Morgunblaðið - 07.03.1974, Page 19

Morgunblaðið - 07.03.1974, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974 19 Árvakursfrásögn blaðafulltrúa °g gjörningar Morgunblaðsritstjórans gerskir Athugasemd frá Hannesi Jónssyni, blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar Matthías Johannessen hefur að undanförnu birt nokkrar greinar í Morgunblaðinu undir nafninu „Gerzkir gjörningar". Þar hefur hann m.a. rætt nokkuð um starf- semi APN á íslandi, ogþó einkum dreifingu fréttastofunnar á efni um sovéska rithöfundinn Solshenytsin. Vil ég leyfa mér að taka undir þau sjónarmið M.J., að Solshenytsin eigi rétt á að njóta sannmælis í sovéskum fjölmiðlum sem annars staðar, og að það sé skylda slíkrar fréttastofu sem og annarra fjölmiðla, að dreifa sönnum fréttafrásögnum af at- burðum líðandi stundar. En ég vil ganga lengra en að samþykkja þennan rétt til handa Solshenytsin. Ég tel, að þetta sé réttur, sem allir eiga, lika við Is- lendingar. Hver einasti íslending- ur, sem við sögu kemur i fréttum íslenskra fjölmiðla, á rétt á að njóta sannmælis, og rógsiðja og níð um einstaka menn eiga ekki heima í skrifum heiðarlegra fréttamanna. Þess vegna verð ég að mótmæla því harðlega, að M.J. reynir í grein sinni í dag að koma því inn hjá lesendum sinum, að undir- ritaður sé einskonar persónu- gervingur þess aðiia, sem dreifir lygafréttum. Orðrétt segir M.J. í greininni: ,,t.a.m. er ég þeirrar skoðunar, að ekkert blað, sem vill rækja skylduna við heiður sinn og sam- félag, geti — hvað þá eigi að dreifa augljósum lygum (sbr. við- brögðin við framkomu blaðafull- trúa íslenska ríkisins á toppfundi Nixons og Pompidou)". Hér er enn á ný sú ómerkilega ásökun endurtekin i Morgun- blaðinu, sem ég hef áður mót- mælt, að ég hafi á fréttamanna- fundinum á Kjarvalsstöðum 1. júní s.l. skýrt rangt frá atburðúm varðandi Arvakurs-ásiglinguna. En hverjar eru staðreyndir málsins? Þegar ég kom aftur í ræðustól- inn á Kjarvalsstöðum laust fyrir kl. hálf tólf 1. júní s.l., skýrði ég frá atburðunum eins og fréttir lágu þá fyrir um þá. Ég sagði, að þegar hefði verið siglt á Árvakur nokkrum sinnum og tilraunir gerðar til þess að sökkva honum. Skipið væri mikið laskað, án þess að full vitneskja lægi fyrir um, hversu mikið. Annað varðskip væri komið á vettvang. Vonandi tækist því að hjálpa Árvakri tii hafnar. Ásetningur Bretanna virt- ist vera sá að siglaÁrvakur niður. Allt væri í tvísýnu ennþá. Málið mundi þó væntanlega skýrast þegar liði á daginn, og bað ég fréttamenn að hafa samband við blaðafulltrúa landhelgisgæsl- unnar síðar, þar sem að hann mundi geta látið þá hafa nánari frásagnir af atburðinum eftir framvindu þeirra, en ég varð að fara af fundinum þáþegar, vegna þess að ég þurfti að vera úti á Keflavíkurflugvelli þegar for- setarnir kvöddu. Þetta er kjarninn í því, sem ég sagði um Árvakurs-ásiglinguna á fréttamannafundinum. Þar er a.llt rétt og satt. Því til staðfestu fylgja hér með fimm radarmynd- rit landhelgisgæslunnar og tvær ljósmyndir, sem eru réttarskjöl í málinu. Radar-myndritin sýna, að fimm sinnum var siglt á Árvakur og einu sinni utan í hann. 1) Kl. 6.21 sigldi dráttarbátur- inn Irishman á bakborðshlið Ár- vakurs, dældaði eldhús og gerði gat í bakborðshorn skipsins. Síðan reyndi Irishman, með að- stoð freigátunnar Scylla F71 og breska togarans Vivaria GY 648, að koma dráttarvír í skrúfu Árvakurs. Kl. 8.10 hafði Irishman tekið inn dráttarvírinn og hóf ásiglingartilraunir að nýju. 2) Kl. 8.19 tókst Irishman að bakka á bakborðssíðu Árvakurs, þar sem að varðskipið hafði þá mjög litla ferð vegna þrengsla svo sem radar-myndrit nr. 2 sýnir ljóslega. 3—5) Kl. 9.10 sigldu togararnir Belgaum GY 218 og Vivaria GY 648 og dráttarbáturinn Irishman samtimis á Árvakur. Irishman og Belgaum sigldu á bakborðssíðuna en Vivaria á stjórnborðssíðu. Við þessa árekstra dældaðist stefni Árvakurs og gat kom á skuthylki þess. 6) Kl. 9.58 sigldi Irishman utani Árvakur, svo sem radarmyndrit nr. 5 sýnir, en á meðfylgjandi tveimur ljósmyndum sést þegar Irishman siglir beint á Árvakur (1) og siðar þegar hann bakkar á varðskipið (2). Méf er með öllu óskiljanlegt, hvers vegna Morgunblaðsmenn hafa reynt að breiða það út, að blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar hafi skýrt rangt frá þessum at- burðum á fréttamannafundinum, af þvi að hann hafi sagt, að svo virtist sem Bretar væru að reyna að sökkva Árvakri. Ég hygg, að hver einasti maður, sem aðgang hefur að gögnum málsins,geri sér fyllstu grein fyrir því, að ásetn- ingur skipstjórans á Irishman og skipstjóranna á bresku togur- unum, sem voru þarna að verki með dráttarbátnum, hafi verið sá að sökkva Árvakri. Þegar fregnin af atburðunum barst mér í Kjarvalsstaði var alls ekki séð fyrir um það, hver endalokin yrðu, en ásetningur Breta var augljós. Þess vegna visaði ég mönnum .á að'hafa nánara sam- band við blaðafulltrúa landhelgis- gæslunnar um málið, þegar líða tæki á daginn, þannig að þeir gætu fengið frekari fregnir af málinu eftir því sem framvindan yrði. Það gerðu heiðarlegir blaða- menn, sem áhuga höfðu á málinu. Að vísu urðu málalok farsælli en útlit var fyrir um tíma. Hins RADAR PLOTT ,:Zxl~flj!ut/<íurffífí. /tlyrfo /Yó / /óoi/Myuo foeui Syr/i* /)Of"/s y/o/iU/tp/MffOsiff/) O/i rúlits rii St.H1 //lu/ffiuo. .'A’oom! ///taoi /Ja/>L *&o. /f£ J/fSr/ui/ e/tu /ferroÆ. vegar var á Kjarvalsstöðum i frá- sögn minni skýrt frá atburðum eins og þeir stóðu samkvæmt nýj- ustu upplýsingum, sem borist höfðu ríkisstjórninni. Og víst er um það, að það var ekki bresku skipstjórunum að þakka, að Ar- vakur sökk ekki vegna ásigling- anna, sem sjá má á meðfylgjandi radar-myndritum og ljósmyndum. Ég vænti þess, að Morgunblaðið láti mig njóta þess réttar til sann- mælisí Morgunblaðinu, sem M. J. v. X & MS*k U I/ilHMHrr /<L f' ‘A /tf/SKKLfí 7<l £$ "/ InisuMn/f /fi t ; “mc/?kíi> % 'O/r/nKURT/L “ Mi/t/ Jf.’su/iruC Z/i ÍL. - ’CJPKÍM ‘,7 /i/V/>KVR Jfi ■ I" - ot/q 06/Q OéXo D62o 0621 o6£/ krefst til handa Solshenytsin í sovéskum fjölmiðlum og birti þessa athugasemd og meðfylgj- andi myndrit og myndir til þess að lesendur blaðsins fái sanna mynd af máliþessu. Gleymum því ekki, að réttlætið eða ranglætið, sem við búum við, byrjar og endar hjá okkar eigin heima, í okkar eigin umhverfi og þjóðfélagi. Þess vegna hefur Morgunblaðið og alveg sérstak- lega ritstjóri þess, M.J., sem hefur RADAR PLOTT T/l P/MUCU/fnR. /KUr/o /io Jt a UMyr/D þessi Sy/n'n fíOiirti \Z/OOO»O0**OS'XÆ. /)< riíiirs Tit /fcrrao //t ur / ÆtL/r. J/l/ORli f/K/90Í rjfíKiACO'R. /fe Sitrr/sjR £*u arrroÆ. 1!» fP i? Wi K\ f i ^ i ar/ Ai Ot/O /tyoJno fHt/Ki•.. /OiiunaK’ firyM.n c. r Ér*fis+'turu .a/pKjfls B SK:u/MOi%'c.-jf r T,K U.f>.\ 6S/Lt/f/úÍ O ffii/’MO.-t f/t/-*rfyWkfíOLSKOif ilT'! N. \ /•.axuf) A, otoQ IfTuR VCfiO , í i fí.fi RK ja R£\ r/rR /}f> /-pifflfí .Vsáii* •l \ TiLOt'Q - ! \ \ % kADAK PLOTT UUS/Jt/ , ? rti/j Kn/S/Ji r/y *ioy v/nt/T/ *• w/íw !*••*// u/wjjm// ui/i'iy 7,1 W77'l J/t' ‘lJJS;Te/t/t/t/oj///oQJA.. .• í/jj/at/ t/'/sir 'trtc/ Oj/Xunooj s /1/ / 1 o/»o 7Jt/ c y/ O/situ •Kt'/snynr/ic/ VJ. , Hs k: RADAR PLOTT Tit TJruuúuJi/t/t Atyr/o /Jo /r /JtSTóflt/Tfys/D pt'ssi jýsti* /locifl/i VionuRo/tit'tns i/fib /)r/ r.ttf's rit Ktrr/tu ,/tts/r/)ii/)'. //vorm, s/s/soi. rja/ti^c.on). /<e JltSjJU# e/tu /tcrrust. ../? / s \ f/ \ \ ./0 i _ <Sy ZmS 7iz o<tn < o> -£/< pi,•// S^J-C/K.Lt If.Wl/.'M.'S h. ‘,s/in/i-:S ,-c// feiK <•;> - ó'v-a* - oan m~M:.tLis- uy -x.'t lu. bo/ f tfp.'icc/ /V IcisfíMfíN 7\i C'7i r B’ ~McKKifí L n/vasjR I\ y_ o</, : w f ■ gerst siðferðispredikari um rétt útlendinga til sannmælis í fjöl- miðlum, miklar skyidur tilþess að láta Lslendinga lika njöta þess sama réttar og leiðrétta þann ósmekklega áburð um undir- ritaðan sem fram kemur í um- ræddri grein. Svo framarlega sem iM. J. og blað hans ætlast til þess, að mark sé tekið á skrifum hans um um- mæli APN um Solshenytsin þá verður hann að gæta þess, að blað hans beiti ekki í leiðinni sömu aðferðum gegn tslendíngum og APN beitir gegn Solshenytsin, þannig að einstakir Islendingar þurfi ekki að liggja undir síendurteknum heimatilbúnum óhróðri og ærumeiðandi áburði blaðsins. Meðferð M. J. á grein þessari og meðfylgjandi sönnunargögnum verður prófsteinninn I þessu máli. Reykjavík, 5. mars 1974. Hannes Jónsson. — 0 — Aths. ritstj. ITILEFNI af þessari athugasemd blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar þykir rétt að taka fram eftirfar- andi: 1. Morgunblaðið hefur aldrei borið brigður á það, að varðskipið Árvakur hafi orðið fyrir ásiglingu á þeim tíma, sem hér um ræðir, enda var ítarleg fréttafrásögn í blaðinu af þeim atburði. Það er því út í hött, er blaðafulltrúinn sendir þessu til „staðfestu" fimm radar-myndrit landhelgisgæzl- unnar og tvær ljósmyndir. Til hvers? Hvenær hefur Morgun- blaðið neitað því, að siglt hafi verið á Árvakur?! 2. Blaðafulltrúinn segir um grein Matthíasar Johannessen í fyrra- dag: „Hér er enn á ný sú ómerki- lega ásökun endurtekiní Morgun- blaðinu, sem ég hef áður mót- mælt, að ég hafi á fréttamanna- fundinum á Kjarvalsstöðum 1. júní sl. skýrt rangt frá atburðum varðandi Árvakurs-ásiglinguna." I frásögn Morgunblaðsins af þessum fundi hinn 2. júní sl. segir svo: .JVIeðan blaðamaður Mbl. stóð frammi í anddyrinu og rabb- aði við öryggisverði kom islenzk- ur lögregluþjónn aðvífandi með þeim ummælum, að sér hefði verið skipað að ná i Hannes Jóns- son í síma. Hann kom von bráðar og tilkynnti andartaki síðar i hátalaranum að hann hefði verið kallaður til að tala við forsætis- ráðherra, Ólaf Jóhannesson, sem hefði tjáð sér, að 10—15 brezkir togarar hefðu. ásamt brezkum dráttarbáti, þjarmað að varðskip- inu Árvakri og siglt á hann með þeim afleiðingum, að hann væri að sökkva. Þetta þóttu mikil tíð- indi — en þegar þessi frétt reynd- ist nokkuð ýkt var mörgum blaða- mönnunum erlendu skemmt — ekki sizt þeim brezku.” Sannleiksgildi þessarar frá- sagnar Morgunblaðsins hefur aldrei verið hnekkt með rökum, enda er það ekki hægt. Hundruð erlendra blaðamanna og inn- lendra eru tilvitnis um, að rétt er hermt í Morgunblaðinu hinn 2. júnf sl. Tilraunir Hannesar Jóns- sonar í ofangreindri athugasemd til þess að breyta því, sem hann sagði á Kjarvalsstöðum, eru því gagnslausar og blaðri hans um „ómerkilega ásökun" Morgun- blaðsins vísað á bug. 3. Ljóst er hvað Hannes Jónsson sagði á Kjarvalsstöðum og að það reyndist ekki rétt. Hins vegar vaknar sú spurning, hvaðan hann fékk þessar fréttir. Sjálfur kvaðst hann hafa þessar upplýsingar beint frá forsætisráðherra. Þá er tvennt til: að Hannes Jónsson hafi — t.d. i hugaræsingi — ýkt eða rangfært upplýsingar for- sætisráðherra, eðá, að Olafur Jöhannesson hafi sagt Hannesi, að Árvakur væri að sökkva. Hafi Öiafur Jöhannesson gefið blaða- fulltrúa sínum upplýsingar, sem reyndust ósannar og sköðuðu álit okkar erlendis er ást;eða til að spyt'ja, hvaðan hann fékk þessar upplýsingar. Ilannes Jónsson Kramliald á lils. IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.