Morgunblaðið - 31.05.1973, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAl 1973
Fyrri heimsókn Nixons til íslands
ÞAÐ íór heldur litlð fyrir
fyrri heimsókn Nixoins núver-
andi forseta Bandaríkjanna tíl
Islands um jólin árið 1956. Nix-
on var þá varaforsetó og kom
hér við á heimieið frá Austur-
ríki, en þar hafði hann kynnt
sér aðbúð ungverskra flótta-
roanna. Uppreisnin í Ungverja-
iandi hafði verið bæld niður, og
flóttamannastraumurinn lá yfir
landamærin til Ausiturríkis.
Þetta var mál málanna um það
leyti, sem Nixon kom hingað,
og aðal umræðuefnið á fundi
hans með íslenzkum blaðamönn
um.
Flugvéi Nixons ienti á Kefla
víkurflugveili klukkan 3 siðdeg-
fs á Þorláksmessu í mitoili snjó
komu. Vegna fannfergis var
vélónnd ekið beint inn í flug-
skýli, og þar biðu varaforsetans
Guðmundur 1. Guðmundsson
þáverandi utanríkisráðherra og
fleird fulltrúar íslenzkra stjóm-
valda, John J. Muceio þáver-
andd ambassador Bandaríkj-
anna, og yfirmaður vamarliðs-
ins. Bandariskir hermenn og 'is-
lenzkir lögreglumenn mynduðu
svo heiðursvörð í skýlinu. Eftdr
stutta roóttökuathöfn var hald
ið af stað álei'ðis tii Bessastaða
í tíu bíla lest tíl fundar við Ás-
geir Ásgeirsson þáverandi for-
seta.
— Þegar för mín til Austur-
rikis var ákveðin, sagði Nixon,
sá ég að gert var ráð fyrir við-
komu á íslandi, svo ég spurð-
ist fyrir um hvort ég gæti ekki
notnð tækifærið tíl að hitta ís-
ienzka forráðamenn. Bauð for-
seti Islands mér þá að koma tíl
Bessastaða, þó viðdvölin gæti
því miður ekki orðið nema
stutt.
Ferðin frá Kefiavik til Bessa
staða tók Nixon fimm stundar-
fjórðunga, því færðin var þung
vegna snjókomunnar. Á Bessa-
stöðum beið Ásgeir Ásgeirs-
son forsetó gesta sinna og
kynn.ti þá fyrir þáverandi og
fyrrverandi ráðherrum og emb-
ættismönnum. Ræddi Nixon
þar stuttíega við íslenzka frétta
menn, en sat svo kvöidverðar-
boð forsetans áður en haidið
var á ný til Keflavíkur. Frá
Keflavík fór svo flugvél for-
setans kiukkan 9,30 um kvöldið
eftír 6V2 tíma dvöl á Islandi, og
heim tii Washington kom Nix-
on ária á aðfangadagsmorgun.
Frá fyrri heimsókn Nixons til Islands. Myndin er tekin á Bessastöðum. Frá v.: Bjarni Benedikts-
son, Hermann Jónasson, Dóra Þórhallsdóttir, Richard Nixon, Ásgeir Ásgeirsson, Ólafur Thors og
Guðmundur I. Guðmundsson.
ÞftÐ BEZTA
;
Höfðatúni 8
Símar 16740 og 38 900
HJOLBARÐAR