Morgunblaðið - 06.03.1974, Síða 32

Morgunblaðið - 06.03.1974, Síða 32
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1974 ÞEIR RtlKR umsKiPim sEm RUCLVSR í ifloröu.nWírtiittu RUGLVSinCOR „Ilélduin að allt væri að fara” — segir bóndinn í Stóru-Avík á Ströndum, þar sem fjós og hlaða fuku í óveðri FRÁ æfingu dansflokks New York City Ballet í Þjóðleikhúsinu í gær; Helgi Tómasson er dansari f daasflokknum — sjá bls. 3. (Ljósm. IVIbl. Ól. K. Mag.) OFSAVEÐUR var á Ströndum á mánudag og aðfararnótt þriðju- dags og olli það miklum skemmd- um og tjóni á bænum Stóru-Avík í Arneshreppi. Brotnuðu fjós og fjóshlaða niður og allar járnplöt- ur og hluti af klæðningu fuku og öðrum megin af þakinu á íbúðar- húsinu. I fjósinu voru ein kýr og ársgömul kvfga. Bjargaðist kýrin, en kvígan hvarf og hefur ekki fundizt þrátt fyrir leit. Er helzt talið, að hún hafi hrakizt undan veðrinu f sjóinn, en bærinn stendur um 400 metra frá sjó. Kleifarvatnsmál- ið í „athugun” MORGUNBLAÐH) sneri sér i gær til utanríkisráðuneytisins til að leita upplýsinga um rannsókn Kleifarvatnsmálsins svonefnda, þ.e. hvaðan fjarskiptatækin, sem fundust í Kleifarvatni, voru, en málið var á sfnum tíma sent úr dómsmálaráðuneytinu til utan- ríkisráðuneytisins. Pétur Thor- steinsson ráðuneytisstjóri utan- ríkisráðuneytisins sagði, er Mbl. spurðí hann um málið, að það væri „í athugun — að vissu Ieyti“, en ekkert nýtt væri að frétta af því. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Þátttakan 20% meiri en Borgarstjóri fékk 91,8% síðast — atkvæða GÓÐ þátttaka var f prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um skipan framboðslista fyrir borgar- stjórnarkosningarnar í Reykjavfk í vor. Alls greiddu um 8470 manns atkvæði og er það um 20% aukning frá prófkjörinu fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1970. A sama tíma hefur hins vegar orðið 11% aukning á kjör- skrá í Reykjavfk. Þessi mikla þátt- taka hefur í för með sér, að próf- kjörið er bindandi fyrir kjör- nefnd og jafnframt fengu fimm frambjóðendur rúmlega 50% atkvæða, þannig að skipan þeirra á framboðslistanum er einnig bindandi fyrir kjörnefnd. Þessir fimm frambjóðendur eru: Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri, sem fékk 7776 at- kvæði eða91,8% arkvæða; Albert Guðmundsson sem fékk 6580 at- kvæði eða 77,7%; Ólafur B. Thors 6509 atkvæði eða 76,8%; Markús Örn Antonsson sem fékk 4771 at- kvæði eða 56,3% og Elín Pálma- dóttir sem fékk 4420 atkvæði eða 52,2% greiddra atkvæða. Að öðru leyti var röð frambjóð- enda þessi samkvæmt próf- kiörinu: atkvæði 6) Mflgnús L Sveinsson 3587 7> Ragnar Júlíusson 3491 8 ' Ulfar Þórðarson 3481 9) PállGíslason 3Í267 10) DavíðOddsson 2811 11) Valgarð Briem 2800 12) Margrét Einarsd. 2618 13 Sveinn Björnss., kaupm. 1956 14) Sveinn Björnss., verkfr. 1670 15) Hilmar Guðlaugsson 1604 16) Sigríður Ásgeirsd. 1380 17) Bessí Jóhannesdóttir 1288 18) Ragnar Fjalar Lárusson 1281 19) Pétur Sveinbjarnarson 1216 20) Ólafur Jónsson, málaram. 1028 21) Aðalsteinn Norberg 991 22) Loftur Júlíusson 951 23) Jóhannes Proppé 935 Frambjóðendur til prófkjörsins voru alls um 50 talsins. Samkvæmt reglum um prófkjör Sjálfstæðisflokksins er kjörið því aðeins bindandi fyrir kjörnefnd að !4 af kjósendum flokksins i síðustu borgarstjórnarkosningum taki þátt í þvi. Þetta mark náðist með tölunni 6967. Eftir að próf- Langir samn- ingafundir SÁTTASEMJARI ríkisins, Torfi Hjartarson, hefur boðað samn- inganefndir sjómanna og út- gerðarmahna til fundar í kvöld kl. 21. Langir fundir hafa verið með þessum aðilum undanfarna daga. Þannig var fundur frá kl. 14 á laugardag til kl. 05 á sunnudags- morgun, síðan annar frá kl. 14 á sunnudag til kl. 01 aðfararnótt námudags ogþriðji fundurinn var síðan frá kl. 21 á mánudag til kl. 02;30 í fyrrinótt. kjörið er orðið bindandi fyrir kjörnefnd þarf því hver fram- bjóðandi að ná um 50% greiddra atkvæða til að skipan viðkomandi á framboðslistanum sé bindandi fyrir kjörnefndina. Prófkjörið stóð yfir í þrjá daga — laugardag, sunnudag og mánu- dag. Fjöldi manns sýndi prófkjör- inu áhuga með sjálfboðaliðsstarf i í því. Rétt er að geta þess, að af Framhald á bls. 18 Á bænum búa hjónin Guð- mundur Jónsson og Hulda Kjörenberg og eigaþau hálfs árs gamla dóttur. Einnig var á bæn- um hjá þeim gamallmaður. Morg- unblaðið átti samtal við Guðmund í gær í síma og spurði hann um óveðrið og skemmdirnar. . „Þetta var sunnan ofsaveður, sem stóð allan mánudaginn og næstu nótt. Verst var það um mið- nættið og þá héldum við hrein- lega að allt væri að fara. Við gát- um ekkert að gert, þegar fjósið og fjóshlaðan fóru. Svo gaf einn stofuglugginn sig líka, en við gát- um neglt fyrir hann,“ sagði Guð- mundur. Fjósið og fjóshlaðan voru áföst við íbúðarhúsið, sem er tveggja hæða steinhús. Er nú bara eftir spýtnabrak úr húsunum. Ekki var mikið hey i hlöðunni; mest af heyinu var í hlöðu við fjárhúsið, sem er skammt frá bænum. „Það mátti ekki tæpara standa að fjárhúsið og hlaðan færu ekki líka,“ sagði Guðmundur. „Það bjargaðist þó, því að vindurinn reif upp hlera á báðum göflunum á fjárhúsinu og lék því alveg i gegnum húsið.“ Rafmagnslaust var á bænum Framhald á bls. 18 Engin loðnuveiði LOÐNUVEIÐI hefur verið Htil sem engin undanfarna sólarhringa vegna slæms veðurs á miðunum. I gær tilkynnti aðeins einn bátur um afla, Faxi GK var með 50 lestir, sem hann fékk á Breiðafirðinum. Þar var sáralítil loðna og bátarnir fengu litið f gærkvöldi þótt veður væri ágætt orðið. A miðunum fyrir austan var veður enn slæmt og ekkert vitað um hvort þar væri að finna loðnu, litla eða mikla. FRA fundi samninganefnda sjómanna og útgerðarmanna. Torfi Hjartarson er lengst til vinstri á myndinni, síðan kemur samninganefnd sjómanna og þá samninganefnd útgerðarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.