Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐH), SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974 TÖLV UDEILD Borgarspítalans hefur tekið í notkun nýja tækni í úrvinnslu gagna, svokallaða fjar- vinnslu. Fjarvinnsla er í því fólg- in, að notandi langt f burtu frá tölvu hefur aðgang að tölvunni með sfmasambandi, gegnum fjar- vinnslutæki eða útstöð. Þessi tækni hefur ekki verið notuð hér- lendis áður, þótt hún hafi verið prófuð hér, og er með þessu því brotið nýtt blað í sögu tölvunotk- unar á tslandi. Utstöðin í Borgar- spftalanum er í símasambandi við tölvu Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavfkurborgar á Háaleitis- braut. Með tilkomu þessarar nýju tækni um sl. áramót var einnig tekið í notkun nýtt og fullkomið upplýsingavinnslukerfi fyrir rannsóknadeild Boragspítalans. Þessi nýja tækni var kynnt fréttamönnum og >».nsum gestum i Borgarspítalanum á föstudag. Halldór Friðgeirsson, verkfræð- ingur, sem starfað hefur við tölvudeild spítalans í l'A ár við undirbúning að þessari nýju tækni og nýja upplýsingavinnslu- r •• Ólöf Jónsdóttir og Halldór Friðgeirsson við nokkur fjarvinnslutækjanna. r NY TOLVUTÆKNI A r BORGARSPITALANUM kerfinu, sagði m.a., að upplýsinga- vinnslukerfið væri byggt á stöðl- uðu kerfi frá IBM og væri notað víða i Bandaríkjunum, en ísland væri fyrsta landið í Evrópu, sem setti kerfið upp, og hefði það vak- ið athygli sums staðar í Evrópu. Kostirnir við að taka upp slíkt staðlað kerfi væru m.a. þeir, að það væri tilbúið og fullprófað — mikil vinna hefði þó farið í að aðlaga það aðstæðum spítalans —, því væri haldið við af IBM og reikna mætti með að margra mannára sérfræðivinna lægi að baki slikum kerfum. Kostirnir við að setja upplýsingakerfið i tölvu væru m.a. aukið öryggi, þar sem allar upplýsingar væru vandlega prófaðar, auðveldun tölfræðilegr- ar úrvinnslu, sem mikilvæg væri fyrir yfirmenn dei Idarinnar, auð- veldum starfa meinatækna með framleiðslu vinnugagna og lækn- ar fengju upplýsingar frá deild- inni á stöðluðu og vel læsilegu formi. Þá gætu margir spitalar notað kerfið samtímis og hægt væri að nota það á mismunandi vegu. 1 kynningunni kom fram, að Selfossi, 2. marz. SUNNUDAGINN 3. marz kl. 16 halda Sigriður E. Magnúsdóttir söngkona og Jónas Ingimundar- son píanóleikari tónleika i Sel- fossbíói. Sigríður mun syngja lög eftir innlenda og erlenda höfunda við undirleik Jónasar. Auk þess mun Jónas leika einleik á píanó. Þau Sigríður og Jónas hafa að undanförnu ferðazt víða um land og haldið tónleika, bæði opinbera og í skólum. Jónas tjáði mér, að þau hefðu m.a. komið fram á Egilsstöðum, Akureyri, Keflavík og Borg i Grímsnesi. Á Akureyri regluleg tölvunotkun við upplýs- ingavinnslu hefur verið við rann- sóknadeild síðan 1966, þar af dag- lega frá 1968, við röntgendeild síðan 1966 og við sjúklingabók- hald og slysadeild síðan 1966. Launa- og fjárhagsbókhald hefur verið unnið í tölvu hjá Reykjavík- urborg. Rannsóknadeildin er með langstærsta tölvuverkefnið. A deildinni eru framkvæmdar um 120 mismunandi rannsóknir á ýmsum sýnum úr mannslikaman- um. Árið 1973 voru framkvænidar um 170 þús. rannsóknir í deild- inni. Yfirlæknir á deildinni, dr. Eggert Ö. Jóhannsson, innleiddi í júni 1968 daglega vélvinnslu fyrir upplýsingakerfi hennar og setti IBM á islandi kerfið upp á sína tölvu. Frá 1968 til síðustu ára- móta var rannsóknardeildarverk- efnið unnið daglega í tölvu IBM á Klapparstíg af starfsfólki spítal- ans og var farið með gögnin á milli i bíl. En kerfið var hætt að koma að fullum notum og varð því að breyta til. Hlutverk upplýsingakerfis rannsóknadeildarinnar er að gefa stjórnendum deildarinnar töl- héldu þau t.d. fjóra tónleika fyrir skólafólk og einnig á Egilsstöðum, auk þess sem þau héldu opinbera tónleika á bessum stöðum. Hann kvaðst vera rnjö^; ánægður með að- sóknina og gat þess t.d., að á Egilsstöðum hefðu komið á fjórða hundrað manns á söngskemmtun- ina. Ég vil hvetja Selfyssinga og aðra Árnesinga til að koma og hlýða á tónleikana og sýna með því, að við metum framtak þessa unga og glæsilega listafólks, sem hefur dugnað til að færa okkur listina út á landsbyggðina. — Tómas. fræðilegar upplýsingar yfir fram- leiðslutegundir, magn og gæði, gefa meinatæknum upplýsingar um hvaða rannsóknir á að fram- kvæma, fyrir hverja, hvar og hvenær, og gefa út rannsóknasvör fyrir lækna. Dr. Eggert Ó. Jóhannsson, yfir- læknir, sagði í samtali við Mbl., að tölvuvinnsla upplýsinganna bætti vinnuskipulagninguna og yki hag- ræðingu, villum ætti að fækka verulega, yfirvinna minnkaði stórlega og með tilkomu þessarar nýju fjarvinnslutækni færu ekki lengur milliliðir höndum um upplýsingagögnin. Eggert kvað tölvutæknina vera forsendu fyrir því, að hægt yrði að taka upp sjálfvirkni að einhverju leyti í rannsóknastörfum deildarinnar. Bjarni P. Jónasson, forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og Reykja- víkurborgar, gat þess við þetta tækifæri, að það verkefni, sem Skýrsluvélar leystu af hendi fyrir Borgarspítalann, væri um 10% af verkefnum tölvu Skýrsluvéla og þannig eitt af þeim stærstu. Ekki væri búið að semja um greiðslu fyrir það verk, en útlit væri fyrir, að hún myndi verða um 8% af tekjum stofnunarinnar. Tækin í útstöðinni í Borgar- spítalanum eru öll leigð frá IBM á Islandi. Meðal þeirra eru spjalda lesari, gatari og prentari, sem get- ur skrifað allt upp í 350 línur á mínútu. Halldór Friðgeirsson sagði í samtali við Mbl., að þegar búið væri að reyna þessa tækni i 1—2 mánuði til viðbótar, yrði tekin ákvörðun um það, hvort Land- spítalinn ætti að koma sér upp slfkri tækni og upplýsingakerfi lika. Ef afráðið yrði að fara þá leið, tæki það líklega um 1!4 ár að koma því í framkvæmd. Tónleikar á Selfossi Prófkjör Sjálf- stæðisflokksins Hverjir geta tekið þátt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík? Atkvæðisrétt I prófkjörinu hafa allir stuðningsmenn D-list ans I borgarstjórnarkosningun- um í Reykjavík, er náð hafa 20 ára aldri 26. maí 1974 og áttu lögheimili I Reykjavík 1. des- ember 1973. Einnig meðlimir sjálfstæðisfélaganna í Reykja-_ vík sem náð hafa 18 ára aldri 26. maí 1974 og áttu lögheimiil í Réykjavík 1. desember 1973. Hvar er kosið? I dag eru opnir kjörstaðir í 8 kjörhverfum borgarinnar, og er kosið kl. 14—19. Á morgun, mánudag, er kosið I Tjarnarbúð kl. 16—20. Kjörstaðirnir, sem opnir eru I dag eru þessir: 1) Nes- og Melahverfi, Hring- braut og öll byggð sunnan hennar. Kjörstaður: KR-heimili við Frostaskjól. 2) Vestur- og miðbæjar- hverfi, öll byggð vestan Berg- staðastrætis Óðinsgötu og Smiðjustígs og norðan Hring- brautar. Kjörstaður: Galtafell, Laufásvegi 47. 3) Austurbæjar-, Norðurmýr- ar-, Hlíða- og Holtahverfi. Hverfið takmarkast af 1. og 2. kjörhverfi í suður og vestur, Kringlumýrarbraut í austur, en af Laugavegi og Skúlagötu í nórður. Kjörstaður: Templara- höllin við Eiríksgötu. 4) Laugarnes-, Langholts-, Voga- og Heimahverfi. Öll byggð norðan Suðurlandsbraut- ar og hluta Laugavegs. Kjör- staður: Samkomusalur Kassa- gerðarinnar h/f við Kleppsveg. 5) Háaleitis-, Smáibuða-, Bú- staða- og Fossvogshverfi. Hverfið takmarkast af Kringlu- mýrarbraut í vestur og Suður- landsbraut í norður. Kjörstað- ur: Miðbær við Háaleitisbraut 58—60. 6) Árbæjarhverfi og önnur Reykjavíkurbyggð utan Elliða- áa. Kjörstaður: Kaffistofa verk- smiðjunnar Vífilfell h/f, Drag- hálsi 1. 7) Bakka- og Stekkjahverfi (Breiðholt I). Kjörstaður: Urð- arbakka 2. 8) Fella- og Hólahverfi (Breiðholt III). Kjörstaður: Vesturberg 193. Gilbert og Henry, sem kenna munu á skíðum í Hveradölum næstu vikur og mánuði. Skíðakennsla fyrir al- menning í Hveradölum TVEIR franskir skfðakennarar eru nú staddir hér á landi til þess að kenna almenningi á skfðum og þjálfa íslenzka keppendur. Annar þeirra, Gilbert, ht'ur verið hér í nokkurn tíma og þjálfað hjá Skíðafélagi Reykjavfkur, en hann hefur einnig kennt í Kerlingar- fjöllum. Hinn skíðakennarinn, Henry Vidal, er nýkominn til landsins á vegum Skíðasambands Islands, en hann hóf skíða- kennslu fyrir almenning í Hvera- dölum í gær. Þeir félagar báðir stunduðu nám í Nice og kenndu þar einnig á skíðum. Báðir hafa reynslu í kennslu og þjálfun keppenda. Hafa þeir skipulagt mörg nám- skeið víða í Ölpunum og þá sér- staklega fyrir stúdenta. Henry verður hér á landi fram yfir páska. Hann mun kenna alla daga uppi í Hveradölum, á meðan snjór helzt þar, en að öðrum kosti verður kennslan flutt til. Kennsl- an í Hveradölum verður alla virka daga frá kl. 14—22 og verður ávallt kennt í tveggja stunda önn- um. Á laugardögum verður kennt frá kl. 10—20 og á sunnudögum frá kl. 10—17.30. Kennt verður í þremur flokk- um: Fyrir byrjendur, fyrir þá sem eru að byrja að nota lyftuna og fyrir þá sem eru vanir. Önnin kostar 300 kr. fyrir manninn. I fyrsta flokknum, fyrir byrjendur, er reiknað með 12 ára gömlum og upp úr. Um helgina kostar önnin 500 kr., en ávallt er reiknað með 15 mönnum í flokki. Þá mun Gil- bert einnig taka nokkrar annir að auki, en sem lágmark er reiknað með 22 önnum í viku. Framvegis verður reynt að selja aðgangskort í öllum sportvöru- verzlunum borgarinnar, en um helgina verða kortin seld við skíðalyftuna í Hveradölum. Týndi bíað- burðarlaununum BLAÐBURÐ ARDRENGUR var fyrir því óhappi að týna umslagi með hluta af blaðburðarlaunum sfnum, um þúsund krönum, í mið- borginni sfðdegis á föstudag. Hann hafði verið að verzla f O. Ellingsen hf. rétt fyrir lokun, en hefur svo týnt umslaginu I nágrenni við verzlunina, e.t.v. f Hafnarstrætinu. Utan á umslaginu stóð Hávegur. Skilvfs finnandi er beðinn að koma umslaginu til lögreglunnar. Lágafellskirkja KIRKJUVIKA í Lágafellssókn hefst í dag með æskulýðsmessu í Lágafellskirkju. Þetta er í 15 skiptið, sem efnt er til kirkjuviku í Lágafellskirkju, eða allt frá árinu 1960. Samkomur verða i kirkjunni á mánudags-, þriðju- dags- og miðvikudagskvöld með fjölbreyttri dagskrá og hefjast samkomurnar öll kvöldin kl. 9 síðd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.