Morgunblaðið - 15.06.1974, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JUNl 1974
25
Stórstjaman Tebaldi
kemur til Islands
Strax eftir stríð tóku að siast
út fréttir frá Italíu um að þar
væri alveg einstök söngkona á
ferð. Tebaldi hafði komið fram
fyrst í Ravigo árið 1944 og, eftir
framhaldsnám, í Oþello eftir
Veri í Trieste 1945. Og hlutverk
Destemonu átti einmitt eftir að
verða eitt af hennar tryggustu
hlutverkum í óperum.
Toscanini, sem kom til Italiu
var óspar á lofið um hana og
þegar hann opnaði Scalaóper-
una eftir viðgerðirnar, valdi
hann Tebaldi til að koma fram
með sér.
Eftir það söng hún um alla
Italiu í óperuhúsunum San
Carlo í Napólí, í Rómaróper-
unni og viðar í mörgum fræg-
um óperuhlutverkum.
1950 kom hún fram með
Scalaóperunni í Convent
Garden í Bretlandi við mikinn
fögnuð. Og sama ár sló hún
einnig í gegn, er hún kom fyrst
fram i Bandaríkjunum, í San-
Fransisco. Metropolitan óperan
reyndi þá strax að fá hana, en
hún var of upptekin, og hélt
áfram að syngja með Scalaóper-
unni í Rio de Janero og í París,
þar sem hún bætti Frökkum á
aðdáendalista sinn. Siðan hefur
hún unnið hvern söngsigurinn
á fætur öðrum.
I fyrstu sérhæfði hún sig'f
viðkvæmum kvenhetjum, sem
hæfa ljóðrænar söngraddir,
en síðan hefur rödd hennar
þroskast og fengið dekkri lit og
dramariskari hljóm, í hlutverk-
um eins og Tosca, Aidda og
Maddalena.
Renata Tebaldi er mjög
kröfuhörð við sjálfa sig og aðra,
sem hún vinnur með. En þrátt
fyrir það, og þótt hún taki
hærri greiðslur en flestir aðrir,
þá hafa engar óánægjuraddir
heyrst frá samstarfsfólki
hennar eða vinnuveitendum. —
„Ef maður er túlkandi lista-
maður, þá er ekki hægt að
svíkja eða forsmá list sína, því
listin fyrirgefur ekki“, hefur
hún sagt. Fyrir nokkru neydd-
ist hún til að hætta við að koma
fram heilan vetur. En aldrei
varð samt lát á æfingum hjá
henni á meðan og hún vann
reglulega með kennara sínum í
New York, Maestro Ugo de
Caro, allan tímann sem hún var
veik.
hún dvelst orðið mestan bluta
ársins 1 New York. En í huga
hvers Itala er hún enn „La
nostra Renata", hún Renata
okkar. Einhver mestu fagnaðar-
læti, sem heyrzt hafa þar i landi
síðan á heimsstyrjaldarárun-
um, voru þegar hún kom aftur
til Napoli 1967 og söng
Giacondu, og gagnrýnendur
kepptust við að hlaða á hana
lofi. En það hefur sfna ókosti að
vera þjóðsagnapersóna. Ein
ástæðan fyrir þvf, að hún býr
nú mest í Bandaríkjunum, er
-sú, að henni gengur erfiðlega
að hafa einkalíf í friði á ítalíu.
Þetta söngvaland hefur ekki
eignast aðra stjörnu, sem
gnæfir jafnhátt síðan heims-
styrjöldinni lauk.
I New York er nafn hennar
tengt þvi bezta, sem óperan
hefur að bjóða, og Metropolitan
heldur henni mestan hluta
ársins þar sem hún hrffur
áhorfendur f hvert sinn, sem
hún kemur fram.
Renata Tebaldi er af
hversdagslegu fólki komin.
Hún fæddist í fiskibænum
Pesaro við Adríahaf árið 1922
og ólst upp nálægt Parma. Þess-
ir tveir staðir á Italíu hafa lagt
tónlistinni mikið til. Þaðan
komu Rossini, Verdi og
Toscanini, svo aðeins þrír séu
nefndir. Og þaðan kom
nemandinn ungi, Renata
Tebaldi, sem fór að læra pfanó-
leik 8 ára gömul. Þegar hún var
á fjórða ári, fékk hún lömunar-
veiki, þannig að hún gat ekki
gengið fyrr en hún var orðin
sex ára. 17 ára gömul
innritaðist hún í Arrigo Boiton
tónlistarskólann í Parma og
sfðan nam hún við Rossini tón-
listarskólann hjá hinni frægu
sóprasöngkonu Carmen Melis.
Renata Tebaldi
Öperusöngkonan Renata
Tebaldi, sem væntanleg er til
landsins bráðlega, syngur með
Sinfóníuhljómsveit Islands á
lokatónleikum listahátfðar
undir stjórn Vladimirs
Ashkenazy.
Hún er sannarlega stjór-
stjarna. Engum tekist betur en
henni að fylla sýningarsali, hún
er beinlínis methafi í því og
virðist enn ekkert draga úr að-
sókn almennings, hvenær sem
hún kemur fram. I
Metropolitan-óperunni í New
York á hún metið, með 97%
aðsókn að óperunum, sem hún
syngur í. Og áskriftarmiðar að
heilum óperuflokkum ná 70%,
en það þýðir, að hvert sæti, sem
ekki er á bak við súlu eða svo
langt til hliðar að ekki sést
nema fjórðungur sviðsins, er
setið, jafnvel á slæmum dögum
eins og mánudögum og föstu-
dögum. Þetta skrifar Francis
Robinson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri við Metropolitan-
óperuna, í grein um hana. Svo
það er ekki lítill fengur að fá
hana hingað í Laugardalshöll-
ina.
Renata Tebaldi er ítölsk. I
heimalandi sínu er hún orðin
að þjóðsögu. Einkum nú, þegar
Tebaldi syngur úr Brúðkaupi Figaros eftir Mozart f Laugardals-
höll. A myndinni er hún f hlutverki f þeirri óperu.
LISTAHATIÐ
1974
Heð Rudoif Bing og Marfu Callas eftir frumsýningu f Metropolitan- Tebaidi er ávallt vel fagnað af áhorfendum.
Sperunni.