Morgunblaðið - 21.11.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1973
23
íbúð Hl leigu
2 herbergi, eldhús og baðherbergi til leigu í Hlíðunum
Sérinngangur. Teppi á öllum gólfum. Öll heimilistæki
fylgja. Algjör reglusemi áskilin. Barnlaust fólk gengur
fyrir.. Þeir, sem áhuga hafa leggi nöfn sín á afgr. Mbl.,
fyrir fimmtudagskvöld merkt: „2. flokkur798".
Keflavík —
Ytri Njarðvík
Til sölu m.a.:
3ja — 6 herb. íbúðir, sérhæðir og raðhús 100 frn gott
einbýlishús. Bllskúr. Vel með farið eldra einbýlishús. 1 30
fm einbýlishús. Stór bílskúr. Falleg lóð.
Glæsilegar sérhæðir og raðhús I smíðum. Okkur vantar
nýlega 3ja herb. íbúð með bílskúr eða bílskúrsrétti, fyrir
traustan kaupanda.
Eigna- og verÓbréfasalan,
Hringbraut 90, sími 1 234
TOSKU-OG
HANZKABÚÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTIG 7 SlMI 15814 REYKJAVlK
Gærulúffur á
fjölskyiduna.
Otrúlegt
tðskuúrval.
Nýkomnar
mjög ðdýrar
frúarlöskur.
Verzlió bar sem
úrvalið er mesf
Elgnlst eldhús. sem auð-
velt er að halda hrelnu
SKÁPA OG BORÐ KLÆDD FORMICA SEM HALDA
FEGURÐ SINNI ÁR EFTIR ÁR.
Það er ástæðulaust að láta á móti sér að eignast það
bezta þegar þar kostar lítið meira.
Ótrúlegur fjöldi lita og viðarmynstra að velja úr.
IFORMICA
BHAND
lamirmted plaatic
G. ÞORSTEINSSON
& JOHNSON H.F.
Ármúla 1 — Simi 85533.
Reading, Hawkins oghljóm-
_ r
sveit FIH í Austurbæjarbíói
Wilma Rcading og John Hawkins
Oskila hross
i Mosfellshreppi
Jarpur hestur 1 —2ja vetra. Mark tvírifað i stúf vinstra.
Rauður hestur ómarkaður. ca. 5 vetra. Brúnn hestur
mark sneitt framan vinstra, fullorðinn.
Upplýingar hjá lögreglunni i Hafnarfirði, simi 50131.
Verzlunarhús
200 ferm. verzlunarhús á mjög góðum stað i borginni er
til sölu. Húsið er í einnar minútu göngufjarlægð frá
Hlemmtorgi. Gæti einnig hentað vel, sem veitingastaður
eða fyrir hverskonar léttan iðnað. Mjög góð bilastæði við
húsið. Uppl. í sima 1 1 367 í dag frá kl. 10 — 7.
Tilkynning
frá Vatnsveitu Kópavogs tll húsbygglenda
I Kópavogl
Athygli húsbyggjenda í Kópavogi, er vakin á því, að ekki
er heimilt að láta vatn sirenna. Þar sem, vart verður við
að þessi regla sé ekki haldin, verður umsvifalaust lokað
fyrir vatn að húsinu.
Rekstrarstjóri Kópavogsbæjar.
SKaftafellssýsia
í fógetarétti Skaftafelssýslu hefur verið kveðinn upp
svohljóðandí úrskurður: Lögtak fyrir gjaldföllnum
simgjöldum 1973, bifreiðagjöldum, söluskatti af
skipaeftirlitsgjöldum, skipulagsgjöldum og rafmagnseftir-
litsgjöldum, má fara fram að liðnum 8 dögum frá birtingu
úrskurðar þessa að telja. Fari gerðir fram á kostnað
gerðarþola, en á ábyrgð gerðarbeiðanda.
Sýslumaður Skaftafellssýslu.
Tilboð ðskast
Tilboð óskast í Volga Gaz 24, fólksbifreið árg. 1973,
skemmda eftir veltu. Bifreiðin er til sýnis við bifreiðaverk-
stæði vort að Suðurlandsbraut 1 4, Reykjavik.
Bilreiðar & Landbúnaðarvélar hi.
« • Hejkknrfk
SÖNGKONAN Wilma Reading og
John Hawkins, hljómsveitar-
stjdri, koma fram með 18 manna
hljómsveit Félags íslenzkra
hljóðfæraleikara í Austurbæjar-
bíói í kvöld (miðvikudag) kl.
23.30. Upphaflega var erindi
þeirra til íslands það, að Wilma
átti að skemmta í Glæsibæ, þar
sem hún hefur aflað sér mikilla
vinsælda með fyrri heimsóknum,
en þjónaverkfallið gerði strik í
reikninginn.
Síðast þegar Wilma var hér,
eyddi hún m.a. frístundum sínum
í að renna fyrir lax og hafði það
nær orðið henni að fjörtjóni,
þegar hún fékk einn í fyrsta kasti
eftir að Ray Lehr, eiginmaður
hennar, hafði árangurslaust lam-
ið ána iangtímum saman: ,,Ég
sver, að ég var að því kominn, að
henda Wilmu í ána.“
En nú er ekki laxatimi og fríið
sýnu lengra en siðast og þá verður
að fá Utrás fyrir starfsorkuna á
annan hátt. Af tilviljun komust
þau að því, að hér var starfandi
stór hljómsveit (FlH) og linntu
þau þá ekki látunum fyrr en þau
voru komin í samband við hana.
Og þegar þau voru kontin i sam-
hand við hana linntu þau ekki
látunum fyrr en búið var að
ákveða að halda tönleika.
Wilma Reading er okkur að
góðu kunn en hún er þó sýnu
þekktari erlendis þar sem gagn-
rýnendur segja hana vera eina af
ungu stjörnunum. sem eru á
hraðri uppleið. Hún hefur komið
fram á fleiri nafntoguðum
skemmtistöðum og í fleiri sjón-
varpsþáttum en hér má upp telja
og vegna ástar Austur-Þjóðverja á
henni verður hún nú að hafna
tækifæri. sem hún hefur lengi
beðið eftir. að koma fram ásamt
Tont Jones.
Þegar henni barst beiðnin frá
Tom Jones var þegar biiið að gera
samning um kabaretsýningu f
Austur-Þy-zkalandi og Þjóðverjar
harðneituðu að sleppa henni í
hendur hins velska jónasar.
John Ilawkins þekkjum við
kannski ekki eins vel en hann er
að sögn fróðra einhver mesti
hvalreki. sem rekið hefur
á fjörur Fíll um langt skeið.
Hann lifir aðallega á því að
taka of fjár fyrir að útsetja tón-
list en einmitt það að geta
tekið of fjár fyrir slíkt er talin
næg sönnun um ágæti. Ilann segir
að hið tæra íslenzka fjallavatn
hljöti að hafa stigið sér til höfuðs.
því hann hefur boðið FIH ókeypis
afnot af lagasafni sínu og útsetn-
ingum og þykjast þ.eir hafa himin
höndum tekið.
Aðdragandi að tónleikunum i
kvöld var ekki langur en það
hefur verið æft sleitulaust og
strangt og mikið að gera við
undirbúning. M.a. hafa ýmsir
menn verið að harðaspretti um
hæinn til að safna saman öllum
hljdðnemum, sem þeir hafa
fundið, en Ray Lehr mun sitja við
heljarmikið „elektróniskt" horð
sem lítur út eins og stjórnborð í
Apollo geimfari og stilla hljóð-
nemana þannig að viðeigandi
hljöðfæri komi sem bezt út þegar
að því kemur, meðan Wilma
syngur með hljómsveitinni og
John stjórnar henni.
Ef vel tekst til í kvöld verður
hrint á framkvæmd stórhrotnum
framtíðaráætlunum. sem gætu
leitt til þess. að stjörnur eins og
Tom Jones, Diana Ross. Engel-
hert Ilumperdinck, Andy Willi-
ants og fleiri hafi viðkomu hér.
Ray er starfsmaður MAM i
London sem er eitt þekktasta um-
hoðs og skemmtifyrirtæki í heiini
og hefur m.a. fyrrnefnt heiðurs-
fólk á sínum snærum. Ilann segir.
að ef það sýni sig. að áhugi sé
fyrir hendi. ásamt hljómsveit
FlII, sé vel hægt að fá það og
fleiri stór nöfn úr skemmtana-
heiminum til að koma hingað til
lands.