Morgunblaðið - 04.12.1973, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 04.12.1973, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1973 Er ísöld í aðsigi? Island kemur við sögu í Hvem, hvad, hvor 13 Þjóðsögur Jóns Arnasonar r koma út hjá Isafold MORGUNBLAÐINU hefur borizt frá Politikens forlag bókin Syng og spil folkemusik, 150 söngvar frá 28 löndum. Meðal þeirra eru 35 söngvar í danskri þýðingu Benny Anderssen, Niels Lund og Halfdan Rasmussen. í bókinni eru myndir, textar og nótur. Söngvar eru á fjölda mála, en þó ber þess að geta, að enginn er á íslenzku. Bókin er 285 bls. að stærð. Þá hefur Morgunblaðinu einnig borizt frá sama forlagi Hvem, hvad, hvor 1974. Bókin er 511 bls. að stærð. í henni er allviða getið fslenzkra máefna. Sérstök opna er um eldgosið í Heimaey með kortum og litmyndum og auk þess er landhelgismálið rakið þar sem það kemur við sögu í tímaröð heimsviðburða. Sérstakt litakort er af íslandi, þar sem sýnd er gamla 12 sjómílna fiskveiðilög- sagan og svo einnig hin nýja 50 sjómílna lögsaga. Margt fleira er að sjálfsögðu í þessari nýju útgáfu af Hvem, hvad, hvor, yfí'rlít yfir heims- atburði, sérstakir kaflar um Grænland og Færeyjar, lífið í náttúrunni, nýja bíla, visindi, bókmenntir og listir og önnur menningarmál, varnarmál og efnahagsmál. Sérstakur þáttur um Picasso með litmyndum af verkum hans, Iþróttir, kvik- myndir, leiklist, svo að ekki sé talað um eilífðarmál eilifðarmál- anna: stjórnmálin. í þessu nýja riti af Hvem, hvad, hvor vekur sérstaka athygli grein, sem heitir: Er ný isöld í aðsigi? Þar er m.a. bent á, að yfirvofandi sé, að þorskstofninn við Grænland hverfi af miðunum þar vegna hitabreytinga í sjónum, Norður-Atlantshafið hafi kólnað um hálfa gráðu og haldi sú þróun áfram. Margt fleira er í þessum kafla, sem Islendingum hlýtur að verða ærið íhugunarefni. Ein kaflafyrirsögn þessarar greinar nefnist Danmörk flytzt 1000 km norður á bóginn, önnur minnkandi sólarorka og sú þriðja Hvað getum við lært af rekisnum við Grænland?, svo að dæmi séu nefnd. MORGUNBLAÐINU hafa borizt tvö bindi af Þjóðsögum Jóns Árnasonar, ævintyri, sem isafold gefur út. Á bókarkápum segir um efni þessara tveggja binda: „Björn Jónsson, ritstjóri Isafoldar, hóf árið 1901 að gefa út urval hins mikla safns Jóns Ámasonar í handhæeum bókum, sem einkum voru aptlaðar börnum og ung lingum. Þessar bækur eru löngu uppseldar og hafa þjóð- sögurnar ekki verið fáanlegar i að gengilegri útgáfu um langt skeið. ísafoldarprentsmiðja hefur nú hafið endurútgáfu þessara vin- sælu bóka. sem ungir og aldnir hafa lesið upp til agna í bókstaf- legri merkingu allt frá þvi, að þ jóðsagnasafnið fyrst var prentað árið 1862. Alls verða bækurnar 9 að tölu og eru þegar komnar út fjórar bækur, þ.e. huldufólkssögur, galdrasögur, útilegumannasögur og drauga- sögur. Nú koma út tvö bindi ævin- týra og er þar að finna flest hinna vinsælustu og þekktustu ævintýra íslenkra þjóðsagna. Ævintýri þessi eru síðan talin upp og þ.á.m. eru Búkolla, Grámann og sagan af Hlyna kóngssyni. Öskar Halldórs- son, lektor hefur umsjón með þessari útgáfu, en Halldór Pétursson listmálari myndskreytiV bækurnar. Utsölustaðir utan Reykjavíkur: Versl. Örin, Akranesi. Versl. Stjarnan, Borgarnesi. Vesturljós, Patreksfirði. Versl. Einars Guðfinnss., Bolungarvík. Versl. Póllinn, Ísafirðí. Versl. Hegri, Sauðárkróki. Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri. Versl. Askja h.f., Húsavík.' Versl. Mosfell, Hellu. Kaupfélagið Höfn, Selfossi. Stapafell, Keflavík. Útsölustaðir í Reykjavík: Heimilistæki, Hafnarstræti, Rafiðjan h.f., Vesturgötu 11, Raftorg, Kirkjustræti. Raflux. Austurstræti 8. Raforka, Grandagarði, Jón Loftsson, Hringbraut 121. Á þessari mynd eru öll þau heimilistæki, sem við höfum upp á að bjóða, og á þessari mynd eru flest þau heimilis- tæki, sem gera má ráð fyrir að heimili hafi þörf fyrir. Kæliskápar, frystiskápar, frystikistur. Hraðsuðukatlar, brauðristar, vöfflujárn Eldavélar, eldavélasamstæður, grillofn- Pottar, kaffikvörn, sjálfvirk kaffikanna. ar. Uppþvottavélar, þvottavélar, strau- Rafmagns brauð- og skurðhnífar. vélar. Hrærivélar ásamt fylgihlutum. Rafmagnsbrýni, rakvélar o. fl. Hvað sem þig vantar af heimilistækjum, þá liggur leiðin í Heklu miðstöð með úrval heimilistækja á hagstæðu verði. tfenwood Laugavegi 170-172. Sími 21240 og 11687 MKyzm. í p i I 1111.11] - '■'*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.