Morgunblaðið - 06.03.1974, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1974 13
1
Skóla-
fólk
hjá
Morguri'
blaÖinu
I
Glóa ræðir við Helga Daníelsson.
Afbrotaunglingar og félags
skapur heima og heiman
EYGLÓ Pétursdóttir, 16
ára nemandi úr 4.—X í
Hagaskóla var hjá okkur
á Morgunblaðinu í eina
viku í starfskynningu.
Hún valdi sér það verk-
efni til að ræða við rann-
sóknarlögregluna um af-
brotamál unglinga í
Reykjavík og fer grein
Glóu, eins og Eygló er
kölluð í daglegu tali, hér
á eftir:
Ég lagði leið mína upp í
Borgartún og lagði nokkrar
spurningar fyrir Helga Daníels-
son hjá rannsóknarlögreglunni.
Erindið var að fræðast svolítið
um afbrotamál unglinga.
Eftir að við höfðum talað dá-
lítið saman um daginn og veg-
inn, smellti ég á hann fyrstu
spurningunni.
„Hafa afbrot unglinga aukizt
mikið síðustu ár?“
„Það er nú erfitt að segja
nokkuð ákveðið um þetta efni,
því að yfirþað hefur ekki verið
haldin nein ítarleg skýrsla. Ég
er hér t.d. með skýrslu frá ár-
inu 1970, og þá voru upplýst
445 afbrot, piltar frömdu 415,
en stúlkur 30. Og aldurinn var
frá 5 ára og upp úr.“
„Hvaða aldursflokkur er
verstur?"
„Það er aldurinn 12—14 ára.“
„Hvað telur þú, að hægt sé að
stöðva marga eftir fyrsta af-
brot?“
„Éfe get nú ekki svarað því,
en því, en þó hugsa ég, að það
sé nokkur hluti. Margir leiðast
út i þetta af félagsskapnum, og
það fer mikið eftir honum,
hvort krakkarnir gera aðra til-
raun. En ég get sagt þér, að það
heyrir til undantekninga, að
það sé bara einn aðili, sem
brýzt inn, eða gerir eitthvað
álíka af sér. Oftast eru þeir
tveir tilþrír saman og allt upp í
fimm.“
Afbrotaungl-
ingahópurinn
gæti fyllt
stóran gagn-
fræðaskóla
„Hverju er Helzt stolið?“
„Það er afskaplega fjölbreyti-
legt. Helzt sækjast þau eftir
peningum, en einnig talsvert
sígarettum og sælgæti. Oft stela
þau bara einhverju, sem þau
virðast ekki hafa neitt með að
gera.“
„Hvað er drykkjuskapur stór
þáttur í þessu vandamáli?"
„Það er mjög sjaldgæft, að
krakkarnir séu drukknir, þegar
þau fremja afbrotin, því er þá
helzt til að dreifa hjá 18—20
ára gömlu fólki.“
„Hvaða aldursflokkar fara á
upptökuheimilið í Kópavogi, ef
svo ber undir?“
,-,Fólk á aldrinum 11—15 ára,
að ég held, en annars hef ég
ekkert með það að gera. Slíkt
f.er í gegnum Félagsmálastofn-
un.“
„Á hvern hátt er þessum
krökkum refsað?"
„Unglingar undir 16 ára aldri
eru ekki sakhæf, en oft éru þeir
settir á upptökuheimilið. Ég tel
þó ekki, að upptökuheimilið sé
neinn refsistaður."
„Eru heimi lisástæður þess-
ara unglinga frekar slæmar en
góðar?“
„Já, ég tel, að i allflestum
tilvikum sé um slæmar heim-
ilisástæður að ræða.“
„En segðu mér, er mikið um
áfengisþjófnaði?"
„Ég held, að það unga fólk,
sem stelur áfengi, hnupli mestu
heima hjá sér.“
„Að lokum. Er alltaf nóg að
gera?“
„Já, það er nóg að starfa þvi
miður, og aldrei neitt lát á því.“
Þar með kvaddi ég og fór, en
þessar upplýsingar, sem ég
fékk, sýna, að víða virðist pott-
ur brotinn í þessum málum.
Hugsum okkur til dæmis, að
þeir 430 afbortaunglingar, sem
hafa komizt á skrá, væru settir í
einn skóla. Sá skóli væri stór á
mælikvarða íslenzkra skóla. 430
manna gagn'ræðaskóli er stór
og fjölmennur skóli.
Þá má spyrja. „Er eðlilegt, að
ungt fólk á skólaaldri geti haft
möguleika á að ná áfengi heima
hjá sér?“
Sýnishorn af þvf, hvernig Htur út á ínnbrotsstað.
hoie "
soft krepp rúmfötin
Eru úr 35% polyester
og 65% bómull.
Þola þvott allt að 95° C.
Félagslíf
Helgafell 5974367 —
IV/V. — Kosn. S.T.Ó.L.M. —
2
I.O.O.F. 9 = 155368V2
I.O.O.F. 8 = 155368= 8'/20
RMR—6—3—20—SAR—
MT—HT
I.O.O.F. 7 = 1 55368V2 =
Kristniboðssambandið
Almenn samkoma verður í
Kristniboðshúsinu Betanía,
Laufásveg 13, í kvöld kl. 8 30.
Gunnar Sigurjónsson talar.
Fórnarsamkoma. Allir velkomnir.
Hörgshllð 1 2
Almenn samkoma — boðun
fagnaðarerindis í kvöld, miðviku-
dag kl. 8
Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði
Félagsvistin I kvöld miðvikudag
6. marz.
Verið velkomin.
Fjölmennið.
Filadelfla
Systrafélag Fíladelfíu heldur
félagsfund í kvöld kl. 20.30.
Mætið vel og stundvlslega. Veit-
ingar. Aríðandi umræður.
Kvenfélag Árbæjarsóknar
Fundur verður haldinn miðviku-
daginn 6 marz kl. 20 30 í
Árbæjarskóla. Gestur fundarins
verður Heiðar Jónsson snyrtisér-
fræðingur. Konur fjölmennið
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Heimatrúboðið
Vakningarsamkoma að Óðins-
götu 6A í kvöld kl. 20.30
Allir velkomnir.
Barnaskemmtun Félags ein-
stæðra foreldra
verður endurtekin kl. 2. 9 marz i
Austurbæjarbíói. Forsala að-
göngumiða er á skrifstofunni I
Traðarkotssundi.
Filadelfla Reykjavík
Munið systrafundinn miðviku-
dag kl. 8 30. Mætið vel.
Stjórnin.
Stykkishólmskonur
Gleymum ekki að hittast í Glæsi-
bæ i kvöld.
Húsmaeðrafélag
Reykjavíkur
Spilað verður bingó í félagsheimit-
inu að Baldursgötu 9, miðvikudag-
inn 6. marz kl. 8. Húsmæður
fjölmennið.
Stjórnin.
Kvenstúdentar
Opið hús að Hallveigarstöðum
miðvikudaginn 6. marz kl. 3—6
Fjölmennið og takið með ykkur
gesti
Stjórnin.
Frá Sjálfsbjörg
Reykjavík
Spilum að Hátúni 12, miðvikudag-
inn 6. marz kl. 8.30. Fjölmennið
og takið með ykkur gesti
Nefndin.
Kvenfélag Langholtssóknar
Afmælisfundur Kvenfélags Lang-
holtssóknar verður haldinn þriðju-
daginn 5. marz n.k. kl. 8 30.
Fjölbreytt skemmtidagskrá.
Mætið vel og takið gesti með.
Stjórnin.
HépolÍTE
Stimplar - Slífar
og stimpilhringir
Austin, flestar gerðir
Chevrolet, 4,6,8 strokka
Dodgefrá '55—'70
Ford, 6—8 strokka
Cortina '60—-'70
Taunus, allar gerðir
Zephyr, 4—6 str.,
'56—'70
Transit V-4 '65—'70
Fiat, allar gerðir
Thames Trader, 4—6
strokka
Ford D800 '65
Ford K300 '65
Benz, flestar gerðir,
bensín og dísilhreyflar
Rover
Singer
Hillman
Skoda
Moskvitch
Perkins, 3—4 strokka
Vauxhall Viva og Victor
Bedford 300, 330, 456 cc
Volvo, flestar gerðir
bensín og dísilhreyflar
Þ.Jónsson & Co
Skeifan 17.
Símar: 84515—16.