Morgunblaðið - 06.03.1974, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1974
Sextugur:
Finnur A rnason
garöyrkjumeistari
Finnur Arnason garðyrkju-
meistari Öðinsgötu 21, Reykjavík,
er sextíu ára í dag.
Fínnur er fæddur að Hólalands-
hjáleigu í Borgarfirði eystri 6“3,
1914.
Hann var yngstur af 15 systkin-
um þeirra hjóna Guðnýjar Maríu
Jóhannesdóttur frá Bústöðum
sem þá var í Seltjarnarneshreppi,
Jóhannessonar, Oddssonar frá
Lundi í Lundarreykjadal.
Kona Jóhannesar bónda á Bú-
stöðum var Salgerður Þorgríms-
dóttir systir Torfa yfirprentara
hjá ísafold, föður Siggeirs kaup-
manns á Laugaveg 13.
Kona Odds bónda á Reykjum í
Lundarreykjadal var Kristrún
Davíðsdóttir bónda að Fitjum,
Björnssonar lögmanns Markús-
sonar. Oddur var sonur Jóns i
Stórabotni i Hvalfirði; hans kona
var Guðrún Sigurðardóttir frá Ás-
garði í Grimsnesi, systir séra Jóns
Sigurðssonar prests á Hrafnseyri,
afa Jóns Sigurðssonar forseta.
Faðir Finns var Arni Isaksson
bóndi Benediktssonar; systir
Árna var Björg móðir ísaks Jóns-
sonar hér í Reykjavík sem flestir
Reykvíkingar kannast vel við.
Fyrstu kynni mín af Finni
frænda, því við erum systrasynir,
urðu vorið 1932 er hann kom fyrst
til Reykjavíkur, þá um 18 ára.
Eftir þetta sá ég ekki Finn um
langt timabil nema öðru hvoru,
enda var hann þá á ýmsum stöð-
um bæði til sjós og lands, fjarri
mér.
Veturinn 1934—35 var hann
nemandi á Laugarvatni. Vorið
1935 fór hann að Gunnarsholti á
Rangárvöllum á jarðræktar- og
garðyrkjunámskeið, sem þar var
haldið að tilhlutan Kristjáns
Kárlssonar sem þá var ræktunar-
ráðunautur Búnaðarfélags Suður-
lands, en síðar skólastjóri á Hól-
um f Hjaltadal. Haustið 1935 fór
Finnur með Kristjáni Karlssyni
sem þá var skipaður skólastjóri
Hólaskóla að Hólum og var þar
næstu 2 árin og útskrifaðist þaðan
Sorsa nýtur
trausts
Helsinki, 1. marz.NTB.
FINNSKA stjórnin nýtúr áfram
trausts meirihluta finnska þings-
ins því að í dag var felld van-
trauststillaga, sem lögð var fram.
Greiddu 104 þingmenn með
trausti á stjórnina, 90 voru á móti
henni. Er þetta í tiunda sinn, að
greitt er atkvæði um traustsyfir-
lýsingu á ríkisstjórn Kalevi Sorsa.
Nú síðast var lögð fram van-
trauststillaga vegnastefnu stjórn-
arinnar í orkumálum.
búfræðingur 1937, en sökum þess
að hann var ráðinn tilDanmerkur
fyrst í maí það ár varð hann að
taka burtfararpróf að mestu á
undan öðrum nemendum, vegna
þess að samgöngur voru þá ekki
eins og nú gerist á milli þessara
landa.
í Danmörku lagði hann aðallega
stund á verklegt nám í garðrækt
og jarðrækt bæði á Sjálandi og
Jótlandi.
Vorið 1939 fór hann til Noregs í
þeim tilgangi að nema þar refa-
rækt sem þá var mikið í tísku, en
kom heim síðla sumars sama árs,
og lenti þá upp á Fljótsdalshérað
af tilviljun. Enþar dvaldi hann í 2
ár og var þar við ræktunarstörf i 3
sveitum og liggja þar eftir hann
sléttur á flestum bæjum í 2 sveit-
um, en seinna sumarið þar austur
frá var hann á Skriðuklaustri hjá
Gunnari Gunnarssyni skáldi og sá
þar um alla jarðrækt oggarðrækt.
1943 fór hann til Þórshafnar á
Langanesi til Margrétar systur
sinnar sem þar býr. En þar kynnt-
ist hann konu sinni Steinunni
Sigurðardóttur sem þá var ekkja
með 4 dætur í ómegð. Með henni
átti hann 2 börn, Guðnýju Maríu
sem var fædd á Þórshöfn, fóstra
að mennt og nú við framhaldsnám
í Noregi.
1945 að hausti til fluttust þau til
Akureyrar, þar eignuðust þau
dreng sem dó fárra daga gamall.
Þar tók Finnur strax til starfa við
sin fyrri ræktunarstörf, var sjálf-
stæður garðyrkjumaður fyrstu 2
árin þar, en síðar ráðunaut-
ur Akureyrarbæjar til 1955 er
hann lét af þvi starfi að eigin ósk,
og fluttist til Reykjavíkur um vor-
ið 1955.
Finnur var hjá Alaska gróðrar-
stöðinni verkstjóri fyrsta árið, en
síðan hefur hann verið sjálfstæð-
ur atvinnurekandi við skrúðgarð
yrkju, þar til 15 janúar á síðasta
ári, er hann réðst til Byggingar-
deildar Reykjavíkur til verk-
stjórnar og umsjónar á lóðum
allra barnaheimila í borginni,
leigulóðum og hluta af þeim ný-
byggingum sem byggingadeild
hefur með að gera.
Árni Isaksson var mikill kjarn-
orku karl, með afbrigðum dugleg-
ur og eftir því sem Ármann Hall-
dórsson kennari á Eiðum hefur
sagt mér þá er Finnur líkastur
föður sínum, að dugnaði, áhuga
og atorku. Talsvert hefur það háð
Finni hvað hann hefur oft þjáðst
af liðagigt.
Hjónaband þeirra Finns og
Steinunnar hefur verið mjög far-
sælt I alla staði. Hún hefur reynst
honum traustur förunautur í hví-
vetna. Allt frá fyrstu kynnum
minum við þau hjón hafa þau
reynst mér sannir vinir. Að end-
ingu óska ég frænda mínum til
hamingju með þennan áfanga i
lifinu og óska honum allra heilla
með framtiðina. Og Steinunni
óska ég til hamingju með bónd-
ann.
Davíð Ó. Grfmsson.
Lögmannsstofa
mín er flutt frá Bankastræti 1 1, að Garðastræti 38.
Hafsteinn Hafsteinsson, hdl.,
Garðastræti 38,
símar 25325 og 25425.
fP AÖstoðarlæknlr
Staða aðstoðarlæknis við Svæfingadeild Borgarspítalans
er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. maí n.k. eða eftir samkomulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykjavík-
ur. Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir deildarinnar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavíkurborgar fyrir 1.
apríl, n.k.
Reykjavík, 4. marz 1974.
HeilbrigðismálaráS Reykjavíkurborgar.
hoie
rúmfötin
Straufrítt
Barna-Krepp, sérstaklega
fyrir yngsta fólkið
Ef þig vantar björg í bú,
við bjóðum nóg af vörum þeim.
Okkar helsta ósk er sú.
Ánægður þú farir heim.
Hafþórsbúð, Langholtsvegi 49.
Símar 34976—32353.
Takið eftir
Vorum að taka upp nýjar gerðir af skuggasýningarvélum
á rrijög hagstæðu verði. Einnig eigum við mikið úrval af
fallegum gleraugnaumgjörðum. Komið og skoðið.
Týli, Austurstræti 7.
DATSUN160J
Frábær, endurbættur
úrvals bíll
sun 1 600 var í áraraðir einn af fremstu bílum
aldarí aksturshæfni. . . , . !M
er hann endurbættur og ennþa meiri urvals bill.
getið valið hardtop SSS með
5 DIN-ha. vél og sjálfstæðri fjöðrun a ollum h|olum,
i 4ra dyra sedan með 100 DIN-ha vel.
3ir með tvöfalt bremsukerfi og upphitaða afturruðu.
J ,■___1 7 nm hæð fra veg
Sölumannadeild V.R.
Kvöldverðar-
fundur
Fundur verður haldinn í Leifsbúð Hótel Loftleiðum,
fimmtudaginn 7. marz n.k. kl. 7.30 e.h. Fundarefni:
Samningarnir og ný viðhorf. Sölumenn áríðandi að allir
mæti.
Stjórn
Sölumannadeildar V.R.
OfnburrkaÓ
TEAK
- nýkomiÓ -
Pantanir óskast sóttar
SÖGIN H.F.
Höfáatún 2
Sími 22184