Morgunblaðið - 23.12.1973, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. DESEMBER 1973
Mirming:
Sigurbjörg
Guðmundsdóttir
Fædd 22. ágúst 1905.
Dáin 10. desember 1973.
Síminn hringir, þetta töfratæki,
sem gerir heiminn svo litinn.
Stundum flytur hann gleðifréttir,
en oft Iíka sorgarefni. I þetta sinn
andlátsfregn.
„Ég vildi láta þig vita, að Sigur-
björg hefur nú flutt,“ sagði
röddin. Augnabliks þögn, þrungin
tilfinningu, sem ekki verður lýst
með orðum.
Mér fannst syrta að. Þó bjóst ég
við þessu.
Seinast, þegar ég kom til
hennar, leið hún miklar
þjáningar. Það leyndi sér ekki,
þótt hún bæri sig eins og hetja.
öll flytjumst við einhvern tfma,
og gott er að vita hvorki stað né
stund. nær kallið kemur.
Églftíeiginbarmogsegioftvið |
sjálfan mig: Bara ég gæti alltaf
lifað eins og það væri mín sfðasta
stund. Það verður aðeins gert f
trú og með bæn.
Ég veit, að Sigurbjörg var við-
búin. Hún vissi að hverju stefndi.
Eftir eina læknisaðgerðina sagði
hún við mig: Læknirinn hefur
gefið mér von um tvö ár. Hún
sagði þetta brosandi, rétt eins og
hún ætti ferðalag framundan.
Ég undraðist og dáðist að kjarki
hennar. Það er ekki heiglum hent
að tala svona, þegar dauðinn bið-
ur á næsta leiti. Fyrir þá, sem
trúa, er annars enginn dauði til,
aðeins vistaskipti.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir var
fædd 22. ágúst 1905 á Lómatjörn f
Höfðahverfi. Foreldrar hennar
voru hjónin Valgerður Jóhannes-
dóttir og Guðmundur Sæmunds-
son, af mannkosta- og dugnaðar-
fólki komin. Þau eignuðust 11
börn, sem öll komust vel til
manns, og ólu áuk þess upp eina
frænku frá 6 ára aldri, systur og
bróðurdóttur þeirra hjóna, varð
hún raunar ein af Lónstjarnar-
systrunum.
A þessu menningarheimili ríkti
mikil glaðværð og var hljóðfæra-
leikur og söngur í hávegum
hafður.
Á heimili þeirra var barnaskóli
sveitarinnar í mörg ár, í höndum
ágætra kennara, sat æskan þar
við menntabrunn, og margir eiga
bjartar minningar frá þessum
barnaskóla. Sigurbjörg fór í al-
þýðuskólann á Breiðumýri f R.d.
og annan vetur að Laugum, sem
þá hóf starfsemi sfna í nýbyggðu
skólahúsi, og þar mættumst við
fyrst.
Hún kom mér fyrir sjónir sem
óvenjulega virðuleg ung stúlka,
glæsileg en hlédræg. Handa-
vinnukennarinn, Árný Filippus-
dóttir, hafði mikið dálæti á henni.
Eitt sinn sagði hún við mig: „Hún
Sigurbjörg er nlveg frábær f
höndunum.“
Þegar Guðfinna á Hömrum
byrjaði að kenna söng í skólanum,
var Sigurbjörg ein af þeim út-
völdu í kórinn. Hún hafði svo
fallega millirödd.
Mér fannst gott að vera nálægt
henni, þégar við vorum að læra
raddirnar. Hún var svo örugg og
fljót.
Þann 11. maí 1932 giftist Sigur-
björg eftirlifandi manni sínum,
Agli Askelssyni. Foreldrar hans
voru hjónin Laufey Jóhannsdóttir
frá Skarði i Dalsmynni og Áskell
Hannesson frá Austári-Krókum í
Hálshreppi. Er hann ^innig 1 af
11 systkinum.
Á Grenivík settu þau saman bú
sitt, með tvo stóla og eitt borð.
Þetta var á kreppuárunum, þegar
bankarnir keyptu ekki víxla, og
húsgögn fengust ekki með afborg-
unum. Varð því margur að láta
sér nægja að byrja með lítið.
Þau byggðu sér lítið hús, sem
Landssíminn keypti siðar.
í lítilli stofu í öðrum enda þess
starfræktu þau hjón póst- og
símaþjónustu um nær 10 ára
skeið. Þessi erilsama póst- og
t
Móðir mín,
INGUNN
EINARSDÓTTIR,
andaðist að Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund, fimmtudaginn
20. desember
Fyrir höna aðstandenda
Kristín Ermenreksdóttir
t
Alúðarþakkir til allra er sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna
fráfalls sonar okkar og bróður,
ÓLAFS
INGIMARSSONAR.
María Þörðardóttir,
Ingimar Þorkelsson,
Skipasundi 86
og systkinin.
símaþjónusta fyrir verstöð, sem
gaf þjóðinni mikinn gjaldeyrj, og
stórt hérað gaf ekki fjölskyldulíf-
eyri, var miklu fremur þegn-
skylduvinna, og því lagðist þjón-
ustan þyngst á herðar konunnar,
sem þó fæddi af sér 6 börn á
þessum árum.
Annars flokks simstöð krafðist
heils dags vinnu og voru 25 kr.
mánaðarkaup fyrir störf og hús-
næði. Þætti lítið gjald nú.
Frá Grenivík fluttust þau að
Þrastarhóli í Möðruvallasókn. Þar
bjuggu þau aðeins eitt ár, en
keyptu þá Hléskóga i Höfðahverfi
og bjuggu þar í 19 ár, er þau
brugðu búi og fluttust til Reykja-
vikur 1963, og var Granaskjól 18
þeirra heimili æ siðan. Var at-
vinna Egils á Skattstofu Reykja-
víkur.
Þeim hjónum varð 8 barna
auðið, misstu eitt enn í vöggu, og
son, Braga, af slysförum, er
byrjað hafði nám í læknisfræði, á
21. aldursári sinu. Var það for-
eldrum og fjölskyldu mikið áfall,
enda efnispiltur að allri gerð. Hin
eru: Sigurður húsasmiður, Lára
húsmóðir og sjúkraliði, Askell
skipasmiður, Valgarður læknir,
Egill eðlisfræðingur og Laufey
húsmóðir og hjúkrunarkona.
Nú eru barnabörnin orðin 16.
Þegar tengdabörnum er bætt
við, sem Sigurbjörg bar sama
móðurhug til og barna sinna, er
hér um allstóra fjölskyldu að
ræða, og allt er þetta hið gjörvu-
legasta fólk.
Fyrir hönd Sigurbjargar vin-
konu minnar leyfi ég mér að
flytja jólakveðju og alúðar þökk
til fjölskyldu hennar og annarra
skyldmenna og vina fjær sem
nær.
Einnig til þeirra, sem linuðu
þjáningar hennar á hinztu stund.
Sigurbjörg var örlitið skapör, en
hún var líka hin sterka í fjöl-
skyldunni, þegar á reyndi, segir
maður hennar.
Hvort sem um var að ræða
sonarmissi, eða hús hennar var
hernumið af brezka heimsveldinu
og vopnaður hervörður settur í
það um eins árs bil, nótt sem dag.
En undir þeim skilyrðum varð
hún að vinna, að fengið samband
væri slitið og aftur slitið af for-
gangshraðsamtali herliðsins. Þótt
hús hennar væri í heilt ár hrist
harkalega i hamförum jarð-
skjálfta, haggaði það ekki hennar
rólyndi eða kjarki.
Það er list að kunna að taka
lífinu með öllum þess duttl-
ungum. Það gat þessi vinkona
mín. Andinn er maðurinn. Líkam-
inn er bústaður hans, musteri
sálarinnar.
Listhneigð Sigurbjargar kom
ekki einungis fram við lífið sjálft.
Hún var skapandi listakona og
skóp sitt líf. Heimili þeirra hjóna
prýða listaverk, sem bera þess
vitni. Fagur útsaumur og mjög
haglega útskornir gripir í tré bera
vitni fjölhæfni huga hennar og
handa.
Sigurbjörg kunni vel að gæta
tungu sinnar. í heilagri ritningu
stendur: „Sá, sem hefur taumhald
á tungu sinni, er meiri en sá, sem
vinnur borgir."
I sorg gleðjizt þið ástvinir
hennar yfir því, að hún er laus við
þjáningar. Munið ósk hennar, að
þið sjálf verðið sterk og kjark-
mikil í lífinu. Þessu lífi sem vel
má líkja við leiksvið og hver þátt-
takandi verður að skapa sitt hlut-
verk sjálfur, við sínar aðstæður.
Vegurinn liggur til einnar
áttar. Til lífsins segja þeir, sem
bjartsýnir eru. Hún Sigurbjörg
var bjartsýniskona.
Sjálf er ég þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast henni. Ég fór
alltaf rikari frá henni en þegar ég
kom til hennar. Alúðar þakkir
fyrir fórn þina, störf þín, lif þitt,
Sigurbjörg. Það er síðasta
kveðjan frá eiginmanni og ást-
vinum öðrum.
Guð blessi minningu þina.
Filippía Kristjánsdóttir.
t
FRIÐBJÖRN BENÓNÍSSON,
skólastjóri,
til heimilis að Neshaga 10,
lézt að Landspítalanum, laugardaginn 1 5. desember.
Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 2 7. desem-
ber kl 1 3 30 Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja
minnast hans, er bentá Heimilissjóð taugaveiklaðra barna
Guðbjörg Einarsdóttir,
Guðrún Sigríður Friðbjörnsdóttir.
t
Útför mágkonu minnar og föðursystur okkar
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
sem andaðist að Elli og hjúkrunarheimilinu Grund, fer fram frá
Dómkirkjunni, föstudaginn 28 desember kl 1 3 30
Kristín Pálmadóttir og bræðrabörn.
t
Móðir okkar
ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27 des kl. 1 0,30
fh.
Valur B. Einarsson Kristbjörg Einarsdóttir
Guðjón Einarsson Eggert Einarsson
Jón Þ. Einarsson.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsínda samúð og vinarhug við fráfall mannsins
míns og föður okkar,
GUNNARS JÓNSSONAR,
lögmanns,
Kvisthaga 1 6.
Aðalheiður Sigurðardóttir, Valgarður Gunnarsson,
Edda Gunnarsdóttir Rowland, Drífa Gunnarsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar
KRISTJÁNS LÁRUSSONAR
Garðastræti 25
Fyrir hönd systra minna og annarra vandamanna
Birgir Steindór Kristjánsson
Gleðileg jól.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför.
GUÐRÚNARJÓHANNSDÓTTUR og
JÓNS STEFÁNSSONAR frá Kagaðarhóli.
Maggi Jónsson, Sigríður Soffia Sandholt,
Stefán Jónsson, Sigríður Hóskulds^óttir.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
GETIÐ ÞÉR HJALPAÐMER 1 VANDRÆÐUM MlNUM? Ég er slundum hrana-
legur í orðum, þó að óg vilji ekki vera það. Eghef alla tíðhaft þennan galla, og mig
langartil að sigrast á honum. Veriðsvovænn að leiðbeina mér, svo að éggeti oiðið
nærgætnari maður.
Þér glímið við það. sem kallað er skapgerðargalli.
Sú staðreynd er yður kannski til huggunar, að
jafnvel beztu kristnu menn hafa átt viðlíkan vanda
að etja. Þér megið samt ekki bera yður saman við
veikleikaþeirra, heldur styrkleika.
Ég hef tekið eftir því, að gallar mínir verða
áberandi, þegar ég fer að slá slöku við í helgunar
baráttu minni. En þegar ég tek mér tíma og læt Guð
tala til sálar minnar með lestri Biblíunnar, hugleið-
ingu og bæn, þá kemur sigurinn.
Sáluhjálpin veitist ókeypis. En heilsteypt, kristin
skapgerð verður til fyrir sjálfsaga og vöxt. Hún
verður ekki til í eitt skipti fyrir öll. Hér þarf dagleg
barátta að koma til. Ég ráðlegg yður: Takið frá
stund, árla morguns eða seint að kvöldi, þegar þér
getið verið hljóður og einn með Guði. Segið honum
frá göllum yðar. Það er honum velþóknanlegt,
honum, sem sagði: ,, Játið syndir yðar . . . til þess að
þér verðið heilbrigðir." Þegar þér eigið stundir með
honum, þá finnið þér, að ónærgætnin, sem hefur
hrjáð yður, breytist í vinsemd og þér öðlist sannan
kraft tilþess aðstandast freistinguna.
Jólin er Hátíð Andans hátíð kærleikans gefið bókina
OG SOLIN RIS
saga frumherja Baháihreyfingarinnar. Kostar 650 kr.