Morgunblaðið - 19.06.1973, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 19TÖ
M j! níi.iLin,i \
Jtalur;'
® 22-0-22-
RAUDARÁRSTÍG 31
BILALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
1 iá 25555
mfíiFim
BILALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
AV/S
_____SIMI 24460
LAUGAVEGI 66
BÍLALEIGAN
^51
51EYSIR
\>.--- CAR RENTAL
HÚPFERÐIR
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir 8—50 farþega bílar.
KJARTAN INGIMARSSON,
sími 86155 og 32716.
FERÐABÍLAR HF.
Bílaleiga. - Sími 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
F.mm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
nucLVsmcRR
^S*-»22480
Enn hrina í
sameiningarátt!
Sameiningarmál svonefndra
vinstri flokka hafa verið
döfinni í nokkur ár. Mikið hef
ur verið skrifað og- oft f.jálg-
iega um nýja sameinaða og
samhenta vinstri fylkingu.
Allt þetta tal um vinstri sam-
einingu hefur þó reynzt vera
orðin tóm. Engin merki eru
þess sjáanleg, er benda til
þess að orðagjálfrið hafi bor-
ið nokkurn árangui- Miklu
fremur hefur sundurþykkjan
dafnað og flokkar og flokks-
brot virðast heldur fjarlægj-
ast hvert annað en hitt.
Samtök frjálslyndra og
vinstri manna voru stofnuð á
sínum tima í því skyni að sam
eina vinstri öfiin í landinu;
það var hin háleitasta hug-
sjón. Nú liefur þessi stjórn-
málaflokkur verið klofinn i
a.m.k. tvær stjáðandi fylking-
ar til þess að sýna landslýðn-
um, hversu mikla áherzlu for-
ystumennirnir leggja á sam-
einingarhugs jónina!
Alþýðuflokkurinn átti
frumkvæði að svonefndum
sameiningarviðræðum þriggja
flokka fyrir nokkrum árum.
Fulltrúar þessara flokka
gátu þó aldrei komið allir sam
an á sameiningarfund. Kær-
leikurinn var ekki meiri en
svo, að aðeins tveir flokkar
gátu ræðzt við í senn. Vara-
formaður Aiþýðuflokksins
hefur nú gefið í skyn, að lít-
ill áhugi sé nú fyrir samein-
irigu meðal Alþýðufiokks-
manna. Og Framsóknarflokk-
urinn sem lét iíklega í fyrstu
hefur eftir tveggja ára
vinstra samstarf í ríkis-
stjórn, vísað þessum hug-
myndum til hliðar með öllu
að því er virðist.
Allt frá síðasta hausti hef-
ur þó sérstök sameiningar-
nefnd setið á rökstólunum og
undirbúið sameiningu Alþýðu
flokksins og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna. En
það er til marks um, hversu
sterk tök sameiningarhugsjón
in hefur haft á sameiningar-
nefndinni, að hluti hennar
gekk yfir í Framsóknarflokk-
inn fyrir skömmu.
Málum er nú svo komið, að
aðeins eitt flokksbrot heldur
enn opinberlega uppi há-
stemmdu orðagjáifri um
vinstri sameiningu, Samband
ungra framsóknarmanna. Ýms
ir þykjast þó sjá örla fyrir
því, að hugtakið sameining sé
smám saman að fá nýja merk-
ingu í röðum ungra fram-
sóknarmanna. Fannig er ekki
ólíklegt, að sumir forvígis-
menn þeirra samtaka telji
frama sínum nú orðið bezt
borgið með þvi að sameinast
hreiniega gamla afturhalds-
sama Framsóknarflokknum á
nýjan leik.
I»að virðist þvi ekki vera
víðs fjarri, að innan tíðar
hafi öll vinstri flokksbrotin
farið a.m.k. einn hring í sam-
einingarátt. Og e.t.v. rekuur
Hannibal aftur á fjörur AI-
þýðuflokksins. Svo geta hug-
sjónamennirnir miklu dundað
við það næsta áratuginn að
kenna hver öðrum um enda
lokin.
Það sýnir einkar glöggt,
hversu sundurleit fylking
vinstri öfiin eru, að um leið
og þau ná valdaaðstöðu,
renna allar hugmyndir og hug
sjónir um sameiningu og sam
starf út í sandinn. Fyrir kosn
ingar þykir henta að gefa
kjósendum til kynna, að sund
urlyndinu sé lokið, en eftir
kosningar gilda vélráðin.
AHRIF
ÞÁ ER nú myndlistarhúsið
komið í gagnið og allt í topp-
lagi nema veitíngarnar. Þar
vantar semsagt barinn. — Að
sjálfsögðu verða margir gest-
anna fyrir áhrifum af list
þeirri, sem blasa mun jafnan
við augum í þvísa húsi. En
sumum er, einsog allir vita
og Þíngeyingar manna bezt,
ekki gefinn sá streingur í sál
ina að geta hrifizt af list. Og
auðvitað heimta þeir sín
áhrif og eingar refjar. Hvað
er þá eilega handhægara en
verða sér úti um þær efna-
blöndur, sem hafa áhrif jafn-
vel á hinar sljóustu sálir,
sem öll listhrifníng er vlðs
fjarri?
Ef mönnum verður leyft
að sturta í sig sosum einum
nafna sínum, áður en listin
er leidd augum, er ekki að
efa, að lángt er náð í jafn-
réttisbaráttu mannkynsins:
Allir verða fyrir áhrifum,
sumir að visu kemískum, en
aðrir listrænum, og finnst
manni einkvurnveginn, að þá
megi allir vel við una.
Og ekki má gleyma því,
að áfengisdrykkja í myndlist
arhúsinu gæti rutt ýmsar
nýjar og frumlegar brautir
í lista- og menníngarmálum
Mörlandans. Það væri tilað
mynda ekki ónýtt að fá ný-
tízku bar i Þjóðminjasafnið,
og svo duggunarlítið öldur-
hús uppí Árbæ, svo menn
njóti nú sumarblíðu og sögu
stemmníngar á fullkominn
hátt. Ekki væri heldur ama-
legt, ef menn gætu reikað um
mátulega puntaðir i Hnit-
björgum og Ásgrímssafni.
— Svo gæti Mímisbar haft
útibú í Landsbókasafninu til
að sjá við ofvexti í heilaseli-
onum.
Og auðvitað feingi Nátt-
úrugripasafnið beina leiðslu
frá Hábæ og Klúbbnum til
að sýna svart á hvítu, að
hér existerar sosum gróandi
þjóðlíf, hvað sem kvur segir.
Popp-skýrslan
TRAFFIC
FORTÍÐ: Stofnuð . af
„undrabarninu“ Steve Win-
wood, eftir að hann hætti í
hljómsveit Spencer Davis
1967. Hann fékk í lið með
sér trommuleikarann Jim Cap
aidi og blásarann Ciiris Wood
og hafa þessir þrír verið
kjarni hljómsveitarinnar síð-
an — þótt Dave Mason, sem
upphaflega var rótari hljóm-
sveitarinnar, hafi byrjað og
hætt þrisvar sinnum sem gít
arleikari.
NÚTÍÐ: Síðasta útgáfa
hljómsveitarinnar var líklega
algjört lágmark á ferli henn-
ar, en núverandi útgáfa henn
ar — með þremur bandarísk-
um stúdíóhljóðfæraleikurum
og conga-Ieikaranum Rebop
— er hámarkið á ferli henn-
ar. Því miður kemur hljóm-
sveitin aðeins örsjaldan fram
opinberlega, sérstaklega í
Bretlandi.
FRAMTÍÐ: Það er ekki
ætlun Winwoods að halda
stöðugt úti hljómsveit, svo að
núverandi hljómsveit mun
væntanlega Ieggja upp laup-
ana að loknum þeim hljóm-
leikum, sem hún hefur þegar
gert samninga um. Varkárni
og hlédrægni umboðsmanns
hljómsveitarinnar, sem hefur
alltaf forðast augljósa „rán-
yrkju“ á hæfiieikum og per-
sónutöfrum Winwoods, er
það, sem mun halda hljóm-
sveitinni rólegri — en þetta
viðhorf leyfir hljómsveitinni
iíka að verja of miklum tima
í plötuupptökur og ókomnar
plötur hljómsveitarinnar ná
kannski aldrei aftur hinum
brennandi loforðum um stór-
kostlega framtíð, sem ein-
kenndu fyrstu ár hljómsveit-
arinnar. Kjarnahópurinn: Win
wood, Capaldi og Wood, mun
sennilega haldast saman að
eilífu.
Stjórnar Mafían
popplistamönnum?
Fyrir nokkru var hafin
rannsókn á tilraunum plötu-
fyrirtækja og iistamanna til
að múta plötusnúðum BBC tll
að kynna verk þeirra um-
fram önnur — og áttu plötu-
snúðarnir að hafa þegið að
launum peninga, gjafir, sól-
arstrandaferðir og þjónustu
vændiskvenna.
Um nokkurra mánaða
skeið hefur staðið yfir í
Bandaríkjunum rannsókn á
sams konar málum — nema
hvað þar er talið, að Mafían
standi á bak við múturnar.
Leikur grunur á, að Mafían
hafi náð tökum á hljómplötu-
fyrirtækjum — einkanlega
þeim, sem sérhæfa sig í
negratónlist — og einnig hafi
Mafían heljartak á ýmsum
listamönnum og taki skatt af
öllum þeirra tekjrnn. Ef þess-
ir listamenn hafa sýnt til-
burði til að hefja deilur við
plötufyrirtæki sín, t.d. til að
heimta meira kaup, hefur Maf
ían gjarnan pínt þá til að
halda sig á mottunni — því
að það er þó betra að lialda
við gildandi samningi en að
eiga kannski á hættu að
missa gjörsamlega tekjurnar
vegna samningsrofa. Þá hef-
ur Mafían gert talsvert af
því að múta plötusnúðum til
að leika réttar plötur — og
hefur borgað þeim á svipað-
an hátt og þeir í Bretlandi
hafa gert — en þó einnig með
fíkniefnum. Mun kókaín
vera vinsælast meðal plötu-
snúða þessar vikurnar.
★ Sarstedt-
bræðurnir
stofna tríó
Sarstedt-bræöurnir, Peter
Rick og Clive, hafa nú stofn-
að trió, en allir hafa þeir áður
skapað sér nafn einir sér' —
Peter naut vinsælda hér um
árið fyrir lag sitt „Where do
you go to my Iovely“; Rick
var einn af vinsælustu söngv
urum Bretlands fyrir 10 árum
eða svo, en gekk þá undir
nafninu Eden Kane og Ciive
var liðsmaður sænskrar rokk
hljómsveitar.
Þeir bræður hafa sent á
markað litla plötu, „Chinese
Restaurant", og innan tiðar
kemur á markað stór piata
undir nafninu „Wörlds apart
together" og hefur að geyma
lög frá fyrri velgengnisskeiði
bræðranna.