Morgunblaðið - 14.12.1973, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1973.
23
Tékkar eru
tregir að leyfa
brottflutning
Bonn, 13. desember, AP.
UM 25 þúsund manneskjur af
þýzkum uppruna hafa sótt um
leyfi til að flytjast frá Tékkósló-
vakíu, en yfirvöld í Prag hafa
minnkað ferðaleyfi niður 1
algjört lágmark, að sögn vestur-
þýzka Rauða krossins. Þessar
upplýsingar Rauða krossins koma
tveim dögum eftir að Vestur-
Þý'zkaland og Tékkóslóvakía
undirrituðu sögulegan sáttmála
um eðlilegt samband ríkjanna.
1 bréfaskiptum ríkisstjórnanna
kemur meðal annars fram, að
stjórn Tékkóslóvakíu lofar að
,,líta með velvilja" á óskir manna
af þýzkum uppruna um að fá að
flytjast úr landi. Rauði krossinn í
Vestur-Þý’zkalandi telur. að um
100 þýsund manns af þýzkum
uppruna búi í Tékkóslóvakfu, en
yfirvöld þar f landi telja, að það
séu 86 þúsund.
Samkvæmt upplýsingum Rk
hafa yfirvöld minnkað ferðaleyfi
Framhald á bls. 26.
Stórbruni
Mesti eldsvoöi í sögu Buenos
Aires lagði öll hús við fjórar
götur gersamlega í rúst. Eldur-
inn kom upp 10. desember og
háðu slökkviliðsmenn langaog
harða baráttu við hann. Ekki
er vitað til þess, að neinn hafi
látið lífið, en um 40 manns
slösuðust. ’ Ókunnugt er um
eldsupptök.
Bandaríkin gefa Indverj-
um tvo milljarða dollara
SÞ kann-
ar morðin
1 Afríku
Sameinuðu þjóðunum, 13.
desember-AP.
ALLSHERJARÞING Sameinuðu
þjóðanna samþvkkti í gær að
koma á fót fimm manna rann-
sóknarnefnd til að kanna, hvort
fréttir af hrikalegum fjöldamorð
um Portúgala f Mosambique hafa
við rök að styðjast. Greiddu 109
lönd máli þessu atkvæði sitt, en 4
voru á móti. Aðeins Portúgal,
Spánn, Suður-Afríka og Banda-
ríkin greiddu atkvæði gegn tillög-
unni.
Tólf lönd sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna, þeirra á meðal Bret-
land, Frakkland, Kongó,
Guatemala og kommúnistaríki
Austur-Evrópu.
Þessi samþykkt allsherjarþings-
ins kemur í kjölfar þungra
ásakana séra Adrian Hastings,
brezks prests, um að portúgalskar
hersveitir hefðu þurrkað út um
400 menn, konur og börn í þorp-
inu Wiriyamu í Mosambique 16.
desember í fyrra. Portúgalar
neituðu hins vegar þessum
ásökunum.
Grísku stúdentarnir:
••
Nýju Delhi, 13. desember, AP.
BANDARÍKJ ASTJÓRN sam-
þykkti 1 dag að gefa ríkisstjórn
Indiru Gandhi 2,2 milljarða doll-
ara verðmæti af indverskum
gjalde.vri, þ.e. 16,64 milljarða
rúpfa, til þess að hjálpa Indverj-
um að greiða gamla skuld, sem
haft hafði slæm áhrif á samband-
ið milli landanna tveggja og hafði
ógnað efnahag Indlands. Það var
Daniel P. Movnihan, sendiherra
Bandarfkjanna f Indlandi, sem
skýrði frá þessu í dag.
Samkomulag þetta náðist eftir
meir en sex mánaða viðræður og
batt þannig enda á tveggja ára-
Israelar
skjálfa af
þakklæti
Tel Aviv, 13. desember, AP.
IBÚAR f fsraelsku borginni
Ilatzor, slökktu á öllum olíu-
ofnum og öðrum hitagjöfum í
fbúðum sfnum og á skrif-
stofum og fvrirtækjum og
sögðu að þeir myndu skjálfa af
kulda með Ilollendingum, í
þakklætisskvni við stuðning
þeirra við ísrael. Holland er
eina landið, sem á hefur reynt
og hefur neitað að móta stefnu
sína f Miðausturlöndum eftir
kröfum olfuauðugra Araba-
rfkjaoglfður nú fvrirþað.
Ollum sleppt
úr fangelsinu
Aþenu, 13. desember, AP.
GRJSKA menntamálaráðuneytið
tilkynnti f dag. að allir stúdentar
og aðrir, sem áttu aðild að stúd-
entaóeirðunum f sfðasta mánuði,
yrðu látnir lausir nú þegar. úm
300 manns hafa setið í fangabúð-
um hersins, síðan stúdentar töku
á sitt vald tækniháskólann f
Aþenu, en f óeirðum þá létu 13
lífið og hundruð særðust, að sögn
yfirvalda.
Stjórn herforingjanna heldur
því fram, að fámennur hópur
kommúrústa hafi komiö óeirð-
unum af stað. í tilkynningu
menntamálaráðuneytisins sagði,
að grískir stúdentar hefðu betri
tuga vafstur vegna 3 milljarða
dollara skuldar Indverja fyrir
efnahagsaðstoð Bandaríkjamanna
á þessum tíma. Þannig gerir sam-
komulag þetta ráð fyrir þvf, að
Bandaríkin láti sér nægja að fá
um einn milljarð dollara í ind-
verskum gjaldeyri, en gefi Ind-
verjum eftir afganginn eða 2,2
milljarða.
,,Það, sem við fengum, var það,
sem við báðum um," sagði Moyni-
han sendiherra, en hann átti
einna stærstan þátt í þvf, að sam-
komulag náðist, ásamt efnahags-
málaráðherra Indverja, G. P.
Kaul.
Sagði Moynihan ennfremur, að
stærsti kostur þessa samkomulags
væri, að Bandaríkin hættu þar
með að sanka að sér æ stærri
upphæðum af indverskum gjald-
eyri. Hefði samkomulagið ekki
náðst, myndi Bandaríkjastjórn
árið 2013 eiga meir en 4 milljarða
dollara verðmæti af rúpíum, en
það ár hefði síðasta afborgunin
átt að greiðast. Þessi upphæð
myndi jafngilda 20% af áætl-
uðum sjóðum Indverja þetta ár.
,,Við höfum rætt um að koma á
nýju og þroskaðra sambandi milli
landa okkar,'1 sagði Moynihan,
„og það verður að vera samband
jafningja." Slíkt jafnréttissam-
band myndi ekki nást, ef annað
landið ætti 20% af fjármagni
hins.
Á undanförnum árum hefur
þessi skuld verið bæði Banda-
ríkjamönnum og Indverjum til
ama og gert samband þeirra vand-
ræðalegt, og standa nú vonir til,
að það komist í eðlilegra horf.
JAPANIR KIKNA
UNDIR OLÍUBANNI
akademiska aðstöðu en þekktist í
nokkru öðru landi. Fámennum
hópi yrði ekki leyft að eyðileggja
hana.
Hins vegar, sagði í tilkynning-
unni, vildi stjórnin ekki beita
hörðu gegn ungum mönnum sem
væru einfaldlega afvegaleiddir og
gerðu sér ekki fulla grein fyrir
því, hvað væri verið að fá þá til að
gera. Það hefði því verið ákveðið
að fara um þá mildum höndum og
gefa þeim tækifæri til að halda
áfram námi sínu eins og ekkert
hefði í skorizt. Hins vegar var
tekið skýrt fram, að tekið yrði
hart á öilum, sem i framtíðinni
reyndu að spilla lögum og ró i
landinu.
Tokio, 13. des. NTB.
JAPANSKA stjórnin beindi í dag
þeirri áskorun til ísraelsstjórnar,
að hún drægi herafla sinn aftur
fyrir vfglínuna eins og hún var
22. okt. sl.
„Við höfum miklar áhvggjur af
því, að viðræður Egypta og ísra-
ela við 101. kílðmetrann hafi
leystst upp,“ sagði talsmaður jap-
anska utanríkisráðuneytisins.
„Það hlvti að auka á spennuna i
Miðausturlöndum." Hann sagði
ennfremur, að fyrsta spor f átt til
friðar hlyti að verða flutningur
herja ísraels aftur fyrir víglínuna
eins og hún var 22. október. „Við
hvetjum’stjórn ísraels þvf til að
gera það," sagði talsmaðurinn.
Fréttamenn segja þessa áskor-
un hliðhollustu yfirlýsingu fyrir
8 líflátnir
Beirut, 13. desember. ntb.
ÁITA menn \oru teknir af Iffi í
Saana f Norður-Yemen í dag, en
þeir hiifðu verið dæmdir lil dauða
fyrir morðtð á Mwhammed Ali
óthaman, sem var meðlimur
forsætisráðsins f Norður-Yetnen.
Hin opinbera frakska fréttastofa
segir, að þeir átta, sem voru fff-
látnir í dag, hafi verið í hópi 25
nianna og kvenna, sem hafa kont-
ið fyrir rétt vegna ntorðsins.
Tíu hinna ákærðu, þar á meðal
ein koma, fengu frá eins árs og
upp f Iffstfðarfangelsi, en sjö
voru sýknaðir. Alls hafa 36
manneskjur verið teknar af lífi
fyrir undiróðursstarfsemi, sfðan
Mohammed var myrtur fyrir utan
heimili sitt í hænuin T;áz, hinn 30.
ntaí á þessu ári.
Araba, sem nokkru sinni hefur
verið gefin út af opinberum aðil-
um í Japan.
GJALDIÐ
GREITT
FYRIR
GETTY
Róm, 13. des. — NTB.
II.ESTA lausnargjald í manna
minnum hefur nú verið greitt
til ineintra ræningja Paul
Gettys III, sonarsonar sam-
nefnds milljónainærings
bandarísks. Nam lausnargjald-
ið 2 milljörðum Ifra eða um
300 milljónum fslenzkra
króna. Það voru heimildir inn-
an ftölsku lögreglunnar, sem
skýrðu frá þessu í dag. og
sögðu. að þar ineð væri búið áð
greiða allt, sem farið hefði
verið frant á.
Bfða nú bæði aðstandendur
Gettys og lögreglan spennt eft-
ir því. að honum verði sleppt.
Vai- lausnargjaldið greitt í
smáskömmtum.
Getty hefur verið týndur í
meir en fimm mánuði. Móðir
hans. Gail Harris, vildi ekk
segja neitt um málið f dag. ei
fréttamenn vildu fá staðfest
ingu á því, að lausnargjaldið
hefði veriðgreitt.
ísraelskir
stríðsfangar
í Rússlandi?
Tel Aviv, 13. des„ AP.
ISRAELSKUR stjórnmála-
maður hvatti í dag
Goldu Meir, forsætisráðherra,
til að láta fara fram rannsókn á
orðrómi um aðsumir ísraelsku
stríðsfanganna, sem lentu í
höndum Sýrlendinga hafi verið
f luttir til Sovétrfkjanna til yfir-
heyrslu.
Gidon Patt er tilheyrir hinum
hægri sinnaða „Likud" flokki,
sem er í stjórnarandstöðu,
nefndi ekki heimildir sínar við
þetta tækifæri. En skömmu
eftir að strfðinu lauk, skýrði
Moshe Barnes, forstöðumaður
Amnesty International í ísrael,
frá óstaðfestum fréttum um
þetta. Stjórnvöld ritskoðuðu
yfirlýsingu Barnes og bönnuðu
honum að segja meira um málið
að svo komnu.
Patt flutti ræðu sína á kosn-
ingafundi í Tel Aviv og hvatti
Goldu Meir til að neita að mæta
á friðarráðstefnunni i Genf 18.
desember næstkomandi. ef
þessar fréttir hefðu við rök að
styðjast. Alþjóða rauði krossinn
hefur staðfest yfirlýsingar ísra-
ela um að Sýrlendingar hafi
enn ekki skilað lista með nöfn-
um stríðsfanga. eins og þeim
ber að gera samkvæmt Genfar-
sáttmálanum. Bæði ísraeiar og
Egyptar birtu rnifn strfðsfanga
sinna, og fangaskipti þetrra
hafa núfariðfram.
Moshe Ðayan lamlvarnaráð-
herra hefur hvatt stjórnina til
að mæta ekki í Genf, ef Sýr-
lendingar gefi ekki upp nöfn
strfðsfanga. Abba Eban utan-
ríkisráðherra hefur nú sagt. að
Israelar muni mæta á ráðstefn-
unni, en þeir numi ekki ræða
við Sýrlendinga, fyrr en nöfn
fanganna hafi verið birt.