Morgunblaðið - 07.03.1974, Qupperneq 32
n
ÞEIR RUHR
umsKiPTin sEm
nuGLúsn i
IttergunMaðimi
fU®r0ai»PM>i&
KUCIVSinCRR
ég.^22480
FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1974
Ríkisstjórnarfrumvarp um skattalagabreytingar:
Framhald á bls. 18
hækki um
TILLAGA UM HÆKKUN
PERSÓNUFRÁDRÁTTAR
OG SKATTAFSLÁTT
Mikið kaupæði hefur
gripið um sig meðal
fólks undanfarna
daga. Einkum hefur
fólk fjárfest í
heimilistækjum. —
Sjá frétt á bls. 2. —
Ljósm. Mbl. Ól. K.
Mag.
kostar í áskrift frá 1. marz
1974 kr. 420.— á mánuði og í
lausasölu kr. 25.— eintakið.
Grunnverð auglýsinga
kostar frá 9. marz 1974 kr.
280.— pr. eindálka sm.
Söluskattur
5stig
RÍKISST JÓRNIN lagði í gær
fram á Alþingi frumvarp til laga
um „skattkerfisbreytingu" eins
og það er kallað. Breytingar á
skattalögunum eru lagðar fram
vegna heildarkjarasamninga,
sem nýlega voru undirritaðir. í
fyrsta kafla frumvarpsins er fjall-
að um breytingar á tekjuskatti og
eignarskatti, í öðrum kafla um
breytingar á söluskatti, þar sem
heimilað er að hækka söluskatt
um 5%, f þriðja kafla er fjallað
um breytingu á launaskatti í
3!4% og skulu l‘A% renna í ríkis-
sjóð og í fjórða kafla eru ákvæði,
Samningafundur
í gærkvöldi
í GÆRKVÖLDI, er Mbl. fór í
prentun, stóð yfir fundur sátta-
semjara með samninganefndum
sjómanna og útgerðarmanna. Síð-
asti fundur á undan stóð frá kl. 21
á mánudagskvöld til kl. 02.30
aðfararnótt þriðjudags.
í 18%
sem tryggja, að Kauplagsnefnd
skuli eigi taka tillit til 5% hækk-
unar söluskatts við útreikning
vísitölu framfærslukostnaðar.
• 1 þriðju grein frumvarpsins er
fjallað um persónufrádrátt. Gert
er ráð fyrir því, að hann verði
fyrir einstaklinga 238 þúsund
krónur, fyrir hjón 355 þúsund
krónur og fyrir hvert barn á fram-
færi skattþegns 50 þúsund krón-
ur. Þessar tölur eru allmiklu
lægri, en loforð ríkisstjórn-
arinnar vegna kjarasamninganna
var, en þar var rætt um 425
þúsund krónur fyrir hjón, 280
þúsund krónur fyrir einstakling
og 58 þúsund krónur fyrir hvert
barn.
• Til þess að jafna út þann mis-
mun, sem er á loforði rikisstjórn-
arinnar, sem gefið var ASÍ, og
frumvarpinu, er komið á sér-
stökum skattaafslætti, sem vera
skal 11 þúsund krónur fyrir ein-
stakling, 18.500 krónur fyrir hjón
og 3.300 krónur fyrir hvert barn.
Jafnframt er þannig lagt á, að af
fyrstu 100 þúsund krónunum
greiðist 20% jaðarskattur, af
næstu 100 þúsund krónunum
30% jaðarskattur og af 200 þús-
und krónum og þar yfir 40% jað-
arskattur. Segir í athugasemdum,
að með þessu verði persónufrá-
dráttur ígildi þess persónufrá-
dráttar, sem ASÍ var lofað. Ljóst
er þó, að með þessari tiihögun
Skriða verðhækkana:
43% hækkun á jurtasmjörlíki
75 krónur. Jurtasmjörlíki hækkar
mismunandi eftir pakkningum.
Hvert kg, pakkað í 500 g pakkn-
ingar, hækkar úr 174 krónum í
250 krónur og er hækkunin þar
43,7%. Kemur því hvert 500 g
jurtasmjörlíkisstykki til með að
kosta 125 krónur, en kostaði 87
krónur. Hvert kg af jurtasmjör-
líki, sem pakkað er í 250 g dós,
kostar nú 264 krónur, en kostaði
áður 188 krónur. Hækkunin er
40,4%. Hver dós kostar þá 66
krónur, en kostaði áður 47 krón-
ur.
Flugfar í innanlandsflugi
hækka um 15%. Til þessa hefur
t.d. flugfar til Akureyrar, aðra
leið, kostað 1.870 krónur, en
kemur til með að kosta 2.150
krónur eftir hækkunina. Þá
hækka dagblöð um 13,6% i lausa-
sölu, en auglýsingaverð og
áskriftarverð hækka um 16,7%.
Kostar nú áskrift af dagblaði 420
Engin samúð með Solzhenitsyn
— í þingræðu Svövu Jakobsdóttur
krónur á mánuði, en kostaði áður
360 krónur.
Gjaldskrá efnalauga hækkar nú
um 25% og gjaldskrá þvottahúsa
um 20%. Þá hækkar einnig gjald
skrá rakara um 11%.
Herraklipping, sem kostaði 190
krónur, hækkarþví í 210 krónur.
Kálfur fædd-
ist í flugvél
Solzhenitsyn
ÞAU tíðindi gerðust á Alþingi
siðla kvölds á þriðjudag, er verið
var að ræða þingsályktunartil-
lögu sjálfstæðismanna um að
bjóða Alexander Solzhenitsyn bú-
setu á Islandi, að Svava Jakobs-
dóttir kvaddi sér hljóðs, en
minntist ekki einu orði á tillögu
þá, sem var til umræðu. Þess í
stað jós hún úr skálum reiði
sinnar út í Morgunblaðið og Sjálf-
stæðisflokkinn. Lýsti hún andúð
og viðbjóði á „sýndarmennsku"
þessara aðila, þegar þeir töluðu
fvrir „frelsi andans“ eins og þing-
maðurinn orðaði það. Hún minnt-
ist hins vegar ekki einu orði á, að
hún fordæmdi aðgerðir Sovét-
st jórnarinnar gegn rithöfund-
inum, en hóf þess í stað að for-
VERÐLAGSNEFND heimilaði í
gær hækkun á smjörlíki, flugfar-
gjöldum, áskriftargjöldum dag-
blaða, gjaldskrá efnalauga og
þvottahúsa og gjaldskrá rakará.
Mest er hækkunin á jurtasmjör-
liki að jafnaði 42 til 45%.
Almennt smjörlíki hækkar um
21 %.
Hvert kg af almennu smjörlíki
hækkar um 21 %, úr 124 krónum í
150 krónur. Kemur þá 500 g
smjörlíkisstykki til með að kosta
dæma stjórnarfar i Grikklandi og
Tyrklandi.
Pétur Sigurðsson (S) fylgdi til-
lögunni úr hlaði og sagði m.a., að
islendingar kynnu vissulega að
meta það baráttuþrek, sem Alex-
ander Solzhenitsyn hefði sýnt í
baráttunni gegn kúgun stjórn-
valda í Sovétríkjunum. Slíkt bar-
áttuþrek ætti ríkan skyldleika
með því baráttuþreki, sem is-
lendingar hefðu öðlazt í alda-
langri baráttu sinni á hafinu og í
harðbýlum héruðum landsins.
Nauðugur hafði Solzhenitsyn
verið fluttur frá ættlandi sínu og
sviptur þar öllum þegnréttindum.
Sérhverri lýðfrjálsrí þjóð bæri
skylda til að bjóða honum alla þá
a&toð, sem i té mætti láta. Vitn-
aði þingmaðurinn til orða Vladi-
mirs Azhkenasy, sem hefði látið í
ljós þá skoðun, að boð það, sem
fælist í tillögunni, væri i senn
höfðinglegt og landflótta lista-
manni mikill styrkur. Rík sjálf-
stæðis- og frelsiskennd hefði
ávallt verið aðalsmerki fslenzku
þjóðarinnar, og því væri það ekki
nema eðlilegt, að þjóðin sýndi
þann stórhug að bjóða þessu stór-
menni andans þau réttindi, sem
hún ætti dýrmætust, búsetu og
þegnréttindi í hinu lýðfrjálsa
landi — islandi.
Svava Jakobsdóttir (K) hóf mál
sitt á því að gagnrýna skrif Morg-
unblaðsins um mál þetta, og sagði
m.a„ að þau hefðu verið með
ýmsu móti, t.d. hefði blaðið ætlað
að ærast þegar Alþýðubandalagið
hefði fordæmt aðgerðir Sovét-
stjórnarinnar gegn Solzhenitsyn.
Þá gat Svava þess, að hún hefði
fyrir nokkru setið þing alþjóðlegs
rithöfundasambands, en þangað
hefði m.a. verið boðið grískum og
tyrkneskum fulltrúum. Þeir
hefðu þó þurft að afboða komu
sína á síðustu stundu, þar sem
þeir hefðu ekki viljað hætta á að
vera meinað að koma aftur til
landa sinna. Einn þeirra hefði þó
ekki náð að afboða komu sína þar
sem honum hefði þá nýlega verið
misþyrmt hroðalega af stjórnvöld-
um í Grikklandi. Kvaðst þing-
maðurinn vilja beina þeim til-
mælum til flutningsmanna þess-
Framhald á bls. 18
Kálfur fædd-
ist í flugvél
SA ATBURÐUR gerðist í
Iscargo-flugvél á föstudaginn,
að kálfur fæddist, er vélin var
yfir Miðjarðarhafinu á leið til
Tripoli í Líbýu. Þangað var
vélin að flytja 35—40 kýr frá
Dublin á írlandi, allar með
kálfi, og tók ein þeirra létta-
sóttina of snemma. Ahöfn
vélarinnar tók á móti kálf-
inum, gekk allt vel og mæðgin-
unum heilsaðist vel. Flug-
stjóri var H al lgrímur Jónsson.
Kúaflutningarnir voru liður
í umfangsmikilli uppbyggingu
landbúnaðar í Líbýu. Eru
hverjum bónda lagðar tilþrjár
kýr, allar með kálfi, og á hann
að nota gripina til undaneldis
og byggja upp kúabúskap.
Iscargo hefur með DC-6-vél
sinni annazt kúaflutninga frá
Þýzkalandi, Hollandi, Dan-
mörku og írlandi til Líbýu, en
auk þess hefur vélin einnig
flutt önnur dýr milli landa
m.a. hesta og svín.