Morgunblaðið - 24.02.1974, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 24.02.1974, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRUAR 1974 Þessi teikning hefur farið vítt um heim og birzt í mörgum blöðum, en upphaflega birtist hún í norksu blaði. Alexander Solzhenitsyn er teiknaður sem Gulliver á Rauða torginu í Moskvu, en í hópi putanna má kenna fyrirmenn í Sovét. Einn þeirra segir: „Gætið að ykkur — hann getur ennþá hreyft pennann." „Gulliver” í Putalandi Harmleikur Stórbruni Heimkoma Flóð í USA Þetta gamla hús á ekkert annað eftir en steypast f ána, sem flæddi yfir bakka sína og vinnur nú að því að grafa undan undirstöðum þess. — Myndin er frá Oregon í Bandaríkjunum. Froskmenn stokkva út Ur þyrlu hjá hylkinu, sem Skylabáhöfnin kom í til jarðar. Einhvern tíma hefði það þótt tíðindum sæta, að menn kæmu svífandi utan úr geimnum eftir að hafa dvalizt þar f hartnær þrjá mánuði — en nú vakti þessi atburður ekki teljandi athygli. Þyrla bjargar nokkrum mönnum af þaki stórbyggingar, sem eldur kom upp í í Sáo Paulo í Brasiliu. Þarna átti sér stað mikill harm- leikur, þar sem margir létu Iffið. Þessi mynd er frá úthverfi Phom Penh í Kamhódíu. Harmi lostinn móðir með tvö börn sín eftir að sprengjuskothríð uppreisnarmanna hafði dunið á íbdðarhverfinu, þar sem heimili hennar stóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.