Morgunblaðið - 04.12.1973, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DE]SEMBER 1973
X5
Þakkir frá norður-írskum börnum
Blaðinu hafa borizt eftirfarandi
þakkarorð til tslendinga frá öðr-
um leiðtoga írsku barnanna, sem
Hjálparstofnun kirkjunnar bauð
hingað til lands s.I. sumar.
Sem leiðtogi barnahópsins frá
Norður-írlandi, er dvaldi á ís-
landi 23. ágúst — 4. september
s.1., Iangar mig að koma á fram-
færi í blað yðar, fyrir hönd barn-
anna, þökkum til þeirra mörgu,
sem gerðu þessa dvöl svo ánægju-
lega, eftirminnilega og árangurs-
ríka, sem raun ber vitni. Hvar
sem við komum var okkur tekið
með vináttu og gestrisni allra,
sem við hittum.
Við viljum sérstaklega þakka
Hjálparstofnun kirkjunnar,
hjálparsjóði kaþólskra safnaða á
Norðurlöndum og öllum öðrum
félögum, samtökum og ekki sizt
einstaklingum, sem með fórn-
fúsum gjöfum gerðu þéssa dvöl að
veruleika.
Eins og s.I. ár heiðraði forseti
íslands, hans góða kona og biskup
Islands hóp okkar með nærveru
sinni. Við þökkum þeim í ein-
lægni vinsemd og hlutdeild.
Við þökkum einnig Páli Braga
Kristjónssyni, framkvæmdastjóra
Hjálparstofnunar kirkjunnar,
séra Rdbert Jack, séra Georg f
Landakoti, séra Ingólfi Guð-
mundssyni og Eiríki syni hans,
frú Hrefnu Tynes, Brian Holt og
konu hans, forráðamönnum og
starfsfólkinu i Leirárskóla,
prestshjónunum í Saurbæ og
mörgum í prestakallinu, prófasts-
hjónunum á Akranesi og öllum
öðrum vinum þar og í Borgarnesi,
Egilsdóttur
svo og öllum þeim mörgu, er hér
verða ekki taldir, en áttu þátt í að
gera dvölina ógleymanlega með
gjafmildi og gestrisni.
Sjálfum var mér mikil gleði að
hitta aftur svo marga vini, er ég
eignaðist hér með fyrri hópnum
1972. Ég sendi þeim beztu
kveðjur og óskir.
Að lokum vil ég láta í ljós þá
von mina og bæn, að dvöl barn-
anna á islandi, hafi hjálpað þeim
til að skilja hina sönnu þýðingu
góðvilja og bræðralags. Að þau,
að þessari reynslu fenginni, þar
sem mótmælendur og kaþólikkar
dvöldu saman i sátt og samlyndi á
islandi, útbreiði þann sannleika,
að aðeins með vináttu og sam-
vinnu er unnt að endurvekja
þann frið og þá hamingju, sem við
öll óskum að geti rikt á ný í okkar
ástkæra landi.
Guð blessi islendinga.
Fyrir hönd barnanna
Belfast og Derry,
Gerry O’Kane,
leiðtogi.
frá
Acta Botanica
r
Islandica komin út
2. hefti tímaritsins, Acta Botan-
ica Islandica 1973, sem er rit um
fslenzka grasafræði er nýútkomið
hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs.
Ritstjóri tímaritsins er Ilörður
Kristinsson. 1 tímaritinu eru
greinar á íslenzku, ensku,
frönsku og þýzku.
Hörður minnist Helga Jónas-
sonar frá Gvendarstöðum í byrj-
un heftisins og gefur yfirlit á
ensku yfir nýleg rit um íslenzka
grasafræði í lokin. Islenzkir
greinahöfundar eru Helgi Hall-
grimsson, Öskar Ingimarsson og
Sigurður Jónsson, sem skrifar í
samvinnu við Bernadette Caram.
Aðrir útlendingar, sem í heftið
skrifa eru T.W. Johnson jr., K.L.
Howard, D. Padgett og G. Ruck
ert.
Stafa- og vísna-
kver eftir Herdísi
isafoldarprentsmiðja hefur
sent frá sér Stafa- og vísnakver
eftir Herdísi Egilsdóttur. Fjöldi
mynda er í bókinni, sem er byggð
„á hinum vinsælu sjónvarpsþátt-
um um stafrófið eftir Herdísi
Egilsdóttur" eins og segir á bók-
arkápu. Ljóðin og myndimar eru
eftir Herdísi, en lagið er eftir
Sigurð Rúnar Jónsson.
gæðamunur
svona mikill?
Fjölskylda yöar getur sparaö mikiö
fé árlega, ef hún notar Jurta á brauö og
kex. Ótrúlegt, en satt.
Dæmiö er einfalt.
Þér skuliö sjálf reikna. 500 gr Jurta
kosta 77 krónur. En dýrasta feitmetið
kostar 156 krónur 500 gr.
Meira en helmings munur!
Jurta-neyzla landsmanna vex meö
hverjum deginum sem líður. Enda nota
þúsundir íslendinga Jurta á brauð og kex.
Viö fengum nýtt tæki inn í sjálfvirku
samstæöuna okkar, sem beinlínis fram-
leiöir betra smjörlíki. Jurta er fyllra og
þéttara, en áöur.
Þess vegna er auðveldara aö
smyrja meö Jurta. Þannig nýtist Jurta
betur og sparar enn meira.
Jurta geymist betur.
Öll fituefnin eru úr jurtaríkinu. Jurta er
hollt og bragðgott.
Ef reiknað er meö aö neyzla
á meðal heimili sé 6 kg. á hvern
mann á ári, má til gamans athuga eftir-
farandi dæmi:
Rmm manna fjölskylda
Jurta: 60 stk. (500 gr) x 77 kr. pr. stk. kr: 4.620.00
Dýrasta feitmetid: 60 - (500 gr) x 156 - - - - 9.360.00
SPARNAÐUR: kr: 4.740.00
Fjögurra manna fjöiskylda
Jurta: 48 stk. (500 gr) x 77 kr. pr. stk. kr: 3.696.00
Dýrasta feitmetid: 48 - (500 gr) x 156 - - - - 7.488.00
SPARNAÐUR: kr: 3.792.00
Þriggja manna fjölskylda
Jurta: 36 stk. (500 gr) x 77 kr. pr. stk. kr: 2.772.00
Dýrasta feitmetið: 36 - (500 gr) x 156 - - - - 5.616.00
SPARNAÐUR: kr: 2.844.00
Ert þú hagsýn húsmóðir, sem tekur verö
og gæði meö í reikninginn?
smjörlíki hf.
gott veró/gott bragó
JOLAFUNDUR HVATAR
veröur I kaffllerlunnl Glæsibæ
Drlðludaglnn 4. desember
ki. 20:30.
Dagskrá
Séra Þórir Stephensen flytur hugvekju
Ómar Ragnarsson syngur gamanvísur
Jólahappdrætti
Kaffi
Allar sjálfstæðiskonur velkomnar.
Stjórnin