Morgunblaðið - 14.07.1973, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. JÚU 1973
RAUDARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
BILALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
AV/5
SIMI 24460
BÍLALEIGAN
EY5IR
CAR RENTAL
í™1 TRAUSTI
ÞVERHOLT 15ATEL. 25780
SKODA EYÐIR MINNA.
SHODH
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
FERCABlLAR HF.
Bílaleiga. - S.'mi 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
Fimm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferðabilar (m. bílstjórum).
HVAÐ
UNGUR
EMUR GAMÁLL TEMUR
Q SAMVINNUBANKINN
STAKSTEINAR
Kynleg viðbrögð
Að undanförnu hafa orðiö
talsverðar umræður í blöðiun
um þá deilu, sem risið hefur
um upphæð og skiptingu skrá
setningarg.jalda við Háskóla
íslands. Fróðlegt er að fylgj-
ast með viðbrögðtun mennta-
málaráðherra við skrifum dag
biaðanna um þetta ágreinings
efni.
Dagblöðin Þjóðviljinn og
Tíminn hafa skrifað talsvert
um málið og birt talsvert ein
hliða frásagnir, þar sem dreg
in hefur verið taiimur eins
málsaðilans. Morgunblaðið
hefur á hinn bóginn reynt að
skýra frá staðreyndum máls-
ins og einstökum tillögum og
samþykktum í stúdentaráði
og háskólaráði og ákvörðun-
um menntamálaráðuneytisins,
án þess að leggja í fréttaskrif
um dóm á málsástæður ein-
stakra aðila, er þarna eiga
hiut að máli.
Athyglisvert er, að mennta
málaráðuneytið hefur látið
skrif Þjóðviljans og Tímans
athugasemdarlaust fram hjá
sér fara. En um leið og Morg
imblaðið skýrir á hlutlægan
hátt frá málsatvikum lætur
menntamálaráðherra einn af
deildarstjórum ráðuneytis
síns gera fyrir sína hönd og
eftir umboði sínu athuga-
semdir við fréttaskrif af því
tagi.
Morgunblaðið hefur enn
sem komið er ekki gagnrýnt
ákvörðun ráðherrans, heldur
aðeins skýrt frá gangi máls-
ins í ráðuneytinu og endan-
legri ákvörðim ráðherrans.
Móðursýkisleg viðbrögð Magn
úsar Torfa Ólafssonar við
hlutlægum fréttaskrifum um
þetta atriði, gætu á hinn bóg
inn gefið tál kynna, að hann
teldi sjálfan sig hafa eitthvað
óhreint í pokahorninu að því
er þetta mál snertir. Því verð
ur ekki trúað að óreyndu, að
Magnús Torfi þoii ekki hlut-
Iæg fréttaskrif um störf sin.
Þó að hann hafi á árum áður
verið ritstjóri Þjóðviljans, get
ur hann ekki i krafti ráðherra
dóms ætlazt til þess, að önn-
ur dagblöð tileinki sér þau
vinnubrögð, sem þar eru tiðk
uð.
Frjáls
samkeppni
Kristján J. Gunnarsson,
skólastjóri, ræðir í nýút-
komnum Stefni m.a. um kosti
og galla samkeppni i viðskipt
um; hann segir m.a.: „Þjóð-
félag, sem stefnir að útrým-
ingu samkeppni og jöfnun
kjara að því marld, að þeir,
sem eru fyrirvinnan bera það
sama úr býtum og ómagamir
(ef ekki minna), fær varla til
frambúðar mikinn afrakstur
úr þjóðarbúinu til að halda
þeim uppi, sem erfitt eiga
með að bjarga sér, enda vís-
ast að framfærslan aukist.
Þrátt fyrir þetta skyldu
menn ekki loka anguniim fyr
ir ágölltim samkeppninnar,
sem felur í sér þá þversögn,
að hún leitast við að útrýma
sjálfri sér með þeim hætti, að
hinn sterkasti verðl einráður.
Þess vegna verður hún að
hlita aðhaldi og semja sig að
þeiin leikreglum, sem lýðræð
isþjóðfélag setur.
1 atvinnulifi og viðskiptum
er heilbrigð samkeppni innan
þeirra takmarka, sem ai-
mannaheill setur henni, nauð
synleg og líkleg til að tryggja
meiri hagkvæmni en nokkurt
annað rekstrarform. Jafn-
framt verður að reisa skorður
við, að hringamyndun eigi sér
stað eða að hagsmunasamtök
samkeppnisaðila innan sömu
greinar geri samkeppnina
meiri í orði en á borði. Til að
hamla gegn því eru mismun-
andi rekstrarform æskileg
hlið við hlið, eins og t.d. einka
rekstur og samvinnufélög,
enda komi til jafnrétti um
starfsgrundvöU."
GOSBRUNNAR OG
noröanAttin
Hvers vegna er ekki meira
um það, að settir séu upp
gosbrunnar og annað þvíum-
líkt í almenningsgörðum
Þessi spurning er mjög al-
geng og reyndar eðlileg.
Fólk, sem sækir önnur lönd
heim, saknar þess að geta
ekki notið skemmtilegheit-
anna, sem það hefur kjmnzt i
erlendum almenningsgörðum.
Fæst'r gera sér hins vegar
fulla grein fyrir því, að
þótt við ættum hér gosbrunna
í hverjum garði, þá væru
áhrifin frá þeim allt önnUr en
í erlendum görðum Gos-
brunnar eiga fyrst og fremst
rétt á sér þar sem ríkjandi
eru miklir sumarhitar og kyrr
lát veður. Þar verka þeir kæl-
andi og sem andsvar við
lognkyrrðinni. Allar tilraunir.
sem hér hafa verið gerðar
með gosbrunna ti’l augnaynd-
is hafa mistekizt. Hér blása
þrálátir vindar og feykja
vatnsbununnd langt út fyrir
þau mörk, sem eðlileg voru
talin, þegar brunnskálin var
ákveðin. AMit næsta nágrenni
verður fljótlega að svaði,
vegna vatnsúðans. I>ar við
bætist svo, að sumrin okkar
eru stutt og svöl, og vatas-
úðinn frá gosbrunninum
eykur á hryssinginn í veðr-
inu.
Vel má vera, að það dragi
nokkuð úr almennum áhuga
okkar fyrir gosbrunnum, að
við búum í landi, þar sem
raunverulegir gosbrunnar eru
fyrir hendi úti í náttúrunni
og gervihrunnar þola þar
engan samanburð. Við búum
einnig í návist við ólgandi
haf og dynjandi fossa. Lítil-
fjörlegár eftirlíkingar verða
því aldrei hinar sömu í okkar
augum, ef við eigum að hafa
þær til langframa í næsta
umhverfi okkar. Aðeins eftir-
öpun og prjál. Gaman að
njóta þess í sumri og sól
á veitiingastöðum sunnar í álf-
unni, en til ama þegar á reyn-
ir, ef við hyggjumst flytja
stemmnin'giuna hingað heim
vitanidi, að hér er norðan-
vindurinn ríkjandi og fá kvöld
á sumri sem hægt væri að
súpa úr kaffibolia utan dyra,
hvað þá svalandi drykk. Gos-
brunnar eru alldýr marm-
virki og við getum gert margt
áhrifameira fyrir umhverfið
fyrir það fjármagn sem færi
til að koma gosbrunnum upp.
Miklu eðlilegra væri að út-
búa lækjarbunur og smáar
tjarnir, svo eitthvað sé nefnt.
En sannleilkurinn er þó sá, að,
jafnvel þó að við gætum gert
miklu meira etn við gerum til
að fegra umhverfi okkar, þá
höfum við ennþá miklu minni
áhuga á því en eðlillegt getur
talizt. Allt sem er utan dyra
teljum við ennþá mun minna
virði en það sem er innan
veggja. Ræktun lóðar er dýr
í okkar augum, af kostnaður-
inn verður meiri en setn
svarar andvirði gólfteppa á
stofur og gainga. Við erum
alimennt mjög vanþroskuð í
allri siðmenningu, eftir að út
fyrir hýbýli okkar er komið.
Innan húss væri sá talinn
argasti sóði, sem spýtti á
gólfið, en sá himn samá mætti
losa sig við hvers konar drasl
á götum úti, án þess að hljóta
vanvirðu af. Guð einn veit
hvemig hér væri umhorfis
á okkar landi, ef ekki væru
tíðar riigningar og norðanábt.
PELICAN
tekur flugið
— Pétur Kristjánsson, söngvari
hljómsveitarinnar, yfirheyrður
• PELICAN
Hvers vegna Pelikan?
„Þetta er alþjóðlegt nafn
og heppilegra en íslenzkt. Við
áttum alltaf i erfiðleikum
með Svanfríðar-nafnið úti á
velli (Keflavíkurflugvelli) og
úr því varð t. d. Scanfríður
eða Swan Freak. Nafnið Peli-
can er líka gott á erlendum
markaði. Við höfum náð í
þýzkan kontakt og ætlum
okkur að reyna að gera eitt-
hvað meira í því máli.“
Nú?
„Já, við sendum einar 20
Svanfríðar-piötur til ýmissa
aðila erlendis fyrir nokkru og
höfum fengið tvö góð svör.
Annað frá danska útvarpinu,
sem vill fá fleiri eintök af
plötunni til að geta látið
plötusnúða sína fá tii nota í
þáttum. Hitt frá þýzku um-
boðsfyrirtæki, sem lýsir
áhuga á að gera sumninga
við plötufyrirtæki um útgáfu
á plötunni í Þýzkalandi og
Hollandi.“
Ætlar Pelican að spila
mikið á vellinum?
„Já, það er ágætt að spila
þar og við vonumst til að fá
sæmilega mikið að gera
þar. Hijómsveitirnar Náttúra,
Svanfríður og Ástarkveðja
voru, ásamt Brimkló, vinsæl-
iistu hljómsveitirnar á vellin-
um og samtals höfðu N, S
og Á 16 jobb þar í síðasta
mnnuði. Pelican kemur í stað
Jxíirra þriggja og ætti því að
hafa möguleika.“
En eiga íslendinga að mæta
afgangi?
„Nei, alls ekki. Við byrj-
um í Tónabæ á föstudag (í
gærkvöldi) og verðum að
Hlégarði á laugardag."
Og þá er rétt að nefna liðs-
menn hljómsveitarinnar.
„Já. Úr Svanfríði komum
við Gunnar (Hermannsson,
bassaleikari). Úr Náttúru
kemur Bjöggi (Gíslason, gít-
arleikari). Og úr Ástarkveðju
koma Ómar (Óskarsson, git-
arleikari) og Ásgeir (Óskars-
son, trommuleikari). Þeir
Ómar og Ásgeir eru þó ekki
bræður.“
Og leggjast hinar hljóm-
sveitirnar þá niður?
„Já, ekki býst ég við öðru.
Biggi og Siggi (úr Svanfríði)
fóru út með Magnúsi og Jó-
hanni og verða liðsmenn
Change. Kalli (Sighvats í
Náttúru) er hættur og Siggi
mágur (Árnason í Náttúru)
er farinn í söluferð út á land.
Og ég geri ekki ráð fyrir,
að Ástarkveðja haldi áfram.“
Hvemig tónlist verður
hljómsveitin með?
„Æ, blessaður slcpptu því.
Mér finnst það alltaf svo
hallærislegt, þegar verið er
að reyna að lýsa slíku. Mena
verða bara að kanna það
sjálfir.“
Er iangt síðan ákvörðun
var tekin um að stofna Peli-
can?
„Hálfur mánuður. Við höf-
um æft síðan hvert einasta
kvöld frá 7 tii 12.“
Nokkuð á stefnuskránni?
„Við förum kannski í plötu
í haust. Ómar á heilmikið af
lögum og Bjöggi semur líka.“
Hvernig gekk annars Svan-
friðarpaltan?
„Vel. f’.g á eftir heima um
200 plötur af 2000, svo að
1800 hafa selzt vel. Hún
stendur alveg undir sér.“
En enginn gróði?
„Nei, það er svo mikil
vinna í þessu. En það hefur
verið mjög gaman að því.“