Morgunblaðið - 15.06.1974, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JUNl 1974
17
Lausnarbeiðni Rumors
ekki tekin til greina
Rómaborg, 14. júnl AP.
MARIANO Rumor, forsætisráð-
herra Italfu, hóf f dag viðræður
við forystumenn sósfalista með
það fyrir augum að fá þá til
áframhaidandi stjórnarsamstarfs
við flokk hans, kristilega demó-
krata, og samvinnu um aðgerðir
gegn vaxandi verðbólgu og of-
beldi I landinu. Af hálfu sósfal-
ista var tiikynnt, að þeir væru
reiðubúnir að styðja hugmyndir
Rumors um lausn efnahagsvand-
ans, meðal annars sparnaðar-
áætlanir hans og hækkun skatta,
svo framarlega sem jafnframt
yrðu gerðar ráðstafanir til þess að
koma f veg fyrir meiriháttar at-
vinnuleysi.
Stjórn Rumors, sem skipuð var
fulltrúum kristilegra demokrata,
sóslalista og tveggja smærri
flokka, baðst lausnar sl. mánudag
eftir þriggja mánaða setu. Var
ástæðan sú, að sósfalistar og
verkalýðssamtökin höfðu vfsað á
bug sparnaðarhugmyndum
Rumors. Eftir viðræður við for-
ystumenn allra stjórnmálaflokk-
anna og hlutaðeigandi aðila,
neitaði Giovanni Leone, forseti,
að taka lausnarbeiðnina til
greina. Hann tilkynnti ráðherr-
um, að þeim bæri skylda til að
halda áfram störfum, jafna
ágreining sinn og takast á við
vandamál þjóðarinnar þegar í
stað. Slíkt hefur ekki fyrr gerzt,
en afstaða forsetans virðist hafa
mælzt vel fyrir meðal almenn-
ings, þvf margir telja, að kominn
hafi verið tfmi til þess að segja
stjórnmálaforingjum ftölskum til
syndanna og benda þeim á, að
þeir hafi verið til þess kjörnir af
þjóðinni að stjórna landinu en
ekki til að eyða öllum tfma sínum
og kröftum í deilur um „keisarans
skegg". Þessi stjórn Rumors er
hin 36. frá því Benito Mussolini
féll árið 1943.
Ástand ftalskra efnahagsmála
hefur sjaldan verið jafn slæmt og
nú. Verðbólgan nemur um 20%
frá sl. ári og greiðsluhallinn við
útlönd skiptir tugum milljarða á
mánuði. I landinu eru stöðug
verkföll og skærur milli öfgasam-
taka til hægri og vinstri.
Nixon til Saudi-Arabíu:
HEITIR EGYPTUM KJARNORKU-
OFNUM m RAFORKUÍRAMLEIÐSLU
Jidda, Kairo, 14. júní AP.
NIXON forseti Bandarfkjanna
kom til Jidda höfuðborgar Saudi-
Arabfu f dag eftir velheppnaða
för til Egyptalands, þar sem
„Eftir fjóra mánuði ætti
ég að geta dansað vel”
— sagði Valery Panov við brott-
förina frá Sovétríkjunum
Leningrad, 14. júnf AP.
LISTDANSARINN Valery Panov
og kona hans, Galina, héldu f
morgun flugleiðis frá Sovét-
rfkjunum áleiðis til Israels, þar
sem þau hyggjast setjast að og
hefja störf að nýju — en Panov
hefur ekki fengið að dansa f
Sovétrfkjunum f rúm tvö ár.
Hann hefur þegar fengið tilboð
bæði frá lsrael og San Fransisco f
Bandarfkjunum og kvaðst reikna
með þvf, að verða tilbúinn til
starfa eftír hálfan þriðja mánuð.
„Eftir fjóra mánuði ætti ég að
geta dansað vel“, sagði hann við
brottförina.
Hjónin fóru með Aeroflot flug-
vél frá Leningrad laust eftir kl.
10.30 GMT í morgun og var ferð-
inni heitið til Búdapest, sfðan
Vínarborgar og Israels, þar sem
þau verða fyrst í tvær vikur, en
ætla eftir það til London og jafn-
vel Bandaríkjanna. „Mig langar
til að þakka persónulega því fólki,
sem hefur stuðlað að því með
stuðningi sínum við mig, að ég
fengi að fara úr landi", sagði
Panov.
Hann var heldur harðorður í
garð sovézkra yfirvalda: „Allt,
sem ég hef fengið frá Rússlandi,
er tengt listum og menningu, en
hvorutveggja tilheyrir mannkyn-
inu í heild. I Rússlandi er reynt
að útrýma allri mannlegri tilfinn-
ingu“, sagði hann.
Panov var, sem kunnugt er,
rekinn frá Leningrad í marz 1972,
þegar hann sótti um leyfi til að
flytjast til Israels. Jafnframt var
kona hans niðurlægð með til-
færslum í hópdansflokkum, en
hún hafði verið með fremstu
dansmeyjum hjá Kirov. Galina,
sem er 25 ára að aldri, var sýnu
beigðari við brottförina en maður
hennar og táraðist er hún kvaddi
ættingja og vini. Þess er getið í
Moskvu-fréttum, að hún hafi
misst fóstur fyrir rúmum mánuði
eftir rúmlega þriggja mánaða
meðgöngu.
Talsverðan farangur fengu þau
hjón að hafa með sér frá Sovét-
ríkjunum, 7 ferðatöskur og 11
bókakassa. Nokkrir gripir voru þó
af einhverjum ástæðum teknir af
þeim, m.a. krystalsglas eitt, vasa-
úr föður Galinu, ljósmynd af
skáldinu Mayakovsky og páska-
egg úr tré með ártalinu 1940
ískornu.
honum var geysivel fagnað. t lok
heimsóknarinnar þar var gefin út
sameiginleg yfirlýsing Nixons og
Sadats. Þeir undirrituðu lfka
samkomulag, þar sem m.a. er gert
ráð fyrir þvf, að Bandarfkjamenn
láti Egyptum f té kjarnorkuofna
til raforkuframleiðslu.
Móttökurnar f Saudi-Arabfu
voru sýnu hljóðlátari en f Egypta-
landi, en bandarfskum sendi-
mönnum, sem voru f fylgd með
forsetanum var bent á það, að
fbúar Saudi-Arabfu og Bandarfkj-
anna væru gamlir vinir — það
þyrfti ekki að setja á svið sér-
stakar sannanir fyrir þeirri vin-
áttu. Móttökurnar, sem Nixon
fékk, voru sagðar f samræmi við
saudi-arabfska siði.
Feisal konungur faðmaði
Nixon, þegar hann sté út úr
flugvél sinni í Jidda. Með
konungi var skrautleg fylking, og
þegar forsetinn hafði kannað
heiðursvörð, var honum boðið til
hefðbundinnar arabískrar kaffi-
drykkju, hinnar fyrstu af fimm,
sem fyrirhugaðar eru, meðan á
dvöl hans stendur. Forsetanum
var vísað til gistingar í svonefndri
Hamra-höll, sem á sfnum tíma var
reist fyrir Feisal konung, en
honum fannst hún of flúruð fyrir
sinn smekk og vildi ekki nota
hana. Hefur hún síðan staðið
ónotuð um árabil.
Ehrlichman fyr-
ir rétt 26. júní
Washington 14. júnf
Ap—NTB.
JOHN Ehrlichman, sem áður var
einn nánasti samstarfsmaður
Nixons forseta, verður þrátt fyrir
allt að koma fyrir rétt vegna
meintrar hlutdeildar f starfsemi
njósnasveitar Hvfta hússins,
„pfpulagningarmannanna“ svo-
kölluðu. Gerhard A. Gesell,
dómari í Washington, hefur
ákveðið að breyta ákvörð-
un sinni um að fresta
máli Ehrlichmans um óákveð-
inn tfma vegna mikils þrýst-
ings frá lögfræðingum for-
setans og frá Leon Jaworski, sak-
sóknara f Watergate-málinu.
Sagði Gesell, að þetta væri gert
vegna þess að nú hefði Nixon
lofað greiðum aðgangi að skjölum
Ehrlichmans f Hvfta húsinu sem
verjendur hans þyrftu á að halda.
Verður Ehrlichman nú að mæta
fyrir rétti 26. júní. Hann er
ákærður vegna innbrotsins í
skrifstofu dr. Lewis Fielding, sál-
fræðings Daniels Ellsbergs, ásamt
Áður en tveggja sólarhringa
heimsókn Nixons lauk í Egypta-
landi undirrituðu hann og Sadat
3000 orða samkomulag, þar sem
áherzla var lögð á nauðsyn upp-
byggingar samstarfskerfis þjóð-
anna, er stuðlaði að friði og vel-
sæld f veröldinni — og í því sam-
bandi var minnzt á þörfina á rétt-
látum og varanlegum friði fyrir
botni Miðjarðarhafs. Kveðið var á
um mjög aukin samskipti þjóð-
anna f framtfðinni, á sviði við-
skipta og fjármála, vísinda,
mennta- og menningar. Þar segir
og, að Bandaríkjaforseti hafi sam-
þykkt að aðstoða við eflingu og
uppbyggingu efnahagslegra fram-
fara Egyptalands og muni fjár-
málaráðherra Bandarfkjanna,
William Simon, heimsækja
Egyptaland innan skamms til
frekari viðræðna.
Mesta athygli hefur vakið það
ákvæði, sem fyrr var nefnt, — að
Bandaríkjamenn láti Egyptum í
té kjamorkuofna til raforkufram-
leiðslu, en það er talið auka mjög
lfkurnar fyrir því, að Egyptaland
geti náð ísrael f tækniþróun. Gert
er ráð fyrir, að stjórnir Banda-
rfkjanna og Egyptalands hefji
innan skamms viðræður um ein-
staka þætti samkomulags um sam-
vinnu á sviði friðsamlegrar nýt-
ingar kjarnorkunnar.
Sadat lagði á það áherzlu í
kveðjuræðu sinni til Nixons, að
svo mikilvægt sem það samkomu-
lag væri, er náðst hefði milli Isra-
els og Sýrlands annarsvegar og
Israels og Egyptalands hinsvegar
fyrir milligöngu Kissingers, væri
ljóst, að varanlegur friður yrði
ekki fyrir botni Miðjarðarhafs
fyrr en framtíð Palestfnu-Araba
hefði verið tryggð.
MYND þessi var tekin f sl.
viku, þegar Kenneth Kaunda,
forseti Zambiu, skýrði frá þvf,
að lokið væri viðræðum þeirra
Dr. Marios Soares, utanrfkis-
ráðherra Portúgals, og Samora
Machels, fulltrúa FRELIMO-
frelsishreyfingar Afrfku-
manna 1 nýlendum Portúgala.
Þær fóru fram í Lusaka f
Zambiu. 1 gær föstudag ræddi
Soares við fulltrúa stjórnar
uppreisnarmanna f Guineu-
Bissau. Fór fundur þeirra
fram f Algeirsborg og þar
verður áfram haldið viðræðum
aðstoðarmanna þeirra, en
Soares fer heim til Lissabon f
dag og sfðan á NATO fundina f
Briissel og Ottawa á næstunni.
Nitze hættir
í SALT-
nefndinni
Washington, 14. júní. AP-
PAUL H. Nitze sagði af sér f dag
sem meðlimur samninganefndar
Bandarfkjanna um takmörkun
kjarnorkuvopna. Tilkynnti hann
afsögn sfna f landvarnaráðuneyt-
inu og upplýsti, að hann hefði
viljað segja af sér 28. maf sl„ en
Nixon, forseti, hefði neitað að
taka lausnarbeiðni hans til
greina.
I yfirlýsingu sinni ræðir Nitze
um það hlutverk nefndarinnar að
reyna að semja um, að dregið
verði úr kjarnorkuvopnakapp-
hlaupi stórveldanna, jafnframt
því þó, að tryggja öryggi Banda-
rfkjanna. Segir þar m.a., að við
núverandi kringumstæður séu
litlar lfkur til þess að slíkir samn-
ingar geti tekizt.
„Stefna vopnaeftirlits er ná-
tengd þjóðaröryggi og utanríkis-
stefnu þjóðarinnar — sem hvoru-
tveggja tengjast aftur á móti inn-
anríkismálunum", segir Nitze og
bætir þvf við, að hann telji óraun-
hæft að loka augunum fyrir
„þeim niðurdrepandi og óþolandi
atburðum, sem nú eru að gerast f
höfuðborginni og þeim áhrifum,
Framhald á bls. 39
Ovænt yfirlýsing Brezhnevs:
Fúsir til samninga um
takmörkun kjarnorkuvopna-
tilrauna neðanjarðar
G. Gordon Liddy, Bernard Barker
og Eugenio Martinez. Ehrlichman
á einnig yfir höfði sér ákæru fyrir
að hafa logið að FBI alríkislög-
reglunni og að dómstólum, svo og
fyrir tilraunir til að þagga niður
Watergate-málið.
Moskvu, 14. júnf AP—NTB.
LEONID Brezhnev, leiðtogi
sovézka kommúnistaflokksins,
lýsti þvf yfir f sjónvarpsræðu f
kvöld, að Sovétrfkin væru reiðu-
búin til samninga við Bandarfkin
um að takmarka kjarnorkuvopna-
tilraunir neðanjarðar og hætta
þeim alveg, er fram f sækti.
Vakti þessi yfirlýsing talsverða
athygli í Moskvu, bæði vegna
þess, að aðeins tvær vikur eru þar
til Bandaríkjaforseti k.emur til
Moskvu. Stjórnmálafréttaritarar
þar benda á, að síðustu tvær
vikurnar hafi bandarískir sér-
fræðingar verið í Moskvu og rætt
við sovézka sérfræðinga um þetta
mál. Hafa þeir unnið að undir-
búningi samkomulags með það
fyrir augum, að það megi undir-
rita meðan Nixon er í Sovét-
rikjunum.