Morgunblaðið - 14.11.1973, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1973
Samkomulagsdrögin samþykkt
á Alþingi með 6 mötatkvæðum
í GÆR var samþykkt á Alþingi
þingsályktunartillaga rfkis-
stjórnarinnar um heimild til að
ganga frá bráðabirgðasamkomu-
lagi við rfkisstjórn Bretlands um
veiðar brezkra togara innan 50
sjómflna fiskveiðilögsögunnar.
Atkvæðagreiðslan fór fram að
viðhöfðu nafnakalli, og greiddu 6
þingmenn atkvæði gegn tillög-
unni. Þeir voru Matthfas Bjarna-
son, Pálmi Jónsson, Pétur
Sigurðsson, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson og Guðlaugur Gfsla-
son, úr Sjálfstæðisflokknum og
Bjarni Guðnason, sem er utan
flokka. Við endanlega afgreiðslu
tillögunnar greiddu 53 þingmenn
atkvæði með henni, en þá hafði
Einar Ágústsson, utanríkisráð-
herra vikið af þingfundi. Ráð-
herrann hafði þ.á.m. verið við-
Fékk 50 kr.
fyrir kílóið
TVEIR bátar, Arinbjörn RE
og Hamar SH, áttu að selja f
Ostende f Belgíu f gær. Aðeins
annar báturinn náði að selja
þar f gær og fékk báturinn
sæmilegt verð fyrir fiskinn, þó
svo að sumir hefðu búizt við
hærra verði, þar sem báturinn
var með góðan Englandsfisk
eins og kola og þorsk.
Það var Arinbjörn RE, sem
seldi 60.4 lestir. Fyrir aflann
fékk báturinn rétt rúmar 3
millj. kr. og er meðalverðið kr.
50.13.
staddur, þegar tillögugreinin
sjálf var borin undir atkvæði og
var hún þá samþykkt með 54 at-
kvæðum. Sá háttur var hafður á
atkvæðagreiðslu, að fyrst var til-
lögugreinin sjálf borin undir at-
kvæði, en að þvf loknu tillagan f
heild.
Samtals 12 þingmenn gerðu sér-
staka grein fyrir atkvæðum sín-
um. Af þeim, sem samþykktu til-
löguna gerðu eftirtaldir þing-
menn grein fyrir atkvæðum sín-
um: Ölafur G. Einarsson (S),
Ragnhildur Helgadóttir (S),
Sverrir Hermannsson (S), Ellert
Schram (S), Garðar Sigurðsson
(Ab), Gylfi Þ. Gíslason . (A),
Jóhann Hafstein (S), JónasÁma-
son (Ab), Karvel Pálmason (SF-
V) og Lárus Jónsson (S). Af and-
stæðingum tillögunnar gerðu
Pálmi Jónsson (S) og Pétur
Sigurðsson (S) sérstaka grein
fyrir sínum atkvæðum.
Aðrir þingmertn, sem atkvæði
Framhald á bls. 18
Landhelgisdeilunni er lokið og
John McKenzie, sendiherra
Breta, tekur f hönd Einars
Ágústssonar utanrfkisráð-
herra. Að baki sendiherranum
stendur Eric Joung, en að baki
ráðherranum Hans G.
Andersen. — Ljósm.: ÓI.K.M.
— Sjá nánar á bls. 2.
Mokuðum okkur burt
úr Landmannalaugum
Ferðalangarnir 22 komnir í bæinn
FERÐALANGARNIR, sem teppt-
ust í Landmannalaugum um helg-
ina, komu í bæinn í gær og voru
allir við beztu heilsu að sögn Við-
ars Péturssonar lögregluþjóns frá
Vogum. Sagði hann, að hópurinn,
alls 22, hefði komið að Land-
mannalaugaskálanum á laugar-
dag og verið þar um nóttina í góðu
yfirlæti. Á sunnudaginn hefðu
þau haldið af stað aftur í bílunum
9 og hefði það gengið vel þar til
um hádegisbil, er óveðrið skall á,
en þá var það ráð tekið, að halda
kyrru fyrir í bílunum. I hópnum
var eingöngu fullorðið fólk. A
mánudagsmorgun var aftur
haldið af stað, en Viðar kvað
ferðina hafa sótzt seint vegna
mikilla snjóa. „Það var mikill
mokstur, mikið ýtt og mikið
dregið," sagði hann, „og segja
má, að við höfum orðið að moka
okkur burt úr Landmanna-
laugum, en þetta gekk þó vonum
framar. I nótt kom snjóbill til
okkar þar sem við vorum um það
bil 10 km frá veginum upp í Sig-
öldu. Snjóbíllinn tróð slóð fyrir
okkur og flýtti þannig fyrir okkur
á endasprettinum. Fólkið hafði
gaman af þessari ferð en það var
verst hve mikið umstang varð i
kring um ferðina. Enginn var
með sendistöð, því slík tæki eru
svo dýr, að menn hafa almennt
ekki efni á að eiga þau, en ef slíkt
tæki hefði verið til staðar hefði
mátt losna við ýmis leiðindi."
Ferðalöngunum var boðið í mat
við Sigöldu i gærdag og þótti þeim
gott að fá þar heitan mat og drykk
eftir volkið.
Enginn skóli fyrir
fjölfatlaða í vetur
VlSIR sá að skóla fyrir fjölfatl-
aða, sem byrjaði f fyrra, er ekki
starfræktur f vetur og hefur böm-
unum sex, sem byrjuð voru f
fyrra, verið komið fyrir til bráða-
birgða uppi f Reykjadal. En
skólastjórinn, Bryndfs Vfglunds-
dóttir, eini sérmenntaði kennar-
Vladimir Ashkenazy.
David Ashkenazy synjað
um fararleyfi til íslands
□ EINUM af ritstjórum
Morgunblaðsins hefur borizt
bréf frá Vladimir Ashkenazy,
sem nú er á hljómleikaferð f
Bandaríkjunum, þar upplýsir
hann, að föður sfnum, David
Ashkenazy, hafi verið synjað
um fararleyfi til fslands. Hann
hefur árum saman verið að
reyna að fá leyfi til að heim-
sækja son sinn og fjölskyldu
hans en sovézk yfirvöld hafa
jafnan dregið á langinn að
veita honum afdráttarlaus svör
við umsóknum þess efnis.
Q I bréfi sfnu til Mbl. fer
Ashkenazy fram á, að Ijósrit af
þvf verði sent öðrum dagblöð-
um og hefur það verið gert. Er
Ijóst af bréfinu, að Ashkenazy
tekur þessi málalok sér mjög
nærri: „Mér fellur þetta afar
þungt“, segir hann og bætir við
— og ég veit ekki lengur hvað
geraskal.“
í upphafi bréfsins, sem
dagsett er í San Fransisco, 7.
nóv. sl„ segist Ashkenazy hafa
þá samdægurs talað við föður
sinn í síma. Hafi hann sagt/að
OVIR—‘skrifstofa sú í Moskvu,
sem afgreiði fararleyfi Sovét-
borgara til ættingja erlendis —
hafi tjáð sér, er hann kom
þangað í sfðustu viku október-
mánaðar, að umsókn hans um
fararleyfi til Islands hafi verið
synjað. „Engin ástæða var til-
greind — aðeins synjun“ segir í
bréfi Ashkenazys.
David Ashkenazy hefur sem
f yrr segir gert tilraunir til þess
árum saman að fá að heim-
sækja fjölskyldu sonar sfns á
tslandi. Hann fékk leyfi til að
sækja þau heim til Englands
árið 1967 og hafði þar þá
skamma viðdvöl. Þegar þau
Þörunn og Vladimir settust að á
íslandi, hófu þau tilraunir til
að fá hann í heimsókn að nýju,
til þess að hitta þau og
barnabörnin. Afgreiðsla um-
sóknar hans um fararleyfi var
hins vegar dregin á langinn
hvað eftir annað og fékk
Ashkenazy þá f lið með sér
ýmsa kunna íslendinga, þar á
meðal ráðherra í núverandi
Framhald á bls. 18
inn fyrir fjölfatlaða á landinu, er
farinn að kenna f venjulegum
barnaskóla. Ástæðan er sú, að f
sumar var skólanum ekki tryggt
húsnæði, kennslukraftar og nauð-
synlegustu tæki. Þetta kemur
m.a. fram f viðtali við Bryndfsi
Vfglundsdóttur á bls. 17 f blaðinu
f dag.
Við könnun fyrir skömmu
reyndust 40 fjölfötluð börn vera á
Reykjavíkursvæðinu, sem lögum
samkvæmt eiga rétt á kennslu, en
eru- hvergi annars staðar f skóla,
en Bryndís telur að fjöldi þeirra
sé nær 70.
Ástæðan til þess, að þessi vísir
að skóla fyrir fjölfötluð börn er
hættur, er sú, að enn eru óleyst
vandræði hans, en húsnæði í húsi
Blindrafélagsins í Hamrahlíð,
sem félagið bauð með vissum skil-
yrðum, stendur enn autt. Þegar
Bryndís fékk enga úrlausn fyrir
skólann í menntamálaráðuneyt-
inu í sumar, skrifaði hún að lok-
um ráðherra sjálfum, Magnúsi
Torfa Ólafssyni, og kvaðst ekki
treysta sér til að vinna áfram við
þessar aðstæður, og er því bréfi
ósvarað. Það, sem hún fór fram á í
sumar er í stuttu máli, að ef skóli
fyrir fjölfötluð börn yrði starf-
Framhald á bls. 18