur
auk sameiginlegra hagsmuna í
fjölmörgu tilliti á vettvangi
stjórnmála, efnahagsmála og
hermála eru þó sá grundvöllur
sem vamarbandalagið NATO
var upphaflega stofnað á. Allt
þetta er enn til staðar sem
grundvöldur framtíðarsam-
starfs aðildarþjóða bandalags-
ins þrátt fyrir deiluefni, sem
kunna að koma upp milli
þeirra og valda á stundum
harkalegum árekstrum. Sam-
staða þessara þjóða er því jafn
raunhæf nú sem áður. Hversu
mikið, sem á miili þeirra kann
að bera, er hitt þó miklu meira,
sem þær eiga sameiginlegt. Það
er og verður grundvöllur sam
viinnu þeirra.
frá kr.
1973
TEKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-66 SfMI 42600 KÖPAVOGI
SÖIUUMBOD A AKUREYRI:
SKODAVERKSTÆÐIÐ KAIDBAKSG. 11 B SlMI 12520
M. Sig.