Morgunblaðið - 07.03.1974, Side 3

Morgunblaðið - 07.03.1974, Side 3
Gerður gerir mosaik- mynd í þýzkan banka Gerður Helgadóttir mynd- höggvari vann í haust stóra mosaikmynd á vegg í þýzkum banka og skilaði teikningum í október. Þessa mynd er verið að vinna á vinnustofu Oidt- mans í Linnich, á sama stað og mynd Gerðar á Tollhúsið í Reykjavík, og á hún að vera komin á sinn stað áður en þessi nýi banki verður opnaður í apríl. Oitdmanbræður hafa sent hingað myndir af verkinu í MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974 3 m' ’’ 'S|§J l vinnslu, sem birtast hérmeð. Einn af þeim mosaikgerðar- mönnum, sem komu hingað í sumar til að setja upp Toll- stöðvarmyndina, Kuster, er einnig að vinna við þetta verk og er það Ijóshærði maðurinn á myndinni. Stærð myndarinnar má marka af því, að sá hluti, sem verið er að vinna í vinnu- stofu Oidtmans og sést á myndinni, er lengst til hægri á teikningunni af verkinu öllu, sem við birtum einnig. En í því er mikið af misskýrum hring- formum. Myndin er um 8 m á lengd og á að prýða aðalvegginn í nýju bankahúsi Kreissspare- kasse-bankans í Linnich. Hún er í bláum litum og táknar, eins og vera ber í banka, fljótandi gengi og hreyfingu gjaldmið- ilsins. Steinunn S. Briem látin Hinn 26. febrúar siðastl. lézt að heimili sínu i Kaupmannahöfn frú Steinunn S. Briem, aðeins 41 árs að aldri. Hún hafði verið bú- settí Kaupmannahöfn umtveggja ára skeið. Steinunn hafði átt við vanheilsu að striða að undan- förnu og var nýkomin af sjúkra- húsi, er hún veiktist skyndilega aftur. Foreldrar Steinunnar eru hjón- in Sigríður Skúladóttir Briem og Eggert P. Briem, fyrrum fulltrúi hjá Eimskipafélagi íslands. Stein- unn lagði stund á' tónlistarnám hér heima og síðan í London og Róm, og var hún við nám ytra í sjö ár. Hér í Reykjavík fékkst hún við píanókennslu í nokkur ár, eftir að hún kom heim. Hún gerðist blaða- maður árið 1963 og starfaði hjá Vísi, Fálkanum og Alþýðublað- inu. 1966—‘68 komu út i tveimur bindum samtöl hennar sem blaða- manns. Hún fékkst töluvert við þýðingar, einkum á bókum um dulfræðileg efni. Einnig þýddi Steinunn nokkrar barnabækur, og árið 1973 hlaut hún verðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar fyrir þýðingar sinar á bókum eftir sænsku skáldkonuna Tove Jans- son. STALU PÓSTI OG VÍNI RANNSÓKNARLÖGREGLAN i Reykjavík hefur upplýst þjófnað á póstpoka, áfengi og tóbaki á Reykjavikurflugvelli. Tveir pilt- ar, sem oft hafa komið við sögu hjá lögreglunni vegna afbrota, hafa viðúrkennt að hafa tekið póstpoka í afgreiðslubyggingu Flugfélags íslands, rist á hann gat og rifið upp umslög í leit að pen- ingum. Ekkert höfðu þeir upp úr krafsinu. Þeir hentu síðan pok- anum með póstinum í og fannst hann aftur við leit á þriðjudags- kvöldið. Þá fundust i fórum pilt- anna fjórar danskar vinflöskur og danskar tóbaksvörur. Játuðu þeir að hafa stolið þessu úr danskri flugvél, sem stóð á Reykjavikur- flugvelli í fjóra daga. Hins vegar harðneita þeir að hafa stolið meiru úr vélinni, en Danirnir, sem voru með vélina, segja, að 22 flöskum áfengis og talsverðu af tóbaki hafi verið stolið úr henni. ÁFRAM ÍSLAND! Loksins er hún komin hin margumtaiaða hljðmpiata með ísienzka H.M.-líðinu í handbolta og hinum vlnsæla Ómari Ragnarssyni. Hljðmar sjá um undirleik. Fláröfiunardelld H.S.Í.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.