Morgunblaðið - 14.11.1973, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÖVEMBER 1973
Fa
/7 «//- ! I.l lf. l V
AIAR,
22*0*22*
RAUOARÁRSTÍG 31
BIIALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
tel 14444*255551
BILALEIGA CAR RENTALI
/55 BÍLALEIGAN
^51EYSIR
CAR RENTAL
*24460
í HVERJUM BÍL
PIOIMŒGLR
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
JT
DM-raNrAL-
Hverfisgötu 18
86060
SKODA EYÐIR MINNA
Shodr
LE/GAN
AUÐBREKKU 44-46.
.. SIMI 42600.
III.'
ALFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
W SAMVINNUBANKINN
MARGFALOAR
JtIovrmtiI«Intijí)
MARGFALDAR
1111)11
2Bov^uní>I^ií>
MARGFALDAR
BHffií
Traust
stjórnarsamstarf
FYRIR nokkrum dögum komu
I sjónvarpssal Ólafur Jóhannes-
son forsætisráðherra og Lúðvfk
Jósepsson. Fréttamennirnir
spurðu þá heilmikið um þann
sjónleik, sem átt hefur sér stað
í kringum samningana við
Breta. Skemmtilegasta tilsvar-
ið átti forsætisráðherrann, en
hann glotti út í annað og sagði
að hann teldi að stjórnarsam-
starfið yrði eftir þessa atburði
traustara og betra en nokkru
sinni áður. Það eru fleiri en
Múnchhausen, sem komast að
draumórakenndum niðurstöð-
um. Lúðvfk Jósepsson hefur
fullyrt, að forsætisráðherra
hafi annað hvort vísvitandi eða
fyrir klaufaskap glutrað niður
stöðu þjóðarinnar í lífshags-
munamáiinu og þannig byrjar
hann svo að læða á hann svik-
arastimplinum. — Ólafur Jó-
hannesson hefur á hinn bóginn
neytt Lúðvfk til að sporðrenna
„svika-“, „undansláttar-“, „upp-
gjafar-“, og óaðgengilegum úr-
slitakosta samningum“. Og á
grundvelli þessa ætlar Ólafur
Jóhannesson að byggja traust-
ara og betra stjórnarsamstarf
en nokkru sinni.
Bjarni fyrrverandi
1 bók sinni Lög og réttur seg-
ir forsætisráðherra Ólafur Jó-
hannesson eitthvað á þá leið, að
það sé venja, að rfkisstjórn segi
af sér, þegar henni er ljóst, að
hún hefur ekki lengur tilskil-
inn meirihluta á bak við sig.
Hann getur þess og, að ríkis-
stjórninni sé auðviað rétt að
sitja fram að því, að vantraust-
tiííaga hafi verið samþykkt, en
hitt sé venjan. Auðvitað er
ljóst, að sú venja er þannig
tilkomin, að fyrri forsætisráð-
herrar hafa gert sér ljóst, að
rfkisstjórn, sem ekki nyti
stuðnings meirihluta þing-
manna mjög skaðleg fyrir allt
stjórnarfar.
Fyrir skömmu lýsti Bjarni
Guðnason þvf yfir, að hann
væri stjórnarandstæðingur f
efnahagsmálum, en styddi
rfkisstjórnina í landhelgis-
málinu og varnarmálunum.
Skömmu sfðar sagði hann í
sjónvarpi, að hann vantreysti
því, að ríkisstjórnin hygðist
standa við „loforð" sitt f mál-
efnasamnmgnum um vamar-
málin. Staðan er þessi, að
Bjarni er stjórnarandstæð-
ingur f efnahagsmálun, land-
helgismálinu, en hins vegar
vottar fyrir stuðningi hans f
varnarmálunum, meðan enn er
óvíst hvað rfkisstjórnin ætlast
fyrir í þeim efnum. Bjarni virð-
ist því vera orðinn svona að nfu
tíundu hlutum stjórnarand-
stæðingur, ogólafur Jóhannes-
son byggir þvf tilveru stjórnar
sinnar á 1/10 af dr. Bjarna
Guðnasyni fyrrverandi stjórn-
arþingmanni.
Danmörk á sinn Bjarna
Guðnason og fyrir nokkru
gleymdi hann gleraugunum
slnum heima, og var það nóg til
þess, að kollega Ólafs Jó-
hannessonar, Anker Jörgensen,
ákvað að efna til nýrra
kosninga. Hann vildi ekki láta
stjórnmálaástandið í Dan-
mörku velta á dyntum þessa
danska Bjarna Guðnasonar. En
á tslandi lætur forsætisráðherr-
ann það gott heita að stjórna
með tilstyrk tfunda hlutar
Bjarna Guðnasonar.
Meginprinsip Bjarna Guðna-
sonar er, að ríkisstjórnin standi
við málefnasamning sinn.
Bjarni Guðnason átti þátt I að
setja saman þá endaleysu og
heldur tryggð við hana af
barnslegri einfeldni, og er það
svo sem góðra gjalda vert. En
athyglisvert er, að fyrrverandi
félagar Bjarna, stjórnarsinn-
arnir, gera grfn að þingmannin-
um fyrir tryggðina við málefna-
samninginn. Þeir hafa nú, eins
og aðrir á undan þeim, séð, að
málefnasamningurinn er mark'-
laust bull, þar sem hvað gengur
á sveig við annað. En f ræðum
sfnum segja þeir með helgi-
svip, að stjórnin muni vinna að
málefnasamningnum eins og
hún hafi jafnan gert!! Munur-
inn á þeim Bjarna er: Þeir vita
betur, en segja ekki meiningu
sfna, en Bjami veit ekki betur,
en segir meiningu sfna. Og
kannski á eftir að rætast hér
sem áður, að sá hlær bezt, er
sfðast hlær.
spurt og svarad
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
Hringið f sfma 10100 kl.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biðjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
UM BJARGRAÐASJÓÐ
OG ÓVEÐURSTJÓNIÐ
Guðrún Snæbjörnsdóttir,
Hraunbæ 144, spyr:
Fá þeir, sem fyrir mestu tjóni
urðu í óveðrinu um daginn,
óendurkræfan styrk til upp-
byggingar í sama formi og Við-
lagasjóður veitir Vestmanna-
eyingum? Ef ekki, hvers
vegna?
Ákveðið hefur verið að þessir
aðilar fái lán. Það þarf allt að
endurgreiða. Hvernær yrði því
úthlutað?
Hvaða munur er á að standa
uppi eignalaus eftir ofsaveður
eða eldgos?
Stjórnunarkostnaður
Bjargráðasjóðs
Guðbjartur Cesilsson,
Grundafirði spyr:
Hver er stjórnunar- og skrif-
stofukostnaður Bjargráða-
sjóðs?
Magnús E. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Bjargráðasjóðs,
svarar:
Samkvæmt samþykki stjórn-
ar Bjargráðasjóðs 28. septem-
ber s.l. mun sjóðurinn veita
fyrirgreiðslu vegna tjóna af
völdum óveðurs 23. og 24.
september s.l. Fyrirgreiðsla
sjóðsins verður í þvi formi, að
sveitarfélögum verða veitt
vaxtalaus lán til að endurlána
þeim einstaklingum, sem urðu
fyrir meira tjóni en nemur kr.
50.000.00. Lánin endurgreiðast
með jöfnum afborgunum á
næstu 5 árum. Lánin eru miðuð
við ákveðinn hundraðshluta af
tjónum stighækkandi, þannig
að þeir, sem fyrir mestu tjóni
urðu, munu fá hlutfallslega
hæst lán.
Þessi fyrirgreiðsla er í sam-
ræmi við þá fyrirgreiðslu, sem
Bjargráðasjóður hefur veitt á
undanförnum árum vegna
tjóna af völdum náttúruham-
fara og í samræmi við lög
sjóðsins.
Umsóknir um lán vegna tjóna
af völdum óveðursins verða af-
greiddar, eftir því sem þær
berast sjóðnum, en þegar þetta
er ritað, 25. október, hafa
einungis fáar umsóknir borizt
frá sveitarfélögum.
Samkvæmt framrituðu er
fyrirgreiðsla Bjargráðasjóðs
vegna tjóna í öveðrinu 24.
september s.l. ekki i sama
formi og fyrir greiðsla Viðlaga-
sjóðs, sem starfar samkvæmt
sérstoku lögum og reglugerð-
um.
Ég tel að í sjálfu sér sé eng-
inn eðlismunur á þvi að standa
uppi eignarlaus annars vegar
vegna eldgoss og hins vegar
vegna ofsáveðurs, en vekja má
athygli á því, að ekki er
kunnugt um, að nokkur ein-
staklingur hafi — sem betur
fer — orðið eignalaus vegna
tjóns af völdum umrædds
óveðurs.
Stjórnunar- og skrifstofu-
kostnaður Bjargráðasjóðs árið
1972 varkr. 1.735.608.10.
Geta má þess til upplýsinga,
að heildartekjur Bjargráða-
sjóðs á þessu ári eru áætlaðar
um 30 millj. króna. Frá þeim
dragast, auk rekstrarkostnaðar,
vaxtagreiðslur um 10. millj. kr.
vegna lána, sem hann hefur
orðið að taka á undanförnum
árum vegna fyrirgreiðslu, sem
hann hefur veitt á undan-
förnum árum, aðallega vegna
tjóna í landbúnaðinum af völd-
um kals og óþurrka.
Að lokum má geta þess, að
samkvæmt skattalögum er tjón
af völdum náttúruhamfara frá-
dráttarbært frá tekjum tjón-
þola á tjónárinu. Þannig að
skattaskyldar tekjur lækka sem
tjóninu nemur.
Susie Bachmann, Langholts-
vegi 80, spyr:
Hvernig stendur á því, að
9—10 ára gamalt barn fær að
koma fram sem skemmti-
kraftur á Hótel Borg, sem er
vinveitingastaður?
Pétur Daníelsson, hótelstjóri,
svaraði þvi til, að hér væri um
að ræða dreng úr Hafnarfirði,
sem komið hefði nýlega og
sungið nokkur lög, og hefði
hann verið í fylgd með föður
sínum. Því má bæta við, að í
reglugerð laga um vernd barna
og ungmenna er kveðið svo á,
að börnum og unglingum innan
18 ára aldurs sé óheimill að-
gangur að vínveitningahúsum
og dvöl þar eftir kl. 20.00, nema
þau séu I fylgd með forráða-
manni, foreldrum eða maka.
Hin árlega firmakeppni Hins
íslenzka prentarafélags hófst
sl. sunnudag. Spilað er í sveita-
keppnisformi og voru 4 sveitir
skráðar til keppni. Urslit sl.
sunnudag:
Morgunblaðið —
Blaðaprent 20 — 0
Prsm. Hólar —
Þjóðviljinn 20 — 0 __
Keppt er um farandsskjöld,
sem vinnst til eignar, þegar
hann hefir verið unnin 5 sinn-
um eða þrisvar í röð. Þau
firmu. sem unnið hafa til
skjaldarins eru: Þjóðviljinn
1972 og Morgunblaðið 1971.
xxxxx
Hraðsveitakeppni TBK var
fram haldið sl. fimmtudag. Var
þá spiluð önnur umferð, og er
staðaefstu sveita nú þannig:
Kristínar Ólafsdóttur 1199
Antons Valgarðssonar 1165
Tryggva Gíslasonar 1156
Áma Pálssonar 1149
Braga Björnssonar 1138
Kristínar Þórðardóttur 1110
Zophoniasar Bene-
diktssonar 1110
Bernharðs
Guðmundssonar 1108
Sigríðar Ingibergsdóttur 1099
Arnars Isebarn 1093
Birgir Isleifssonar 1092
Bragá Jónssonar 1092
Keppnisstjtíri hjá TBK er
sem fyrr hinn síkáti Guðmund-
ur Kr. Sigurðsson.
xxxxx
Frá Bridgekiúbbi
Akraness.
Akranesi 10/11, ’73.
Nýlokið er 3ja kvölda tví-
menningskeppni, með þátttöku
20 para. Efstir urðu:
Guðjón Guðmundsson —
Hörður Pálsson 376
Hallgrímur Ámason —
Valur SigUrðsson 369
Bjarni Kristimannsson —
353
344
Guðmundur Bjarnason
Jón Alfreðsson —
Viktor Björnsson
Baldur Ölafsson —
Eirlkur Jónsson 343
Bent Jónsson —
Þráinn Sigurðsson 341
Hörður Jóhannesson —
Kjartan Guðmundsson 339
Guðni Eyjólfsson —
Olafur Guðjónsson 339
Meðalskor var 324 stig.
Fimmtudaginn 15. nóvember
hefst sveitakeppni, sem jafn-
framt verður úrtökumöt fyrir
Islandsmót.
A.G.R.