Morgunblaðið - 17.01.1974, Side 15

Morgunblaðið - 17.01.1974, Side 15
MORG UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JANUAR 1974 15 Tanaka fangi í höll Suhartos í Jakarta Jakarta, 16. janúar. AP. NTB. UPPÞOTIN, sem hófust til þess að mótmæla heimsókn Kakuei Tanaka, forsætisráðherra Japans, til Indónesfu, héldu áfram f dag, annan daginn í röð og beindust jafnframt gegn indónesísku stjórninni. Öllum skólum og háskólum hef- ur verið lokað og víðtækar öryggis ráðstafanir hafa verið gerðar til verndar Tanaka. Skriðdrekar og vopnaðir hermenn eru hvarvetna á ferli. Sjö biðu bana íóeirðunum í gær, að sögn yfirvalda, en níu að sögn stúdenta, Fimm féllu fyrir kúlum hermanna og einn var stunginn með byssusting að sögn starfsmanna aðalsjúkrahússins í Rússar trufla útvarpslestur úr„Gulag” Moskvu, 16. janúar — AP SOVÍTRIKIN hafa byrjað trufl- anir á vestur-þýzkum útvarps- sendingum til þess að koma í veg fyrir, að Rússar heyri upplestur úr hinni nýju bók Alexanders Solzhenitsyns, „Arehipelag Gul- ag“, að því er þýzkar heimildir hermdu í dag. Byrjaði truflunar- Kína tekur eyjar Sagion, 16. janúar. NTB. AP. KÍNA hefur sent skip inn á hafsvæðið umhverfis þrjár óbyggðar og umdeildar eyjar á Suður-Kínahafi, Paracel-eyjar, þar sem þeir hafa sett menn á land þrátt fyrir tilkall Suður-Vfetnams til þeirra. Vuong Van Bac, utanríkis- ráðherra Suður-Víetnams, sagði i dag á blaðamanna- fundi, að skyndileg ögrun Kínverja fæli í sér ógnun við frið og öryggi í þessum heimshluta. Þess er ekki getið, hvort Kfnverjar hafi sent hermenn til eynna. Bac sagði, aðSaigon-stjórn in væri staðráðin í að verja yfirráð sin yfir eyjunum. Þær eru kóraleyjar og rif um 250 mílur austur af Vietnam og 150 milur suð- austur af kfnversku eynni Hainan. Bac sagði að Kín- verjar hefðu reist kofa á eynni og dregið kínverska fánann að húni. Kfnverska fréttastofan sagði fyrir nokkrum dögum, að tilkall Suður-Víetnams til eynna væri ólöglegt og að þær tilheyrðu Kína. Bac utanríkisráðherra sagði, að öllum tiltækum ráðum yrði beitt til að endurheimta eyjarnar, en minntist ekki á hermenn. starfsemi þessi á þriðjudagskvöld eftir að útvarpsstöðin Deutsche Welle hóf að senda út upplestur úr bókinni, en fréttasending á rússnesku, sem fylgdi í kjölfarið, hefur hins vegar heyrzt skýrt og ótruflað. í september síðastliðnum hættu sovézk yfirvöld skyndilega trufl- unum sínum á útsendingum Deutsche Welle, Voice of Amer- ica og BBC sem fram fara á rúss- nesku. Tvær síðastnefndu stöðv- arnar eru enn ótruflaðar, en þær hafa ekki sent út dagskrár um þessa bók. Radio Liberty, sem útvarpar frá Múnchen og fjármögnuð er frá Bandaríkjunum, sendir út upp- lestur úr bókinni, en hún hefur hvort eð er verið trufluð árum saman. Loðnan treg við Norðmenn Þrándheimi 16. ianúar—NTB. NORSKl loðnuflotinn hefur gef- ist upp við veiðarnarí bili. lOtil 15 skip, sem haldið höfðu til hafs á veiðar sneru í dag til baka til iands. Fiskleitarskip hafa fundið loðnu, en hún heídur sig hins vegar fyrir norðan 73. breiddar- gráðu, og þar eru veiðar'bannað- ar. Sjómennirnir hafa því ekki um annað að velja en að bíða þangað til loðnan kemur nær ströndinni. 472 skíp eru i flotan- um, en aðeins örfá þeirra eru komin norður til Finnmerkur. Loðnan virðist ætla að koma seinna en oft áður upp að Noregs- ströndum. í fyrra fékkst fyrsta veiðin 17. janúar og árið áður þann 8. Jakarta. Tanaka hefur ekki farið út úr forsetahöllinni, síðan hann kom til Jakarta á mánudagsk.völd. Hann sagði fréttamönnum, að uppþotin hefðu ekki gert sér gramt í gði, og talaði um nauðsyn þess, að sambúð Japans og Indó- nesiu yrði vinsamlegri og nánari. Uppþotin í gær beindust ekki síður gegn Kfnverjum en Japön- um. Báðir eru sakaðir um arðrán. Stúdentar réðust á margar verzl- anir, veitingahús og fyrirtæki, sem eru i eigu Kínverja. „Lemj- um alla sem arðræna land okkar og útrýmum Indónesum, sem vernda þá,“ var eitt vigorð stúd- entanna. Um 200 japanskir bilar og 100 vélhjöl hafa verið eyðilögð í tveggja daga óeirðum um 5.000 stúdenta og áhangenda þeirra. Þeir mótmæla meintum yfirráð- um Japana í efnahagslífi Indónes- iu, meintum óheiðarleika þeirra í viðskiptum við Indónesíu og meintri spillingu indónesískra embættismanna, sem hagnist á viðskiptum við Japana. Tanaka sagði fréttamönnum eftir viðræður við Suharto for- seta, að Japanir vonuðu, að Indó- nesar sæju þeim að staðaldri fyrir hráefnum. Hann hét einnig stuðn- ingi við smíði orkuvers og ál- bræðslu á Súmötru. Aður en bensínskömmtun var innleidd í Svfþjóð á dögunum, sá þessi ökumaður sér leik á borði og fékk sér aukaskammt. Túnis vill hætta við sameiningu Túnisborg, 16. janúar. NTB.AP. NÝSKIPAÐUR utanríkisráð- herra Túnis, Habib Chatti, sagði f dag, að fyrirhugað sambandsríki Túnis og Líbýu vrði ekki stofnað gegn vilja Alsírs og Marokkó. Bæði þessi ríki hafa gagnrýnt óvænta tilkvnningu um samein- inguna. Chatti gætti þess vandlega á blaðamannafundi að segja ekki berum orðum, að Túnisstjórn teldi yfirlýsinguna markleysu. En hann kvað eindregna andúð Alsirs og Marokkó á sameining- unni hafa komið Túnisstjórn á óvart. „Við viljum ekki koma á ein- ingu i anda óeiningar," sagði Chatti. Hann sagði, að stefnt yrði að þvf, að fyrirhugað sambands- ríki næði síðar til Alsirs og ef til vill Marokkó, en á það yrði að leggja áherzlu að stofna ekki til úlfúðar í Norður-Afríku. Þjóðaratkvæðagreiðsla átti að fara fram í Túnis um sameining- una á föstudaginn en henni hefur verið frestað í að minnsta kosti fjóra mánuði. Chatti sagði, að samkomulagið um sameininguna hefði verið yfirlýsing um megin- atriði, en ekki áþreifanleg stefnu- skrá. Hann sagði, að ekkert samráð hefði verið haft við Hassan Mar- okkókonung og Houari Boumedí- enne um sameininguna, en gagn- rýndi þó ekki fyrirrennara sinn, Masmoudi, sem var vikið úr em- bætti, þegar breytingar voru gerð- ar á stjórninni á mánudaginn. Chatti kvaðst ætla að fara til Trí- poli til viðræðna við Khadafy of- ursta um sameininguna en sagði ekki hvenær. Marsjenko sæt- ir húsrannsókn Moskva 16. jan. — NTB ANATOLI Marsjenko, Batnandi olíuhorfur Genf, 16. janúar. NTB. VERSTA kafla olfukreppunnar er sennilega lokið í flestum lönd- um og atvinnule.vsi hefur ekki aukizt geigvænlega, sagði vara- formaður framkvæmdanefndar Efnahagsbandalagsins, Patriek Hillery, í dag. í Bonn er sagt, að Rússar hafi stöðvað olíusendingar til Vestur- Þýzkalands fyrir tveimur mánuð- um og að jarðgassendingar hafi verið skornar niður um helming. Þrír gripnir fyrir ránið á Paul Getty Róm, 16. janúar. AP. NTB. ÍTALSKA lögreglan handtók í dag þrjá menn, sem eru ákærð- ir fyrir ránið á J. Paul Getty III, sonarsyni bandaríska auð- kýfingsins, eftir umfangsmikla leit allt frá Róm til syðsta odda italfu. Einn mannanna var handtek- inn i Róm, en hinir f héraðinu Kalabría á Suður-ltalíu. Fjórða mannsins í málinu er enn leitað að sögn lögreglunnar. Hinir handteknu hafa ekkert viljað segja i yfirheyrslum. Mennirnir eru allir frá Kala- bríu. Þeirsem voru handteknir í Kalabrlu eru Vinceczo Mammoliti, 43 ára, og Antonio Mancuso, 35 ára. Mammoliti var handtekinn í dögun á svo- kallaðri Vioiasléttu og Mancuso i þorpinu Cicala. Þeir menn hafa staðið i nánu sambandi við Mafíuna. J. Paul Getty III. Nokkrir menn i viðbót voru handteknir meðan stóð á leit- inni að mannræningjunum, en þeir voru ekki ákærðir. Lög- reglan sagði, að vopn og eitur- lyf hefðu fundizt í fórum þeirra. Samkvæmt einni heimild lagði lögreglan hald á peninga- seðla sem talið er að hafi verið hluti lausnargjaldsins, sem ræningjarnir fengu fyrir fram- salið á Getty, Getty var sieppt 15. desember gegn 2.7 milljón dollara lausnargjaldi. Getty, sem er 17 ára gamall og þekktur í Róm sem „gull- hippinn“, hvarf að næturlagi i Róm 10. júli og fannst á ráfi á hraðbraut á fjallasvæði skammt frá Lagonegro í Kala- bría, fyrir mánuði. Ræningjarn- ir skáru af honum annað eyrað, þegar þeir höfðu hann i haldi. Einn þeirra, sem lýst hefur verið eftir, er læknir. Ekki er ljóst hvort hann fjarlægði eyr- að eða græddi sárið. áhrifamikiil maður innan andófshreyfingar mcnnta- manna í Soiétríkjunum, skýrði frá þvf í dag, að leyni- lögreglan KGB hefði nýlega gert húsrannsókn á heimili hans og um leið yfirheyrt hann um kynni hans af neð- anjarðarblaði einu, sem nefnist „Yfirlit nýjustu frétta". Neðanjarðarblað þetta hafði komið út i Moskvu með leynd í fimm ár, unz útgáfa þess stöðvaðist árið 1972. er lögreglan hóf mikla rann- sókn á starfsemi þess. Marsjenko hélt því fraip i yfirlýsingu til erlendra fréttamanna, að tengsl sin við þetta blað hefðu aðeins verið átylla KGB fyrir hús- rannsókninni. Var lagt hald á ýmis per- sónuleg plögg Marsjenkos. svo og á eintak af bók Alex- anders Solzhenitsyns „Agúst 1914“. Marsjenko er kunnastur á Vesturlöndum fyrir bók sína unt lífið í vinnubúðum Sov- étstjórnarinnar. Frá þvi árið 1960 hefur hann orðið að eyða 9 árum í slikum búðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.