Morgunblaðið - 07.03.1974, Page 13

Morgunblaðið - 07.03.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974 13 CHANGE, f.v. Sigurður Kurlsson, Birgir Hrafnsson, Magnús Sigmundsson og Jóhann Helgason. Með þeim á myndinni er dóttir Magnúsar, Linda. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.) CHANGE — nýjung í skemmtanalífinu Hljómleikar í Háskólabíói ÞAÐ þótti nokkrum tiðindum sæta, þegar þeir Birgir Hrafns- son og Sigurður Karlsson gengu í lið með Suðurnesja- mönnunum Magnúsi og Jó- hanni hérna á dögunum og stofnuð var hljómsveitin Change. Magnús og Jóhann höfðu þá þegar slegið í gegn á hljómplötum og sem skemmti- kraftar, enda afburða liðtækir lagasmiðir og segja fróðir, að ekki vanti nema herzlumun á, að þeir hljóti almennar vin- sældir í Englandi. En hvað sem hæft er í þvi, geta víst flestir verið sammála um, að af ís- lenzkum popphljómlistarmönn- um hafiþeir Magnús og Jóhann komizt næst því að koma lagi inn á brezka vinsældalistann, og segir það töluvert um hæfni þeirra félaga. Birgir og Sigurð- ur hafa um langt skeið verið í hópi okkar beztu poppara og þess vegna eðlilegt, að menn byggjust við miklu, þegar hljómsveitin Change var stofn- uð. í upphafi varChange að þvi leyti ólík öðrum íslenzkum hljómsveitum, að til hennar var stofnað með það fyrir augum að leika eingöngu inn á hljómplöt- ur. Nú hefur hins vegar verið horfiðfrá þessari stefnu, því að þeir félagar hafa ákveðið að gefa gestum danshúsanna kost á að fylgjast með því, sem þeir eru að gera, en frumraunin er í Veitingahúsinu við Lækjarteig í kvöld. Með þessu er þó ekki nema hálf sagan sögð, því að Change verður enn sem fyrr ólik öðrum íslenzkum hljóm- sveitum. i fyrsta lagi verða þeir eingöngu með frumsamda tón- list á dansleikjum sinum og í öðru Iagi hafa þeir ekki í hyggju að halda uppi hljóð- færaslætti allt kvöldið eins og hingað til hefur þótt sjálfsagt meðal íslenzkra hljómlistar- manna, heldur munu þeir koma fram í einn til tvo klukkutíma í senn, en diskótek eða einhver smærri hljómsveit sér gestum fyrir tónlist á milli þess, sem þeir koma fram. Fyrirkomulag sem þetta er óþekkt fyrirbæri hér á landi, en erlendis er þetta mikið tíðkað af þekktum skemmtikröftum. Hér er sem sagt um athygliserða nýbreytni að ræða og verður fróðlegt að fylgjast með, hversu til tekst. Þess má að lokum geta, að í maí eru væntanlegar á markað- inn tvær litlar hljómplötur með Change, sem hljóðritaðar voru í Bretlandi i haust, og í júní munu þeir félagar halda utan til að vinna að gerð breiðskifu, sem væntanlega kemur á mark- að með haustinu. SLAGSÍÐAN hefur fregnað, að þriðjudaginn 19. marz n.l. verði efnt til hljómleika í Háskólabíói, þar sem fram munu koma hljóm- sveitirnar Brimkló, Change og Hljómar ásamt Jóhanni G. Jóhannssyni. Má segja, að timi hafi verið til kominn, því að langt er nú siðan innlendir popparar hafa leitt saman hesta sína á hljómleikum. Frumkvæðið á Edvard Sverrisson poppsérfræð- ingur Vikunnar, en hljómleikarn- ir verða haldnir i framhaldi af vinsældakosningum, sem Edvard efndi til í blaði sínu ekki allsfyrir löngu. Vikan sjálf kemúr þó hvergi nærri, heldur er hér um að ræða einstaklings framtak Edvards i samvinnu við liðsmenn áðurnefndra hljómsveita, en með- al þeirra er mikill áhugi fyrir þessum tónleikum. Auk hljóm- sveitanna og Jóhanns verða um 12 aðstoðarhljómlistarmenn, t.d. SEM kunnugt er hefur vandræða- ástand verið ríkjandi um alllangt skeiðí skemmtanalifi ungs fólks í höfuðborginni, þar sem skemmti- staðirnir eru alltof fáir. Þvi er hverri fregn um einhverjar úr- bætur tekið með fögnuði. mun Jóhann G. setja á laggirnar sérstaka hljómsveit fyrir þessa hljómleika og Hljómar munu njóta aðstoðar a.m.k. fimm hljóð- færaleikara. Eins og 'áður segir er mikill áhugi meðal hljómsveitar- manna sjálfra á framgangi þessa máls, en undirbúningur er nú þegar hafinn. I stuttu samtali við Slagsíðuna sagði Edvard, að mikil áherzla yrði lögð á góða skipu- lagningu þannig að skiptingar hljómsveita gangi snuðrulaust fyrir sig og tækjabúnaður þannig úr garði gerður, að hið hvimleiða væl qg suð, sem svo oft hefur fylgt innlendu hljómleikahaldi, verði útilokað. Allir sem hér eiga hlut að máli, eru ákveðnir í að gera þessa hljómleika að eftirminni- legum viðburði í íslenzku popplífi og fær Slagsíðan ekki betur séð en að þannig sé um hnútana búið, að allar líkur séu á, að það megi takast. SLAGSÍÐAN fregnaði, að til stæði að auka við húsnæði skemmtistaðarins, sem heitir Veitingahúsið Borgartún 32, en er í daglegu tali nefnt Klúbburinn. Magnús Leópoldsson fram- kvæmdastjóri kvað það rétt vera, að ætlunin væri að innrétta sal í kjallara hússins — en þó ekki alveg á næstunni. Nú væri verið að vinna að því að innrétta þar aðstöðu fyrir starfsfólk og síðar yrði innréttaður litill salur i kjall- aranum, sem tengdist öðrum söl- um hússins. Þá hafði SLAGSÍÐAN einnig fregnað eftir góðum heimildum, að til stæði að breyta veitingahús- inu Öðali í diskótek fyrir unga fólkið. Er Jón Hjaltason fram- kvæmdastjóri var spurður um þetta, svaraði hann neitandi — kvaðst raunar einnig hafa heyrt þessa sögu — en þetta væri vit- leysa. „SLAGSÍÐAN” MORGUNBLAÐIÐ PÓSTHÓLF 200 REYKJAVÍK Ein forvitin spyr: Um daginn komu nokkrar myndir af gömlum hljóm- sveitum og langar rmg að vita dálítiðmeira um Tempó. 1. Hvað voru þeir gamlir 1965? 2. Gáfu þeir út einhverjar plötur? 3. Ef svo er, þá hverjar? Þorgeir Ástvaldsson og Halldór Kristinsson urðu báðir á vegi SLAGSÍÐU- manna á dögunum og þeir sögðu: 1. Árið 1965 urðum við Tempó-strákar 15 og 16 ára, þ.e. Þorgeir, Halldór, Davið og Guðni urðu 15 ára, eru af árgerð 1950, en Páll varð 16 ára, er af árgerð 1949. 2 og 3: Tempó lék aldrei inn á plötu, en þó stóð það til 1965 og var undirbúningur kominn svo langt, að bæði lögin á plötuna voru tilbúin — annað var kennt við Þórs- mörk —, en herzlumuninn vantaði á að leiða málið til lykta. Við strákarnir fórum í skólann og platan var aldrei gerð. Kef lvfkingur spyr: Getur þú gefið mér heimilisfang Slade-klúbbs- ins? Hvað er hægt að fá þar? Svar: Utanáskrift bréfa til Slade-aðdáendaklúbbsins í Bretlandi er þessi: SLADE FAN CLUB P.P. BOX 4SF London WIA 4SF ENGLAND. Árgjaldið var í fyrra 45 pence eða um 90 ísl. krónur og að dómi brezka blaðsins Melody Maker er klúbbur- inn alveg viðunandi, miðað við það, hve lágt árgjaldið er. Fyrir þetta árgjald fá félagar ævisögu Slade — sem Slade ku hafa skrifað sjálfir! — myndir af þeim félögum og sérstaklega möppu fyrir þær og svo fráttabréf sex sinnum á ári. Klúbburinn hefur svo til sölu m.a. sjálflýsandi orðu, 7—8 sm stóra, væntanlega með Slade-mynd, á 30 pence, eða 60 kr., boli með Slade- myndum á eitt pund og 10 pence eða um 220 kr. og Slade-útvarpstæki á tæp fjögur pund, eða um átta hundruð kall. Og líklega stendur klúbburinn fyrir ýmiss konar samkeppni, þar sem ýmislegt dót frá liðs- mönnum Slade, svo sem hringar, peysur, skyrtur o.fl. er í verðlaun. Hannes Petersen spyr: Við erum hérna tvö, sem deilum um, hvort alltaf hafi þeir sömu spilað í Pink Floyd. Hafa Bee Gees ekki gefið út á plötu lagið, sem er á ,,A Nice Pair“ með Pink Floyd, plötu 1, hlið 1, lag2? Svör: Pink Floyd var stofnuð 1965 af Syd Barrett, Nick Maspn, Roger Waters og Richard Wright, en Syd hætti 1968 — með hádrama- tískum hætti, hálfsturlaðist á hljómleikum, braut alltog bramlaði og hljóp svo út — og í stað hans kom David Gilmour og hljómsveitin hefur verið óbreytt siðan. Lagið, sem við teljum þig eiga við, er „Lucifer Sam“ eftir Syd Barrett, en hvorki SLAGSÍÐU-menn sé Steinar Berg i hljómdeild Faco minnast þess, að Bee Gees hafi leikið það inn á plötu. En kannski muna aðrir bet- ur og láta okkur þá vita. 30. jan. sl. var haldin árshátíð Kvennaskólans i Reykjavik að Hótel Sögu. Sýndur var þjóðdans undir stjórn Esterar Hjartardóttur Ieik- fimikennara, kór skólans söng undir stjórn Jóns G. Þórarinssonar, sýndir voru 2 dansar, sem frú Ibensonne Bjarnason danskennari hafði æft, og sýnt var Ieikritið Mennt er máttur, sem þau hjónin Halldór Snorrason og Kristín M. Guðbjartsdóttir höfðu samið. Rofar til í dans- húsaleysinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.