Morgunblaðið - 21.11.1973, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1973
31
Missa „Kanarífuglarnir” flugið
1 keppni sinni við íslenzku
handknattleiksmennina?
Tveir af landsliðsmönnum Dynamo: Prokrajac og Kristic Milan.
Pokrajac hefur leikið 117 landsleiki en Milan 21 landsleik.
HANDKNATTLEIKURINN er
nú að verða vinsælasta íþrótta-
greinin í Júgóslavíu, og ef til vill
að vonum, þar sem árangur júgó-
slavneskra handknattleiksmanna
hefur verið frábær á undanförn-
um árum. Lið Júgóslavíu varð
Olympíumeistari í MUnchen s.l.
sumar, en i síðustu heimsmeistara
keppni hafnaði það í þriðja sæti
eftir úrslitaleik við Dani um það.
Sigruðu Júgóslavarnir 29:12 i
þeim leik, og að flestra áliti höfðu
þeir þá á að skipa einna beztu liði
„Þeirléku á næstu hæð
fyrir ofan ohhur”
Frá Kristni Jörundssyni:
Eftir um 13 tíma þreytandi en
stórslysalaust ferðalag kom
íslenzka körfuknattleikslandslið-
ið til University ol Maryland, þar
sem við lékum ok'kar fyrsta leik i
Bandarikjaferðinni. Móttökur
voru allar mjög góðar, og meðal
annars var farið með okkur í
skoðunarferð urn Washington, en
háskólinn er skammt frá
borginni.
Þar skoðuðum við fjölda frægra
staða, svo sem Hvíta húsið, þing-
húsið, Watergate-byggingu og fl.
1 Maryland háskólanum eru um
36.000 nemendur og er hann
fimmti stærsti háskóli Banda-
ríkjanna. Á háskólalóðinni eru
tugir bygginga og stofnana og
myndar þetta stærðar bæ. Lent-
um við í vandræðum með að rata
um lóðina.
Iláskólinn á þarna m.a. stóra
sundlaug, völl fyrir ameriskan
fótbolta, þar sem mjög góð að-,
staða er einnig fyrir frjálsíþrótta-
fólk, auk þess sem þarna er fjöldi
æfingavalla. íþróttahöllin, sem
leikið var í, er einnig í eigu skól-
ans. Þetta iþróttahús er alglæsi-
legasta hús, sem við höfum sér,
enda eitt af glæsilegri íþróttahús-
um landsins. Það er eingöngu
ætlað fyrir körfuknattleik og tek-
ur um 14.500 áhorfendur i sæti. í
þessu húsi leikur eitt af beztu
atvinnumannaliðum Banda-
ríkjanna, Capitol Bullets, heima-
leiki sina.
Maryland körfuknattleiksliðið
endaði i áttunda sæti í banda-
risku háskólakeppninni í fyrra,
en er nú talið eitt af fimm beztu
háskólaliðum í Bandarikjunum,
og það bezta á austurströndinni.
Liðið hefur fimm menn sem eru
yfir 2 metrar á hæð, þar af einn
leikmann, sem valinn var í Olym-
píulið Bandaríkjanna 1972. Sá
heitir McMiller og er 2.11 metrar
á hæð. Er því með sanni hægt að
segja, að þeir hafi leikið á næstu
hæð fyrir ofan okkur.
Það er skemmst frá leiknum að
segja, að þetta var algjörlega leik-
ur kattarins að músinni. Hraðinn
var geysilegur og gerðu þeir
fjölda stiga eftir hraðaupphlaup,
og einnig gerðu þeir mörg stig
með þvf að blaka boltanum ofan í
körfuna, langt yfir höfðum okkar.
Og lauk leiknum með hinum ótrú-
legu tölum: 166 — 45. Þeir notuðu
sitt sterkast lið inná allan leikinn,
og er þjálfari Marylandliðsins
þekktur fyrir að láta kné fylgja
kviði, ef gefst færi, og berja and-
stæðinga sína eins langt niður og
mögulegt er.
Við vorum óheppnir með að-
sókn að leiknum. þrátt fyrir það,
að þetta væri fyrsti heimaleikur
Maryland á keppnistímabilinu,
en aðal ástæðan fyrir því, að
áhorfendur voru ,,aðeins“ 6000,
var sú, að þarna skammt frá fór
fram mikilvægur leikur fjrir
Maryland í amerískum fótbolta.
Meðal áhorfcndanna voru um 30
— 40 íslendingar og Vestur-ís
lendingar.
islenzka liðið virtist hafa flesta
af áhorfendum með sér. Og eftir
leikinn voru leikmenn umkringd-
ir af áhugasömum krökkum, sem
vildu fá eiginhandaráritun. Marg-
ir fullorðnir tóku leikmenn tali og
voru hissa á baráttugleði liðsins,
og að það skyldi ekki gefast upp.
Einnig lýstu margir yfir furðu
sinni á framkomu þjálfara Mary-
lands.
Allir Ieikmenn og þjálfari hafa
það gott og biðja að heilsa heim.
f keppninni. Þá hafa júgóslavnesk
lið vakið mikla athygli og jafnan
komið mjög við sögu í Evrópubik-
arkeppninni.
Það er því mikill fengur að þvf
fyrir íslenzkan handknattleik og
handknattleiksunnendur að nú í
vikunni og um næstu helgi mun
eitt bezta lið Júgóslava, Dynamo
Pancevo, keppa hér fjóra Ieiki við
íslenzk lið. Kemur liðið hingað í
boði Ármanns og leikur við Fram
á morgun, fimmtudag, við Val á
laugardag, við FH á sunnudag og
við landsliðið á mánudagskvöld.
„Kanarifuglamir" er gælunafn-
ið, sem lið þetta hefur í heima-
landi sínu. Kanarífuglareru litlir,
en fáir fuglar eru flugfimari en
þeir. Og fá lið munu búa yfir eins
mikilli tækni og hraða og þetta
handknattleikslið Dynamo Panc-
evo, sem þrisvar hefur hlotið
júgóslavneska meistaratitilinn,
þrisvar verið í öðru sæti og fimm
sinnum í þriðja sæti. S.l. vetur
komst liðið í úrslit júgóslavnesku
bikarkeppninnar, en tapaði vita-
kastskeppni sem efnt var til, er
leiknum hafði lyktað með jafn-
tefli. Nú er Dynamo Pancevo f
einum af efstu sætunum í fyrstu
deild og er talið eiga góða mögu-
leika á að hljóta meistaratitilinn.
Meðal leikmanna liðsins eru fjór-
ir núverandi landsliðsmenn og
þeirra á meðal er einn af allra
beztu handknattleiksmönnum
Júgóslvaíu, Branislav Pokrajac.
Hann hefur leikið 117 landsleiki
og skorað í þeim 313 mörk. Pokr-
ajac var í júgóslavneska landslið-
inu, sem lék hér í Laugardalshöll-
inni í desember 1971, og var þá
markhæsti leikmaður landsliðs-
ins. Um þennan leikmann var þá
m.a. sagt eftirfarandi i Morgun-
blaðinu:
„Júgóslavarnir náðu öllum tök-
um á Ieiknum og spiluðu íslenzka
liðið sundur og saman, enda var
spil okkar manna ákaflega þungt,
máttlaust og óákveðið. Þannig
kom það t.d. fyrir hvað eftir ann-
að, að Pokrajac, nr. 8., komst inn f
sendingar, brunaði upp völlinn á
hraða spretthlauparans og skor-
aði örugglega".
Eins og flestum mun f fersku
minni kom júgóslavneska liðið Za-
greb i heimsókn hingað i fyrra og
lék þá fjóra leiki við sömu lið og
Dynamo leikur nú við. Þeir leikir
voru flestir hinir sögulegustu, og
f þeim mikil harka og barátta.
Islenzku liðin stóðu sig frábær-
lega vel í þeirri baráttu. Fram
vann 21:20, Valur vann 15:13,
landsliðið gerði jafntefli 18:18 og
FH tapaði 18:19. Vonandi tekst
íslenzku liðunum að leika aftur
sama leikinn í ár.
SAAB sigraði
SÆNSKU meistararnir i hand-
knattleik. SAAB. sigruðu Borac
frá Júgóslavíu f fyrri leik liðanna
f Evrópubikarkeppninni i hand-
knattleik með 26 mörkum gegn
23. Staðan i hálfleik var 10—7
fyrir SAAb. Markhæsti maður
SAAB-liðsins var Lars Enström.
sem skoraði 8 mörk. en mark-
hæstur i liði Júgóslavanna var
Karalic með 6 mörk. Leikurinn
fór frarn i Svíþjóð.
Úlfarnir áfram
UM MIÐJAN dag í gær léku
Ulfarnir og Exeter i deildarbik-
arnum í Englandi: ekki var leikið
við fljóðljós vegna rafmagns-
skammtana. Ulfarnir unnu stór-
sigur. 5 :1. og halda þvf áfram í 5.
umferð keppninnar.
ÞÓTT potturinn hafi verið stór í sfðustu viku, 607 þúsund.varðvinningur þeirra getspökustu ekki
ýkja mikill að þessu sinni. Fram komu 17 raðir með 11 réttum og fá eigendur þeirra raða 25 þúsund
krónur f sinn hlut. 158 raðir fundust með 10 leikjum réttum og gerir það 1100 krónur í hlut.
Spámenn fslenzku blaðanna stóðu sig ekki sérlega vel, en Suðurnesjatíðindi höfðu flesta leiki rétta,
sjö.
Rússar draga í land
SOVETMENN hafa nú farið þess
á leit við Alþjóða knattsp.vrnu-
sambandið, að leik þeirra víð
Innanfélagsmót
INNANFÉLAGSMÓT Ármanns
og UMSK í frjálsum íþróttum fer
fram fimmtudaginn 22. nóv. n.k.
og hefst kl. 18.30. Keppnisstaður
er Baldurshagi, og keppnisgrein-
ar verða 50 metra hlaup karla og
kvenna, langstökk karla og
kvenna og hástökk kvenna.
Kraftlyftingamót
1. DESEMBER n.k. fer fram
Kraftlyftingamót Reykjavíkur í
Sænska frystihúsinu. Þátttökutil-
kynningar þurfa að hafa borizt til
Óskars Sigurpálssonar f sfma
72382 milli kl. 19.00 og 20.30 fyrir
26. nóvember n.k.
Chile verði frestað, meðan reynt
verði að komast að samkomulagi
um völl, sem báðir aðilar geti sætt
sig við. Sovétmenn höfðu áður
neitað að leika f Chile og Alþjóða
knattspyrnusambandið þá til-
kynnt þeim, að þátttöku þeirra í
Heimsmeistarakeppninni væri
lokið. Nú virðist Rússum sem sagt
hafa snúist hugur og segjast vilja
Ieika leikinn, þó ekki á vellinum í
Santiago, sem til skamms tima var
notaður sem fangagarður fyrir
7000 manns.
Talsmaður Chile sagði, að
landslið Chile væri tilbúið til að
leika leikinn í dag, eins og upp-
haflega var reiknað með. — Ef
Sovétmennirnir koma ekki, leik-
um við gegn Santos frá Brasilfu
til að halda upp á þátttöku Chile í
úrslitum HM næsta sumar, sagði
talsmaðurinn.
Talsmaður FIFA vildi Iftið um
málið segja, en taldi þó ólíklegt,
að beiðni Rússa utn frestun á
leiknum yrði tekin til greina.
Getrauna- tafla nr. 14 •H ‘O ce ri XI C S U o Ulb^óubiaojLÖ U •H CQ *H .£> •H "Ö •H vH -P w <D u C Ö rn r tíminn c c •H ,r~z <—i •H > ‘O vO •ra u o £ •H >: CÓ •Ö p o rH g <D P- >; Ctf Ö rr\ ö rH u O <D XJ -P O CQ o CQ co <D U O X «5 ö U Ö -p .c o C6 U, hr O rH <D fH >í *C c Ö 12 OÁÍ'IÍ' AJjkj 1X2
Birminsbam - Leicester X X X i X 2 X 1 X X X 2 8 2
Burnle.y - Stoke 1 1 í i 1 1 1 1 í í i 11 O 0
Chelsea - Southampton í 1 X i I V i X X í í 7 4 O
Coventrv - Shei'fielcL í X 1 2 2 i X 1 í 2 i 6 2 A y
Derby - Leecis 2 C. 2 1 1 J . CL i 2 2 4 O 7
Everton - Newcastle 1 1 1 X 1 1 1 i X i X 6 5 0
Ipswich - Man. City 1 1 1 1 1 1 1 1 1 i 1 11 O 0
Man. Utd.. - Uorwich X 1 1 1 1 1 1 X 1 i 1 9 2 u
QPfí - Liverpool X X 1 1 1 2 X 1 2 X X 4 b 2
Tottenham - Woives 1 1 1 2 1 1 1 1 2 1 i 9 O 2
A'esC Ham - Arsenal X 2 X X 2 2 2 X X X 2 6 9 0
Lotts C. - Miaaiesb. 2 X 1 2 X X X' X X 2 V A 1 7