Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974 19 „Upp á síðkastið? Ég hef smíð- að svona sitt af hverju. Aðallega þó um heyskapartimann, þá bilar svo mikið heyskapartæki, þá er líka mikið gert upp af sláttuvél- um. Á tímabili smíðaði ég nokkuð mikið af heyvögnum. Ég útbjó vagnana úr gömlum bílgrindum og u-járnum, sem maður fékk að sunnan. Það voru mikið notaðir bílar í þessa vagna. Maður hefur svo sem fengizt við margt um dag- ana, það vantar ekki, byrjað á ýmislegu, sem ekki hefur verið björgulegt. Þegar ég smíðaði rennibekkinn, þá þurfti ég að bora fyrir stærstu boltunum með nafarsveif. Fyrst boraði ég með mjóa bornum, síðan svera en það skipti miklu máli að brýna vel. Hagræðingin skiptir miklu máli. Sá, sem hagræðir lifinu, getur lengt það um mörg ár.“ Táningarnir nú til dags skreyta stálhestana sína með speglum og ýmsu tilheyrandi, en mér kom í hug speglavirkið, sem Sigurður setti einu sinni á dráttarvél í sveitinni. Það var svo fínt speglavirkið i stjórnborði dráttarvélarinnar að það lá við, að vélin stjórnaði sér sjálf. Næst stóðum við allir úti á hlaði. Gáðum til veðurs Eg brá mér i stutt kapphlaup við rolluskjáturnar og skeiðaði síðan aftur að bæjarveggnum, þar sem Sigurður og EJías voru að bauka. Við fórum aftur inn i hlýj- una. Sigurður gáði á einn mælinn áveggnum. „Hún hlóð vel í gær,“ sagði hann, „hún hlóð vel í norð- anáttinni." „Hver hlóð?“ spurði ég. „Vindrafstöðin," svaraði hann,, „ég smíðaði hana sjálfur. “ Auðvitað, vindrafstöðin, hún trónaði á stöng uppi á Kiljuholti og það var stigi upp í hana þar. Eftir að hafa brúgðið mér fram og lokað hurðinni, heyrði ég að þeir félagar voru að tala um hjól. „Þetta er djöfull gott hjól,“ sagði Sigurður og ég hélt að hann væri að tala um reiðhjól, sem ég vissi, að hann hafði smíðað. Aþað hjól smíðaði hann gíraskiptingu. Hann hafði notað það lengi, en síðan gefið það á byggðasafn héraðsins. „Girahjólið, já, það er ennþá í ágætu lagi. Það var bezt að skipta því niður á sem mestri ferð, þá gekk það. Það var snerill á stell- inu, já, já, En þetta nýja þjól, það er feikna fínt hjól. Ég skal sýna ykkur það.“ Svo beygði hann sig niður, teygði hægri höndina undir mitt rúmið og dró fram glansandi, grænan og skínandi skellinöðru- hjálm. Setti hann á höfuðið stolt- ur á svip og gekk út í fararbroddi og rakleitt að nýsmíðuðum, litlum skúr við bæjardyrnar. Éfe hafði einmitt verið að velta því fyrir mér hvað væri i þessum skúr, hélt fyrst að þetta væri kamar, sem hefði fokið á hliðina í átökum við norðanbolann. Skúrdyrnar voru opnaðar með tilheyrandi lykli og við blasti rennileg og gljáandi Suzuki- skellinaðra frá Japan. Sigurður leiddi gæðinginn fram hlaðið og settist varlega á bak. Það var speglavirki á stýrinu og allar græjur. Hann sagðist vera nýbú- inn að fá gripinn og væri að læra á hann, en hugsaði gott til glóðar- innar. í fjarska stóðum við og rollurnar og horfðum á gömlu kempuna i forvitinni undran. Ár- gerðirnar 1904 og 1974 tóku sig vel út saman. Við gengum aftur til skála. Þar opnuðum við hvern sérsmíðaðan kassann á eftir öðrum með sér- smíðuðum verkfærum eftir völ- undinn Sigurð Filippusson. Stór og smá verkfæri liðu upp úr kössunum, allt vel smurt og tilbúið til átaka. Tilbúið til átaka, þar sem ekki er hægt að panta sérmenntaða menn á hverju strái, en þess í stað gerast landarnir þar sérfræðingar sjálfir og láta ekki sinn hlut eftir liggja. Frostrósirnar lúrðu við glugg- ann. Það var aðeins farið að bregða birtu. Hún hlóð vel. Sigurður sat á rúmstokknum. Hann var að tala um, að því miður ætti hann ekki lengur barómetið, sem hann hefði smíðað einu sinni. „Til bölvunar þá eyðilagðist það,“ sagði hann. Það var þögn góða stund. Svo hélt Sigurður áfram: „Mig var að dreyma í nótt. Ég var staddur úti og það voru einhverjir menn hjá mér. Eg ætlaði að fara að gefa þeim snaps. En þegar ég tók upp glasið var botninn farinn úr, en vökvinn ekki, skildi ekkert í þessu. Ég hef alltaf sagt, að brot væri fyrir bót en ég skildi ekkert f þessu.“ Texti og myndir: Árni Johnsen Hver hlutur á sínum stað. Á hlaði Kiljuholts. Vindrafstöðin er á þakinu. Skel linöðruskúrinn opnaður. Á hlaði KiljuhoILs, rollurnar og jökullinn f fjarska

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.