Morgunblaðið - 14.11.1973, Síða 3

Morgunblaðið - 14.11.1973, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1973 3 15 frímerki væntanleg á næsta ári í FRÉTT frá Póst- og sfmamála- stjórninni segir, að á næsta ári komi út a.m.k. 15 frímerki. 11 merkjanna eru gefin út í tilefni 1100 ára afmælis Islandsbyggðar, tvö eru Evrópufrfmerki, og eitt verður gefið út á aldarafmæli Al- þjóðapóstsambandsins. Við gerð þjóðhátfðarfrfmerkj- anna hefur verið farið eftir tillög- um Þjóðhátfðarnefndar 1974. Höfða frfmerkin hvert um sig til ákveðins tfmabils f tslandssög- unni. Um val á myndefni var f upp hafi ákveðið að leita til forstöðu- manns Listasafns Islands, dr. Selmu Jónsdóttur, og að hennar frumkvæði var síð- an leitað samstarfs við list- málarana og safnráðsmeðlim- ina Jóhannes Jóhannesson og Steinþór Sigurðsson, um að finna myndefni, er f senn tengdist ákveðnu tfmabili tslandssögunnar og uppfyllti ströngustu listrænar kröfur og hentaði til notkunar á frfmerkj- um. Eru tillögur þeirra nú ýmist til athugunar hjá frímerkjaút- gáfunefnd eða sérfræðilegrar úr- vinnslu hjá frímerkjaverk- smiðju. Ætlunin er að gefa frímerkin út f þrennu lagi, væntanlega f marz, júnf og júlf. Evrópufrfmerkin verðagefin út f tveimur verðgildum um mánaðamótin aprfl—maf, og á stofndegi Alþjóðapóstsambands- ins, 9. október, verður gefið út frfmerki í tveimur verðgildum f tilefni aldarafmælis sambands- ins. Evrópumerkið verður með nokkru öðru sniði en áður hefur tfðkast. Nú verður myndefni merkjanna sótt f eina og sömu listgreinina, höggmyndalist. Hvert land mun velja eigið mynd- efni úr nefndri listgrein. Fyrir stuttu hófust framkvæmdir við búningsklefabyggingu við Sundlaug Vesturbæjar. Búnings- klefarnir þar eru löngu orðnir of litlir, og eftir myndinni að dæma mætti hatda, að börnin biðu spennt eftir nýju búningsklefunum. Ljósm. Mbl.: ÖLK.M. FOSTUREYÐINGAFRUM VARPIÐ LAGT FRAM „Hafíð bláa hafíð” í síðasta sinn Sfðasta sýningin á leikritinu „Hafið bláa hafið“ f Þjóðleik- húsinu verður á fimmtudags- kvöld, 15. nóv. Höfundur leiksins, Georges Schéhadé, er frá Libanon. Hann hefur á löngum æviferli skrifað mörg leikhúsverk, sem öðlast hafa miklar vinsældir, m.a. Söguna af Vasca. FRAM var lagt á Alþingi s.l. mánudag stjórnarfrumvarp til laga um ráðgjöf og fræðslu varð- andi kynlff og barneignir og um fóstureyðingar og ðfrjósemisað- gerðir. Eins og fram. hefur komið í fréttum er frumvarp þetta samið af nefnd, sem til þess var skapuð 5. marz 1970. I nefndinni áttu sæti í upphafi: Pétur H. J. Jakobsson prófessor, for- maður, Tómas Helgason prófessor og Sigurður Samúels- son prófessor. Sigurður Samúelsson óskaði síðar að verða leystur frá störfum í nefndinni og tók þá við af honum Guðrún Er- lendsdóttir hæstaréttarlögmaður. Sfðar tók einnig Vilborg Harðar- dóttir blaðamaður sæti i nefnd- inni. Ritari nefndarinnar var Svava Stefánsdóttir félagsráð- gjafi. I frumvarpi þessu er gert ráð Gullf axi fór tvær ferðir til Kairó GULLFAXI, Boeing 727 þota Flugfélags tslands, hefur verið í leiguflugi fyrir Sameinuðu þjóð- irnar síðustu daga. Hefur vélin flogið milli Evrópu og Kairó f Egyptalandi, en þetta flug er til- komið vegna vopnahlésins I Mið- austurlöndum. Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugfélagsins, sagði í gær, að Gullfaxi hefði haldið utan á laugardaginn, og tvær áhafnir hefðu farið með vélinni. Var flogið til Stokkhólms og haldið til Kairó með millilendingu í Vín, eftir að búið var að lesta vélina. Vélin var komin til Egyptalands kl. 23 á laugardagskvöldið, og var hún þar um nóttina. Á sunnudag- inn var haldið til Stokkhólms og þá flaug vélin beint, þar sem flug- vellir í Mið-Evrópu voru Iokaðir vegna þoku. Á mánudaginn flaug vélin svo beint frá Stokkhólmi á ný til Kairó. Kom vélin svo til Kaupmannahafnar f gærmorgun, og til Keflavíkur kom hún síð- degis í gær. fyrir allmiklum breytingum á nú- gildandi lögum um fóstureyðing- ar, m.a. á þá lund, að fóstureyð- Mjög gott skíðafæri í Hveradölum BEZTA skíðafæri er nú komiö f Hveradölum, og búast má við, að þeir verði margir, sem stunda sktðafþróttina þar næstu kvöld. Snjórinn f skíðabrekkunum f Hveradölum er bæði mikill og góður, „silkisnjór" eins og skfða- menn kalla hann. Ásgeir Eyjólfsson skíðakennari sér um skfðabrekkurnar í Hvera- dölum. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, að skiðalyft- an væri komin í gang og að brekk- urnaryrðu flóðlýstar á kvöldin. I sumar voru settar upp snjó- girðingar í brekkunni fyrir ofan Skíðaskálann i Hveradölum. Er sírax ljóst, að þær hafa komið að miklum notum, þvf ef þær væru ekki fyrir hendi, þá væri snjórinn ekki jafn mikill og raun ber vitni í Hveradölum. I Bláfjöllum er einnig kominn nokkur snjór, en skíðafæri er þar samt ekki reglulega gott enn, en verður vafalaust á næstu dögum. ingar skuli nú heimilaðar af fé- lagslegum ástæðum eingöngu. Leggur nefndin til, að endanlegur ákvörðunafréttur til að ákveða fóstureyðingu verði hjá konunni, ef engar læknisfræðilegar ástæð- ur mæla gegn aðgerð, enda séu ekki liðnar meira en 12 vikur af meðgöngutíma. Ýmis önnur nýmæli eru i frum- varpinu eins og fram hefur komið í fjölmiðlum að undanförnu. Atvinnu- lausum fjölgar UT ER komin atvinnuleysiskrá félagsmálaráðuneytisins fyrir október. Þar kemur í ljós, að atvinnulausum hefur fjölgað urn 30 f mánuðinum, ef miðað er við september. í Reykjavík eru nú skráð 50 manns atvinnulaus, en voru 13 f mánuðinum áður. Á Akranesi eru 50 manns atvinnulaus, og eru það allt konur. 37 manns eru nú at- vinnulaus á Siglufirði, en voru 66 í mánuðinum á undan, virðast því Siglfirðingar vera búnir að út- rýma að mestu því atvinnuleysi, sem þar hefur verið um árabil. Samtals eru atvinnulaus í kaup- stöðum landsins 139 manns. Enginn er skráður atvinnulaus í kauptúnum, sem hafa 1000 íbúa eða fleiri. En í kauptúnum, sem hafa færri en 1000 íbúa, eru 35 atvinnulausir. 44 krónur fyrir kílóið í Danmörku VERSTA verður er nú á miðum Norðursjávarbáta og er búið að vera í nokkra daga. Sfldarsölur hafa þvf verið fáar, en verðið sem fæst fvrir sfldina er hreint frá- bært og komst upp f 44.10 kr. ísl. f gær. Tveir bátar seldu í Hirtshals í gær fyrir samtals 1.8 millj. Þó að heildarsalan hafi ekki verið há, er ekki hægt að segja það sama um meðalverðið, sem var frá 39—44.10 kr. Bátarnir, sem seldu, voru Tálknfirðingur BA, sem seldi 484 kassa fyrir 734 þús. kr. og Dagfari ÞH, sem seldi 593 kassa fyrir 973 þús. kr. Hefðar- kettirnir jólamynd Teiknimyndasagna Hefðar- kettirnir, sem Mbl. byrjaði að birta sl. sunnudag, verður jóla- mynd í Gamla bíói. Myndin, eins og teikni- myndasagan, er gerð af Walt Disney. Hún kom á markaðinn árið 1970 og hefur verið sýnd víða um heim við miklar vin- sældir, enda þykja aðalpersón- urnar, kettirnir og húsmóðir þeirra, ákaflega skemmtilegar. Akveðið hefur verið, að teiknimyndasagan birtist dag- lega f Morgunblaðinu frá næsta fimmtudegi að telja, og á sunnudögum verða Hefðar- kettirnir á heilli síðu. Fjórum hjól- börðum stolið I VONZKUVEÐRINU á sunnu- dag var stolið fjórum nýlegum sumarhjólbörðum, sem lágu við bílskúrsdyr fyrir aftan fjölbýlis- hús nr. 13 við Bogahlíð. Lagði eigandinn þá þar um kl. 15 og fennti fljótlega yfir þá, en um kl. 22 voru þeir horfnir. Hjöl- barðarnir eru af gerðinni Bridge- stone H-78, á 15 þumlunga felgum, undan stórri ameriskri bifreið. Lézt af brunasárum HER birtist mynd af Jóni Júlfusi Magnússyni, Klettahlíð 12, Hvera- gerði, sem lézt f sjúkrahúsi á mánudagsmorgun af völdum brunasára, sem hann hlaut, er hann féll ofan f hver í Hveragerði á laugardagskvöldið. Hann var 17 ára gamall. Halldór Haraldsson fær góða dóma í Danmörku HALLDÖK Haraldsson píanó- leikari fær góða dóma í dönskum blöðum fyrir tónleika, sem hann hélt á dögunum í Konunglega danska tónlistar- skólanum. Tónleikar Halldórs voru hinir fyrstu í röð svokallaðra kynningartónleika, sem Menn- ingarsjóður Norðurlanda stendur fyrir. Ætlunin er, að einleikari frá einhverju Norðurlandanna fari á ári hverju i tónleikarferð til hinna Norðurlandanna og kynni fyrst og fremst tónlist frá heima- landi sinu. Halldór Haraldsson kynnti verk eftir Jón Leifs, Hafliða Hallgrímsson og Þorkel Sigur- björnsson, en lék einnig verk eftir Liszt, Messiaen, Debussy og Bartok. Information segir, að Halldór sé „frábær píanóleikari með ágæta tæknigáfu,“ og talar um „góða hljómskynjun hans, myndugleik og gagnmúsík- alskan flutning." Politiken segir, að Halldór sé bæði „vel heima og flutningur hans á tæknilega háu sviði"; hann berji hljóðfærið ekki til hlýðni, heldur sé vinur þess, og áhrifin séu þægilegog jákvæð. Um íslenzku tónlistina, sem Halldór Haraldsson flutti, segir tónlistargagnrýnandi Poli- tikens að hún sé „sérstæður taminn ofsi.“ Halldór Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.