Morgunblaðið - 24.02.1974, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1974
osaK
BifreiS astjórar
Viljum ráða nú þegar bifreiðastjóra
og vaktmann. Þarf að hafa réttindi
til aksturs strætisvagna.
Upplýsingar í síma 13792.
Landleiðir h.f.
Atvinna
Matsvein vantar á 60 lesta
línubát, sem rær síðar með net frá
Keflavík.
Uppl. í símum 2806 og 1069.
Fóstrur
Óskum eftir að ráða fóstru að
nýju barnaheimili. Laun samkvæmt
18. launaflokki.
Uppl. í síma 83307 e.h.
TilraunastöÓin
á Keldum
óskar eftir aðstoðarmanni (karli eða
konu) í hálft starf við rannsóknar-
stofuvinnu. Nánari upplýsingar hjá
forstöðumanni í síma 17300.
Verkamenn
vantar í byggingarvinnu út á land.
Uppl. í síma 50648.
Stöður aBstoðarlækna
Tvær nýjar stöður aðstoðarlækna
við Sjúkrahús Akraness, önnur við
handlækningadeild og kvensjúk-
dóma- og fæðingardeild en hin við
lyflækningadeild, eru lausar til
umsóknar.
Stöðurnar veitast til 6 mánaða eða 1
árs. Umsóknarfrestur er til 15. marz
1974, og skulu umsóknir sendast
skrifstofu Sjúkrahúss Akraness.
Nánari upplýsingar veita yfir-
læknar viðkomandi deilda, sími 93-
2311.
Stjórn Sjúkrahúss Akraness
Stúlka
óskast til að hafa eftirlit og umsjón
með útflutningsskjölum fyrir stórt
iðnfyrirtæki. Enskukunnátta og
kunnátta í einu norðurlandamáli
nauðsynleg.
Upplýsingar veittar í síma 26080
milli 11 og 12 f. h. á morgun og
næstu daga.
Endurskoðunarskrifstofa
N. Mancher og Co.
Kennarar — kennarar
Nokkra kennara vantar að Gagn-
fræðaskóla Garðahrepps skólaárið
1974—‘75.
Kennslugreinar: íslenska — erlend
tungumál — raungreinar — íþrótt-
ir.
Sérkennslustofur — gott úrval
kennslutækja — nýtt íþróttahús.
Nánari upplýsingar um starfsað-
stöðu og fyrirgreiðslu gefur skóla-
stjóri, sími 52193.
Skólanefnd.
Matsvein og háseta
vantar á m/b Sæborgu K.E. 177
strax.
Uppl. í símum 92-2107 og 92-2749.
LögfræÖingur
óskast um óákveðinn tíma til vinnu við verkefni á
sviði laga um tekjuskatt og eignarskatt og laga um
tekjustofna sveitáfélaga. Vinnutími getur verið eftir
samkomulagi. Þeir, sem áhuga kynnu að hafa, vinsam-
legast leggi nöfn sin inn á afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir næstu mánaðamót; merkt: „Lögfræðingur 3297“.
Atvinna
Getum bætt við stúlkum á neta-
stofu. Ekki vaktavinna. Upplýsingar
hjá verkstjóra, Brautarholtsmegin.
Mötuneyti á staðnum.
Hampiðjan h.f.,
Stakkholt 4.
Skrifstofustúlka óskast
Stúlka með Verzlunarskólapróf eða hliðstæða
menntun, óskast til starfa frá 1. april n.k. Einhver
reynsla er æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um umsækjanda og fyrri
störf, verði sendar undirrituðum fyrir 1. marz n.k.
Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar,
Háaleitsibraut 9, REYKJAVÍK
2 karlmenn óskast
til lager og verksmiðjustarfa. Æski-
legur aldur 20 til 30 ára. Uppl. hjá
verksmiðjustjóra, ekki í síma.
Glit h.f., Höfðabakka 9.
Amoksturstæki
Viljum ráða mann til vinnu á
ámoksturstæki, hjólaskóflu. Nokkur
verkstjórn kemur jafnframt til
greina. Þeir sem áhuga hafa fyrir
starfinu leggi nöfn sín ásamt upp-
lýsingum inn á afgreiðslu blaðsins
fyrir28. þ.m. merkt: „3298“.
Laus staÖa
Staða hjúkrunarkonu í Raufar-
hafnarhéraði er laus til umsóknar
frá 15. apríl 1974.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu fyrir 1.
apríl 1974.
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið,
21. febrúar 1974.
Húsateikningar —
Innanhústeikningar
Teiknistofu vantar fóltk til teiknistarfa. Greina skal
aldur og fyrri störf. Umsóknir sendist blaðinu fyrir 26.
febr. þ.m. merktar: „4937“.
Bezt
að auglýsa
í Morgunblaðinu