Morgunblaðið - 14.11.1973, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.11.1973, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÖVEMBER 1973 29 _ ■ ■ A HEUARÞROM Framhatdssagan j Pýóingu Björns Vignis Fagra 37 „Mmmmm. Þessi stjórnunar- staða, sem þér eruð að þjálfa yður fyrir. Hver er hún?“ „Sölumennska." „Enginn titill?" „Aðeins sölumaður." „Hvernig er þetta starf launað?" „Pabbi var þeirrar skoðunar að ekki ætti að dekra við börn sin,“ sagði Mark. „Hann gerði sér ljóst, að fyrirtæki hans færi fljótlega á kúpuna, ef hann greiddi sonum sínum einhver rosalaun án þess að þeir þekktu haus eða sporð á rekstri fyrirtækisins." „Og hver eru þá byrjunarlaun- in?“ „Fimmtán þúsund dollarar — í þessu tiltekna starfi." „Það er nefnilega það. Og þér viljið lifa ríkmannlega? Tókst að eyða tíu þúsundum á ári á ital- íu?“ „Þetta eru aðeins byrjunarlaun- in, herra Carella,“ sagði Mark. „Pabbi gerði jafnan ráð fyrir, að síðar meir fengju synir hans yfir- ráð Scott-iðjuveranna.“ „Já, erfðaskrá hans ber það með sér. Vissuð þér af þessari erfðaskrá." „Við vissum öll um hana. Pabbi talaði oft um hana.“ „Eg skil.“ „Segið mér eitt, Carella," sagði Mark. „ Alítið þér, að ég hafi myrt föður minn?“ „Gerðuð þér það, herra Scott?“ „Nei.“ „Hann framdi sjálfsmorð, herra Scott, ekki rétt?“ „Jú, það er rétt,“ svaraði Mark. „Nema þér haldið, að ég hafi skriðið inn í herbergið gegnum rifuna þarna." Fjórtándi kafli Þarna var hún — borgin. Upp á búin fyrir unað kvöldsins, sveip- uð svörtu satíni rökkursins og með skærrauðan mittislinda. Með gimsteinaþyrpingu í hári, fern- ingsljós úr gluggum skrifstofu- bygginganna, sem hófu sig í hæstu hæðir; sindrandi festi um grannan hálsinn — rauð, gul og græn ljós umferðarvitanna, raf- lýsingu ljósastauranna og skær- birtu neónskiltanna á Detavoner Avenue. Ávalar, holdugar axlir, er hreyfðust í takt við tóna kvöldsins, þrýstin brjóst, er hóf- ust og hnigu undir hinu sama tónfalli tónlistar, er ómaði frá kjallaraknæpum og veizlusölum borgarinnar. Glóandi hraðbrautin og endur- kast árinnar skópu bogadregið mitti hennar, þöndu sig norður og suður yfir breiðar mjaðmir henn- ar, féllu yfir föngulega fótleggina og reyrðu ökla hennar í hlekki daufs endurskins bílljósanna á votu malbikinu. Þarna var hún —.borgin. Hljóp við fót með kvöldjð undir arminn, teygaði seiðandi loftið milli hálfluktra vara, með ástríðu glampa f augum, þetta var föstu- dagskvöld og hún þrýsti helginni að brjósti sér i áköfu örvæntingar fullu faðmlagi. Já, borgin er kona, falleg kona, kona með líf í skauti, flærð i hjarta, töfrandi kona, sem leynir rýtingi milli langra fölra fingra að baki sér, mild kona, er raular gleymda og grafna lagstúfa á berangri í steinsteypugljúfrum, kona ásta, kona haturs, dýrkuð af átta milljónum manna, fólki sem notið hefur unaðsemda lfkama hennar, fólki, sem þekkir hana og hatar af djúpri, tryggri ást. Átta milljónir manna. Geffrey Tamblin varútgefandi. Hann gaf út námsbækur. Hann hafði staðið i þessu braski í þrjá- tíu og tvö ár og núna — fimmtiu tveggja ára að aldri — áleit hann sig skynugan náunga, er þekkti allar hliðar þessarar greinar. Aldrei hafði Geoffrey Tamblin kallað þetta „útgáfu", i huga hans var þetta aðeins brask af versta tagi og hann hataði það óskap- lega. Einkanlega var honum i nöp við reikningsbækur. Þær fyrirleit hann. Þessi fyrirlitning átti senni- lega rætur sínar að rekja allt til þess tíma, er hann sótti stærð- fræðitíma hjá þeim gamla þöngul- haus dr. Fanensel í menntaskóla. A þeim árum hafði honum verið ókleift að gera upp við sig, hvort hann hataði stærðfræðina meira en dr. Fanensel eða öfugt. En núna — fjörutiu árum síðar — hafði hatur hans dafnað og eflzt til muna svo að það spannaði yfir alla stærðfræði — háa og lága — náði til allra lærimeistara og læri- sveina þessara viðurstygglegu vis- inda. Rúmfræði, jöfnur, algebra, mengi — allt setti hann þetta undir einn hatt og hataði inni- lega. Hið dapurlega við þetta allt saman var þó, að fyrirtæki hans gaf út fjöldann allan af námsbók- um í stærðfræði. Satt að segja var stærsti hluti útgáfustarfseminnar einmitt helgaður stærðfræðinni. Sem var einnig meginorsök þess, að Geoffrey Tamblin þjáðist af magasári. Einn góðan veðurdag, hugsaði Tamblin með sér, mun ég hætta námsbókaútgáfu og þá alveg sér- staklega útgáfu á stærðfræðibók- um. Þess í stað mun ég láta frá mér fara lítil vönduð ljóðasöfn eða gagnrýni um listir og háspeki- leg efni. Eftirleiðis munu Tambl- inbækur tákna vandaðar, fallegar bækur. Aldrei framar: „Gefið X sama sem 10, og Y sama og 12, hvað er þá — A?“ Og magasárið yrði úr sögunni. Það olli honum jafnvel sárs- auka að hugsa til magasársins. Ljóð, hugsaði hann. Falleg lítil söfn ljóða. Ó, það væri yndislegt. Ég flyzt út í úthverfin og rek fyrirtækið þar. Stíg aldrei framar fæti í neðanjarðarlest. Ekkert kapphlaup við tímann. Verð laus við hrokafulla ráðunauta, ný- skriðna út úr Harward, sem hampa háskólaborgarabréfinu I öðru hverju skrefi. Laus við fúl- lynda listamcnn.semisitjadagínn inn og daginn út og teikna þrí- hyrninga þegar þeir eiga sér enga ósk heitari en að fást við nektar- myndir. Og einkanlega losna ég við viðutan prófessora að færa mér þessi djöfullegu sköpunar- verk sín til útgáfu. Bara lítil fal- leg ljóðasöfn. Ahhhh. Geoffrey Tamblin átti heima við Silvermine Road — við útjað- ar 87unda umdæmis. Það var vandi hans, kvöld hvert að lokn- um starfsdegi, að taka neðanjarð- arlestina úr miðborginni upp á stöð númer sextán, fara þar af og ganga síðan gegnum hverfið heim til sfn, hverfið sem eitt sinn hafði verið fallegt og jafnvel virðulegt. Núna var það á hröðu undan- haldi, líkt og allt annað var á undanhaldi, og allt var það stærð- fræðinni að kenna. Nú mátti steypa allan heiminn í einfalda formúlu, nú var ekki lengur til annar veruleiki en veruleiki stærðfræðinnar. X sinnum hið óendanlega er !>ama sem vetnis- sprengjan. Veröldin ferst ekki í eldi, hún ferst í stærðfræðifor- múlu. Það var vond lykt í hverfinu á þessum siðustu og verstu timum. Tóm hús hulin rusli, nú var út- ganginum fleygt út um gluggana, unglingaskríll óð um göturnar, rændi og ruplaði, framdi jafnvel morð meðan lögreglumennirnir sváfu. Glæpamenn, glæpamenn allt saman, sem létu sig meira skipta stærðfræði krossgátunnar en mannlegt velsæmi. Ég verð að forða mér héðan. Ljóð, ljóð, hvar eru öíl 1 jóð heimsins? Best að ég gangi gegnum garð- inn í kvöld. Hugdettan espaði hann. Sú hafði þó verið tíðin — áður en Geofrey Tamblin varð X og Y að bráð — að hann hafði spígsporað um græna völlu Grovergarðsins, horft á gult mánaskinið og vitað, að borgin var vettvangur róman- tíkur og leyndardóma. En núna — magasári siðar — valdi hann leið- ina gegnum garðinn aðeins til að sneyða hjá krakkaskrílnum á Grover Avenue, og hann espaðist allur við tilhugsunina um ung- dóm nútimans. Hann gekk rösklega, djúpt sokkinn i hugleiðingar um kveð- skapinn, en samt fór ekki hjá því, að hann veitti athygli stærðfræði- legri nákvæmninni í uppsetningu á ljósaskiltinu á lögreglustöðinni, hinum megin götunnar — 87. Ein- tómar tölur. Þrir piltar gengu á undan honum. Truntulýður, glæpamenn? Nei, þetta virtust vera skólapiltar, verðandi kjarn- eðlisfræðingar og stærðfræðing- ar. Hvað voru slíkir piltar að gera hér í neðri byggð á tima sem þessum? Þeir sungu. Söng ég nokkurn tima? hugsaði hann með sér. En ætli þeir syngi lengi. Bið- um bara þangað til þeir komast í kast við plús og mínus. Við skul- um vita, hvort þeir hætta þá ekki að syngja. Geoffrey Tamblin hægði á sér. VELX/AKAIVIOI Velvakandi svarar 1 sfma 10- 100 kl. 10.30—11.30, fré mánudegi til föstudags._ 0 Hvað er sanngjarnt verð fyrir fullt fæði og húsnæði? Kona í Hafnarfirði hringdi. Hún sagði, að sig langaði til að vita hvað sanngjarnt væri, að fullorðið fólk greiddi fyrir húsnæði, og væri þá reiknað með, að viðkomandi hefði sérherbergi, afnot af sfma og öðru því, sem venjulega væri fyrir hendi á heimili, auk fæðis. Velvakandi leitaði upplýsinga hjá fjölda aðila, bæði hjá opin- berum aðilum og öðrum, en engar áreiðanlegar tölur eru fyrir hendi, sem hægt væri að leggja til grundvallar. Hjá Vegagerð ríkisins fengust upplýsingar um, að greiddir væru fæðispeningar, sem næmu 220 krónum á dag fyrir manninn, og væri gert ráð fyrir, að þessi upphæð nægði fyrir hráefni, en laun ráðskonu og aðstöðu til elda- mennskunnar leggur vegagerðin til. Ef þannig væri gert ráð fyrir, að hráefnið eitt sem fer til matar- gerðarinnar, kosti 6.600 krónur á mánuði, og herbergi sé ekki leigt undir 3000 krónum á mánuði, væri varla hægt að gera ráð fyrir, að greitt væri undir 10.000 krón- um á mánuði fyrir uppihald á mánuði. Þessi tala er þó ekki til þess að leggja til grundvallar almennt, þar sem viðurgerningur er mjög mismunandi í einstökum tilvik- um. En alla vega er ólíklegt, að hægt sé að komast af með minna til daglegs viðurværis fyrir ein- stakling á mánuði. Ekki er ólíklegt, að margir hafi áhuga á að gera sér grein fyrir þvi, sem hér um ræðir. Vel- vakanda er ekki kunnugt um, hvað vinnandi fólk, sem býr í foreldrahúsum, greiðir fyrir fæði, húsnæði og annað það, sem það nýtur á heimilinu, en fróðlegt væri að fá upplýsingar þar að lútandi. # „Thing a Danger“ Yfirskrift þessa ber bréf, sem Velvakanda hefur borizt frá Vest- mannacyjum, en því fylgdi þetta tilskrif: „Þetta bréf var ég að fá, og langar mig til að fá vitneskju um, hvaðan það er upp komið og hvaða tilgangi það er ætlað að þjóna. Ég er ekki viss um að allir þoli svona sendingar. Margrét." Fer nú bréfið sjálft hér á eftir: „Treystið guði af öllu hjarta og hann mun lýsa veginn. Þetta bréf hefur verið sent til þín fyrir happi. Bréfíð hefur gengið 23 sinnum kringum jörðina. Þessi heppni hefur verið send til þín, og þú munt verða fyrir happi innan fjögurra daga. Þetta er ekkert grín, og þú átt að senda það i pósti. Sendu enga peninga, en þú átt ekki að geyma frumritið heima. Þú verður að senda það burt innan 4 daga eftir að þú færð það. Skrifstofumaður í U.S.A. vann 10.000 dollara, en tapaði þeim aftur, vegna þess að hann sleit keðjuna. Piltur í Alpafjöll- um týndi lifi sínu 6 dögum eftir að hann fékk bréfið, þvi hann sendi það ekki aftur. Eftir dauða hans var uppgötvað, að hann hafði unnið 500 dollara. Gerðu svo vel að senda þetta bréf og 4 önnur til vina þinna innan fjögurra daga. Settu nafnið þitt neðst og strikaðu yfir það efsta.“ Fyrir neðan þennan fagnaðarboðskap standa 12 nöfn. Ekki er langt síðan Velvakandi birti samskonar bréf, a.m.k. birtist bréf, þar sem fjálglega var lýst dauðdaga pilts í Alpafjöllum. Það ætlar að ganga illa að kveða þennan endemis draug niður, en Velvakandi skilur ekki tilganginn með svona sendingum frekar en Margrét. Eina ráðið, sem hægt er að gefa er einfaldlega það, að gefa frat í svona rugl, og láta eitthvert „drama“ í Alpafjöllum, sennilega imyndað eða upplogið, sér í léttu rúmi liggja. 0 Ólag á vatnsdælu Breiðholtsbúa Jóhann Ölafsson, Völvufelli 38, hringdi: Hann sagði, að s.l. sunnudag hefði kalda vatnið fa/ið ai kerf inu snemma morguns, en síðan komið aftur upp úr hádeginu. Milli 5 og 6 siðdegis hefði það svo farið öðru sinni, og ekki verið komið á aftur, þegar hann hefði farið til vinnu sinnar á mánudags- morgun. Þetta kæmi iðulega fyrir, þegar eitthvað ölag væri á rafmagninu, og virtist svo sem vatnsdælurnar biluðu, þegar rafmagnstruflanir yrðu. Jóhann bað Velvakanda um að grennslast fyrir um hverju þetta sætti. Hann sagði, að auð- vitað væri ákaflega óþægilegt fyrir íbúana þar efra, þegar vatnslaust væri langtímum saman, en alvarlegra 'yrði þó ástandið, ef einhvers staðar kviknaði í, meðan svo væri. Velvakandi hafði samband við Gunnar Steinsen, verkfræðing hjá Vatnsveitu Reykjavíkur. Sagði Gunnar, að dælustöð fyrir Breiðholtið gengi fyrir rafmagni frá háspennulínú við Vatnsenda, og yrði dælustöðin óvirk. um leið og eitthvað yrði að veðri. Einnig kæmi fyrir, að öryggi dælu- stöðvarinnar færi við rafmagns- bilun, eins og orðið hefði í því tilviki, sem hér urn ræðir. Gunnar sagði, að bygging vatnsgeymis fyrir svæðið hæfist á næsta ári, og mætti gera ráð fyrir, að hann yrði tekinn i notkun eftir um það bil eitt ár. Þangað til mætti gera ráð fyrir óþægindum af þessum sökum. Karolína Hún þykir fegursta prinsessa Evrópu, hún Karolfna af Monaco, dóttir Crace Kelly og Rainier fursta. Æ meir, þykir hún líkjast móður sinni. Karolfna er nú 16 ára og stundar nám í „St. Mary’s Covent School” í Ascot. Þar ætlar hún að ljúka stúdents- prófi. Uppihald prinsess- unnar þar kostar u.þ.b. 150 þús. kr. á ári. I sumarfrfinu fer hún heim til Monaco, stundar þar útilíf og nýtur þess, þegar karlmennirnir senda henni hýrt augnaráð og flauta á eftir henni lagið „Sweet Caroline".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.