Morgunblaðið - 07.03.1974, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974
15
Frakkland:
Fjölda kjarnorku-
vera komið upp
Parfs, 6. marz -NTB.
NÝJA franska ríkisstjórnin kom
saman til síns fyrsta fundar f dag
og samþykkti víStæka áætlun til
að mæta orkuvanda landsins.
Upplýsingamálaráðherrann Jean
Philippe Lecat lýsti því yfir að
fundinum loknum, að þessi áætl-
un myndi hafa mikil áhrif á allt
atvinnulíf f landinu. Heimildir
nærri stjórninni herma, að áætl-
unin geri ráð fyrir, að komið
verði á fót sex nýjum kjarnorku-
verum á þessu ári og öðrum sjö á
næsta ári, og síðan verði sex slfk
ver byggð á hverju ári frá og með
árinu 1979.
Þá ræddi ríkisstjórnin einnig
um að draga úr fjárveitingum ti!
hraðbrauta og takmörkun á notk-
un bifreiða i einkaeign með það
fyrir augum að auka notkun al-
menningsfarartækja, einkum á
Þessi fataslitur á greinum
trjánna tilhe.vrðu fórnar-
lömhum mesta flugslvss sög
unnar, er tyrkneska DC-10
f arþegaf lugvél in hrapaði
norður af París á sunnudag.
340 manns fórust með vél-
inni.
Parísarsvæðinu. Þá hefur stjórn-
in að sögn í hyggju að leggja fram
frumvarp til laga, sem banna
hærra hitastig en 20 gráður í
ibúðum á timanum október-apríl,
svo og verðhækkun á rafmagni.
Líbýa og
Svíþjóð í
samvinnu
Stokkhólmi 6. mars — NTB
FUNE Johansson, iðnaðarráð-
herra Sviþjóðar. sagði i dag, að
sænsk og libýsk stjórnvöld myndu
kanna möguleika á byggingu
hreinsunarstöðvar í Sviþjóð fyrir
oliu frá Líbýu. Hafa fulltrúar
sænsku ríkisstjórnarinnar rætt
þetta mál við forsætisráðherra
Líbýu Abdel-Salam Jalloud, en
hann hélt í dag heimleiðis aftir
þriggja daga heimsókn til
Sviþjóðar. Þá var einnig rætt um
tæknilega samvinnu landanna
tveggja áfleiri sviðum.
Hatursherferðin magnast í Sovét:
ENN FÆR EVTUSJENKO ÁKÚRUR —
KHAUSTOV DÆMDUR AFTUR í FANGELSI
Norðmenn
herða land-
helgisgæzlu
Osló 6. marz — NTB
NORSKA varnarmálaráðu-
neytið hefur hert land-
helgisgæzluna á fisk-
miðunum undan strönd
Norður-Noregs eftir að
brezkur togari eyðilagði
veiðarfæri norskra skipa
fyrir allt að 700.000 norsk-
ar krónur. Verður freigáta
send til Malangsgrunns til
viðbótar við þau gæzluskip
sem þar eru fyrir, að því er
Eivind Bolle, sjávarútvegs-
ráðherra sagði í stórþing-
inu í dag. Hafa norsk
stjórnvöld lofað að senda
allan þann liðsauka, sem
þarf tii að koma í veg fyrir,
að slík atvik endurtaki sig.
Það var Ottar Brox, þingmaður
Sosialistisk valgforbund, sem
vakti máls á þessu og krafðist
þess, að landhelgin yrði færð út.
Fleiri þingmenn tóku til máls og
lögðu áherzlu á, að slík atvik
mættu ekki koma fyrir aftur.
Fleiri
í hassinu
Osló, 6. mars — NTB
FJÖRTANDA hvert norskt
ungmenni á aldrinum 15 til
19 ára hefur einhvern tima
reynt að reykja hass eða
maríjúana. Þetta kemur
fram í niðurstöðum könnun-
ar, sem Áfengisvarnastofn-
unin í Noregi hefur gert um
allt landið, og birtar eru í
Arbeiderbladet í dag. Hefur
fjöldi þeirra, sem þetta
reyna, þá aukizt úr 5,8%
árið 1971 i 7.1% árið 1973.
Kaupmannahöfn, 6. marz,
frá fréttaritara Mbl.
Jörgen Ilarboe og NTB.
FYLGISTAP gömlu stjórnmála-
flokkanna, með eindæmum dræm
kjörsókn og svo hitt, að atkvæði
dreifðust á óvenju marga flokka,
einkenndu bæjar- og sveitar-
st jórnakosningarnar, sem fóru
fram í Danmörku í gær. Kjörsókn
var ta>plega 60% og hefur aldrei
verið svo lítil. Segja sérfræð-
ingar, að margt komi þar til, m.a.
að þingkosningar eru nýafstaðn-
ar, áhugaleysi, og þreyta hafi
verið einkennandi og ekki sfzt, að
mörgum almennum borgara þyki
sem stjórnmálamenn hirði lítt
um vilja kjósenda og fari eftir
eigin höfði.
Sósíaldemókratar töpuðu at-
kvæðum til kommúnista og SF,
en íhaldsmenn misstu fylgi til
hinna ýmsu borgaralegu klofn-
ingsflokka. Engu að síður hafa
flestir flokksforingjar lýst sig
harla sátta við úrslitin í kosn-
ingunum, sérstaklega ef miðað er
við þingkosningarnar á sl. ári.
Sósíaldemókratar juku f.vlgi
sitt um 7.5% miðað við þingkosn-
ingarnar sfðustu, en sé miðað við
siðustu bæjar- og sveitarstjórna-
kosningar árið 1970 er fylgistap
flokksins 9.7%. Radikale venstre
töpuðu fylgi, bæði samanborið við
síðustu þingkosningar svo og
bæja-og sveitarstjórnakosningar.
thaidsflokkurinn jók f.vlgið um
3,8% miðað við þingkosningarn-
ar, en missti 7,9% fylgi ef miðað
er við síðustu bæja- og sveitar-
Moskvu, 6. marz, AP.
OFSÓKNIR sovézkra yfirvalda á
hendur rithöfundum og mennta-
mönnum færast í aukana dag frá
degi, og hefur nú sovézka ljóð-
skáldið Evgeny Evtusjenko sætt
harðri gagnrýni á fundi sovézka
rithöfundasambandsins, að því er
blaðið Literaturaia Gaseta segir í
dag. Sagði 1 blaðinu, að Evtu-
sjenko hefði verið ráðlagt að
stjórnakosningar. Stjórnar-
flokkurinn Venstre jók fylgi sitt
um 7,2% miðað við úrslit þing-
kosninganna og hélt að mestu
stöðu sinni miðað við kosningarn-
ar 1970.
í fréttaskeyti NTB segir, að í
Kaupmannahöfn og nágrenni hafi
mátt merkja fylgisaukningu til
vinstri, en þar var kosningaþátt-
taka með eindæmum léleg, eða
aðeins 48,5%. Þar töpuðu sósíal-
demókratar ellefu mönnum, þeir
hafa haft 33 af 55 borgarfulltrú-
um, en fengu nú 22. Fylgistap
þeirra í höfuðborginni er 16.5%.
SF fékk 7 fulltrúa í borgarstjórn
Kaupmannahafnar, kommúnistar
einnig sjö, íhaldsflokkurinn 6,
Framfaraf lokkur Glistrups 3,
Radikale venstre 3 og vinstri
sósialistar 2. Nokkrir flokkar
fengu einn mann og þar á meðal
má geta þess, að kvennalistinn
fékk 1 fulltrúa og Réttarsam-
bandið 1, en þessir flokkar hafa
ekki fyrr átt fulltrúa í borgar-
stjórninni.
Framfaraflokkur Mogens
Glistrups fékk nú um 8,5%
atkvæða, og bæði hann og hinn
nýi flokkurinn, Miðdemókrata-
flokkur Erhards Jacobsens töp-
uðu fylgi.
Ýmsir flokksleiðtogar lýstu
áhyggjum sínum á hinni dræmu
kjörsókn, en hjá forystumönnum
gömlu flokkanna blönduðust þær
áhyggjur gleði yfir því að kosn-
ingarnar virtust hafa klekkt veru-
lega ánýju flokkunum.
halda sig á mottunni f framtfð-
inni, en hann hefur sem kunnugt
er gagnrýnt brottvísun Alex-
anders Solzhenitsyns úr landi.
Ýmsir rithöfundar, sem tóku til
máls á fundinum, fóru mjög
háðuglegum orðum um Evtu-
sjenko og sögðu hann hafa hegðað
sér barnalega og tími væri til
kominn, að hann færi að hegða
sér eins og sæmdi fullorðnum
manni.
Þá dæmdi sovézkur dómstóll í
dag Viktor Khaustov í fjögurra
ára fangelsi fyrir ,,andsovézka“
starfsemi og siðan i tveggja ára
útlegð að lokinni víst í fangabúð-
um. Khaustov var handtekinn í
janúar sl. Samkvæmt heimildum í
Moskvu var eitt af vitnum sak-
sóknara sagnfræðingurinn
Gavriel Superfin, en hann neitaði
síðar að bera vitni gegn Khaustov
í mótmælaskyni við þá ákvörðun
aðreka Solzhenitsyn úr landi.
Andrei Sakharov skýrði vest-
rænum fréttamönnum i dag frá
enn einu dæmi um hörkulegar
aðfarir gegn andófsmönnum í
Sovétríkjunum. Sagði hann, að
sovézk yfirvöld hefðu i hyggju að
flytja rithöfundinn Vladimir Bu-
kovsky úr vinnubúðum i eitt i 11-
ræmdasta fangelsi f Sovétríkj-
unum og sagði, að hann væri
sannfærður um, að rithöfund-
urinn myndi ekki þola vistina
þar. Bukovsky var handtekinn
fyrir þremur árum og dæmdur í
tveggja ára fangelsi, fimm ára
vist í nauðungarvinnubúðum og
síðan til fimm ára Síberíudvalar.
Hafa Sakharov og ýmsir vinir
rithöfundarins komið þessu á
framfæri, ef það mætti verða til
þess, að stjórnvöld féllu frá ætlan
sinni.
Geta má þess, að hinn nýi
dómur yfir Viktor Khaustov hef-
ur vakið mikla athygli. Khaustov
Evgeny Evdusjenko.
sat f fangelsi á árunum
1967—1971 eftir að hann hafði
mótmælt réttarhöldunum yfir
Juri Galanskov og Daniel Gins-
burg.
Skipun Callaghans
mælist vel fyrir
hefur sýnt, að hann er laginn
samningamaður og að telja
megi víst, að hann fari varlega í
óskum um bfevtingar á skilyrð-
unum fyrir aðild Breta að EBE.
Leonard James Callaghan
fæddist í Portsmouth 27. marz
1912. Hann var skattastarfs-
maður frá 1929 þar til heims-
styrjöldin síðari hófst og var
í sjóhernum í stríðinu. í
stjórnartíð Verkamannaflokks-
ins eftir stríðið var hann að-
stoðarráðherra í samgöngu-
ráðuneytinu og flotamálaráðu-
neytinu.
Fjármálaráðherra var
Callaghan 1964 til 1967 og inn-
anríkisráðherra 1967 til 1970.
Callaghan hefur talsvert látið
aðsér kveða á alþjóðavettvangi
meðal annars á Evrópuþinginu
og Vestur-Evrópubandalaginu,
og meðal þeirra mála, sem
hann hefur látið til sfn taka,
eru mengun sjávar af völdum
ólfu.
JamesCallaghan
JAIVIES Callaghan, nýskipaður
utanríkisráðherra Breta, er 61
árs að aldri og einhver reynd-
asti ráðherra nýju stjórnarinn-
ar.
Hann var fjármálaráðherra
og síðan innanríkisráðherra f
stjórn Verkamannaflokksins
1964 til 1970.
Callaghan er einn af fáum
ráðherrum nýju stjórnarinnar,
sem hafa ekki háskölamennt-
un. Frama sinn hlaut hann f
þjónustu ríkisins, verkalýðs-
hreyfingunni og í Neðri mál-
stofunni þar sem hann hcfur
átt sæti sfðan 1945.
Hann er sagður hreinn og
beinn og Ijúfmannlegur í
framkomu og hefur fengið við-
urnefnið .Jlonest Jim“. Þegar
hann var innanríkisráðhcrra
átti hann mikinn þátt í þvf að
lægja ofsann á Norður-Irlandi.
Höfuðv1 erkefni hans í hinu
nýja embætti verður að semja
við Efnahagshandalagið um
breytingar á skilyrðunum fvrir
aðild Breta að þvf, en það hefur
verið yfirlýst stefna Verka-
mannaf lokksins sfðan hann
lýsti sjg andvfgan aðild,
Skipun Callaghans í embætt-
ið hefur mælzt vel fyrir í
Brússel, Washington og víðar
þar sem fullvfst er talið, að
hann verði hófsamur utanríkis-
ráðherra.
A það er bent, að Callaghan
Kosningarnar í Danmörku:
Flokkur Hartlings hlaut
einna skársta útkomu