Morgunblaðið - 31.05.1973, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1973
OR ALI.
LÉTTIR, TRAUSTIR OG FRÁBÆRLEGA
ÖRUGGIR.
EGILL ARNASON,
Skeifunni 3,
símar 14310 og 20275.
— Henry,
Kissinger
Framhald af bls. 15.
ingar á hvemig í ósköpunum
hann gæti átt hlut að slíkum
aðgerðum.
!>að var stuttur fundur og
kuldalegur, eftir að prófessor-
amir höfðu neitað að leyfa hon
um að ræða við þá i trúnaði,
þ.e. að hafa ekki eftir honum
fyrir fjölmiðla, það sem hann
segði þeim. En Kissinger virt-
ist ekki taka þessa heimsókn
sérlega nærri sér.
KERFIÐ
En hversu ólíkir sem þeir
kunna að vera er hægt að slá
þvi föstu að forsetinn var mjög
heppinn að fá Kissinger í sína
þjónustu, það er löngu orðið
ljóst. Þegar Kissinger byrjaði
að starfa fyrir Nixon, áttu þeir
Edlavega eitt sameiginlegt:
þeir voru sannfærðir um nauð-
syn þess að endurskipuleggja
stjóm utanríkismála og búa til
kerfi til að samræma betur
ráðleggingar skrifstofubákns-
ins og treysta og styrkja
Stebbi er eins og hálfs, - og
matvandur. Stundum vill hann
ekkert borða á morgnana. Þó
neitar hann aidrei TROPICANA
appelsínusafa. það er eins og
hann Stebbi viti, að hver dl. af
TROPICANA appelsínusafa inni-
heldur nærri 40 mg. af C- vítamíni.
TROPICANA er líka alltaf
ferskur og góður. Stebbi fer sjálfur
í búðina með mömmu sinni til að
vera viss um að TROPICANA fernan
sé keypt úr kæli. Mamma athugar
um leið síðasta leyfilega söludag
TROPICANA fernunnar, sem er
greinilega stimplaður á umbúðirnar.
Hann Stebbi veit hvað hann
syngur. Það vita þeir hjá TROPICANA
líka: Eitt glas af TROPICANA jafn-
gildir nefnilega um það bil fimm
nýjum appeisínum að gæðum.
sólargeislinn
frá Florida
stefnuákvarðanlr forsetans og
gerð þeirra. Kissinger bjó til
kerfið sem Nixon vantaði.
ALLS STAÐAR MEÐ
HÖND I BAGGA
Kerfi Kissingers er of flók-
ið til að hægt sé að lýsa þvi
hér, en það er óhætt að full-
yrða að Kissinger stjómar þvi
ölu, eða kannski er réttara að
segja að hann drottni yfir
því.
Hann situr í forsæti á flest-
um mikilvægustu fundum sem
fulltrúar hinna ýmsiu ráðuneyta
halda til að finna grundvöll
fyrir samræmdum aðgerð-
um. Að þeim loknum gengur
hann á fund forsetans og legg
ur fyrir hann ráðleggingar og
meðmæli sem þar hafa komið
fram. Loks beinir hann svo end
anlegum fyrirmælum og ákvörð
unum forsetans í viðkomandi
málum, aftur til ráðuneytanna
og annarra stjómardeilda.
Kissinger stjómar einnig
starfsmönnum utanríkisþjón
ustu forsetams, úrvalsmönnum
sem samræma sjónarmið,
brjóta mál til mergjar og skil-
greina markmið og leiðir.
WATERGATE
Lengi framan af virtist
Henry Kissinger vera „ósnert-
anlegur" í sambandi við Water
gate málið. Fyrir nokkrum dög
um komu þó fram ásakanir um
að hann hefði fyrirskipað síma
Meranir hjá þeim sem eiga
sæti í þjóðaröryggiisráðinu.
New York Times hélt því svo
fram að hann hefði hótað að
segja af sér ef ásakanimar
yrðu til að draga úr völdum
hans og rýra þannig það gagn
sem forsetinn hefur af honum.
Hvita húsið hefur harðneit-
að að Kissinger hafi nokkum-
tima haft orð á að segja af sér
og einnig að hann sé á nokk-
um hátt viðriðinn Watergate.
Mörgum finnst það hafa verið
óhjákvæmilegt að nafn ráðgjaf
ans yrði nefnt í sambandi við
þetta mál, en það er bent á
að engar sannanir eða rök liggi
fyrir að hann eigi hlut að máli.
Ástandið er þannig í Washing-
ton núna að embættismenn bíða
skelfingu lostnir eftir að nafn
þeirra verði svo mikið sem
nefnt þegar fjallað er um Wat-
ergate í fjölmiðlum. Það eitt er
nóg til að stimpla þá.
AFMÆLI
Henry Kissinger varð fimm-
tugur síðastliðinn sunnudag.
Hann fæddist 27. maí 1923 í
bænum Furth í Franken,
skamrnt frá Niimberg. Foreldr-
ar hans voru virðuleg Gyðinga
hjón, miðstéttarfólk. 1 bemsku
lifði hann niðurlægingu Weim-
arlýðveldisins og uppgang nas
ista. Kissinger og yngri bróð-
ir hans, Walther, voru neydd-
ir til að sækja skóla sem ein-
Sumarblóm
í miklu úrvali. — Blómstrandi stjúpur og bellisar. —
Einnig dahlíur, begoníur, petúníur (tóbakshorn) o. fl.
GRÓÐRARSTUÐIN BIRKIHLlÐ,
Nýbýlavegi 7, Kópavogi,
sími 41881.
Orlof húsmæðro í Reykjavík
verður að Laugum í Dalasýslu
Rétt til orlofsins hefur hver sú kona, sem veitir eða
hefur veitt heimili forstöðu á launagreiðslu fyrir
það starf, á hvaða aldri sem hún er.
Hver hópferð tekur 9 daga og verður farið sem
hér segir:
1. orlofsdvöl verður 21.
2. orlofsdvöl verður 29.
3. orlofsdvöl verður 7.
4. orlofsdvöl verður 15.
5. orlofsdvöl verður 23.
6. orlofsdvöl verður 31.
7. orlofsdvöl verður 8.
8. orlofsdvöl verður 16.
9. orlofsdvöl verður 24.
júní — 29. júní
júní — 7. júlí
júlí — 15. júlí
júlí — 23. júlí
júlí — 31. júlí
júlí — 8. ágúst
ágúst — 16. ágúst
ágúst — 24. ágúst
ágúst — 1. september
Umsóknum til Orlofsnefndar húsmæðra í Reykja-
vík er veitt móttaka frá 1. júní alla daga kl. 3—6
að Traðarkotssundi 6, sími 12617.
Sú kona, sem sótt hefur orlof húsmæðra áður, á
fullan rétt til umsóknar, en hver sú, sem eigi hefur
áður sótt orlofið, gengur fyrir, verði ekki hægt að
sinna öllum umsóknum.
Orlofsnefndin í Reykjavík býður reykvískar hús-
mæður velkomnar að Laugum.
Barnaheimili verður rekið á vegum nefndarinnar
í Saltvík á Kjalarnesi í ágústmánuði. Þetta er nýr
þáttur í starfseminni, sem yngri konur væntanlega
notfæra sér. Allar upplýsingar á skrifstofunni að
Traðarkotssundi 6.