Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974 33 Landssíminn hefur iátið reisa radíósímstöð á Öxnadalsheiði. Þar var reist hátt stalmastur, og þyrla notuð til þess að koma upp tveimur skermum. Myndin er tekin, þegar þyrlan var á sveimi þar yfir. Þessi háspennu- lína hefur mikið verið í fréttum og umdeild. Hún liggur á milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar tilbúin til rafmagnsflutnings. En sá er hængur á, að ekkert rafmagn ertil - til þess að flytja eftir henni. Hvort það verður flutt í austur eða vestur, þegarþar að kemur, veit þó enginn. Nokkrir staurar á þessari línu brotnuðu í snjóflóði núna á dögunum. Verið er að gera klárt á netjaveiðar. Myndin er tekin á bryggju á Húsavík. Frá Hofsósi. Svarta húsið á miðri myndinni er frá tímum Hansakaupmanna. — Ljósmyndir Hermann Stefánsson. Loðnan er ekki eina björgin, sem færð er í búið. Hér er verið að landa bolfiski á Húsavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.