Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUD'AGUR 3. MARZ 1974 r Birgir Isl. Gunnarsson borgarstjóri: V akning Aldraðir dveljist sem lengst í heimahúsum Fróðlegt er í þessu sambandi að rifja upp ymsa starfsemi á veg- um Reykjavíkurborgar í þágu aldraðra, svo og hvert horfir í þessum efnum nú. Meginstefna borgarinnar i málefnum aldraðra hefur verið sú, að fólk geti sem lengst dvalið í sínum heimahús- um í umhverfi, sem það sjálft á mestan þátt í að skapa. Vandamál aldraðs fólks í þessu efni er hins vegar oft það, að litlar, hentugar íbúðir vantar, sem sérstaklega eru sniðnar við þess hæfi. Reykjavíkurborg hefur því byggt allnokkuð í þessu skyni? Á árinu 1966 tók Reykjavíkurborg í notkun að Austurbrún 6 69 íbúð- ir, sem ætlaðar voru öldruðum, öryrkjum og einstæðum mæðr- um, og var 30 íbúðum úthlutað til aldraðra. I febrúar 1972 var siðan tekið í notkun hús með 60 íbúðum fyrir aldraða við Norðurbrún, en hús þetta er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi, sem byggt er eingöngu miðað við þarfir aldraðs fólks. Húsið býður upp á ýmsa sameiginlega þjónustu, svo og möguleika til ýmiss konar starfsemi í þágu aldraðra. Þá er nú á dagskrá að hefja byggingu húss við Furugerði með 74 íbúð- um, sem eru hannaðar fyrst og fremst i þágu aldraðs fólks. Verð- ur það hús nú boðið út innan skamms. Ánægjulegt frumkvæði Samtaka aldraðra Þótt borgin hafi þannig sýnt verulegt framtak í íbúðarbygging- um aldraðs fóiks, er ljóst, að bet- ur má, ef duga skal. Því er það verulegt fagnaðarefni, að samtök aldraðra hafa ákveðið að hefja byggingar með íbúðum fyrir aldrað fólk í allstórum stíl. Hér er ekki aðeins um að ræða hags- munamál þessa aldrara fólks, sem getur fengið hentuga íbúð við sitt hæfi og ýmsa sameiginlega þjón- ustu, sem léttir því lífið á efri árunum. Hér er einnig um að ræða verulegt hagsmunamál fyrir skipulag Reykjavikurborgar. í eldri borgarhverfunum fækkar íbúum stöðugt. Samkvæmt nýjustu athugunum virðast nú búa í eldri hverfum borgarinnar 2,10 íbúar á hverja íbúð þar sem fækkun hefur orðið mest. Samsvarandi tala i nýju hverfi eins og Breiðholti I er 4,55. Yngra fólkið streymir allt i nýju hverfin, þar sem völ er á íbúðum fyrir þess þarfir, en eldra fólkið situr eftir í íbúðum, sem eru of stórar og oft óhentugar. Hins vegar á eldra fólkið ekki í önnur hús að venda, og því nýtast þessar íbúðir ekki sem skyldi fyr- ir yngra fólk, sem þar gæti búið með börn sín. Það er því verulegt hagsmunamál fyrir borgina, að allmikið sé byggt af íbúðum fyrir aldrað fólk. Á þann hátt er líklegt að losni húsnæði í eldri borgar- hverfum, sem ungt fólk geti fest kaup á, og þannig geti eldri hverf- in endurnýjazt, og sú þjónustuað- staða, sem þar er fyrir hendi, m.a. í skólum eldri hverfanna, getur þá nýtzt að fullu. Húsnæðislánakerfið þarf að endurskoða Mikilvægt er, að húsnæðis- verið sem langlegudeild, þar sem þeir sjúklingar, sem ekki þurfa stöðuga meðferð, en þó hjúkrun, geti fengið legurými. Þá er nauð- synlegt að koma upp dvalar- heimilum fyrir einstæðinga, sem af ýmsum ástæðum ekki geta dvalið í heimahúsum, þótt þeir séu við sæmilega heilsu. Hjúkrunarheimili fyrir lasburða fólk þurfa og að rísa, þar sem fólk geti fengið sæmilega umönnun og hjúkrun, þótt ekki þurfi það stöðugrar læknismeðferðar við. Borgin undirbýr átak f þessu efni Við afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar fyrir árið 1974 i desember s.l. var samþykkt, að verulegu fjár- magni skyldi verja til stofnana í þágu aldraðra. Fyrir utan áætlun um byggingu íbúða fyrir aldraða. sem fyrr getur, var samþykkt að verja 85 millj. kr. á þessu ári til stofnana fyrir aldrað fólk. Sam- þykkt þessi var gerð í kjölfar til- lögu, sem Albert Guðmundsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, bar fram í borgar- stjórn á s.l. hausti. Sérstök nefnd vinnur nú að því að gera áætlun um byggingu slíkra stofnana í þágu aldraðra. Sú áætlun þarf að vera til langs tfma, og að þvi stefnt að leysa þau vandamál, sem nú steðja að i vistunarmálum aldraðs fólks. Þegar rætt er um stofnanir i þágu aldraðra hér í borginni er nauðsynlegt að minnast á tvær stofnanir, sem reistar hafa verið og reknar fyrir frumkvæði ein- staklinga eða félagasamtaka. Hér er um að ræða Elliheimilið Grund og Hrafnistu, dvalarheimili aldr- aðra sjómanna. Ef þessar stofnan- ir væru ekki reknar með þeim myndarbrag, sem raun ber vitni um, væri algert neyðarástand í málum aldraðra hér í borginni. Þeim aðilum, sem þetta framtak hafa sýnt, ber þvi að þakka. Stofnun samtaka aldraðara og hinn fjölmenni fundur á Hótel Sögu s.l. mánudag ber með sér, að mikil vakning hefur átt sér stað um hagsmunamál aldraðs fólks. íbúðabyggingar samtakanna fyrir aldrað fólk eru líklegar til þess að veita mörgum öldruðum stuðning, þ.e.a.s. fólki, sem hefur þá heilsu að geta verið i eigin íbúðum. Borgin þarf síðan að fylgja fast á eftir með stofnanir fyrir þá, sem vistunar þurfa með af einhverj- um ástæðum. Okkur, sem erum nú á bezta starfsaldri, ber skylda til að vinna ötullega að hagsmunamálum þeirrar kynslóðar, sem nú er að færast á efri ár. Það er sá minnsti þakklætisvottur, sem við getum sýnt þeirri kynslóð, sem hefur skilað okkur þeim arfi, sem við nú njótum góðs af í okkar daglega lífi og störfum. t s.l. viku var haldinn hér fundur, þar sem saman voru komnir eldri borgarar í Reykjavík. Fundur þessi var haldinn á vegum Samtaka aldraða og eftirlaunaþega. Hvert sæti var skipað 1 Súlnasal Hótel Sögu, og fundurinn allur bar það með sér, að mikil vakning er nú hafin í málefnum aldraðra í borginni. Aðalumræðuefni fundarins voru áform félagsins um fbúðabygging- ar fyrir aldrað fólk, sem félagið hyggst reisa fyrir meðlimi sfna. Að sjálfsögðu bar margt annað á góma f umræðum á fundinum og ánægjulegt var að sjá, að eldri vorgararnir sjálfir hafa nú bundizt samtökum til að hafa frumkvæði að þvf að hrinda f framkvæmd ýmsum hagsmunamálum, sem sameiginleg eru hjá fólki, sem skipar þessa aldursflokka. fargjöldum. Sömuleiðis veitir Flugfélag íslands afslátt á öllum flugleiðum innanlands. Hér hafa aðeins verið nefnd nokkur atriði sem dæmi um fyrir- greiðslu, sem Reykjavikurborg hefur haft með höndum i þágu aldraðs fólks. Skortur er á stofnunum til Iánakerfið sé vakandi í þessu efni, og fólk geti átt kost á jafnhá- um lánum, þótt það sé að kaupa sér eldri íbúð, og það getur fengið við kaup á nýrri ibúð. Eins og kerfið er nú hvetur það raunveru- lega ungt fólk til að sækja út í úthverfin og festa kaup á nýjum íbúðum. Margar aðrar ráðstafanir er hægt að gera til að auðvelda öldruðu fólki að búa sem lengst í sínum heimahúsum. I þvi sam- bandi er rétt að minna á, að Félagsmáiastofnun Reykjavíkur- borgar veitir fyrirgreiðslu um út- vegun heimilishjálpar og Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur um út- vegun heimahjúkrunar. Hvort tveggja þessi starfsemi er mjög mikilvæg og léttir undir með mörgu öldruðu fólki og er raunar forsenda þess í mörgum tilvikum, að það geti búið i sínum heima- húsum. Borgin hefur og á hendi tóm- stundastarf fyrir aldrað fólk. Félagsstarf eldri borgara hófst i apríl 1969 og hefur þvi verið haldið áfram síðan. Nú er þetta starf rekið á Hallveigarstöðum við Túngötu, og innan skamms verður opnaður nýr salur til slíks félagsstarfs, þ.e.a.s. salur i húsinu við Norðurbrún 1. Þessi starfsemi hefur verið vinsæl meðal eldri borgaranna og mikið sótt. Borgin veitir margvíslega fyrirgreiðslu Ýmislegt fleira mætti hér og nefna. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar veitir öldruð- um aðstoð við lausn persónu- og fjárhagslegra vandamála og gefur upplýsingar um velferðarmál aldraðra almennt. Mikil vinna er lögð í fyrirgreiðslu við ellilífeyris- þega og þeir aðstoðaðir við að ná sínum fyllsta rétti i trygginga- kerfinu. Ymiss konar kvenfélög safnaða Reykjavíkurborgar vinna mikið starf í þágu aldraðra, og hefur borgin tekið upp skipulegt samstarf við slíka hópa. Hér má og nefna Kvennadeild Rauða kross Islands, sem hefur tekið upp á sína stefnuskrá ýmiss konar þjónustu við aldraða, þ. á m. heimsóknarþjónustu. Borgarstjórn hefur beitt sér fyrir afslætti á þjónustugjöldum á ýmsum sviðum. Má þar m.a. nefna, að borgarstjórn hefur náð samkomulagi við stjórnendur Þjóðleikhúss og Leikfélags Reykjavikur um verulegan afslátt á aðgöngumiðum að leikhúsun- um. Félag ísl. myndlistarmanna hefur veitt afslátt á verði aðgöngumiða til aldraðs fólks. Strætisvagnar Reykjavíkur veita öldruðum og öryrkjum afslátt af vistunar Sá tími kemur i lífi margra aldraðra, að einhvers konar vist á stofnunum verður ekki lengur umflúin. Þar komum við að vandamáli, sem farið hefur vaxandi hér í borginni undan- farin ár og nauðsynlegt er að leysa úr. Skortur á stofnunum til vistunar aldraðs fólks, sem ýmist er rúmliggjandi eða þarfnast verulegrar hjúkrunar, er mjög mikill og snertir nánast allar fjöl- skyldur i borginni einhvern tíma. Langlegudeildir skortir til- finnanlega við öll sjúkrahús borgarinnar. Það er allt of algengt, að aldrað fólk, sem er meira og minna sjúkt, sé sent heim af sjúkrahúsum, þar sem rýma þarf til fyrir öðrum sjúkl- ingum, sem þarfnast aðgerða eða aðkallandi meðferðar. Sjúkra- húsin verða þvi að koma sér upp langlegudeildum, sem geti annað þessu hlutverki. í þessu efni er rétt að minnast á hjúkrunar- og endurhæfingardeild þá, sem kom- ið hefur verið upp við Borgar- spítalann við Grensásveg. Sú deild er að visu ekki bundin við aldrað fólk eingöngu, heldursjúkl- inga á öllum aldri, sem þarfnast endurhæfingar, en ljóst er, að verulegur hluti af sjúklingum þar er aldrað fólk. Þá er nú í undir- búningi við Borgarspitalann bygging álmu, sem hugsuð hefur Hús fyrir aldraða við Norðurbrún. málefnum aldraðra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.