Morgunblaðið - 15.06.1974, Síða 19

Morgunblaðið - 15.06.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JUNl 1974 19 Vestfirzkir sjómenn eru þekktir fyrir dugnað og harðfylgi. Hér eru fram- tíðarsjómenn Vestfjarða undir árum. Myndin var tekin í ísafjarðarhöfn í fyrri viku. Heimsókn til Vestfjarða ÞESSI blaðauki er helgaður málefnum Vestfjarða, og er hann fyrstur í röðinni af fleiri um málefni hinna ýmsu kjördæma landsins. Blaðamaður Morgunblaðsins var á ferð á Vestfjörðum í fyrri viku og tðk f jölda viðtala í þeirri ferð. Birtast flest þeirra hér, en fleiri viðtöl munu birtast í Mbl. á næstu vikum. mið- landinu Draga þarf stórlega úr því stjórnarvaldi, sem ríkir í MATTHÍ AS Bjarnason skipar 1. sætið á lista Sjáifstæðis- flokksins á Vestfjörðum í alþingiskosningunum 30. júní n.k. Matthías kom fyrst á þing árið 1963 og hefur setið á þingi sfðan, á alis 11 þingum. Hann er kvæntur Kristínu Ingimundardóttur og eiga þau tvö börn. Matthías er fæddur og uppalinn á tsafirði og hefur búið þar alla tíð. Mbl. hitti hann þar að máli í sl. viku og innti fyrst eftir áliti hans á störfum núverandi ríkisstjórnar á kjörtíma- hilinu. \ Matthfas Bjarnason á skrif- stofu sinni. Rætt við Matthías Bjarnason, sem skipar efsta sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum ,,Það var í upphafi Ijóst, þegar ríkisstjórnin komst til valda, að hún hafði byggt málefnasamning sinn á óraunhæfum ioforðum, enda kom fljótt i ljós, að flest atriði þessa loforðalista stóðust engan veginn. Algert stjórnleysi hefur rikt í efnahagsmálum frá upphafi valdaferils rikisstjórn- arinnar, og siðustu ráðstafanir hennar jaðra við hreina fjár- glæfra. Stefnan í utanríkis- og varnarmálurh hefur verið ákafra. Stefnan i utanríkis- og varnar- málum hefur verið ákaflega óörugg og fálmandi sem eðlilegt er, þegar annars vegar sitja í ríkisstjórninni menn, sem vilja samstarf og vináttu við vestrænar lýðræðisþjóðir, og hins vegar kommúnistar, sem berjast gegn öllu slíku samstarfi." — En nú hefur atvinna viðast hvar verið næg á síðustu árum? „Jú, það er hárrétt. Atvinna hefur verið mikil á þessu tímabili, ný og glæsileg skip hafa verið flutt til landsins, eins og gerist á hverjum tima. Fráfarandi rikis- stjórn hafði t.d. veitt leyfi fyrir 16 nýjum togurum, þegar hún fór frá völdum. Það sem veldur þess- ari miklu atvinnu er einstak- lega gott árferði til lands og sjávar og sérstaklega hagstæð verðlagsþróun á útflutningsafurð- um okkar, eru engin dæmi til slíkra hækkana áður. En það skyggir á, að erlendar skuldir þjóðarinnar hafa vaxið á þessum þremur árum um 9—10 þúsund milljónir. Vextir og afborganir skulda hafa því hækkað verulega á valdatímabili þessarar ríkis- stjórnar. Allir stofnlánasjóðir eru tómir, gjaldeyrisvarasjóður þjóð- arinnar er þrotinn og greiðslu- jöfnuðurinn við útlönd er óhag- stæðari en hann hefur verið i rúmlega aldarfjórðung." — Hvað hyggst Sjálfstæðis- flokkurinn gera, komist hann i ríkisstjórn? „I stuttu viðtali er tæplega hægt að gera því viðhlítandi skil, en þó skal ég drepa á það helzta. í fyrsta lagi verður að gjörbreyta um stefnu i efnahagsmálum. Við verðum að draga úr beinum skött- um, fara meira inn á óbeina skatta og siðast en ekki sizt verð- ur að draga úr eyðslu i ríkis- rekstrinum. Það hlýtur hver maður að skilja, að það opinbera getur ekki sífellt tekið við nýjum og dýrum verkefnum og seilzt þannig dýpra og dýpra i vasa j skattborgaranna. Ég tei, að við sjálfstæðismenn verðum að draga | stórlega úr þvi miðstjórnarvaldi,1 sem nú rikir i landinu, og færa valdið meira til sveitarfélaganna eða samtaka þeirra í hinum ein- stöku landshlutum. Það er orðið algjörlega óþolandi fyrir hinar dreifðu byggðir landsins að verða að sækja allt stórt og smátt undir j hið þunglainalega embættis- mannakerfi, sem við búum við." — Hvernig hyggizt þið sjálf- stæðismenn dreifa miðstjórnar- valdinu? „Það gerum við á þann hátt að fela samtökum sveitarfélaganna aukin verkefni, sem þau annast alveg ein án ihlutunar miðstjórn- arvaldsins. En það leiðir af sjálfu sér, að alþingi verður að láta hluta af tekjustofnum ríkisins renna til samtaka sveitarfélag- anna til þess að standa undir þessum auknu verkefnum og enn- fremur til að rétta hag þeirra frá þvi sem verið hefur nú undanfar- in ár.“ — Hver eru brýnustu verk- efnin, sem framundan eru á Vest- fjörðum? „Langbrýnasta verkefnið hér er að skapa útgerðinni og fiskvinnsl- unni viðunandi rekstrargrund- völl, en hann hefur hér sem ann- ars staðar stórversnað, sérstak- lega síðastliðið ár og mánuði. Framkvæmdum i raforkumálum þarf að hraða, línulagnir frá Mjólkárvirkjun þarf að endur- nýja og nauðsynlegt er að fara í nýjar virkjunarframkvæmdir. Því þó að Mjólkárvirkjun 2 ljúki á næsta ári, þá tel ég brýna þörf að fara nú þegar i virkjun Suðurfoss- ár á Barðaströnd. Ennfremur þarf að halda áfram virkjunar- framkvæmdum við Djúp og ljúka lfnulögnum til þeirra sveitabýla, sem enn biða eftir raforku. Það er mín skoðun, að raforkuverin eigi að vera i eigu samtaka sveitarfé- laganna og algjörlega undir stjórn þeirra. Hins vegar get ég hugsað mér, að ríkissjóður sé að einhverju leyti eignaraðiii að orkuverunum. I heilbrigðismálum er mikið ógert. Það, sem við leggjum höf- uðáherzlu á, er bygging heilsu- gæzlustöðvar, sjúkrahúss og elli- heimilis á ísafirði og bygging heilsugæzlustöðvar á Patreks- firði, en undirbúningur að öllum þessum framkvæmdum er nú kominn á lokastig. Ennfremur þarf að leggja áherzlu á að trvggja það, að læknir sé búsettur í hverju læknishéraðí í umdæm- inu. i samgöngumálum hefur margt verið gert á undanförnum áratug, og þeim verkefnum verður vafa- laust haldið áfram. í vegamálum er mest aðkallandi að ljúka lagn- ingu Djúpvegar, leggja veg yfir Vöðin i Önundarfirði, yfir Dýra- fjörð. Hrafnseyrarheiði, nýjan veg um Vattarfjörð og endurbygg- ingu vegar i Gufudalshreppi. Þá er aðkallandi verkefni að byggja nýjan veg frá Djúpi suður i Barðastrandarsýslu og leggja góð- an veg milli Strandasýslu og Aust- ur-Barðastrandarsýslu. Síðast en ekki sizt verður að leggja vegi úr varanlegu efni milli þéttbýlustu svæða, eins og t.d. frá isafirði nl Hnífsdals og inn á flugvöll. Slíka vegagerð milli Isafjarðar og Hnífsdals átti að framkvæma á síðasta ári, en stjórnarherrarnir hafa svikið þá framkvæmd. Hafnarmálin eru mjög mikil- vægur þáttur i atvinnumálum Vestfjarða ekki síður en sam- göngumálin. Þar hefur mikið ver- ið unnið, en ennþá er mörgum verkefnum ólokið. I flugvallar- málum er brýnast að setja varan- legt slitlag á stærstu flugvellina. á ísafirði og Patreksfirði, byggja flugvelli á Súgandafirði og Tálknafirði og endurbæta flug- völlinn á Bíldudal. Til þessara verkefna eru takmarkaðar fjár- veitingar á þessu ári. Samgöngur á sjó, til og frá Vestfjörðum, eru mjög strjálar og ófullkomnar og brýn nauðsyn á að fjölga ferðum, einkum á milli Reykjavíkur og Vestfjarða. i húsnæðismálum Vestfirðinga er ástandið slæmt. Allt of litiö hefur verið byggt og er miMl nauðsyn á því að örva húsoy g- ingar í þessum héruðum með vt Framhald á bls. 2 .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.