Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
47
Skákþing Kópavogs að hefjast
TAFLFÉLAG Kðpavogs hefur
verið með mjögöfluga starfsemi í
vetur og greinilega vaxandi
áhugi á skák, að þvf er segir f
fréttatilkynningu frá félaginu.
Félagið hefur gengist fyrir tafl-
æfingum á fimmtudögum f Víg-
hólaskóla. og hafa þær verið mjög
vel sóttar.
Haustmót félagsins fór fram
dagana4.—22. nóv. og tefldu sam-
an meistara- og fyrsti flokkur, svo
og tefldu saman 2. fL og unglinga-
flokkur.
Áskell Kárason sigraði glæsi-
lega í efri flokknum og hlaut
hann 10 vinninga af 11 möguleg-
um
Annan flokkinn vann Hafþór
Yngvason og hlaut hann 10 vinn-
inga af 12 mögulegum. I 2. sæti
varð Guðlaug Þorsteinsdóttir með
9H vinning og flytjast þau upp i
fyrsta flokk.
Hið árlega jólahraðskákmót fé-
lagsins fór fram að venju, milli
jóla og nýárs. Á þessu móti er
teflt um veglegan bikar, ásamt
sæmdarheitinu „Jólasveinn Tafl-
félags Kópavogs". Að þessu sinni
varð ögmundur Kristinsson „jóla-
sveinn“ og hlaut hann 14 vinn-
inga. Annar varð Jónas P. Er-
lingsson, með 13l/i vinning.
Núverandi skákmeistari Kópa-
vogs er B jörn Sigurjónsson.
Skákþing Kópavogs hefst
sunnudaginn 3. mars n.k., og
verður tef lt í öllum flokkum.
— Úr verinu
Framhald af bls. 3
norska freðfiskútflytjendur í fé-
lag við sig.
Mikilvægur fiskur.
Bretar hafa lagt sig mjög eftir
að rannsaka kolmunna undanfar-
in ár. Norðmenn hafa látið það
uppi, að kolmunni sá, sem hrygnir
i mars og apríl austur af Islandi
og norður og vestur af Skotlandi,
séu 8 milljón lestir. Það er eins og
ársafli Islendinga í tölum með
einu núlli fyrir aftan.
Það hefur þó nokkuð verið veitt
af þessum fiski, til að mynda af
Itölum og Spánverjum, en mest
hefur kveðið þar að veiði Rússa,
sem veiddu 1971 64.000 lestir, á
móti aðeins 100 tonnum 1968. Alls
er gert ráð fyrir, að hægt verði að
veiða 1.000.000 lesta af kolmunna
árlega, eða 50% meira en allur
ársafli Islendinga.
Kolmunni er af þorskfiskætt-
inni og er víða notaður til mann-
eldis, meðal annars í fiskkökur í
Svíþjóð.
Norðmenn ætla einnig að hag-
nýta þennan djúpsjávarfisk til
manneldis og gefa honum meira
aðlaðandi nafn og kalla hann blá-
hvít.
Svil í háu verði.
Norðmenn sjóða niður svil og
greiða kr. 9,00 fyrir kg. I 100
lestum af fiski eru 7 lestir af
sviljum, að verðmæti 63.000
króna. Salan er einkum til Eng-
lands.
— Brezku
kosningarnar
Framhald af bls. 1
Heath er, að hann getur að nafn-
inu til haldið áfram í forsætisráð-
herraembættinu, unz þing kemur
saman 12. marz n.k. Þá getur
hann lagt fram stefnuskrá og
krafist traustsyf irlýsingar. Fái
hann hana ekki, verður hann að
segja af sér þegar í stað og myndi
þá ráðleggja drottningu annað
hvort að fela Wilson stjórnar-
myndun eða efna til nýrra kosn-
inga. Hugsanlegt er, að Heath
fengi traustsyfirlýsingu sam-
þykkta, þar sem vitað er, að litlu
flokkarnir hafa vart fjárhagslegt
bolmagn til að fara út í aðrar
kosningar strax, auk þess, sem
slikt væri mjög vafasamt fyrir þá
stjórnmálalega.
Harold Wilson leiðtogi Verka-
mannaflokksins hefur þegar lýst
því yfir, að hann sé tilbúinn til að
mynda stjórn, en að öðru leyti
hefur hann ekkert sagt um
ákvörðun Heath um að segja ekki
af sér. Wilson er á móti samvinnu
við frjálslynda, en hins vegar
leggur aðalmálgagn Verkamanna-
flokksins The Guardian mikla
áherzlu á það i dag, að samsteypa
Verkamannaflokksins og frjáls-
lyndra ásamt nokkrum þjóðernis-
sinnum ,,sé eina lausn kreppunn-
ar.“
TIMES
The Times, (óháð) segir um
úrslit kosninganna: — Jafnvægið
milli flokkanna eftir kosningarn-
ar er eins óhagstætt og frekast gat
orðið. Það er ekki bara það, að
engum einum flokki hafi tekizt að
ná meirihluta, það fæst ekki einu
sinni hreinn meirihluti með sam-
vinnu tveggja flokka. Með öðrum
orðum, það er um að velja tvær
veikar ríkisstjórnir og hvorug
þeirra gæti verið viss um að koma
alvarlegum deilumálum i gegnum
þingi ð.
DAILY MAIL
Daily Mail styður Ihaldsflokk-
inn og segirí tilefni kosninganna:
— Við hvetjum alla stjórnmála-
menn til að láta þjóðina ganga
fyrir flokksmálum. Stærstu kosn-
ingar í sögu okkar hafa farið á þá
leið, að stóru flokkarnir tveir eru
í sjálfheldu og Frjálslyndi flokk-
urinn hefur fengið fleiri atkvæði
en nokkru sinni. I þessari óvissu
er eitt alveg Ijóst: Þjóðin óskar
eftir samvinnu, ekki átökum.
Þessi óvissa niðurstaða er í sjálfu
sér bón um hógværð.
DAILY MIRROR
Daily Mirror styður Verka-
mannaf lokkinn og segir: — Herra
Heath hefði átt að segja af sér í
gærkvöldi. Því situr hann ennþá?
Hvernig getur hann látið að þvi
liggja, að með því að reyna að
hanga i embætti geti hann endur-
reist þjóðareiningu og traust?
Herra Heath er heiðvirður maður.
Hann ætti að segja af sér i dag.
ERLEND VIÐBRÖGÐ
Bandariska blaðið New York
Daily News fjallar um brezku
kosningarnar og segir m.a.: —
Enginn flokkur í Bretlandi vann
sigur í kosningunum á fimmtu-
daginn. Hvað sem nú gerist er Iítil
von til þess að efnahagsvandinn
leysist fljótlega. Bretland er nú á
hættulegum krossgötum.
NOREGUR
Trygve Brattelie, forsætisráð-
herra Noregs, sem er fyrir minni-
hlutastjórn Verkamannaf lokks-
ins, sagði, að svo virtist sem öll
Vestur-Evrópa byggist við að
þingræði væri í hættu. „Og nú
hefur hættan náð til föðurlands
þingræðisins," sagði hann um
brezku kosningarnar.
SOVÉTRlKIN
Helztu fjölmiðlar Sovétríkj-
anna sögðu í dag, að úrslit kosn-
inganna sýndu vantraust á og
óánægju með stjórn íhaldsflokks-
ins og afstöðu hans til verkafólks.
Sovietskaya Rossiya, málgagn
miðstjórnar kommúnistaf lokks-
ins, segir:
— Meirihluti Breta vísaði á bug
íhaldsmönnum og lýsti vantrausti
á alla efnahags- og félagsmála-
stefnu flokksins. Þeir lýstu
óánægju sinni með stöðugar tik
raunir hans til að leggja byrðar
verðbólgunnar á herðar verka-
fólksins og til að reyna að tak-
marka rétt verkalýðsfélaganna til
að vernda lifskjör hinna vinnandi
stétta.
PRAVDA
Pravda, aðalmálgagn kommún-
istaflokksins, segir: — Vandamál
Bretlands voru aðalmálin í kosn-
iijgabaráttunni: gífurleg verð-
bólga, nýtt met i óhagstæðum
greiðslujöfnuði, fall pundsins og
sókn einokunarfyrirtækja gegn
réttindum verkalýðshreyfingar-
innar. Ef dæma skal eftir þeim
niðurstöðum, sem fyrir liggja,
hafa flestir Bretar hafnað stefnu
íhaldsmanna í þessum meginmál-
um.
FERMINGARDRENGIR
ÞESSI
FÖTI
ERU SÉRSTAKLEGA
BÚIN TIL FYRIR
YKKUR
EINHIG MIKIB
ÚRVAL
ÍF SKYRTUM
OG SLAUFUM
TIZKUVERZLUN unga folksins
KARNABÆR