Morgunblaðið - 06.03.1974, Page 31
MORG UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1974
31
Danir fengu skell og
Tékkar töpuðu líka
1. DEILD
Frá Ágústi I. Jónssyni,
blaðamanni Mbl.
í A-Berlín.
í dag hófust hér í A-Þýzkalandi
átta-liða úrslitin i heimsmeistara-
keppninni i handknattleik. Úrslit
fyrstu leikjanna komu ekki á
óvart, nema ef vera skyldi ieikur
Póllands og Tékkóslóvakfu, en
með þeim leik tókst Pólverjum að
sanna stórsigur þeirra yfir Svíum
á dögunum var engin tilviljun.
Tékkóslóvakía — Pólland
16:19 (6:11)
Þarna var um mjög harða viður-
eign að ræða. Barizt með kjafti og
klóm. Pólverjarnir náðu snemma
forystu í leiknum og léku fyrri
hálfleikinn mjög vel. Höfðu þeir
náð fimm marka forystu í hálf-
leik, og það var of mikið fyrir
Tékkana tilþess að þeirmegnuðu
að vinna upp bilið f seinni hálf-
leik, þrátt fyrir gífurlega baráttu
sina. Markhæsti Pólverjinn í
leiknum var Klemees sem skoraði
7 mörk og Antdzak sem skoraði 4,
en markhæstir Tékkanna voru
Skara með 6 mörk og Benes með 3
mörk.
Danmörk — Rúmenía
11:20 (1:9)
Danir fengu næsta háðulega út-
reið f þessum leik, m.a. af þvf að
þeir fengu nú ekki að halda knett-
inum, eins og í fyrri leikjum
sínum. Dæmdu dómararnir hik-
laust töf á Danina. Staðan varð
fljótlega 5:0 fyrir Rúmenana, og i
hálfleik var munurinn 8 mörk.
Verður það að teljast til tíðinda
að liði takist ekki að skora nema
eitt mark í 30 mínútur, eins og
gerðist í þessum leik. Ekki tók
betra við fyrir Danina i seinni
hálfleik. Staðan um hann miðjan
var 15:2 fyrir Rúmeníu, en þá
hættu heimsmeistararnir að
þjarma að andstæðingum sfnum
og tóku greinilega eins lítið á og
framast var hægt á lokakaflanum,
enda erfiðir leikir framundan.
Birelan með 5 mörk, Spökl með 4
og Dunesth með 4 voru mark-
hæstir í liði Rúmeníu, en mark-
hæstir í liði Danmerkur voru
Larsen með 3 mörk, Frandsen,
Nielsen <jg Stenskjær með 2.
A-Þýzkaland —
Ungverjaland
17:10 (10:4)
Upphafsmínútur þessa leiks
voru mjög jafnar og skemmti-
legar. Ungverjar höfðu um tíma
forystu 3:2, en þa tóku Þjóðverj-
arnir að leika vörn sína mjög
framarlega og trufla þannig sókn-
araðgerðir Ungverjanna með
þeim afleiðingum að allt fór úr
skorðum hjá þeim og Þjóð-
verjarnir náðu fljótlega öryggri
forystu, sem þeir fylgdu eftir.
Markhæstir hjá A-Þýzkalandi
voru Ganlchw með 5 mörk og
Böhme með 4 mörk, en hjá Ung-
verjunum var Vass markhæstur
með 4 mörk.
Framhald á bls. 18
Úlfarnir deildabikarmeistarar
Wolverhampton Wanderes varð
enskur deildabikarmeistari í ár.
Á laugardaginn sigraði liðið Man-
chester City í úrslitaleik, sem
fram fór á Wembley-leikvang-
inum í Lundúnum — auðvitað
fullskipuðum áhorfendum. Þessi
sigur Úlfanna gat ekki talizt rétt-
látur, miðað við gang leiksins og
tækifæri. City var betra liðið á
vellinum, en það eru mörkin, sem
gilda og þau skoruðu Úlfarnir tvö
gegn einu City-marki.
Leikurinn var annars nokkuð
jafn f fyrri hálfleik, en undir lok
hans tókst Ken Hibbitt að skora
fyrir Úlfana. í seinni hálfleiknum
skapaði City sér svo hvert
tækifærið af öðru, en skoraði
aðeins úr einu þeirra og var þar
Colin Bell, sá kunni leikmaður, að
verki. Fimm mínútum fyrir leiks-
lok áttu Úlfarnir svo skyndisókn,
c® áður en nokkur vissi hvaðan á
sig stóð veðrið lá knötturinn í
marki Manchester City, eftir skot
John Richards.
Það helzta sögulega, sem gerð-
ist i 1. deildar leikjunum um helg-
ina, var það, að tvö af botnlið-
unum unnu nú sína fyrstu úti-
sigra. Manchester United bar
sigurorð af Sheffield United og
varð það Lou Macari, sem markið
skoraði. Þarna kom loks að því, að
þeir United-menn væru verulega
heppnir, þar sem sheffield átti
miklu meira í leiknum, og press-
aði raunar stöðugt undir lokin. En
þeir Sheffield-menn rákust á
vegg, þar sem Alec Stepney mark-
vörður United var, en hann varði
frábærlega vel í leiknum, og liðið
getur sannarlega þakkað honum
fyrir bæði stigin í leiknum.
Birmingham vann svo sigur yfir
Coventry, en þar var annað uppi á
teningnum en i Ieik Manchester
United. Birmingham sýndi mjög
góðan leik og var óheppið að
knötturinn skyldi ekki hafna
nema einu sinni í marki
Coventry, en það var eftir skot
Bob Hattons.
Greinilegt er, að ensku knatt-
spyrnuleikirnir eru nú farnir að
mótast æ meira af þeirri baráttu,
sem er á botninum í deildinni, og
á þessu stigi málsins er tæpast
hægt að segja, að öruggt sé um
faM nema eins liðs, N orwich. Man-
chester United á vissulega enn
von, þótt staða liðsins sé veik.
Birmingham á einnig verulega
undir högg að sækja. Hins vegar
hefur West Ham, sem lengi vel
var við eða á botninum nú skotið
Úlfunum, Southampton og Chel-
sea aftur fyrir sig, auk neðstu
liðanna og fjarlægist stöðugt fall-
hættuna. Á laugardaginn átti
West Ham góðan ieik gegn
Chelsea og sigraði 3:0. Það var
Billy Bonds, sem skoraði „hat
trick“, þ.e. þrjú mörk í leiknum.
í baráttu toppliðanna gerðist
það helzt, að Liverpool vann eitt
stig í viðureigninni við Leeds-
risann. Munar nú ekki nema 6
stigum á liðunum og vinni Liver-
pool Leeds, er liðin mætast i
seinni umferðinni, myndi staðan
jafnast verulega. Leeds Utd. er
sem sagt engan veginn búið að
tryggja sér Englandsmeistaratitil-
inn, þrátt fyrir glæsilega frammi-
stöðu í vetur. Á laugardaginn
gerði Leeds jafntefli við Leicest-
er, 1:1, þar sem Alan Clarke og
Stewart Barrowlough skoruðu
mörkin. Liverpool sigraði hins
vegar Burnley eftir skemmtilega
viðureign í Liverpool. Bæði liðin
fengu góð marktækifæri, einkum
þó Burnley, en það var ekki fyrr
en á elleftu stundu, að eina mark
leiksins var skorað og var þar
John Toshack að verki.
Með sigri sinum 3:1 yfir
nágrannaliði sínu, Tottenham,
hefur Queens Park Rangers, „öld-
ungaliðið" í ensku knattspyrn-
unni í ár, náð fjórða sæti í deild-
inni. Er athyglisvert hversu vel
liðunum, sem komu upp úr ann-
arri deild í fyrra, Burnley og
Queens Park, hefur vegnað í vet-
ur, og virðist frammistaða þeirra
sýna og sanna, að sú umdeilda
ákvörðun að færa þrjú lið milli
deilda, hafi verið rétt.
Leeds United 32 9 7 0 31—21 10 5 1 24—9 50
Liverpool 31 15 1 0 26—9 3 7 5 21 — 14 44
Derby County 31 9 i S 1 30—14 3 5 7 10—17 35 í
Queens Park R. 31 7 ’ 8 1 27—15 4 5 6 22—26 35
Ipswich Town 31 8 : 5 2 i 31—17 5 4 6 19—28 35 ;
Leicester 31 8 1 5 ! i 25—12 3 7 5 15 — 19 34
Everton 31 9 6 í 19—8 3 3 9 16—25 33
Burnley 30 7 7 2 20—13 4 3 7 16—22 32
Newcastle 30 8 3 4 23—14 4 4 7 17 — 19 31
Mancester City 29 8 3 2 17—8 3 5 8 13 — 19 30
Sheffield United 31 5 6 4 22—15 5 4 7 16—22 30
Tottenham 31 7 2 6 20—21 3 8 5 15—21 30
StokeCity 30 7 5 2 26—13 1 8 7 13—20 29
Arsenal 32 7 5 5 18—15 3 4 8 16—26 28
Coventry 33 9 3 5 20—14 2 4 10 13—29 29
WestHam Utd. 32 5 5 6 25—25 4 5 7 16—23 28
Wolverhamton 31 7 4 3 17 — 13 2 6 9 18—28 28
Southampton 31 7 6 2 26—15 2 4 10 11—34 28
Chelsea 31 7 3 5 30—22 2 6 8 15—24 27
Birmingham 30 6 5 4 20—18 1 4 10 13—31 23
Manchester Utd. 30 5 i 6 5 16—15 1 l 43 10 9—23 21
Norwich City 30 3 7 5 15—21 1 4 10 10—25 19
V Ó 2. DEILD
Middlesbrough 31 12 3 1 25—7 6 7 2 19—17 50
Luton Town 30 9 5 1 29 — 16 5 4 5 14 — 18 39
Orient 30 8 4 3 22—11 5 7 3 23—18 37
Blackpool 32 8 4 4 23—12 5 7 4 20—18 37
West Bromwich 31 8 6 2 22—13 5 5 5 18—17 37
Notthingham 30 9 3 2 28—12 2 9 5 13 — 16 34
Carlisle 30 8 5 2 29—14 5 3 7 15—21 34
HulICity 32 8 7 1 20—9 1 8 7 13—25 33
NottsCounty 32 6 4 6 25—28 6 4 6 22—20 32
Bolton Wand. 31 10 2 3 25—12 2 5 9 11—20 31
Sunderland 30 6 6 3 22—11 5 2 8 16 — 19 30
Fulham 29 8 3 3 17—9 3 5 7 10—17 30
Millwall 32 7 4 5 22—13 3 6 7 17—27 30
Bristol City 32 7 5 4 22—16 4 3 9 15—25 30
Portsmouth 30 7 6 3 20—13 3 3 8 13—34 29
Aston Villa 30 5 8 2 22—14 3 4 8 7—16 28
Cardiff 32 6 5 5 19—13 2 6 8 17—31 27
Preston North End 32 7 6 3 22—16 1 6 9 12—29 27
Oxford Utd. 32 6 5 5 22 — 18 1 5 10 11—27 24
Sheffield Wed 31 6 6 3 23—16 1 4 11 7—25 24
Crystal Palace 30 4 5 6 18—19 2 4 9 10—25 21
Swindon Town 33 e i 6 5 20 —22 0 2 14 9 —34 19
*% #% • % • % • %
V. t#' V-#1
Axel þriðji markhæsti
Axel Axelsson varð þriðji mark-
hæsti leikmaðurinn i 16 liða
keppni heimsmeistarakeppninnar
í handknattleik. I leikjum sínum
Getrauna- tafla nr. 28 •*o •H 03 i—1 rO C 5 o s •H 03 *H > •H 40 cö r—( rO 2 40 i—1 <lj Tírainn G C •H •Q i—1 •H > 40 nO ‘Q A -P CÖ •Q 03 <D S 40 3 CQ Sunday Mirror People• ? Sunday Express Nev/s of the World í Sunday Telepraph l A 1 LLS X 2
3urnley- Wrewham 1 1 1 i i 1 i i i i 11
Bristol - Liverpool 2 X X X 2 2 2 2 2 X 2 0 4 7
Newcastle-Notthingh. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 11 0 0
Q.P.R. - Leicester 1 1 X 1 1 1 X X X X 1 6 5 0
Coventry-Stoke 2 X 2 2 X X 2 X 2 2 1 1 4 6
Derby - West Ham 1 X X X X 1 1 X X 1 ] . 5 6 0
Everton - Birmingh. 1 1 X 2 2 1 1 1 1 1 1 8 1 2
Leeds - Man. City X 1 1 2 2 1 1 1 1 1 1 8 1 2
Norwich - Chelsea 1 X 1 1 1 2 X 2 1 X X 5 4 2
Wolves - Ipswicb X 1 X 1 1 X X X 1 2 1 5 q 1
Bolton - W.B.A. 2 1 2 2 1 X X V XV X X X 2 6 ■3
C. Palace- Sunderl. X 1 X 1 2 X X 2 1 2 A 3 C, 3
þrem, skoraði hann 18 mörk.
Annar markhæsti íslendingurinn
í keppninni var Björgvin Björg-
vinsson sem skoraði 10 mörk.
Markhæstu leikmenn 16-Iiða
keppninnar voru eftirtaldir:
Birtalan, Rúmeníu 23 (2)
Saton, Japan 20 (6)
Axel Axelsson, ísl. 18 (5)
Jary, Tékkóslóvak. 16 (0)
Kaehsert, A-Þýzkal. 16 (7)
Georgia.Búlgariu 15 (1)
Lagenmascher, A-Þýzkal. 15 (0)
Talan i sviganum segir hversu
mörg mörk viðkomandi skoraði úr
vítaköstum.
Þjóðverjarnir hafa gaman af að
leika sér með tölur og eru iðnir
við að dreifa ýmsum upplýsingum
um leiki liðanna til fréttamanna.
í lista yfir „fair play“ kemur t.d. í
ljós að fslenzkum leikmönnum er
samtals vikið af velli i 14 mínút-
ur, eftir 11 áminningar. Liðið fær
dæmt á sig átta vítaköst og að
þessu samanlögðu reikna Þjóð-
verjarnir það út að íslenzka liðið
fái 41 punkt i „fair play“. Gest-
gjafarnir, A-Þýzkaland, eiga prúð-
asta iiðið, fá 20 punkta, en Pól-
verjar eru með grófasta liðið, fá
73 punkta.
1 leikjum sinum reyndu Is-
lendingarnir 106 markskot. 48
þessara skota urðu mark, 47
sinnum varði markvörður and-
stæðinganna, 5 sinnum var skotið
i stöng og 6 sinnum framhjá. Allt
í allt vörðu íslenzku markverð-
irnir 27 skot. 4 i leiknum við
Tékka, 14 í leiknum við V*Þjóð-
verja og 13 f leiknum við Dani.
Sem kunnugt er var það Ölafur
Benediktsson, sem lengst af var í
marki hjá íslenzka liðinu.