Morgunblaðið - 07.03.1974, Page 30

Morgunblaðið - 07.03.1974, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974 Þau ungu atkvæðamikil á Stefánsmótinu á skíðum UM siðustu helgi fór fram \iS Skíðaskála KR i Skálafelli Stefánsmótið á skíðum, sem jafnframt var afmælismót skfða- deildarinnar í tilefni 75 ára afmælis KR. Keppt var með avstárlegum hætti, þannig að nú voru aðeins tveir aldursflokkar, annar flokkurinn var fyrir 12 ára og yngri, en hinn fyrir 13 ára og eldri. Var þetta gert til þess, að efnilegir unglingar fengju að spreyta sig við þá eldri. A laugardaginn hófst mótið kl. 15.00 og var þá keppt í yngri flokknum. Veður var ágætt, en gekk á með éljum, hitastig var við frostmark. Brautarlengd var 300 metrar. fallhæð 120 metrar og hlið voru 35. Keppendur I þessum aldursflokki voru 33. Á sunnudaginn hófst keppnin kl. 14.00 og var þá keppt I eldri flokknum. Þá var rigning og 4 stiga hiti, en brautimar, sem voru Guðjón Ingi Sverrisson frystar, grófust ekki þótt 60 kepp- endur hefðu reynt þær. Keppt var Haukar og Snæfell úr bikarkeppni KKI í tveimur brautum, 45 hlið voru í hverri, brautarlengd var 350 metrar og fallhæð 150 metrar. Helztu úrslit í mótinu urðu: 12 ára og yngri: sek. Ása Hrönn Sæmundsdóttir, Á86,0 Svava Viggósdóttir, KR 91,7 Ásdís Alfreðsdóttir.Á 94,3 KormákurGeirharðsson, Á 95,0 Þráinn Hreggviðsson, IR 100,1 Berglind Friðþjófsd.,Á 100,9 13 ára og eldri: sek. Guðjón LSverrisson, Á 75,0 Jóhann Vilbergsson, KR 75,8 Arnór G uðbjartsson, Á 77,2 Bjarni Þórðarson, KR 77,2 Þorsteinn Geirharðsson, Á 77,6 Hákon Ólafsson 78,0 Nokkuð af sterkasta skíða- fölkinu varð úr leik fyrir litils- háttar mistök. T.d. varð Kristinn Sigurðsson með 7. bezta tíma, en hann er aðeins 13 ára. Einnig gerði ein kunnasta skíðakona hér syðra, Áslaug Sigurðardóttir, Ógilt, en hún hefði orðið í 10. sæti og fyrst af fullorðnu konunum. Ur leik Is og ÍMA fyrir norðan. Það er Friðrik Guðmundsson sem reynir þarna að skella, en lMA-menn eru v^ðbúnir I hávörninni. Bak við Friðrik eru þeir Halldór Jónsson og Jón Góorgsson. HAUKAR og Snæfell eru úr leik í Bikarkeppninni. Á föstudags- kvöldið fóru tveir fvrstu leikirnir fram, og sigurvegarar í þeim leikjum voru UMFG sem sigraði Hauka með 77 stigum gegn 68, Njarðvíkurliðið sem vann Snæ- fell. I næstu umferð mun UMFG leika gegn Armanni, en UMFN fær UMFS. Grindvíkingarnir höfðu ávalit frumkvæðið í leiknum gegn Haukum. Þeir komust í upphafi Ieiksins í 18:6, og upp úr miðjum fyrri hálfleik var staðan 30:14, í hálfleik var staðan 41:30. Rétt fyrir miðjan síðari hálfleik var UMFG með 15 stiga forustu 53:38, en þegar 3 mín. voru til leiksloka voru Haukar búnir að minnka muninn i eitt stig, 60:61. En Haukarnir náðu ekki að kom- ast yfir, UMFG jók muninn á ný, og lokatölur voru sem fyrr sagði 77:68. — Kristinn Jóhannsson var langbezti maður UMFG i þessum leik, ákaflega fljótur og skemmti- legur bakvörður, sem myndi sóma sér vel með hvaða I. deildar liði sem væri. Þeir nafnarnir Eiríkur J ónsson og Eiríkur Tómasson áttu einnig góðan leik, og þessir þrír bera af í liðinu. Jóhannes Eð- valdsson var bestur Haukanna, barðist eins og ljón allan leikinn og sýndi á köflum mjög góð til- þrif. Oddur (á Skaganum) var einnig góður, og sömu sögu er að segja um Ingvar Björnsson. Eiríkur Jónsson skoraði mest fyrir UMFG, 26 stig, Kristinn 24. Jóhannes skoraði langmest Hauk- anna, 25 stig. UMFN — Snæfell Sigur UMFN gegn Snæfelli var ekki átakalaus, þótt allmikill munur væri á liðunum í lokín. Það háði liði Snæfells, að þeir lentu í erfiðleikum á leiðinni frá Stykkishólmi, leikmennirnir þurftu að standa í því langtímum saman að ýta bílum sínum úr sköflum, og það var ekki fyrr en kl. 10 á föstudagskvöldið að liðið kom tilNjarðvíkur, — eftir 9 tíma ferð. UMFN hafðí þó ávallt frum- kvæðið í leiknum, 19:12 eftir 9 mín. 27:21 eftir 13 mín., og í hálf- leik var staðan 44:33. Um miðjan síðari hálfleik var staðan 60:56 fyrir UMFN, og þá fór að síga á ógæfuhliðina fyrir „Hólmarana“. UMFN tók öll völd í sínar hendur, og sigraði með 85 stigum gegn 61. Slakur endir á annars góðum leik Snæfells. Ein- ar Sigfússon lék aðalhlutverk í leik Snæfells, var sterkur í vörn- inni, og skoraði 28 stig. Brynjar Sigmundsson skoraði mest fyrir UMFN, 25 stig, og ungur leik- maður i liðinu, Jónas Jónsson, sem lék sinn besta leik til þessa, var með 18 stig. Það eru því lið Grindavikur og Njarðvíkur sem halda áfram í keppninni, en næstu leikir Bikar- keppninnar verða leiknir n.k. mánudag. Þá leika ÍR-ingar gegn IS, og KR mætir Fram. gk. IS vann fyrir norðan Tvö lyftingamet Skúli Óskarsson, UlA, setti þrjú ný Islandsmet á lyftinga- móti sem fram fór i sjónvarpssal sl. laugardag. Skúli, sem keppir í millivigt, snaraði 105 kg, jafn- hattaði 135 kg og samanlagður árangur hans var því 240 kg. Á sama móti setti Kári Elíasson, Ármanni, nýtt met í jafnhöttun þungavigtar, lyfti 95 kg og einnig setti hann met í samanlögðu, lyfti. 165 kg. TVEIR hörkuskemmtilegir blak- leikir fóru fram í Skemmunni á Akureyri um sfðustu helgi. Iþróttafélag stúdenta, sem fór norður og lék við ÍMA og UMSE, vann báða leikina. I leiknum á laugardag við ÍMA gekk á ýmsu og verður að telja sigur ÍS í þeim leik hreina heppni. ÍS gekk betur á sunnudeginum á móti UMSE og með því að vinna leikínn 3:0 blandar ÍS sér enn í baráttuna um efstu sætin í mót- inu eftir slæma byrjun. ÍS— IMA 3:2, 15:12, 15:2, 7:15, 7:15, 16:14 Leikurinn fór jafnt af stað 3:3 og 5:5, en þá kemur mjög góður leikkafli hjá ÍS 12:5. Þótt IMA berjist vel ná þeir ekki að jafna þennan mikla mun og tapa fyrstu hrinunni. I annari hrinunni geng- ur ÍS vélin sérlega vel. Hindrunin er góð, uppspil og skellir finir. Aftur á móti gengur allt á aftur fótunum hjá ÍMA, margir skellir lenda utan vallar, og samstilling innan liðsins slæm. Tap IMA í þessari hrinu er líka sérlega stórt 15:2. Við þennan stóra sigur virð- ist ÍSsofna á verðinum og leikur þeirra i tveimur næstu hrinum er slæmur. Strax í byrjun þriðju hrinunnar sýnir tMA ákveðinn leik og er greinilegt, að þeir ætla ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Áköf hvatningarhróp og stapp berast nú frá áhorfendabekkj- unum þar sem áhangendur ÍMA hafa hreiðrað um sig.Leikur ÍMA er ólikur fyrri hrinum. Ölafur Thoroddsen skellir glæsilega og Viðar og Pétur sýna líka góðan leik. Með góðri frammistöðu og sigri í þriðju og fjórðu hrinu hafa leikmenn ÍMA endurheimt sjálfs- traust sitt og þegar staðan er 9:1 fyrir þá í úrslitahrinunni ætlar allt að keyra um þverbak á áhorf- endabekkjunum af fögnuði. Leikmenn ÍS, sem líkastir hafa verið tréköllum á vellinum, fara nú að hreyfa sig og smátt og smátt breytist staðan 9:4, 9:7. En nú skorar IMA fjögur dýrmæt stig og standa aftur að virðist með pálm- ann í höndunum 13:7. En hið ótrúlega gerist, með frábærri frammistöðu Halldórs Jónssonar í uppgjöfum, skellum og vörn, drífur hann lið sitt áfram og alltí einu er IMA undir 13:14. En barátta ÍMA er ekki á enda. Leikmenn eru eins og froskar um allan völl og bjarga boltanum frá því að fara i gólfið á ævintýraleg- an máta. Þegar IMA skorar sitt 14. stig er spennan í hámarki ög alls ekki heyrist mannsins mál inni íSkemmunni. Þrátt fyrir frábæran varnarleik IMA tekst IS að skora tvö næstu stig og tryggja sér sigur í þessum æsispennandi leik. • ' V.#' • ♦ V.#' Ægir Reykjavíkurmeistari í sundknattleik ÆGIR var5 Reykjavíkur- meistari í sundknattleik 1974. í fyrrakvöld sigraði liðið KR með átta mörkum gegn sex og tryggði sér þar með titilinn. Einn leikur er þó eftir í mótinu, milli Ármanns og KR og fer hann fram miðvikudaginn 13. marz. Leikur Ægis og KR var nokkuð vel leikinn og var jafn framan af. Fyrsta hrinan varð jafntefli 1—1, Ægir vann aðra hrinuna 1—0, þriðja hrinan varð jafntefli 2—2, en síðustu hrinuna vann Ægir 4—3, enda vortist úthald KRing- annaþá farið að þverra. Mörk Ægis í leiknum skoruðu: Þorsteinn Geirharðsson 3, Guðjón Guðnason 3, Erling Kristiansen 1, Örn Geirsson 1. Mörk KR skoruðu: Þórður Ingason 2, Ölafur Gunnlaugsson 2, Einar Þorgeirsson 1 og Hafþór Guð- mundsson 1. KR-ingar fengu dæmt eitt víta- kast I leiknum, sem Ólafur skoraði úr, Ægir fékk einnig dæmt vítakast en það varði Sigur- steinn Guðmundsson, mark- vörður KR-inga. I>rír KR-ingar voru reknir uppúr I leiknum og tveirleikmenn Ægis. Bezti leikmaður Ægis í leiknum var Halldór Backmann, mark- vörður, en bezti leikmaður KR var Þórður Ingason. IS — UMSE 3—0 15:5, 15:13, 15:12 Leikur ÍS er yfirvegaður I þess- um leik, sérstaklega I fyrstu hrin- unni. Indriði Arnórsson á sérstak- lega góða skelli, en Halldór er eins og daginn áður aðaldriff jöð- ur liðsins. Eftir stórt tap í fyrstu hrinu kemur UMSE betra lagi á leik sinn og Aðalsteinn vinnur skemmtilega úr góðum uppspil- um Eiríks með sveifluskellum. Önnur og þriðja hrinan eru líkar að því leyti, að eftir forustu UMSE framan af, tekst ÍS að jafna leikinn og vinna undir lokin. Sérstaklega varð spennan mikil I síðustu hrinunni þegar UMSE hafði yfir 8:3 og 11:8, en öruggur leikur tS tryggði þeim sigurinn. Þessi leikur á milli UMSE og ÍS er sá níundi af fimmtán i úrslita- keppninni og fyrsti leikurinn, sem fer 3—0. Má af þessu sjá hversu spennandi leikir úrslita- keppninnar hafa verið. Staðan í úrslitakeppninni er nú þessi: •« UMFB 2 6—2 111:97 4 UMFL 3 7—5 169:144 4 Víkingur 3 7—6 163:155 4 Is 4 8—8 199:200 4 ÍMA 3 7—7 177:181 2 UMSE 3 2—9 116:158 0

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.