Morgunblaðið - 07.03.1974, Side 4
4
® 22*0*22-
RAUOARÁRSTÍG 31
V______________✓
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
LOFTLEIÐIR
Itel. 14444 * 25555
mm/o/fí
IBlLAlEIGA CAFWjENTAU
/p BÍLALEIGAN
^EYSIR
CAR RENTAL
«24460
í HVERJUM BÍL
PIO NEEH
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
HÓPFERÐABÍLAR
Til leigu í lengri og
skemmri ferðir 8 — 50 far-
þega bílar.
Kjartan Ingimarsson
Simi 86155 og 32716
Afgreiðsla B.S.Í
Sími 22300
FERÐABÍLAR HF.
Bílaleiga.— Sími81260
Fimm manna Citroen G
S. station. Fimm manna
Citroen G.S. 8 — 22
manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m. bílstjór-
um)._________
SKODA EYÐIR MINNA.
Shooh
UIGM
AUÐBREKKU 44-46.
SIMI 42600.
HVER ER
SINNAR
ÆFU SMIÐUR
0
SAMVINNUBANKINN
MORGUNBLAÐIÐ,FIMMTUDAGUR 7-. MARZ 1974
| STAKSTEINAR
Hænan sagði:
ekki ég
t dagblaðinu Þjóðviljanum
er f gær skrifaður leiðari um
verðbólguna. Ræðst blaðið af
hörku á þann ógnvald þjóðlffs-
ins, sem birzt hafi enn ægilegri
en fyrr, strax að loknum kjara-
samningunum sem gerðir voru
fyrir nokkrum dögum. Og við
hvern skyldi þjóðviljinn sakast
yfir verðbólgunni? Rfkisstjórn-
ina, eins og allir landsmenn
gera? Nei. I Þjóðviljanum er
bent á, að „sexmannanefndin"
sé hinn seki. Hingað til hefur
Þjóðviljinn einkum boðað þá
kenningu, að viðreisnarstjórn-
in hafi borið ábyrgð á allri
verðbólgunni í tíð vinstri
stjórnarinnar.Nú loks er þeirri
kenningu varpað fyrir róða, og
er að vissu leyti eftirsjá að svo
frumlegri hugmyndafræði. En
nú hefur I*jóðviljinn fundið
nýjan aðila til að skella skuld-
inni á. „Sexmannanefndin“,
sem er nokkurs konar reiknis-
stokkur í kerfinu, á að bera
höfuðsökina á þessum þætti
óðaverðbólgunnar. Halldór E.
Sigurðsson hefur ekki verið
síðri við að koma verðbólgunni
yfir á aðra, f öllum skilningi,
en kommúnistar og málgagn
þeirra. í þvf sambandi minna
þeir Ragnar Arnalds og HalF
dór E. á þann kafla barnasög-
unnar, þar sem segir: hænan
sagði ekki ég, svfnið sagði ekki
ég-
Eitthvað
verður að efna!
1 fyrradag tóku piltarnir á
Þjóðviljanum sig soldið saman
og skrifuðu forystugrein um,
að „ríkisstjórnin" yrði að efna
fyrirheit sín!! Þetta er svo
sannarlega nýstárleg hugmynd
hjá þeim Þjóðviljamönnum, og
svo sannarlega ekki of fljótt
fram komin. I Alþýðublaðinu í
gær eru rifjuð upp nokkur lof-
orð, sem Alþýðubandalaginu og
ríkisstjórninni hefði gefizt tóm
til að uppfylla, ef þeir á Þjóð-
viljanum hefðu fengið fyrr
þessa hugmynd um að rétt sé að
standa við gefin fyrirheit:
,4 málefnasamningi ríkis-
stjórnar Ölafs Jóhannessonar
var því lofað, að ríkisstjórnin
myndi leitast við að tryggja, að
verðbólga á Islandi yrði ekki
meiri, en í helstu nágranna- og
viðskiptalöndum okkar. Hvern-
ig hefur rfkisstjórnin efnt
þetta loforð? Einn fyrrverandi
stjórnarstuðningsmaður, al-
þingismaðurinn Bjarni Guðna-
son, hefur lýst ástandinu þann-
ig, að vegna óstjórnar ríkis-
stjórnarinnar á efnahagsmál-
um væri verðbólgan hérlendis
meiri, en dæmi eru til um síðan
á stríðsárunum. Þannig efndi
ríkisstjórnin það loforð.
1 annan stað lofaði rfkis-
stjórnin því, að vfsitalan yrði
„leiðrétt" þannig, að verðhækk-
un á áfengi og tóbaki yrði tekin
með í útreikningi kaup-
greiðsluvfsitölu. Nú hefur hún
sjálf beitt sér fyrir því, að slfk
verðhækkun er tekin út úr vísi-
tölunni og virkar því ekki til
kauphækkunar eins og hún ella
myndi gera. Þannig hélt hún
við stefnu sfna i þvf máli.
Þá lofaði ríkisstjórnin þvf, að
opinberum starfsmönnum
skyldi fenginn fullur samn-
ingsréttur. Efndir urðu svo
þær, að kjaradómur er reiddur
eins og svipa yfir opinberum
starfsmönnum. Fyllri samn-
ingsrétt fengu þeir nú ekki.
Einnig lofaði rfkisstjórnin
því I málefnasamningi sinum
Magnús Gestsson:
Nokkrar línur til
Þórðar á Hvallátrum
Kæri Þórður.
Ég var að lesa svarbréf þitt í
Morgunblaðinu tilmín. Það var
naumast að blaðran sprakk.
Mikið væru nú mannlífið fá-
tæklegra, ef ekki væru tilmenn
á borð við þig og bóndann á
Konungsstöðum.
Þú leggur út af því, að ég hafi
ýmislegt sagt í bók minni um
sveitunga þína, sem betur hefði
mátt kyrrt liggja. Gerir þú þér
ekki Ijóst, að það tekur enginn
viti borinn maður mark á slétt-
felldum lofgerðarlanglokum,
svo sem algengast eru líkræður
og minningargreinar í blöðum?
Menn, þótt nýtir borgarar hafi
verið, eru jafnt gleymdir og
grafnir I sögunni, þrátt fyrir
slík skrif. Eitt tilsvar, eða frá-
sögn af einu tilviki, getur
stundum sagt meira um merki-
legan mann, en löng lofgerð
samansett af útþvældum lýs-
ingarorðum. Ráðríki, á viti
byggt, svo sem hjá þeim ágæta
manni, bóndanum gamla á
Hvallátrum, sem ég segi smá-
vegis frá, getur verið aðall
sumra manna.
Ég hef ekki ljóstrað upp einu
eða neinu misjöfnu um nokk-
urn af sveitungum þínum. Ef
ég hefði vikið að leynilegu
framhjáhaldi í kvennamálum,
framakeppni á kostnað ann-
arra, eða öðru slíku sem sumir
leggja út til lasts, þá væri ekki
nema eðlilegt að ég hefði fengið
olnbogaskot. Til að fyrirbyggja
misskilning vil ég geta þess, að
ég hef aldrei heyrt þig orðaðan
við framhjáhald.
Ef eitthvert hefur verið sagt
um einhvern á prenti, sem sum-
um þætti betur ósagt, þá er
ekki vert að ræða slikt opinber-
lega, því með því er aukin at-
hygli á málinu. Og þó að reynt
sé að bera til baka, þá eru alltaf
nógir til að trúa því sem verra
þykir.
Eg ætla ekki að fara að eltast
við sparðatining þinn úr bók
minni, og ekki heldur það sem
þú hefur misskilið, eða fært til
verri vegar. Eitt ártal hefur
misprentast, en skiptir litlu
máli.
En þegar þú meðgengur, að
hafa tekið þátt i því, vitandi
vits, að leika fyrirburð, þá þyk-
ir mér nú fyrst kasta tólftun-
um. Þarna hefðir þú nú betur
þagað um, Þórður minn, því
bæði viðurkennir þú að hafa
skrökvað að nágrönnum þínum,
og að hafa^gert gys að þeim
dularöflum, sem forfeður okk-
ar fluttu með sér til landsins og
við viðurkennum innra með
okkur enn þann dag í dag.
Þetta var annars vel leikið hjá
Haflidi Jónsson
Magnús Ketilsson, sýslumaður
Sennilega hafa fáir orðið til
að vekja menn til jafn verulegs
áhuga um nytsemi garðræktar
sem sýslumaður Dalamanna,
Magnús Ketilsson. Hann' var
aðeins 22 ára að aldri, er hon-
um var veitt sýslan og bendir
það ótvírætt til þess, að
snemma hafi þótt mikið í mann-
inn spunnið, þar sem honum
svo kornungum var veitt slíkt
virðingarstarf. Magnús var
fæddur á Húsavík við
Skjálfanda 1732 og var sonur
séra Ketils Jónssonar og
Guðrúnar Magnúsdóttur, sem
var systirSkúla landfógeta.
Magnús lauk námi frá Hóla-
skóla og sigldi síðan til frekara
náms við Hafnarháskóla og þar
lagðí hann stund á laganám, en
fékk veitingu fyrir Dalasýslu
1754 og hafði þá ekki þreytt
próf. Er talið, að Magnús hafi
búið í Kaupmannahöfn við afar
þröngan fjárhag og ekki talið
sér fært að halda áfram námi.
Magnús hóf búskap sinn við
mikla fátækt i Arnarbæli á
Fellsströnd, en fluttist síðar að
Meium á Skarðsströnd og
þaðan til Búðardals árið 1762
og bjó þar til æviloka 1803.
Gerðist hann brátt einn af
mikilhæfustu og ríkustu
höfðingjum landsins. Sýndi
hann á öllum sviðum sinnar
umsýslu mikinn dugnað og var
um sína daga einhver framfara-
sinnaðasti maður á landi hér.
Hann vann og lét vinna ein-
hverjar fyrstu jarðabætur, sem
sögur fara af í túnrækt og var
um allan búnað hagsýnn ogfor-
sjáll bóndi. Þó að afrek hans á
þei.n sviðum væru nægileg til
að halda nafni hans á loft hjá
seinnitíðar kynslóðum, er hans
nú fyrst og fremst minnzt fyrir
þau afrek, sem hann vann með
ritstörfum sínum og afskiptum
af bókaútgáfu. Hann kemur
manna mest við sögu prent-
verksins í Hrappsey og þar kom
út garðyrkjurit hans 1779, þar
sem hann segir frá „Nokkrum
tilraunum gerðum með sáð-
tegundir og plöntur“ en auk
þess, sem þar kemur fram, eru
víða glöggar heimildir að finna
um garðyrkju og skógræktartiF
raunir Magnúsar Ketilssonar.
Það er enginn vafi á, að
Magnús hefur verið vel fróður
lukkast, sem ei skal víkja fyrir
öðrum af þess kyns útbúnaði.
Fjós vor eru víðast rislítil og
þakin með torfi ofan á tróðið
eða raftana. Á mínu fjósi skar
ég burtu stykki úr þekjunni og
lagði smá hríslur ofan á raftana
og þar ofan á lét ég meðalgóða
kálgarðsmold og þar í hef ég
sáð svo snemma sem ég hef
viljað og hefur það lukkast í
bezta máta.Sá, sem vildi byggja
fjós sitt við hól jafn háan, eða
við syðri enda á fjósinu gera
torfstafninn vel þykkan, hann
gæti lagt þar ofaná vermibeð og
dregið hitann úr fjósinu þar
inn undir og með hægri fyrir-
höfn og litlum kostnaði gert sér
vermibeð."
Vert væri að geta um trjá-
ræktartilraunir Magnúsar
Ketilssonar, en hann fékk veru-
legt magn af trjáfræi frá Roms-
dal í Noregi 1776 fyrir milli-
göngu stjórnvalda, en trjárækt-
in veittist honum erfið. Tókst
honum þó að fá furu, ask og
baunatré til að vaxa sæmilega
með góðri aðhlynningu. Má því
með nokkrum sanni telja, að
Magnús Ketilsson hafi á flest-
um sviðum ræktunar verið
meðal frumherjanna.
að lækka vexti. Framkvæmdin
reyndist sú, að vextir voru stór-
lega hækkaðir.
Þá lofaði ríkisstjörnin því að
fella niður söluskatt á nauð-
synjavörum. Nú gerir hún senn
tilraun til þess að framkvæma
þriðju söluskattshækkunina á
valdatíma slnum og takist sú
tilraun, þá verður sölu-
skatturinn kominn upp I heil
18%.
Þá lofaði rfkisstjórnin því að
láta fara fram athugun á þá-
gildandi verðiagningu í því
skyni að lækka verðlag og
hindra verðlagshækkanir. Sú
athugun hefur aldrei verið
gerð, enda verðlagshækkanir
aldrei verið meiri, en f
stjórnartíð núverandi rfkis-
stjórnar.
Einnig lofaði rfkisstjórnin
því að fella ekki gengið. Það
loforð hefur hún svikið þrisvar.
Væntanlega hefur ritstjóri
Þjóðviljans orðið nokkurs
vfsari af þessari upptalningu.
Vilji hann vita meira, er sjálf-
sagt að halda henni áfram. En
mun fljótlega væri að telja upp
þau loforð, sem ríkisstjórnin á
ósvikin, en hin, sem hún hefur
svikið. Þá væri hægt að gera
málinu skil í einni setningu.
ykkur, ef satt er að svo hafi
verið, og fyrirburðarsagan er
bara góð. Þú segir að það sé
ekki fyrir 20. aldar fólk að trúa
því að gandreið sé farin með 60
km hraða á klukkustund. En
merkir dulfræðingar, erlendir,
halda þvi fram að andar geti
farið með þeim hraða að ekki sé
mælanlegur okkur mönnum, og
lítt þurfi þeir að hægja á sér, þó
þeir kippi með sér spottakorn
einum ódauðum.
Það er annars misskilningur,
að ég segi ekki frá öðrum fyrir-
burðum en þeim sem ég trúi að
hafi átt sér stað. Minar skoðan-
ir blandast ekki þarna saman
við. Ég segi hverja sögu eins og
hún hefur mótast í meðförum.
Jæja, Þórður, ég vona að við
getum látið hér staðar numið í
lítilsverðu spjalli. En mín er
virðingin, að komast i blöðin i
sambandi við svo þekkt nafn
sem þitt.
Með beztu kveðju.
Skrifað á þorraþræl 1974.
Magnús Gestsson.
um garðyrkju i Danmörku og
Noregi og að sjálfsögðu hefur
hann kunnað góð skil á þeim
tilraunum, er hér höfðu átt sér
stað um ræktun, og mjög lik-
legt, að persónulegur kunnings-
skapur hafi verið milli hans og
séra Björns í Sauðlauksdal.
Magnús hefur haft gott lag á að
hagnýta annarra reynslu og
reynt að sigrast á þeim erfið-
leikum, sem aðrir höfðu orðið
fyrir. Ekki verður annað séð en
Magnúsi hafi tekist með mikl-
um ágætum að rækta allar
helztu grænmetistegundir, og
öruggar heimildir eru fyrirþví,
að hann hvatti nágranna sína
til að rækta kartöflur og gulróf-
ur, og var óspar á að gefa þeim
útsæði af eigin uppskeFu. Hann
ráðleggur mönnum að rækta
fræplöntur og framleiða fræ til
eigin nota og telur það betra en
erlent fræ. Athyglisvert er-það,
að Magnús segist háfa sáð
útlenzku fræi að hausti og tel-
ur: „að það þoli frostið betur,
en það fræ, sem meiri varúð er
viðhöfð“. í riti sínu „Nokkrar
tilraunir — “ segir Magnús
sýslumaður frá sáðreit sínum á
þessa lund: „Ég hef sáð fræi i
kistu og hefur sæmilega