Morgunblaðið - 31.05.1973, Page 19
MORCU'NIBL AÐrO, FIMMTU'DAGWR 31. MAl 1973
19
Henry Kissinger:
Hann stendur nær forsetan-
um en nokkur annar maður
í desembermánuiSi árið 1968
sátu nokkrir útvaldir banda-
nisídjr stjórrnnálafréttariitarar
kvöldverðarboð I Jamaica
krárwii í Kay BLscayne i
Fkwida. Þar hittu þeir í fyrsta
sidpti hæglátan dimmraddaðan
rváunga, sem var ájjeklk-
ur tunnu í laginu en bann
hafði l>á ný*lega verið ráðinn
aðstoðarmaður Nixons, forseta.
líann var hægmæltur að venju,
þegar hann sagði þeim að han n
vildi uimfram allt torðast sviðs-
Ijósið og verjast fréttamönnum.
— Ég ætla mér ekki að verða
opinber málsvari einnar eða
neinnar stefniu, tala við frétta
menn, eða koma fram í sjón-
varpi þvi þá get ég ekkert
gagn gert sem trúnaðarráð-
gjafi. Síðan hefur varia liðið
sá dagur að Henry Kissingers
væri ekki getið í fyriirsögnum
blaða og fréttasendingum sjón-
varps og útvarps.
Hann hefur verið meira í
fréttum og á fleiri stöðum —
Washimgton, París, Peking,
Moskvu, Hollywood — en all-
ir aðrir aðstoðarmenn og allir
ráðherrar forsetans, tM samans.
Mangir hafa reynt að lýsa
majnninum Henry Kissinger og
kenningar þeirra eru oft ólík
ar. Konunni hans fyrrverandi
og bömunum tveim, fannist
hann vera stoltur og ástúðleg-
ur faðir. Unigir hæfMeikamenn
siem hættu störfum hjá honium
eftir skamma reynslu segja
hann surnir vera tortrygginn,
hrokafuUan og ráðrikan. Þeir
sem hafa haldið út að vimna
með homum, viðurkenna að
hairm sé ráðríkiur. En þeir
halda því fram að hann
hafi knúið þá til miklu meiri
afreka en þeir töldu sig fæm
um og þeir segja að hann hllfi
aldrei sjálfum sér.
HENBY KVENXAGUI I.
Tizkublaðamenn og slúður-
dálkahöfundar elska Kissinger
vegna hinma fjöimörgu „ástar-
aevinitýra“ ha.n,s. Það líður
varla sú vika að liann sjáist
ekki í fylgd með ein-
hverri • nýrri fegurðardís. En
,,;sambönd“ hans virðast alveg
laus við alvöru eða ástriðu, og
rauðsokkur eru víst ekki alltaf
hrifnar af ummælum Kissing-
ers um kynsystur þeirra.
— Konur eru mér aðeins
skemmtileg tómstundaiðja, á
hann að hafa sagt við ítölsku
blaðakonuna Oriana Fallaci.
Það hefur einnig verið haft eft
ir honum að hann kæri sig ekk
ert sérstaklega um að fara út
með gáfuðum konum: — Þegar
ég er búinn að sitja á löngum
fundi með Indiru Gandhi, er
engin afslöppun að fara út með
Goldu Meir.
„STRANGE
BEDFELEOWS"
En stjórnmálamaðurinn
Henry Kissinger er áreiðanlega
merkilegra rannsóknarefni en
kvennagullið Henry. 1 Banda-
rikjunum er til orðtak sem er
svo: „Politics makes strange
bedfellows“ með því er áfct við
að ólíkustu menn hittist
í stjómmálavafstrinu. Þetta á
vel við um þá Kissinger og
Nixon.
Forsetinn hefur leyft Kiiss-
inger að njóta meira frelsis en
öðrum undirmönnum sínum
vegna þess að hann treystir
honum betur en flestum mönn-
um öðrum. En mörgum gengur
erfiðlega að skilja ákvörðun
Konur eru skenuntileg tóm-
stundaiója, segir Kissinger.
Kissingers að starfa með for-
setanum.
Kissinger var prófessor við
Harwardháskóla áður eri hann
réðst til forsetans og Nixon hef
ur aldrei verið í hávegum hafð
ur í Harward, hvorki fyrr né
Siðar. Eftir að forsetinn sendi
herlið iinn í Kambódlu, komu'
nokkrir prófessorar, fyrrver-
andi samstarfsmenn Kissingers.
í heimsókn til hans i
Hvíta húsið til að mótmæla áð»
ild hans og biðja hann skýr-
Framhald á bls. 21
Eu það verður liklega lengur munað eftir honum sem stjóm-
málanianni en kvennamanni. Hér er hann ásamt Le Duc Tho,
aðalsamningamanni stjórnar N orður-Vietnams en Kissinger
átti stórkostlegan þátt í því a ð vopnalilé var loks samið.
Viö höfum nú tekiö í notkun nýja huröar-
verksmiöju aö Skeifunni 19, og getum því
boöiö yöur innihuröir á hagstæöu veröi
og meö stuttum afgreiöslufresti.
Fullkomnar vélar tryggja 1. flokks framleiöslu!
TIMBURVERZLUNIN VOLUNDUR HF.
KLSPPARSTÍG1 ©18430 - SKEIFM119 ® 85244