Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. MARZ 1974 Fa /7 K//.I U 7f. I V i /ví//; 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL xr 21190 21188 LOFTLEIÐIR /p BÍLALEIGAN felEYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIOMEQR ÚTVARP OG STEREO KASSETTUTÆKI MEIRI VANDI ER AÐ GÆTA ^ SAMVINNUBANKINN VORUBILAR 3|a ðxia bíiar árg: '73 Scanía Vabis 1 10 super árg: '72 Scanía Vabis 110 super árg: '71 Scanía Vabis 1 1 0 super árg '6 7 Scanía Vabis 76 m/2Vi tonna Foco krana. árg: '65 Scanía Vabis 76 árg: '72 Volvo FB 88 árg: 72 Volvo FB 86 árg: '67 Volvo FB 88 árg: '65 Merc Benz 1 920 3ja tonna Foco krani. Miðstöð vörubila og vinnuvélaviðskiptanna EINGÖNGU VÖRU- BÍLAR OG VINNU- VÉLAR ÁÐSTOÐ WÆk SIGTÚN 7 WMm: REYKJAVlK “MjL SlMAR 81518 - 85162 " * BOX 4049 SIG. S. GUNNARSSON „Guð þarfnast þínna handa” Það er æskulýðsdagur Þjóð- kirkju íslands 3. marz þetta ár — þjóðhátíðarárið 1974. Fáu á vegum kirkjunnar ís- lenzku er fremur hægt að gleðj- ast yfir en þeim framförum, sem orðið hafa i hennar félags- legu áhrifum og stofnunum hinasíðari áratugi. Má þar nefna Hjálparstofnun krikjunnar, Æskulýðsstarf kirkjunnar, fangeisisprest, sjúkrahúsprest o.s.frv. Allt eru þetta framfarir sem þera með sér anda og kraft Krists til hinna minnstu bræðra, ef rétt ráð eru fundin og vel að verki staðið. Ótrúlega stutt er síðan að ekkert af þessu var til á islandi. Og samt vil ég nefna eitt ennþá, sem ekki hefur enn fundið náð í augum hins opinbera og ekki heldur notið skilnings almenn- ings yfirleitt. En það er Bind- indisráð kristinna safnaða — fræðsla og hjálp gegn mesta böli þjóðarinnar. En Guð heyrir bænir hins allslausa. En nú er það æskulýðsdagur- inn — æskulýðsvikan — sem einnig er nefnd fórnarvikan. Undanfarin ár hefur hún mjög verið helguð baráttu gegn hungri í heiminum. Samt var svo ekki í fyrra, vegna vand- ræðanna í Vestmannaeyjum. En sá vandi var leystur og leyst- ist fyrir Guðs hjálp á þann hátt, að kraftaverk má teljast, sem vekur heimsathygli og ætti sannarlega að vekja okkur til verðugs þakklætis og fagurra fóna. Eyjan rís iðjagræn að nýju. Nú er hins vegar yfirskrift æskulýðsdags og fórnarviku orðin: „Guð þarfnast þinna handa.“ Og táknið biðjandi hendur að fótum lítils barns, sem grætur af hungri, sýnir hvert starfi dagsins og fórnar- vikunnar skal stefnt. Ennfremur verður sent út blað, sem hvetur til almennrar þátttöku, og lýsir nánar því á- standi, sem ríkir á þeim svæð- um í heiminum þar sem hungr- ið þjakar. En það er einkum i Afríku — kannski mest í Eþíó- píu. En það land stendur ís- landi að vissu leyti næst nú allra landa í Afríku. Þar er íslenzkt kristniboð í Konsó. Þar dvelur nú og starfar fyrrver- andi æskulýðsfulltrúi þjóð- kirkjunnar. Þar starfa einnig íslenzkar kristniboðafjölskyld- ur. Og þar eru tveir synir Ólafs Ólafssonar, islenzka, aldna kristniþoðans góðkunna, þók- staflega að berjast gegn hungr- inu, flytjandi vistir á vörubíl- um og læknandi sjúka og þjak- aða. Og við, sem erum hér heima í allsnægtum ættum að geta séð af, þótt ekki væri nema einnar máltiðar virði handa hungruðu barni. við gluggann eftirsr. Árelíus Nielsson Ættum við ekki öll að vera samtaka um slíka fórn. Margt smátt gerir eitt stórt. Ekki að vera að hugsa, hvað áður var gefið eða gert og ímynda sér, að við séum „stikkfrí", vegna góð- leiks og gjafa í fyrra eða um daginn. Nú er nýr dagur, nýr áfangi ný átök til að bæta um og blessa þá, sem „ekki megna sjálfum sér i sinni neyð að bjarga". Hver dagur hefur sína geisla — sinar gjafir, sínar áhyggjur, sína þjáningu. Látið geislana gleðja og skína. Látið áhyggjur og þrautir hverfa fyrir von og fórn. Þannig verður gjöf aldrei ölmusa hangandi handar held- ur fórn á altari hins göfga Guðs, með gleðibrosum veitt og bæn fram borin. Fyrir Guðs náð erum víð alls- nægtafólk á útskeri norður í höfum. Væri svo ef ekki væru áhrif kristins dóms til að efla, verma og veita, lýsa og leiða? Lfklega verður þjóðhátiðar Islands þetta ár 1974, minnzt með sérstökum æskulýðsdegi síðar á árinu. En hvað um það? Við eigum aðeins þann dag, sem er að liða. Hinir eru horfn- ir og aðrir koma kannski aldrei. Þinn dagur er í dag. Gerum því 3. marz og alla næstu viku að uppsprettulind- um hins góða, æskunni helgaða til að kenna henni bæði að gefa og þiggja. Hver gjöf ber iaunin í sjálfri sér, ef hún er veitt af hlýju hjarta og fórnandi hönd. Munum því yfirskrift æsku- lýðsdagsins og förnarvikunnar: „Guð þarfnast ÞINNA HANDA.“ Sjáið um að þerra tárin af vanga hins grátandi barns og látið bros ljóma um brár þess og varir. Slikt er góð gjöf. Við skulum öll vera samtaka um að gera hlut þessa litla lands, þessarar fámennu þjóðar sem mestan í samstarfi þjóða á Guðs vegum. „Sælu njótandi, sverðin brjótandi. faðmist f jarlægir lýðir.“ Árelíus Níelsson. 24. febrúar sl. voru spilaðar tvær umferðir í Reykjanesmót- inuog urðu úrslitþessi: 12. umferð. Sveit Haralds vann Ólafs 13-7 Hauks vann Marons 20-4 Ágústs vann Sigurðar 19-1 Boggu vann Sigurhans 12-8 Gunnars vann Kára 11-9 Bjarna vann Olfars 20-0 Jóns vann G ests 11-9 Guðmundar vann Vals 20-5 þar sem sveit Vals mætti ekki til keppni. 13. umferð Gests vann Vals 20-5 (Sveit Valsmætti ekki) Guðmundar vann Haralds 13-7 Ólafs vann Sigurðar 17-3 Ágústs vann Marons 17-3 Hauks vann Boggu 20-4 Gunnars vann Sigurhans 11-9 Kára vann Bjarna 20-2 Ólafs vann Jóns 19-1 Eftir 13 umferðir er staða efstu sveita þessi: ÓlafsLáruss. 178 Ágústs Helgas. 172 Hauks Hanness. 171 Sigúrhans Sigurhanss. 165 G uð mund ar Jakobss. 162 Sigurðar Emilss. 158 HaraldsBrynjólfss. 145 Ef útreikningur sveita verð- ur með líku sniði oé í fyrra um þátttöku í íslandsmótinu átti Reykjanesriðillinn 3 sveitir þá og má segja að allar þær sveitir sem upp eru taldar hér geti hafnað í þremur efstu sætun- um Það verður því trúlega spenna í loftinu 17. desember nk. þegar tvær síðustu umferð- irnar verða spilaðar. Ráðgert hafði verið að ljúka mótinu 10. marz, en sökum úrtökumóts BSÍ sem fram fer 10.—11. marz varð að fresta síðustu umferð- unum um eina viku. Um kvöld- ið verður svo verðlaunaafhend- ing í Skiphól og opið hús fyrir spilara og gesti þeirra og vel- unnara spilaíþróttarinnar. 0 Nú er lokið átta umferðum í meistarakeppni Bridgefélags Reykjavfkur og er keppni mjög tvísýn, því aðeins 11 stig skiija að fyrsta og fimmta sæti. Sveit Hjalta Elíassonar hafði lengi góða forystu i mótinu en keppi nautar hans hafa sigið jafnt og þétt á og er sveit Hjalta tapaði fyrir sveit Þóris í síðustu um- ferð, þáminnkaði forskotið nið- ur í 9 stig úr 23. Röð og stig efstu sveita er nú þessi: Sveit Hjaita Elíass. 130 ÞorisSigurðss. 121 Harðar Arnþórss. 120 Gylfa Baldurss. 119 Guðmundar Péturss. 119 BragaJónss. 78 Hannesar Jónss. 73 Helga Jóhannss. 71 Næsta umferð verður spiluð í Domus Medica miðvikudaginn 6. marz kl. 20. — 0 — Frá Bridgefélagi Hafnarfjarð- ar. Firmakeppni B.F.H. er lokið með þátttöku 51 firma. Sigur- vegari að þessu sinni varð verzl- unin Hafnarborg með 840 stig, spilari fyrir Hafnarborg var Kristján Andrésson. Röð annarra efstu firma varð þessi: 2. Hörður Þórarinss. 790 3. Bókabúð Böðvars 790 4. Verzl. Málmur 780 5. Músik & Sport 770 Bridgefélag Hafnarfjarðar þakkar öllum firmunum kær- lega íyrir þátttökuna. Firmakeppnin var jafnframt einmenningskeppni B.F.H. og röð efstu manna í einmennings- keppninni varð sem firma- keppnin segir, eða: Kristján Andréss. 840 Hörður Þórarinss. 790 Sævar Magnúss. 790 Sigurður Emilss. Ari Kristjánss. 780 770 Nú stendur yfir 7 kvölda Barometer tvímenningskeppni og eftir 4 fyrstu umferðirnar, sem spilaðar voru fyrsta kvöld- ið, er staðan þessi: Árni—Sævar 86 Hörður — Halldór 59 Runólfur — Valur 59 Óskar — Sigurður 49 Kristófer — G uðni 48 H alldór — Friðþjófur 43 tJlfar — Karl 40 Ætlunin er að Hafnfirðingar fari i heimsókn upp áSkaga um helgina og spili við Akurnes- inga á sunnudag. 0 Þegar 8 umferðum af 13 er lokið í Reykjavíkurmótinu er staða efstu sveita þessi: ÞórisSigurðss. 129 Hjalta Elíass. 113 Hannesar Jónss. 109 Harðar Arnþórss. 108 Gylfa Baldurss. 95 Sigtryggs Sigurðss. 95 Guðmundar Péturss. 95 Tryggva Gíslas. 68 Næst verður spilað 12. marz næstkomandi. ORÐ I EYRA Hremmíngar ÞAÐ á ekki af okkur menn- íngarvitum að gánga þessa dag- ana. Fyrst byrja nú einkvur nóboddý á að skipta silfri Guðrúnar frá Lundi og þeirra allra á milli rithöfunda, og svo dynur yfir það árvissa hrak- viðri, sem jafnan stendur af Kirkjubólsbónda og liði hans á útmánuðum, þegar gefið er á stal iinn. Auðvitað er ekki áð tvíla það, að greiðsiur Guðrúnarfjár eru hundraðprósent réttar. Það þarf ekki annað en líta á próf- gráður þremennínganna til að sannfærast um, að þar er dóm- bært og réttvfst hæfiieikafólk á ferðinni. Og þó einn og einn hafi gleymzt í þeim aragrúa sannra iystamanna, sem fyrir- finnast á landi hér og pluma sig sæmilega takk, þá má ekki gleyma hinu, að ýmsar stór- gáfaðar vitsmunaverur feingu dægiiega umbun fyrir það eitt að vera til og heiðra mennfngarlíf vort með nær- veru sinni. Afturámóti var útmánaða- hrakviðrið með verra móti í ár. Þorgeir snillíngurku meirað segja búinn að ljóða ótæpilega á Kirkbælínga, og þótti eingum mfkið, þó fyrr hefði verið. — Gvuðbergur eymínginn var líka settur hjá, og mun sú skömm leingi uppi. Það er ekki and- skotalaust, ef jafnvei Sokki gamli dugir mönnum ekki leingur í burtreið þeirri, sem háð er frammi fyrir skeggjuð- um og skeggiausum ásjónum þeirra beitarhúsamanna. Hefur það hross þó reynzt ýmsum vel og orðið tilefni til leingri og vituriegri ritsmfða en aðrir klárar islenzkir. En einginn má við vargnum, einsog Jófríður sagði Þor- bjarnardóttir, þegar maður hennar, Guttormur skáid og hundalæknir í Flóaseli, var óvfgur borinn undir réttarvegg. Hafði bekri nokkur iiia siðaður rennt á hann í réttinni. Okkur mennfngarvitum tjóir ekki heldur að sakast við dómarana eða deila um orðinn hlut. Og meðan hrossastrákar liggja ó- vígir einsog hráviði útum hvippinn og hvappinn, er þó alltaf bót í máli, að sem betur fer eru þeir Kirkbæiíngar með á köttinn, þegar Stórskáldið Tóráíhlut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.