Morgunblaðið - 07.03.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974
23
Matthildur Sveinsdóttir
frá Akranesi - Minning
Fædd4. nóvember 1890.
Dáin 21. febrúar 1974.
Matta frænka eins og við í fjöl-
skyldunni kölluðum hana lézt í
sjúkrahúsi Akraness 21. febrúar
s.l. og var jarðsett frá Akranes-
kirkju síðastliðinn föstudag. Því
miður gátum við ekki af sérstök-
um ástæðum verið viðstödd
jarðarför hennar. Þótt engum
kæmi á óvart hversu dauðinn var
nálægur, einkum vegna þess hve
heilsu hennar hrakaði siðastliðin
ár, þá var það hjartahlýjan, og hið
milda bros, sem villti manni sýn.
Matthildur var fædd að Mörk á
Akranesi, ein af þremur dætrum
hjónanna Sveins Guðmundssonar
kaupmanns og hreppstjóra, og
konu hans Mettu Hansdóttur
Hoffmann. Þær systur eru nú all-
ar dánar. Þær voru, Ingunn kona
Haralds Böðvarssonar og Petrea.
Það duldist engum, sem til
þekktu, hinir miklu mannkostir
þeirra systra, enda hlutu þær
góðan arf frá sínum foreldrum.
Það var á allra vitorði á Akranesi
meðan þær systur voru að alast
upp hve heimilið í Mörk var til
fyrirmyndar. Þar var reglusemi,
kurteisi, nýtni og þrifnaður svo
sjálfsagður hlutur i daglegu lífi,
enda báru þær systur merki
þessara eiginleika alla tið. Ingunn
og Petrea bjuggu mest allan sinn
aldur á Akranesi, en Matthildur í
Reykjavík siðustu áratugi ævinn-
ar. Ég man fyrst Möttu frænku
þegar hún kom á bernskuheimili
Minning:
Fæddur26. febrúar 1914.
Dáinn 26. febrúar 1974.
Sextugur maður er ekki gamall
maður, en fyrir þann, sem hefur
lifað heilsulítill frá 19 ára aldri,
er það þó nokkur aldur.
Ekki er mjög algengt, að menn
kveðji þennan heim á merkisaf-
mælisdögum sinum og mundi
mörgum finnast það næsta undar-
leg afmælisgjöf, en þannig fór
það hjá Hákoni. Hann átti sinn
sextugasta afmælisdag og fleiri
urðu ævidagarnir ekki.
Hann var hæglátur maður og
hafði sig lítt í frammi, umgekkst
fáa, sérstaklega á seinni árum, en
mundi sína gömlu félaga og
minntist þeiira oft. Hann hafði
gaman af að spjalla við börn, sem
gáfu sig að honum, þótt hann væri
annars fámáll maður. Það var
hans lán að eiga góða fjölskyldu,
sem hlúði að honum í veikindum
hans og systir hans og hálfsystir,
sem hugsuðu um hann síðustu
árin, finna sína huggun í því, að
vita hann nú í góðum höndum.
Hvort sem það er sá umsvifa-
mikli eða sá fáskipti, sem héðan
hverfa, þá skilja allir eftir sig
skarð, sem ógjarnan verður fyllti
og veldur breytingum á högum
þeirra, er næstir þeim standa. En
eitt er það, sem allt af stendur
mitt, þá er ég var strákhnokki
innan við 10 ára aldur. Ekki tel ég
mig ættrækinn mann, enda litið
fróður um ættir mínar, en ég veit,
að heimsóknir Möttu voru ekki
eingöngu ættrækninnar vegna,
heldur einnig til að vita hvort
okkur liði vel, þvi hún mun hafa
haft hugmynd um að svo var ekki
átímabili. Siðan liðu árin hvert af
öðru, að tengslin við Möttu
héldust, einkum milli móður
minnar og hennar. Foreldrar
móður minnar voru hjónin Ingi-
mar Pétur Hoffmann, dáinn árið
1908 32 ára, og Jónína Jónsdo'ttir
Hoffmann, dáin árið 1915 29 ára.
Börn þeirra voru; Ingunn fædd
1906 (dó ung frá tveimur börn-
óbreytt, að allir eru mennirnir
jafnir fyrir skapara sínum.
E.L.
um), Karl og Pétur tvíburar,
fæddir 1907 (dóu ungabörn) og
yngst þeirra var móðir mín
Petrea, fædd 1908, sú eina, sem
lifir systkini sín. Atvikin höguðu
því þannig, að Matta var sú eina,
sem ég kynntist, af hennar systr-
um. Orsakirnar til þess gætu
verið svo margar, til dæmis í
fyrsta lagi þær, að ég er það ung-
ur, að milli okkar var hið mikla
kynslóðabil, sem mörgum verður
svo tíðrætt um í dag, í öðru lagi
kom ég aldrei til dvalar á
Akranes, og i þriðja lagi er ég
fæddur og uppalinn Reykviking-
ur, enda byrjuðu kynni okkar
eftir að hún fluttist til borgar-
innar. Það liðu stundum nokkur
ár án þess að við hittumst, þar til
nú seinni árin, að augu hins full-
orðna manns, sem telur sig hafa
öðlazt þroska, urðu við nánari
kynni opnari fyrir mannkostum
og gáfum Matthildar. Þrátt fyrir
menntun hennar í kvennaskóla og
húsmæðraskóla í Danmörku voru
eðliskostir hennar fleiri en þeir,
sem lærast í skóla, örugglega með-
fæddir. Aldrei gleymist hið
fallega heimili hennar, þar var
hver hlutur á sínum stað, fágaður
og hreinn. Þar mátti sjá fagurt
handbragð hennar, og gamla
muni, sem sómdu sér sem hallar-
gripir sökum fágunar og snyrti-
mennsku. Eyru min hlustuðu vel
þegar hún sagði frá ýmsum þátt-
um úr lífi sínu. Þar bar oft á góma
gamla tfmann, til dæmis þegar
fátæktin herjaði. nágrannana i
Mörk. Þá var hún lítil telpa, oft
daglega send til þeirra fátæku
rrjeð einhverja björg í bú. Hvílík
bylting frá þessum tímum saman-
borið við þjóðfélagið í dag. Matta
bjó yfir miklum fróðleik, einkum
um ættir og bókmenntir, og eng-
um, sem tilþekktu, duldist tungu-
málakunnátta hennar. Þegar tal
okkar barst að ýmsum persónu-
legum eðlisþáttum í ætt okkar.þá
hló hún stundum sínum undur
milda og bliða hlátri og hafði
gaman af. Hún gat verið svo kát
og létt i lund ef gleði og kæti bar á
góma. Ég og fjölskylda min send-
um systursyni hennar, Sturlaugi,
og hans fjölskyldu okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Að lok-
um kveð ég og fjölskylda mín
hina látnu frænku okkar með
eftirfarandi einkunnarorðum,
sem Örn Snorrason tileinkaði ætt-
göfugri og mikilhæfri vinkonu
okkar við lát hennar. Þar
sameinast svo margt, sem tjáir
huga minn og okkar til þeirra
beggja. „Engin var fegurri, engin
mildari óróastráknum vestra.
Artarlitill drengur, er dæmdur til
að yrkja, þótt dugi varla lengur.
Förin allra er farin, það fylgir
henni margt, sem aldrei segist
með orðum, og ekki var sagt forð-
um, þegar sólin reis svo rjóð.
Höfðingi var hún í raun, hlý og
góð.“
H.P.
= HÉÐINN =
Verkamenn vanir járniðnaði óskast.
Vélsmiðjan Héðinn h.f.
Hákon Jónsson
JT jj.
Utsala — Utsala
Mikil verðlækkun.
Glugginn, Laugavegi 49.
LífeyrissjóÖur
Fél. garðyrkjumanna
Lán verða veitt úr sjóðnum árið 1 974.
Þeir sjóðfélagar sem hug hafa á lánum sendi umsóknir
sínar fyrir 1. apríl.
Umsóknir sendist til Agnars Gunnlaugssonar, Stóragerði
28, Rvík. Stjórn Lífeyrissjóðs
Félags Garðyrkjumanna.
TRAUSJl
bTlasala VITATORGI
Ford Pic-Up '62 1 góðu standi Volkswagen 1300 '71. Cortina '71.
Datsun '71 diesel Opið alla daga nema sunnudaga frá kl. 1 0.30 til kl . 7
SÍMI — 12500 — 12600
Til sölu
2ja herbergja íbúð i byggingarfélagi póstmanna. Félags-
menn hafa forkaupsrétt til 20. þ.m.
Stjórnin.
Keflavík
Suðurnes
Glerborg h.f., Hafnarfirði vill vekja athygli viðskiptavina
sinna á að umboðsmenn vorir á Suðurnesjum munu veita
yður alla þjónustu vegna máltöku og ísetningar glers sé
þess óskað. Reynið viðskiptin.
Simar umboðsmanna 6522 — 6514 — 2881.
Fyrirlestur
í IMorræna húsinu
Fil. lic. ELSA LINDBERGER heldur fyrirlestur með
litskuggamyndum í fundarsal Norræna hússins fimmtu-
daginn 7. marz kl. 20:30. Efni: „Om vikingatida
myntskatter funna í Sverige".
Allir velkomnir.
Myntsafnarafélag íslands Norræna húsið
NORRÍNA HÖSIO POHJOLAN TALO NORDENS HUS
Bókamarkaöur
Bóksalafélags
íslands,
í noröurenda
Hagkaups,
Skeifunni 15
Góöar bækur-
gamatt verö