Morgunblaðið - 04.12.1973, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBKR 1973
Skyggðu lfnurnar afmarka helztu þurrkasvæðin.
Enn eykst hungrið
vegna þurrkanna
_ skt-ru. Á árinu 1972 var hi
i Afriku
leitar slæður fyrir andliti. Þetla
Verra gat vart gerzt. Þurrk-
arnir miklu, sem undanfarin
sex ár hafa herjað á víðáttu-
mikil svæði fyrir sunnan Sa-
hara-eyðimörkina og valdið
dauða tugþúsunda manna, eiga
eftir að hafa enn meiri hörm-
ungar I för með sér á næsta ári.
Eins og einn af talsmönnum
alþjóða hjálparstarfsins komst
að orði: „í samanburði við 1974
verður litið á yfirstandandi ár
sem tíma allsnægta.'*
Urkoman hefur brugðizt
iskyggilega. Opinberir starfs-
menn i svonefndu sahelisku
löndunum, þessum sex fyrrum
frönsku nýlendum, hafa safnað
úrkomuskýrslum frá flestuin
héruðum svæðisins. Eru niður-
stöðurnar yfirleitt á einn veg:
þurrkurinn heldur áfram. Ur-
kornan hér i Niger var til
dæmis allt of lítil og allt of
snemma. Uppskeran hefur
brugðizt og bændurnir þegar
farnir að betla, þótt enn séu sjö
mánuðir þar til þeir geta farið
að plægja, sá og vonast aftur
eftir rigningu.
Ég er nýkominn úr ferð um
sum verstu þurrkahéruðin, fór
i lest 20 Land Rover jeppa og
þriggja vöruflutningabifreiða,
sem eru gjöf til stjórna Mali og
Niger frá kristilégum hjálpar-
samtökum. Við fórum vestari
leiðina yfir Sahara yfir i norð-
austurhérað Mali.
Samkvæmt hagskýrslum
Sameinuðu þjóðanna er Mali
annað snauðasta land heims, og
meðalaldurinn þar 31 ár. Og
norð-austurhéraðið er vanþró-
aðasta hérað Mali. Þar er neðsti
kjallari fátæktarinnar. A leið
okkar um héraðið var vart naut-
pening að sjá, þótt þar eigi að
vera hagabeit hjarða hirðingja-
þjóða eins og Tuarega. Þurrk-
arnir hafa drepið um 90% alls
búpenings á svæðinu, og blásin
beinin blasa þar við.
Líf Tuareganna er nú orðið
gjörbreytt. Um aldaraðir hafa
þeir búiðá eyðimörkinni, verzl-
að með salt og stundað hjarðir
sínar, og haldið svarta þræla.
Sjálfir eru þeir ljósir yfirlitum,
en oft nefndir bláu mennirnir.
hefur verið stolt þjóð, sem átt
hefur eigin tungu og letur, en
nú eru Tuaregar betliþjóð.
Meðfram leið okkar standa
fullorðnir menn og tauta „bon-
bon“. Þeir eru þarna með börn-
urn sinum að sníkja sælgæti ;if
brezku hermönnunum, sem
lánaðir hafa verið til að aka
bifreiðum hjálparsamlakanna.
Smábörn í ólýsanleguin tötrum
hafa lært af mæðrum sinum að
biðja ferðamenn um fatnað til
að verjast nístingskulda eyði-
merkurnæturinnar. Við öll
þorp og bæi eru svo búðir nauð-
staddra Tuarega.
Jafnvel meðfram bökkum
Niger-fljótsins eru bændaþjóð-
ir eins og Songhai hálf sveltar.
Uikoman brást, þrátt fyrir
virkjun tækninnar Myndir af
skýjamyndunum teknar úr
bandarískum veðurathugana-
hnetti voru sendar jafnóðum til
Niamey í Niger, og ef sást til
regnskýja, voru flugvélar send-
ar á vettvang til að dreifa yfir
þau efnum, sem fengu regnið
til að falla til jarðar. Farnar
voru um 70 flugferðir í þessum
tilgangi frá Niamey, en það
nægði ekki.
„Næsta ár verður sérlega
slæmt, því bændur hafa eytt
ollum birgðum sínum," segir
Aehim Kraft frá Þý'zkalandi, en
hann er einn af forstöðumönn-
um evrópska þróunarsjöðsins.
Á einum veggnum í skrifstofu
hans i Niamey hangir stórt
kort. er sýnir uppskerubreslinn
í Niger. „Við þurfum á miklu
meiri aðstoð að halda næsta
ár,“ segir hann. Þróunar-
sjóðurinn gaf Niger um
17 þúsund tonn .af korn-
vöru á þessu ári, en Kraft
scgir að miða bcri að því að
gefa þangað 30 þúsund tonn á
næsta ári. Áætlað er, að upp-
skeran í Niger verði 800 þús-
und tonn á árinu 1974, og er
það 300 þúsund tonnum minna
en í meðalári.
1 Keita-héraði í Niger, norð-
vestan við höfuðborgina, hefur
uppskerubresturinn verið al-
ger. I meðalári fá bændurnir
þar urn 340 þúsund tonna upp-
þessu þurrkaári hrapaði upp-
skeran niður í 800 tonn.
Ráðherra sá i Niger, sem sér
um dreifingu matvælagjafa frá
öðrum löndum, heitir Leopold
Kaziende og var áður kennari.
Segir hann, að eingöngu stór-
felld alþjóðahjálp geti bjargað
milljónum íbúa þurrkasvteð-
anna frá hungurdauða. „Við
þurfum nokkurs konar
Marshallhjálp," sagði hann. „I
ár höfum við ekki eintt sinni
fengið keypt frækorn frá
Norður-Ni'geríu, þvi einnig þar
hafa þurrkarnir dregið úr upþ-
skerunni."
Enginn þekkir betur til htutg-
urdauðans i Nfger en Norð-
maðurinn Arnulf Tjurgen.
Ilann er fulllrúi Rauða krossins
i Niger og rekur búðir fyrir
flöttafólk í útjaðri Niame.v.
Aður en hann kom þangað voru
búðirnar lítið annað en móts-
slaður fyrir flakkaiuli betlara.
Tjurgren kom á fót matar-
gjöfum og læknisaðstoð. Síðan
hefur ástandið batnað mjög, en
þóer kirkjugarður viðbúðirnar
með um þúsund nýlegum gröf-
um.
Fjöldi barna er í búðunum,
um 600 talsins. „Finnist þér
þau ekki líta mjög illa út, þá er
það af því þau fá nú mjólk
daglega og vegna þess, að þau
börn, sem verst voru leikin, eru
nú látin," sagði Tjurgren.
Flestir Tuaregarnir i búð-
unum eru komnir alla leið frá
Mali, um 300 kílómetra vega-
lengd. Segja þeir ekkert hafa
verið fyrir |>á gert f Mali og
saka ráðamenn þar um að nota
sér þurrkana til að ná sér niðri
á Tuaregum fyrir að hafa áður
fyrr hneppt menn af ráðandi
ættflokkum þar í landi í ánauð.
Re.vnt hefur verið að fá
flökkuþjóðirnar á þurrkasvæð-
inu til að setjasl i helgan stein
og rækta landið með áveitum úr
brunnum, en það hefur lítinn
árangur borið. Þeir vilja fá að
halda áfram flakki sínu með
hjarðirnar, en þar til næg úr-
koma fæst verða þeir að reyna
að bjarga sér á matargjöfum í
hjálparbúðum
Ymsar alþjóðahjálparstofn-
anir eru nú að undirbúa stór-
aukna aðstoð við íbúana á
þurrkasvæðunum og leita
matar-, lyfja- og peningagjafa
víða um heim. Þær benda þö á,
að hjálparstarfið sé mjög fjár-
frekt og taka sem dæmi. að
flugvél, sem flytur 14 tonn af
matvælum til norðaustur-
héraðs Mali, noti til þess 17
tonn af eldsneyti.
Skrifað í Niamey, Nfger í
nóvember.
vegna þess að þeir bera blá-
Eftir
THE OBSERVER Jeremy
—v^-rv— ' » Bugler
HAFNARFJARÐARAPÓTEK Opið öll kvöld til kl 7, nema laugard til kl 2. Helgidaga frá kl 2—4. BROTAMÁLMAR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði Staðgreiðsla Nóatúni 27. simi 25891
TRÉSMIÐUR utan af landi óskar eftir herbergi Upplýsmgar i sima 1 3969 eftir kl 1 8 HEIÐRUÐU LESENDUR! Tökum að okkur úrbeinmgai á öllu kjöti fyrir verzlanir og heimili og göngum frá því i neytenda pakkningar Sækjum, sendum Simi72475 — 84923
BÍLAVARAHLUTIR Varahlutir í Cortinu, Benz 220, '62 og eldri. Taunus 1 7 M '62, Opel '60 — '65 og flest.allar gerð ir eldri bíla Bílapartasalan, Höfðatúni 10. Sími 1 1397. Opiðtil kl. 7. HÚSEIGENDUR Glerisetning. tvöföldun oj)itanleg fög með járnum Setjum upp þak rennur og önnumst allskyns lag færingar. Upplýsingar i simum 40083 og 71044
HAFNARFJÖRÐUR — ÍBÚÐ Barnlaus hjón, reglusöm og umy ignisgóð vantar 2ja — 3ja herb. Ibúð i Hafnarfirði. Vinsam- legast hafið samband i sima 52985 ANTIK Sófasett í séiflokki, boiðstofuborð og stólar, armstólar. ruggustóll. borðklukkur. skrifborð, skatthol o fl ANTIK HÚSGÖGN, Vesturgötu 3, sinti 25160
TILSÖLU Ótollafgreiddur Mercedes Benz 28P SE sjálfskiptur Power bremsur og stýri Mótel 1969 Keyrður 84 000 km Mjög vel með farinn Verð kr 440 000 00 Uppl á kvöldin i sima 1 0028 VIÐGEROIR Tek að mér réttinyai og almennai boddiviðgeiðn Upplýsmgai i siina 33248 og 4 1 756
Hestamannaféiagiö
Fákur
Fræðslufundur verður haldinn í félagsheimilinu miðviku
daginn 5. des. kl. 9. Sýndar verða 3 kvikmyndir um
þjálfun og notkun bandarískra reiðhesta
Myndirnar eru gerðar á vegum Hrossara.-ktasambands
Bandarikjanna. Verði mikil aðsókn, verða myndirnar
endursýndar
Fræðslunefndin.
Þaö, sem boröaö er fyrst á morgnana,
er undirstaða aö starfi og vellíðan.
Þeir, sem temja sér þá reglu aö drekka
eitt glas af hreinum TROPICANA appel-
sinusafa meö morgunveröinum, tryggja
sér fjörefni og næringarefni til góöa,
fyrir amstur dagsins. í hverjum dl. af
TROPICANA er um þaö bil 40 mg. af
c-vitamíni og mest 50 hitaeiningar.
JROPICANA
1 sólargeislinn
frá Florida