Morgunblaðið - 19.06.1973, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JUNl 1973
SAl BAI N Anne Piper: I Snemma í háttrinn
7
minni voru og fínni. Ég mátaði
þrisvar brúðarkjól, sem átti að
afgreiðast fljótt og vera rjóma-
gulur, afskaplega dýr. Ég sneri
mér undan meðan talað var um
verðið. Edward fór með okkur í
hádegisverð á hverjum degi.
— Góðan daginn, e'skan sagði
móðir hans. — Okkur hefur orð
ið vel ágengt í morgun. Jennifer
á að fá sex sett af nærfötum og
hitabeltishjálminn hef ég pantað
frá verzlun hersins. Hann verð
ur sendur beint ti:l Chipworth.
Edward setti upp áhyggjusvip
— Ég læt hana Jenny nú ekki
vera úti í sólinni með þetta við-
kvæma hörund sitt. Við þurfum
engan hjálm.
— Auðvitað verður hún að fá
hann, þó hún svo setji hann
aidrei upp.
1 fyrsta sinn fór ég nú að
hugsa um Indland eins og ein-
hvem fjarlægan möguleiika. Ég
reyndi að hugsa mér hvíta og
rjóða andlitið á Edward undir
hitabeltishjálmi.
— Og svo verður Jennifer
með liljur og brúðarmeyjamar
með rósir. Betsy og Delia, ógiftu
dætumar áttu að elta mig upp
að altarinu í gyllfum kjólum.
Sem betur fór voru krakkamir
hennar Rosemary ekki orðnir
ncgu stórir tii þess að flækja
sig í kjólslóðanum minum. En ég
hafði nú mikla ánægju aí öllum
þessum undirbúningi og nýju föt
in voru alveg dásamleg. Þarna
voru blágrá ferðaföt, sem ég dáð
ist mikið að, og svo átti ég að
vera í minkapelsinum mínum ut-
an yfir til að halda á mér hita.
Og á hverjum degi keypti Ed-
ward einhvem skartgrip handa
mér. Það var alveg furðulegt.
Aldrei fann hann nú uppá ein-
hverju fallegu orði til að láta
fylgja skartgripunum, heldur
ýtti þeim bara að mér og sagði.
— Héma er smáhlutur, sem ég
vona, að þér líki, og svo roðnaðd
hann meðan ég opnaði umbúðlrn
ar. Jaek hafði aldrei gefið mér
neitt nema teikningarnar og svo
eina leirkrukku frá Biarritz. En
hann gat talað!
Betsy vildi láta klippa á sér
hárið eins og ég hafði gert, og
var að nauða á móður sinni í
sífellu. Hún var ekki eins
hrædd við gömlu gribbuna og ég
var. Betsy var eins konar eftir-
málslamb og það hafði verið
dekrað mikið við hana. Samt var
hún nú enn með hárið, þegar við
héldum heimleiðis til Chipworth
og i nýrri blóðrauðri treyju, sem
henni fannst falleg en móður
hennar hreinasti hryllingur.
Edward fylgdi okkur á Padd-
ingtonstöðina, með klyfjar af
Tatler og sælgætispokum. Hann
sagði, að nú þegar ég hefði
kynnzt fjölskyldu hans í tíu
daga, væri allt í lagi þótt ég færi
ein með henni. En hann lofaði
að koma um hverja helgi.
— Hafðu engar áhyggjur, Ed-
ward, kallaði Betsy út um vagn-
gluggann. — Ég skal ekki láta
þau stóru kúska hana.
— Farðu strax inn úr glugg-
anum, Betsy og vertu ekki að
bulla svona vitleysu. Rautt nefið
á móður hennar skalf af hneyksl
un.
Chipworth var alveg jafn frá-
hrindandi nú og það var fyrir
tiu dögum. Aðeins voru gráu
steinarniir með gráasta móti, þar
sem garðurinn var nú alþakinn
hvítum snjó. Ég fékk fyrir hjart
að. Ég hafði reyndar steingleymt
að kaupa mér náttsokkana. Ég
vonaði bara, að ég gæti breitt
nýja minkapelsinn mlnn yfir
rúmið, án þess að nokkur tæki
eftir því.
Clark kom á móti okkur við
dyrnar og stiUti í sér tanna-
skjálftann eftir föngum (eða
kannski eru brytar alitaf í sér-
lega þykkum nærfötum)
í þýóingu
Páls Skúlasonar.
Enn var öll fjölskyldan að éta
smurt ristað brauð. George eftir
lét mér sætið sitt við arininn.
Þetta var nú göfugmannlegt af
honum, en þetta var viðareldur
og aðeins þeir, sem næst honum
sátu, gátu nokkum veginn hald
ið á sér hita. Móðir harns kom
striksandi inn og tók tekönnuna
af Rosemary, og sagði þeim síð-
an alla ferðasöguna, svo að ég
þurfti ekki annað að gera en
lega þykkum nærfötum).
George sagði: — Er Edward
hress? við mig og virtist þá vera
búinn að gera skyldu sina. Faðir
Edwards kom inn, seint og síðar
meir og tinaði með augunum tii
þess að sjá, hverjir þarna væru.
Það virtist gleðja hann, að ég
skyldi vera komin aftur, enda
þótt hann hefði alveg gleymt til
hvers ég hafði farið og þyrfti að
fá útskýringar á þvl öllu hjá
konu sinni. Annars var hann
elskulegasti kall, og mér fór
strax að þykja vænt um hann.
Hann var hægfara og meinlaus,
virtist vera lærður og gleyminn
var hann og svaraði á engan
hátt til hugmynda minna um lá-
varð — og öll fjöiskyldan virt-
ist líta meira eða minna niður á
hann, nema Betsy, og gerði sér
aidrei það ómak að tala við
hann nema í nauðsyn. Hann var
Svifflugkennsla
Svifflugkennsla er byrjuð á Sandskeiði.
Kennt verður öll kvöld og um helgar, þegar
veður leyfir.
Upplýsingar á staðnum og í símum 10278 á daginn
og 36590 á kvöldin.
SVIFFLUGFÉLAG (SLANDS.
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Þakkir til Breta
Brezka stjómin hefur af
miklum höfðiingsskap sent á
annan tug skipa okkur til vemd
ar, og stöðugt er verið að fjölga
skipum og endurbæta þennan
vamarflota, með því að senda
stærri og fulkomnari skip.
Þessi floti er að því leyti
starfshæfari en önnur vamar-
skip, að þau leita aldrei hafnar,
og eru þvi stöðugt á verði. Eng
in hvítasurmufrí eins og Danir
tóku sér við gæzlu Færeyja-
miða eru leyfð, og þess vegna
eru engin vandræði samfara
landlegum sjóliða, sem jafnan
eru i fréttum.
Bretar hafa þar að auki lagt
á siig að senda hinar ful'lkomn-
ustu leitarflugvélar, sem fyigj-
ast nákvæmlega með okkar
skipum, og þar er ekki slegið
slöku við eða verið að valsa á
jörðu niðri. Eitt vantar Breta
þó enn, en það er fullkomið
sjúkraskip, svo að ekki þurfi
daglega að skjóta á land sjúkl-
ingum. Þegar þetta skip kemur
geta Islendingar væntanlega
fengið þar skjóta og góða að-
•hlynningu, en öllum er kunn-
ugt um læknaskort á útkjálkun
um.
Brezka flotaverndin heldur
togurum hennár hátignar á
mjög afmörkuðum svæðum,
sem er aðeins hluti af einu veiði
hól'fi. Þeir, sem vfflja brjótast
út úr herkvfnni er hótað öliu
ifflu, sbr. Everton. Enginn brezk
ur togari fær að veiða á frið-
aða svæðinu, þar sem 40 togar-
ar voru áður að drepa smáfisk,
og Islendingar gátu þegar í
stað leyst eitt varðskip frá
gæzlu og —nt Ægi í iskönnun.
Bretar hlupu undir bagga og
sendu Ægi tvö herskip tffl að-
stoðar við iskönnunina. Þegar
isinn þrengdi að tók herskipið
á sig höggið tffl þess að bjarga
Ægi. Ásiglingin á Árvakur gæti
m.a. stafað af þvi, að Bretar
eru ekki búnir að aðlaga sig
að almennum umferðairreglum,
t.d. aka afflir Evrópubúar á
hægri kanti en Bretar á þeim
vinstri og þar sem Bretar eru
miklir málamiðluna'rmenn ef
þeir fá að ráða öllu einir, þá
hefur skipstjórinn á Iriishman
valdð bffl beggja. Tveir nærstadd
ir brezkir togarar komu óðara
og studdu við bakið á Árvakri
og tóku á sig töluverða áhættu,
þar sem Árvakur er svo lítill
að varla er nægfflegt svigrúm
fyrir tvo togara að hiltta i aðra
hlið Árvakurs samitimis.
Á timum 15% niðurskurðar á
öllum sviðum m.a. á land-
græðslu (eftir vfflcu notkun
nýju landgræðsluflugvélarinnar
er verið að svipast eftir
geymsiu fyrir hana í næstu 50
vikur), þá verður Bretum seint
fullþökkuð öll fyrirhöfn, sem
þeir láta af hendi, án þess að
telja eftir eitt einasta pund.
Hér er um einstætt göfuglyndi
að ræða, sem hinir sínöldrandi
skattborgarar í Bretlandi
greiða af fúsum vfflja í okkar
þágu og brezku útgerðarhring-
anna. Aldrei hafa jafn margir
gredtt jafnmikið fyrir jafnfáa
og Bretar gera nú.
Skiili Ólafsson,
Klapparstig 10.“
0 Umhverfi
V esturbæ jarlaugarinnar
H. Th. B., sem er íbúi á Mel-
unum, skrifar:
,,Kæri VeHvakandi!
Nú á þessum björtu en svölu
vordögum, þegar gróðurinn á
enn í höggi við óblitt veðurfar-
ið, er fólik tekið að líta í kring
um sig í borginni og reyna að
hressa upp á gróðurinn í húsa-
görðum sínum, þannig að hann
geti orðið í samræmi við gróð-
ur á útivistarsvæðum og al-
menningsgörðum Reykjavíkur-
borgar. Þar er mér tjáð, að
löngum hafi verið myndarlega
á málum haldið. En útivisitar-
svæðin eru bara allt of fá í
borgarlandinu og hér i Vestur-
bænum alls engin, þegar frá
eru taldir gæzluvellir bama og
dagheimili með mjög takmörk-
uðu leikrými.
Sundlaug Vesturbæjar er hið
mesta þarfaþing og þar hafa
nýlega verið gerðar endurbæt-
ur. Hinn mikli og látlausi
straumur sundgesta, innlendra
sem erlendra, sannar áþreifan-
lega gildi laugarinnar og vin-
sældir. — Eirm er þó Ijóður á
þessu máli, og hann hreint
ekki svo Mtffll. Affltaf á mesta
annatímanum reynast bíla-
stæði laugarinnar of fá, svo
að sundlaugargestir neyðast
tffl að leggja bílum sínium í
nærliggjandi götur og valda
þar með íbúum þeirra veruleg-
uim óþægindium, auik þess sem
eðlileg umferð raskast.
0 Opið útivistarsvæði
Nú viffl svo vei tffl, að úr
þessu mætti bæta með Mtilli
fyrirhöfn. Þarna milli sund-
laugarinnar og Hagamels er
autt svæði, sem að hluta mætti
nýta fyrir bílastæði. Vestan af
þessu svæði er dagheimfflið
Vesturborg með lítinn leik-
vang. Mætti auðveldlega
stækka hann með því að færa
girðinguna inn á þetta auða
svæði, sem þannig gæti komið
báðum þessum landlitlu þjón-
ustufyrirtækjum borgarinnar
að góðu gagni. Nú þyrfti ekki
á öfflu þessu landi að halda til
framanskráðra hluta og er þá
sjálfsagt að nýta afganginn
fyrir opið útivistarsvæði. Sá
mœtti í fokmoldina, sem nú er
þama öfflum til ama, brjóta nið
ur braggabotnana, sem þama
blasa við augum sundlaugar-
gesta og annarra, og eru til
lítifflar prýði. Þar mætti rækta
runna og tré tffl skjóls og
augnayndis, og koma fyrir
gangstigum og bekkjum til
þæginda fyrir þreytta vegfar-
endur.
Ég hef rætt þetta við marga,
sem búa á þessu svæði og
ljúka afflir upp einum munni
um brýna nauðsyn á skjótum
úrbótum.
Þar sem þessar lagfæringar
þyrftu ekki að verða kostnað-
arsamar, en hefðu þó ótvíræða
fegrun og gagnlega hagræð-
ingu í för með sér, viljum við
mega vænta þess, að garð-
yrkjustjóri og önnur þau stjóm
völd, sem þessi má! heyra und-
ir, bregðisit fljótt og vel við,
svo að sundlaugin og hennar
næsta nágrenni, geti verið
stolt okkar Vesturbæinga og
skipi verðugan og veglegan
sess meðal hinna ágætu mann-
virkja í borgarlandinu.
H. Th. B.“
Fyrst blessuð Vesturbæjar-
arsundlaugin er enn gerð að
umræðuefni í dálkum þessum,
vffll Velvakandi nota tæki-
færið og bæta dáliitlu við frá
eigin brjósti. Hann hefur nefni
lega sérstakt dálœti á þessari
stofnun og er þess vegna annt
um velferð hennar og gesta,
sem þangað venja komur sín-
ar.
Þvi hefur verið haldið fram
af dómbæru fólki, eins og tffl
daemis sálfræðingum, að litir í
umhverfi mannsins Skipti
miklu máli fyrir andlega vel'-
líðan hans.
I húsakynnum margnefindr-
ar heilsubótarstofnunar eru
allir veggir málaðir með kulda-
legum og hlutlausum litum. —
Væri nú ekki góð hugmynd að
velja hlýlega og örvandi liti
næst þegar málað verður?
Hafnarfjörður
Til sölu 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi á
góðum stað við Hringbraut ofan við Hamarinnj
skammt frá Flensborgarskóla. Útb. um kr. 1 milljón
og verð kr. 2,2 — 2,3 milljónir. Sérinngangur.
ÁRNI GUNNLAUGSSON HRL„
Austurgötu 10, Hafnarfirði, s. 50764.
Spor í rétta átt
KÓPAL í IWJUM CDG,
MARGFALT BETRI TONAUTUM
málnjng/j
MÁUUINO HC