Morgunblaðið - 28.11.1973, Page 18

Morgunblaðið - 28.11.1973, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1973 Hæstu laun þjóna 203 þús. á mánuði — segja veitingamenn Á FUNDI Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda með frétta mönnum í gær kom fram, að vegna umræðna um laun þjóna á fleiri en einum vettvangi hefur S.V.G. látið kanna launagreiðslur veitingahúsanna til þjóna á timabilinu 1. janúar til 31. október i ár, og nema þær greiðslur eftirtöldum fjárhæðum að meðaltali á mánuði til þeirra þjóna, sem verið hafa í fuliu starfi á þessu tímabili: Hæstu laun á mánuði Kr. 203.000.00 — 124.707.00 1. Ilótel A 2. Hótel B 3. Iíótel C 4. Hótel D 5. Ilótel E 6. Ilótel F 7. Ilötel G Lægstu laun á mánuði Kr . 96.000.00 — 74.911.00 — 57.431.00 — 94.352.00 — 67.406.00 — 90.312.00 206.430.00 107.132.00 110.822.00 181.625.00 Meðaltalslaun á mánuði Kr. 149.500.00 — 95.962.00 — 87.096.00 — 102.872.00 — 82.343.00 — 105.531.00 — 93.400.00 Þess bera að gæta, að þjónar greiða af þessum upphæðum laun til stúlkna, sem þeir hafa ráðið sér til aðstoðar við framreiðsluna, en hins vegar fá þeir óskert 15% þjönustugjald slikra aðstoðar- stúlkna. r Anœgja með lœkna- þjónustu en óánœgja með flugþjónustu DESIRIE NY HAR- GREIÐSLU STOF A Þingeyri, þriðjudag. HÉR er mikil ánægja með þá skipan læknaþjónustunnar, sem orðin er. Þannig er þessu nú fvrir komið fyrir tilstuðlan landlækn- is, að hingað eða til Flateyrar kemur læknir frá Landspftalan- um og hefur læknirinn þá annað- hvort aðsetur hér eða á Flateyri, til að gegna lækisþjónustu í báð- um kauptúnunum hálfsmánaðar- tíma í senn. Þetta er alveg ómetanlegt aðokkardómi. En sem við erum ánægð með skipan læknaþjónustunnar, er hér mikil óánægja með skipan flugmálanna og er nú ástandið allt verra en var í fyrra er flug- félagið Vængir hélt hingað uppi ferðum. Voru þær farnar 5 sinn- um í viku, en eftir að leyfið var tekið af flugfélaginu og fengið Flugfélagi Islands í hendur, er þjónustan við okkur mjög lítil — tvær ferðir í viku og alls konar vanefndir á þjónustu. Hér er fólk að biðja mig að spyrjast fyrir um það gegnum Morgunblaðið, hvað orðið hafi af sérstöku áskorunarskjali, sem hér var undirritað af miklum meiri- hluta Þingeyringa, og virðist að okkar áliti hafa lent ofanf ein- hverri djúpri skúffu eða bara beint í einhverja bréfa körfuna. — Er hægt að upplýsa það? Hulda- FYRIR helgina var opnuð ný hárgreiðslustofa í Reykjavík. Nefnist hún Deseríe og er að Laugavegi 19, þar sem Femina var áður var áður. Eigandi stof- unnar er Doddý Hjörvarsdóttir. Húsakynni hárgreiðslustofunn- ar eru mjög skemmtileg og eru allar innréttingar í Napoleons stll. Fjórar hárgreiðslustúlkur munu fyrst í stað vinna á stof- unni, en hægt verður að sinna 12—14 konum í einu. Fyrir framan vinnuherbergin er mjög skemmtileg setustofa, þar sem Fótbrotnaði UMFERÐARSLYS varð á Frfkirkjuvegi við Skothúsveg um kl. 19 í gærkvöldi. 65 ára kona varð fyrir fólksbifreið. Var konan flutt f slysadeild til rannsóknar og meðferðar. Hún hafði hlotið höfuðhögg og virtist vera fótbrot- in. viðskiptavinir geta fengið sér sæti og hlustað á plötur á meðan heðið er eftir klippingu eða lagningu. Doddý var fyrst í tvö ár á hár- greiðslustofunni á Loftleiðum og síðan í önnur tvö ár á hárgreiðslu- stofunni Hödd. Hún er nú ný komin heim frá sérnámi. En hún vann um 5 mánaða skeið hjá þeim fræga Stuhr í Kaupmannahöfn. Hún sagði, að karlmenn væru ekki síður en kvenfólkið velkomn- ir. En sérgreinar Doddýar í hár- greiðslunni eru einmitt skæra klippingar, blásun og „krúlliet." - Watergate Framhald af bls. 1 sagt, að rannsóknin væri að f jara út. Ilins vegar játaði hann aðekki væri víst, að nýjar harðar stað- reyndir kæmu fram í dagsljósið og sagði, að þá yrðu ekki fleiri yfirheyrslur. Stórgjöf Kiwanis- klúbbsins Elliða Hinn 22. sept. s.l. komu nokkrir félagar frá Kiwanisklúbbnum Elliða í heimsókn í Dagheimilið Lyngás, Safamýri 5, sem rekið er af Styrktarfélagi vangefinna. Færði þáverandi forseti klúbbs- ins, Öm Efeilsson, Dagheimilinu Lyngási kr. 203.250.00 að gjöf. Skal þessari fjárhæð varið til hagsbóta fyrir vistmenn heimilis- ins. Stjórn Styrktarfélags vangefinna og dagheimilisstjórn Lyngáss færa Kiwanisklúbbnum Elliða beztu þakkir fyrir rausnarlega gjöf og eru þegar í undirbúningi áætlanir um það, á hvern hátt þessi fjárhæð komi að sem beztum notum fyrir vistmenn heimilisins. Styrktarfélag vangefinna. --- ♦ ♦ ♦- Vinnuslys í álverinu VINNUSLYS varð í álverinu í Straumsvík á mánudagskvöldið. Verið var að berja gjall af svo- nefndum skautgaffli, sem er um 150 kg þungt járnstykki, þriggja metra langt, er gaffallinn hrökk á einhvern hátt af krók þeim, sem hann hékk á, og féll á höfuð eins starfsmannsins. Maðurinn var með hjálm á höfði, sem vafalítið hefur bjargað lifi hans, en hann kiknaði undan þunganum og kvartaði undan eymslum í herð- um og hálsi. Var hann fluttur í sjúkrahús. — Vinnuslys eru fremur fátíð í álverinu, þar sem mjög mikil áherzla er lögð á að koma í veg fyrir þau með ýmsum aðferðum. - Veitíngamenn Framhald af bls. 32 Sem kunnugt er dæmdi Félags- dómur ólögmætt verkfall þjóna, sem þeir hófu 2. apríl 1972, og nú 29. október kvað Félagsdómur svo upp þann úrskurð, að hann féllist á þá skoðun veitingamanna, að álagningarstofn þjónustugjalds til framreiðslumanna sé verð veit- inga án söluskatts. Söluskatt og viðlagasjóðsgjald beri að reikna af verði veitinga að viðbættu þjónustugjaldi. Að sögn S.V.G hefur stjórn Félags framreiðslu- manna viðurkennt, að verkfallið sé boðað vegna úrslita málsins fyrir Félagsdómi og haldið þvi á loft sem röksemd fyrir verkfall- inu, að kjör þjóna hafi með dómi Félagsdóms verið rýrð um 11.5%. Telja veitingamenn það furðu- legt, „að stjórn F.F. skuli reyna að telja almenningi trú um, að ólögmæt sjálftaka þjóna á fjár- munum annarra hafi verið hluti af kjörum þeirra“. Veitingamenn segjast hafa fengið kröfur þjóna í hendurnar 1. nóvember sl. og verkfallsboðun daginn eftir, áður en þeir hafi einu sinni haft tíma til að kynna sér kröfurnar að ráði. Að sögn S.V.G. er meginkrafa þjóna í tveimur liðum og hún og aðrar kröfur svo hóflausar, að vonlaust sé sem stendur, að sam- komulag náist. Meginkröfur þjóna túlka veitingamenn á eftirfarandi hátt: a. Að þeim verði tryggð lág- markslaun á mánuði sem hér segir: 1. Framreiðslum. á 1. ári f iðn- inni. Kr. 52.000,-pr. mán. 2. Framreiðslum. á 2. og 3. ári f iðninni. Kr. 58.240,-pr. mán. 3. Framreiðslum. eftir 3ja ára starf. Kr 62.400 - pr. mán. 4. Yfirframreiðslumaður kr. 75.720,-— Kr. 86.120 - pr. mán. Samsvarar þetta hækkun, sem nemur 60.4% á fyrstu tvo flokk- ana, en frá 62.8 — 84.5% á hina flokkana. b. Þágera þjónarnú kröfu um, að almennt þjónustugjald hækki úr 15% í 23% eða sem sam- svarar 53.3%, og í sumum til- fellum er gerð krafa um allt að 46% þjónustugjald. Á síðasta fundi deiluaðila lækk- uðu þó þjónar kröfu sína niður í 21.6% og samsvarar þá krafa þeirra 44% hækkun á þjónustu- gjaldi. Segja veitingamenn ógerning að ganga að þessari kröfu, sem raski áratuga venjum í þessu efni, auk þess sem krafa þjóna sé úr öllu samhengi við það, sem hæst þekkist með öðrum þjóðum. - Verðhrun Framhald af bls. 1 inn í október var 527 milljónir dollara, sá næstmesti á þessu ári. Greiðsluafgangur . Bandaríkja- manna fyrstu tíu mánuði ársins eru 680 milljónir dollara, en á sama tímabili i' fyrra var 5.2 millj- arða greiðsluhalli. Þessi breyting er talin árangur tveggja gengis- fellinga. George Shultz fjármála- ráðherra segir, að dollarinn, sem hefur styrkzt að undanförnu, sé nú nánast á réttum kili. í London er óttazt, að lækkun á vöruverði vegna olíutakmarkana Araba geti dregið úr tekjum van- þróuðu ríkjanna f erlendum gjaldeyri. Verð á kopar, blýi og tini fer lækkandi. Ástæðan er sögð hugsanlegur samdráttur í iðnaðarríkjum og skipaskortur. I Washington sagði Henry Kiss- inger utanríkisráðherra á fundi með þingleiðtogum, að ólíklegt væri, að Arabar hættu takmörk- unum á olíusölu til Bandarikj- anna fyrr en áfram miðaði í við- ræðum um frið í Miðausturlönd- um. Ilann vonast til, aðfriðarvið- ræður hefjist 18. desember. tfíðarpiljur (Fancy boards) Gullálmur, eik, teak. Stærð 122 x 244 cm. Verð frá kr. 1.685.- pr. stk. Afgreiðsla: Skeifan 19. W TIMBURVERZLUNIN VÖLUNDUR H.F. sími 85286. GBAM FRYSTIKISTUR hafa alla eiginleika þess bezta, sem völ er á, enda framleiddar af virtustu dönsku verksmiðjunni í sinni grein. Lítrar 220 345 470 590 B í cm 70 100 130 160 H i cm 90 90 90 90 D i cm 63+4 63+4 63+4 63+4 Akiö beint i hlaö - Næg bilastæöi Fyrsta flokks frá FONIX HÁTÚNI 6A SÍMI 24420

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.