Morgunblaðið - 28.11.1973, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.11.1973, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1973 19 PÓLITÍSK EMBÆTT- ISVEITING EÐA HVAÐ ? Blaðinu hefur borizt eftir- farandi opið bréf til menntamála- ráðherra frá Félagi stúdenta í heimspekideild Ifáskúla íslands: Hr. menntamálaráðherra, Magnús Torfi Ólafsson. Nú í haust skyldu veittar tvær lektorsstöður í heimspeki við heimspekideild Háskóla íslands. Um þá, er fyrr skyldi skipað í, sóttu fimm menn. Dómnefnd fjallaði um hæfni þeirra til starfs- ins og taldi tvo hæfasta, þá Pál Skúlason, er einhvern næstu daga ver doktorsritgerð í heimspeki við háskóla erlendis, og Þorstein Gylfason, sem lokið hefur B.A. prófi í sömu grein. Ileimspekideild mælti með Páli Skúlasyni f stöðuna. Umsækjendur um síðari lektorsstöðuna voru allir hinir sömu, að einum viðbættum, — dr. Jóhanni Páli Ámasyni. Engin dómnefnd fjallaði um hæfni hans. en ætla verður, að hann, sem lokið hefur doktorsprófi f rá tveim erlendum háskólum, hljóti að vera vel hæfur til starfsins. Nú brá svo við, er skipað var í fyrri stöðuna, að gengið var í ber- högg við vilja heimspekideildar og Þorsteini Gylfasyni veitt stað- an. Var þar freklega gengið fram hjá Páli Skúlasyni, sem kennt hefur heimspeki við deildina frá því kennsla hófst í þeirri grein til B.A. prófs, og öðrum fremur grund vallað námið þar. Slíkt ófremdarástand varð á heimspekikennslunni, að með skipan Þorsteins í lektorsstöðuna lagðist hún að verulegu leyti niður, þar sem Páll Skúlason Iagði niður sína kennslu, enda var Iðnaöarhúsnæði 1 50 — 300 fm iðnaðarhúsnæði óskast til leigu. Upplýs- ingar í síma 35646. óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: ULRICKS METTE MOLBO BÓMULLARGARN Fæst í flestum hannyrðaverzlunum um land allt. BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST Upplýsingar í síma 35408 AUSTURBÆR Laufásvegur 58 — 79 — Laufásvegur2 — 57 Barónstíg. VESTURBÆR Vesturgata 2 — 24 — Grenimelur ÚTHVERFI Sólheimar I GARÐAHREPPUR Börn vantartil að bera út Morgunblaðið á Flatirnar Uppl. hjá umboðsmanni í síma 52252 GARÐUR Umboðsmaður óskast í Garði. — Uppl. hjá umboðsmanni, sími 7164, og í síma 10100. KÓPAVOGUR Blaðburðarfólk óskast í Bræðratungu. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 40748. NY FLURPIPA w Nú er ryk á flúrpípum ekki lengur vandamál — ef notaðar eru PHILIPS „TLF" flúrpípur. Innbyggður spegill varpar Ijósinu niður um birtuglugga og rykið sem sezt ofan á dregur því ekki úr Ijósmagninu. Þessi flúrpípa hefur sýnt að Ijósmagn hennar getur verið allt að 92% meira en venjulegra ryk- fallina flúrpípna. Tilvalin þar sem auka þarf Ijósmagn, án þess að skipta um lampabúnað. Leitið upplýsinga strax í dag og sparið yður stórfé með bættri birtu. Frá Philips fáið þér lampa fyrir hverskonar lýsingu. Philips framleiðir yfir 40.000 mismunandi gerðir af Ijósgjöfum og við eigum ótrúlegan fjölda þeirra á lager. HEIMILISTÆKI S . F. SÆTÚNI 8 - SÍMI 24000 hann ekki einu sinni lausráðinn til kennslustarfa við Háskólann. Til að ráða bót á öngþveiti því, er skapaðist við stöðuveitingu þessa, sá heimspekideild sér ekki annað fært en æskja þess, að Páll Skúlason yrði skipaður í sfðari lektorsstöðuna, sem nú hefur verið gert. Var þar með búið að útiloka dr. Jóhann Pál Ámason frá embætti, án þess að hæfni hans — eins umsækjenda — hefði verið metin. Rétt er að geta þess, að náms- braut f þjóðfélagsfræðum hafði mælt með Þorsteini Gylfasyni i lektorsstöðu i stjórnmálalegri heimspeki, sem hann hafði einnig sótt um. Stjórn Fe'lags stúdenta í heim- spekideild vítir harðlega þau vinnubrögð, sem hér hafa átt sér stað, og krefst svara við eftir- greindum spurningum: 1. Hver var ástæða þess, að menntamálaráðherra gekk í ber- högg við vilja tveggja háskóla- deilda með áðurgreindum emb- ættisveitingum meðþvf að. a) Veita Páli Skúlasyni ekki þá stöðu, sem hann hafði hlotið með- mæli í, þ.e. lektorsstöðu I í heim- speki? b) Veita Þorsteini Gylfasyni ekki þá stöðu, er mælt hafði verið með honum í, þ.e. lektorsstöðu f stjórnmálalegri heimspeki við námsbraut í þjóðfélagsfræðum? 2) Hví var dr. Jóhann Páll Ámason ekki látinn sitja við sama borð og aðrir umsækjendur og dómnefnd látin fjalla um hæfni hans til starfs þess, er hann sótti um? Fáist ekki svö við spurningum þessum, lítur stjórn Félags stúdenta í heimspekideild svo á, að hér sé óhreint mjöl í pokahorni menntamálaráðherra. sem hann vilji ekki birta almenningi. Við ftrekum þvf, að bréfi þessu verði sinnt og spurningum þess svarað. Reykjavik 20. nóvember 1973 Virðingarfyllst: I stjórn F.S.H. Erlingur Sigurðarson (sign) Sverrir Páll Erlendsson. (sign) Guðrún Ása Grímsdóttar (sign) Jón Þór Jóhannsson (sign) Áskell Öm Kárason (sign) Myrtur í fangelsi? Walpole Massachusettes, 26. nóv.. AP. Albert Desalvo, maður sá, er á sínum tíma játaði á sig morð 13 kvenna í Boston á árunum 1962—64, en afturkallaði síðan játninguna, fannst i dag látinn i fangaklefa sínum. þar sem hann afplánaði lífstíðarfangelsi fjrir líkamsárásir. Ilafði Desalvo verið stunginn nteð hnífi. Laurence Harvey látinn London AP. BR EZ KI kvi k my nd aleikari nn Laurence Ilaney lézt á heimili sínu í London á sunnudag. 45 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. sem hafði hrjáð hann í hálft annað ár. Harvey var sérstaklega kunnur fyrir leik sinn í myndunum ..Room at the Top '. ,.The Manchurian Candidate'' og „Darling". Vilja 50 mílur Haretad. 26. nóvember. NTB SVEITARSTJÓRNAR FÉ LAGIÐ á Karlsöy. eitt niesta fiskipláss í Ti'oms, hefur skorað á stjórnina að færa landhelgi Noregs út i 50 mflur frá 1. janúar 1975. hversem niðurstaðan verður af hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Sanþykktin er vegna sívaxandi ágangs erlendra togara við Norður-Noreg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.