Morgunblaðið - 14.11.1973, Page 17

Morgunblaðið - 14.11.1973, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÖVEMBER 1973 17 Á SL. ÁRI hófst vísir að skóla fyrir fjölfatlaða, sem lögum sam- kvæmt eiga að hljóta kennslu, eins og aðrir. En fjölfötluð eru þau börn nefnd, sem eiga við fleiri en eina hömlun að strfða, eru kannski blind, heyrnarlaus, hreyfihömluð, andlega skert o.s.frv. En þegar blaðamaður Mbl. ætlaði nýlega að fara f heimsókn í skólann, sem í fyrra hóf starf f bráðabirgðahúsnæði í gamla Heyrnleysingjaskólahúsinu, var hann ekki þar, og raunar hvergi annars staðar. Börnin sex, sem byrjuð voru, höfðu til bráða- birgða verið send upp í Reykja- dal, þar sem skóli er fyrir lömuð börn. Og skólastjórinn, Bryndfs Vfglundsdóttir, sem er eini sér- fatlaða hér, er farin að kenna heilbrigðum börnum í Garða- hverfi. Þar fundum við hana og leituðum frétta af þessu skóla- máli. — Ég er bæði reið og sár, sagði Bryndís. Ég hefi lagt ‘talsvert á mig til að afla mér á eigin spýtur menntunur til þessara starfa er- lendis og ég held, að ég gæti kennt þessum illa stöddu börnum talsvert. Þegar könnun var gerð á stór-Reykjavíkursvæðinu, fund- ust 40 börn, sem ekki njóta kennslu annars staðar, en ættu að vera í slíkum skóla. Og á þessum fyrsta vetri fór ég að fá hringing ar frá foreldrum ann- ara, sem ekki voru með í þessari könnun, og nú hafa yngri börn bætzt við. Svo ég hugsa, að talan sé nær 70. En þetta hefur ekki verið rannsakað. A Islandi er í lögum, að allir eigi að fá kennslu. En kennslaog pöss- un eða geymsla er ekki það sama. Utan þessara sex, fær ekkert af þessum börnum neina kennslu nú. — Raunar finnst mér furðulegt ráðleysi að senda börnin upp í Reykjadal, þar sem enginn kenn- ari er á staðnum, sérmenntaður i kennslu og meðferð fiölfatlaðra, heldur Bryndís áfram. Þeir starfs kraftar, sem talað er um að séu fyrir hendi, eru þær ágætu fóstr- ur og einn kennari, sem störfuðu við skólann, sem ég stóð fyrir í fyrra. Þær fengu að visu ein- hverja tilsögn hjá mér, auk þess sem teymi sérfræðinga starfaði með okkur, en úti í heimi er fólk sent í háskóla til að læra kennslu og umönnun fjölfatlaðra. Eg ætla að vona, að menntamálaráðuneyt- ið geri á bragarbót og ætli ekki ófaglærðu fólki einu saman að annast kennslu og uppeldi fjöl- fatlaðra bama á Islandi. Ég húgsa, að heyrðist hljóð úr horni, ef einhver bygging uppi í sveit væri fyllt með veiku fólki, nafni komið á og húsið kallað sjúkra- hús, hvað sem liði menntuðu lækna- og hjúkrunarliði. Senni- lega myndi fólk hika, áður en það legðist inn á slíkt sjúkrahús eða sendi börnin sín þangað. Þegar Bryndís kom frá námi og sérþjálfun í einum bezta skóla af þessu tagi, Perkins Schoolforthe Blind í Boston fyrir rúmu ári, var hún ráðin af menntamálaráðu- neytinu til að byrja kennslu fyrir f jölfatlaða og var til bráðabirgða í húsnæði í gamla Heyrnleysingja- skólanum. Fastir nemendur voru sex, fjórir í heimavist. Eitt rúm var haft laust til að geta tekið fleiri á víxl. — Ég hafði kennt í heyrnleysingjaskólanum og vissi svo sem, hve óhentugt húsnæðið var, sagði Bryndfs. En ég vissi ekki, hve stórt vandamálið er, hve marga þarf að bera upp og niður stiga o.s.frv. Þau, sem áttu að vera í skólanum í vetur, þyrftu að vera í húsnæði á einni hæð, sem hjóla- stólar komast um eða i húsi með lyftu. Og þegar húsnæðismálið var óleyst í sumar og ég fékk engin svör við neinu — ekki hvort ég mætti ráða fólk, enga heimild til að kaupa svo mikið sem sér- staklega útbúinn stól fyrir barn, sem rennur fram úr venju- legum stól, ekkert nema munnleg svör um að þetta mundi allt lagast, þá skrifaði ég menntamálaráðherra bréf og sagði, að ég treysti mér ekki til að starfa við þessar aðstæður. Það bréf skrifaði ég 12. júní, en fékk ekkert svar. Svo ég sótti um venjulegt kennslustarf hér suður frá, því maður verður þó að vinna fyrir sér. — Mér finnst þetta þeim mun biturra, sagði Bryndís ennfremur, að nú veit ég um allan þennan barnahóp, sem ætti að vera í kennslu. Og mér f innst, að ég gæti kennt þeim þö nokkuð. Ekki svo að skilja, að mér finnist lítilfjör- legt að kenna heilbrigðum börn- um. Það er mér ótrúleg ánægja hvern dag að koma inn í bekk og geta talað við börnin, sem skilja mál mitt, eru opin fyrir öllu og njóta þess eins að vera lifandi. Mér finnst dásamlegt að fá að njóta þess með þeim. Eln við við- unandi aðstæður hefði ég viljað kenna fjölfötluðum. Satt að segja réð ég mig aðeins í hálft kennara- starf i vetur, til að geta verið til taks, ef ráðuneytið vildi nokkuð nýta sérþekkingu mfna. — Eg hefi orðið óþægilega vör við það hjá fólki, að við, sem höfum lært til og stundað sér- kennslu, hljótum að hafa miklar hugsjónir, sagði Bryndís m.a. í þessum umræðum. — Og að við munum því með gleði þola ýmsar þær starfsaðstæður, sem flokka má undir hreint siðleysi. Égsé nú ekki, af hverju við ættum að burðast með meiri hugsjónir en aðrar stéttir. Raunar tel ég, að kennslu afbrigðilegra hafi alltaf og sérstaklega áður fyrr verið haldið niðri vegna þess, að við sérkennslu hafa verið innan um menn, sem hafa skreytt sig með nafni hugsjóna. Ég álft hins vegar, að einasta hugsjón kennara eigi að vera sú, að hann vinni vel, vinni af trúmennsku við nemendur sína og sjálfan sig. Vinni kennari vel, þarf hann ekki að biðjast afsökunar á sjálfum sér í skjóli hugsjóna. Ég spyr Bryndísi nánar út í það, hvers vegna ekki var hægt að halda áfram uppbyggingu skólans fyrir fjölfatlaða í vetur. Hún seg- ir, að enn séu óleyst húsnæðis- vandræðin, en húsnæði það, sem kom til greina, stendur ónotað. Það er í húsi Blindrafélagsins i Hamrahlíð. Blindrafélagið vildi leggja það til með skil- yrðum, sem ráðuneytið þurfti að leysa. En það var ekki gert. Ekki var hægt að fá þá hluti, sem þurfti til skólans, og 28. marz sendi Bryndís beiðni og lista yfir fyrstu nauðsynlega hluti til ráðuneytisins, án þess að fá svar. Þá kvaðst hún þurfa heimild til að ráða f ólk til viðbótar. En því þurfti aukaheimild, að fjárhags- áætlun sú, sem var gerð fyrir skólann áður en hann tók til starfa, var um margt ófullkomin, enda nemendafjöldinn að hluta óráðinn, þegar hún var gerð. Þrautaráðið var svo að skrifa menntamálaráðherra sjálfum 12. júní. Bryndís er, sem fyrr er sagt, eina manneskjan hér á landi, sem hefur fengið þjálfun í meðferð á fjölfötluðum. I fyrra voru við skólann með henni 4 fóstrur og einn kennari. — Stúlkurnar voru mjög áhugasamar og tilbúnar til að fá þjálfun, sagði hún. Og ég vildi drífa alla til að sjá eitthvað meira. Ef fleiri skólar fyrir fjöl- fatlaða hefðu verið á Islandi, hefðum við auðvitað farið í heim- sóknir í þá. Því er nú ekki til að dreifa og þess vegna leituðum við út fyrir landsteinana. Ég þekki forstöðufólk í skólum fjölfatlaðra í Englandi, Noregi, Hollandi og víðar. Hópurinn, sem við þetta fæst, er svo þröngur, að fólkið þekkist. Hafi maður verið i Perkins-skólanum í 7 ár, þekkir maður marga, þvf þangað koma allir, sem eru að leita fyrir sér á þessu sviði. Ég skrifaði vestur fyrir eina fóstruna, henni var vel tekið og hún var þar í 4 vikur í sumar. Önnur fór til. Englands í 5 vikur og sú þriðja til Hollands og Englands. Einnig fóru kennslu- konan og ég í námsferð. Ég sótti um styrk fyrir þær til þessa, en var sagt, að þetta væri hinn mesti óþarfi. En mér finnst, að þegar um sérkennslu er að ræða, þá sé bráðnauðsynlegt að sjá, hvað aðrir eru að gera, fá samanburð og nýjar hugmyndir. En það er misskilningur, að fólk þurfi að vera marga mánuði í námsferð. Sá, sem veit að hverju hann leitar, getur verið fljótur að átta sig, sjá og læra. — Satt að segja er ég þeirrar skoðunar, að maður eigi ekki að eyða dýrmætum tima f óþarfa bar- áttu um smávægileg atriði, sagði Bryndfs í samtalinu. Skólafólkið á ekki að eyða tímanum í að vasast í hlutum, sem það kann ekkert til, eins og byggingamálum og fjár- málum yfirleitt. Til þess hefði maður þurft að fara í verzlunar- skóla. Maður á að hugsa um börnin og kennslu þeirra, en ekki vera að þrasa á skrifstofum um fatahengi, steikarpönnur, skóla- borð o.s.frv. Mér finnst það satt að segja, ekki f verkahring skóla- stjórans að standa í orrustu við ráðuneytin um það, hvort við- komandi skóli á að vera á götunni eða ekki. Þá virðist mér betra að vera ekkert að setja skólana á stofu. Við spyrjum Bryndísi, hvort börnin þurfi nauðsynlega að vera í heimavist. — Oft þurfa börnin að vera í heimavist um tima fyrst, svarar hún, — þó að stefnt sé að þvf, að þau fari heim eftir skóla- tíma. Oft hefur ýmislegt snúizt við og þarf leiðréttingar við, þegar um svona börn er að ræða, og heimili þurfa hjálp til að leið- rétta það. Barnið er líka iðulega áþjálla heima og við sína nánustu. Þjálfað fólk hefur meira af þessu tagi, og getur af meira öryggi beitt aðferðum, sem þarf. Ekki er hægt að ætlast til þess, að for- eldrar geti gert þetta með öllu öðru, sem á þá leggst. Þegar vits- munalífið er brenglað, læra börnin ekki á eðlilegan hátt allt það, sem heilbrigð börn læra fyrirhafnarlaust af umhverfinu. — Er þetta þá ekki mikið álag á heimilin? — Jú, víða eru heimilin alveg undirlögð. Móðirin er bundin og getur aldrei vikið frá. I Banda- ríkjunum hefur farið fram könn- un á tíðni hjónaskilnaða og komið í ljós, að mun meira er um þá i fjölskyldum með slíkt barn en öðrum, vegna þess aukna álags, sem verður á heimilinu. Bryndís er kennari að mennt. Hún fór upphaflega utan með Sólveigu litlu frá Siglufirði, sem var illa farin, þar sem miðtauga- kerfið hafði skemmzt, er móðir hennar fékk rauðu hunda um meðgöngutimann, svo heyrandi heyrði hún ekki og sjáandi sá hún ekki. Hún var send til þessarar stofnunar, sem bezt er talin i heiminum, og fékk þar mestu hjálp, sem hægt var að veita. Hafði til dæmis sérkennara fyrir sig eina. Bryndís fór með hennn. Var fyrst í verklegri þjálf- un, en síðan látin taka við kennslu hennar undir umsjón kennara og skólastjóra. — Það tókst að kenna henni ýmislegt nytsamlegt, svo að hún yrði mót- tækilegri fyrir mannlegu sam- félagi, en við gátum aldrei kennt henni mál, sagði Bryndfs, er ég spurði hana um þetta. En ein- faldasta merkjamál lærði hún að skilja. Nú er Sólveig á Sólborg á Akureyri. Bryndís varð eftir, þegar Sól- veig fór heim, og var við nám og störf við Perkins School for the Blind, eins og skólinn heitir. — Hann var stofnaður fyrir blinda um 1830 með framlögum frá auðuga fólkinu í Boston, segir Brvndís til skýringar. Og enn eru þar til f jölmargir sjóðir, sem gefn- ir voru í ákveðnum tilgangi og hafa sfðan verið varðveittir og efldir. Svo ekki skortir þarna fé. Skólinn er líka stórkostlegur, enda staðsettur í Boston, innan um þessar stóru rannsókna- stofnanir, og alltaf verið að rann- saka og leitast við að finna betri leiðir til að ná árangri. — Er hann ekki lengur bara fyrir blinda? — Nei, læknavísindin hafa tek- ið framförum og með bættri heilsugæzlu hafafærri börn fæðzt með hreina blindu. En i staðinn fór að bera á börnum með skerta sjón og heyrn og ýmsa fleiri galla. Þau höfðu áður lent á fávitahæl- um, en nú var farið að reyna að kenna þeim. Fólk vaknaði til með- vitundar um, að hægt er að hjálpa þessu fólki og kenna þvf þannig, að það getur bjargað sér í lffinu og á vernduðum vinnustöðum. Þannig hefur farið að taka inn fólk með likamlega lömun og síðar fólk með skerta greind. Oft er börnunum skipt í aðskildar deildir innan skólans eftir því, sem hægt er, en starfsfólk i öllum deildum ber saman bækur sinar. Flestir blindraskólarnir i heiminum eru þvf að verðaskólar fyrir blinda með lömun, blinda með skerta greind, blinda með heyrnardeyfu o.s.frv. Og í hverju landi er nokkur hópur fólks, sem þarf sérkennslu á þessu sviði, og á rétt á henni eins og aðrir. — Á hvaða aldri eru nemendur í slíkum skóla? — Hér var miðað við allt að 16 ára aldur. En lífaldur segir svo lítið í þessu máli. Ef til dæmis 16 ára unglingur hefur ekki notið kennslu, sem hann skilur í, þá er hann ekki betur settur en barn, sem er að byrja. Og þá skuldum við honum kennslu í þessi ár. Lfklega skuldum við Islending- ar æði mörg kennsluár og sýnist ekki líklegt að farið verði í bráð að greiða nokkuð upp í þá skuld, úr því tilraunin, sem hafin var í fyrra, er nú stöðvuð. Það sem Bryndís Víglundsdótt- ir fór fram á i bréfi sínu til menntamálaráðuneytisins og sem hún aldrei fékk svar við, var í stuttu máli þetta: Ef ætlunin væri að skóli fyrir fjölfötluð börn starfaði í vetur, þyrfti að sam- þykkja, að birt yrði auglýsing i dagblöðunum til foreldra fjöl- fatlaðra barna um að hafa sam- band við skólastjórann, að auglýst yrði eftir fóstrum til starfa við skólann, gengið urði frá ráðningu tveggja kennara og auglýst staða skólastjóra við umræddan skóla. Að ráðuneytið tæki afstöðu til boðs Blindrafélagsins um hús- næði fyrir skólann. Auk þess fór hún fram á, að ráðuneytið veitti samþykki sitt til að pantaðir yrðu ýmsir hlutir utan lands frá, sem nauðsynlegir væru, og að ýmis- legt „smádót“ yrði smíðað fyrir skólann. Við þessu fékkst ekkert svar og þvi fór sem fór — E.Pá. Viðtal við Bryndísi Víglundsdóttur Bryndfs Vlglundsdóttir með börnsfn á heimili sfnu, þar sem blaðamaður Mbl. spjallaði við hana. Skóli fiö hættur Tugir fjölfatlaðra eiga inni skólavist á Islandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.