Morgunblaðið - 15.06.1974, Page 36

Morgunblaðið - 15.06.1974, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚNl 1974 Sjö sögur af Villa eftir Rudolf O. Wiemer „Það getur orðið dýrt spaug“, segir músin. „Fólk kærir sig ekki um að neinu sé hróflað hér. Geturðu ekki farið eitthvað annað?“. „Nei. Ræningjar gera alltaf það sem þeir hafa ákveðið að gera og basta“. „Þá ert þú ólíkur öðrum kirkjugestum. Þeir ákveða oft að gera eitt og annað en láta svo aldrei verða af því“. „Þarna sérðu“, segir Villi og þykist lunkinn. „Ætli ég sé ekki frómari en aðrir. Að prestinum undan- skildum auðvitað“. Hann hlær hátt. Þá man hann að Hver kemur fyrst í mark ? Hver þeirra verður fyrst í mark? — Mis- jafnlega fljótlegt er að finna réttu leiðina á mark- inu. hann er staddur á helgum stað. Hann setur hönd fyrir munn sér og spyr lágt: „Heyrðu mig, kirkju- mús, eru þessir kertastjakar þarna úr ekta silfri?“. „Auðvitað“, segir músin. „Hér er allt ekta“. Villi stikar inn kirkjugólfið. Þá kveður skyndilega við skelfingaróp. Það er engu líkara en einn af þeim dauðu, sem grafnir eru i hvelfingunni undir altar- inu, hafi risið upp. En það er engin vofa, sem stendur andspænis honum. Það er hins vegar lítill, veimil- títulegur drengur, átta eða níu ára gamall. „Hver ert þú?“ segir Villi. „Jakob“, segir drengurinn. „Hvaða Jakob?“. „Pabbi minn er hringjari hérna“. „En hvað ert þú að gera hér? Ekki vænti ég að þú sért kominn hingað til að stela?“. „Nei. Ég á að hringja klukkunum, því pabbi minn er ekki heima“. „Nú. Og hvers vegna gerir þú það þá ekki?“. Jakob þegir. Svo stamar hann: „Vegna... vegna þess... vegna þess að kirkjudraugurinn er uppi í turninum“. „Ertu hræddur?“. Jakob kinkar kolli. „Iss“, segir Villi. „Hraustir drengir eru aldrei hræddir". „Jú“, segir Jakob. „Ræningjarnir eru meira að segja hræddir við drauga. Það las ég í bók“. „Þarna sést, hvers konar bull stendur í þessum bókum. Enda les ég aldrei neitt. En ég skal sýna þér að ég er ekki hræddur“. „Ertu þá ræningi?“. „Ég held nú það. Og nú fer ég upp í turninn og hringi klukkunum. Þá geturðu sannfærst um, að ég sé ekki hræddur“. „Já“, segir Jakob. Hann fer með Villa upp tröppurnar. Villi er sterk- ur. Ræningjar eru það. Hann tekur í klukkustreng- inn með báðum höndum. Hvellur klukknahljómur berst um allt. Krákurnar sem eiga hreiður sín í kirkjuturninum flúga dauðhræddar út um hljóðop- in. Villa þykir gaman að hringja klukkunum og vill ekki hætta. Þegar Jakob segir: „Þetta er nóg“, heldur Villi samt áfram. Loks hættir hann. Hann segir við Jakob: „Hvers vegna átti eiginlega að hringja? Er kviknað í einhvers staðar?“. „Nei, það er aftansöngur í kirkjunni". oAfonni ogcTYfanni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi ..Attu heima í helli? Ég hélt, að það væri Halldór, sem ætti heima þar“. „Nei, hann er farinn þaðan. Hann var þar áður. En ég bý þar stundum í hellinum hans, þegar ég er hérna að leita að hrossum eða fé á fjallinu“. Haraldur steig nú á bak hesti sínum, en við okkar. Hann reið á undan upp í fjallið, þangað sem við höfð- um séð hann fyrst. Við urðum að fara upp snarbratta brekku, og var það erfitt fyrir hestana. En þegar upp kom, tóku við eyðileg hæðadrög, og þar hleyptum við á sprett, þang- að til við komum að háurn klettum, sem allir voru srpungnir, hrundir og sundurtættir. Fram með þeim riðum við um stund og komum loksins að lindar- sprænu, sem vall fram í dálítilli laut uppi við klettana. Þar fór Iíaraldur af baki og sagði: „Jæja, drengir. Hérna er nú bærinn minn. Þetta eru ..Haraldsstaðir". Þið tókuð svo vel við mér um daginn, og nxi ætla ég að launa ykkur það eftir föngum“. Við Manni fórum nú af baki líka. Hestamir báðir og Tryggur gengu að lindinni og svolgraðu í sig tært vatnið áfergjulega. Þegar þeir höfðu svalað þorsta sínum, teymdi Har- aldur hestana á haga þar skammt frá og hefti þá, svo að þeir skylau ekki strjúka. Við Manni litum í kringum okkur á meðan. „Hann sagði, að þetta væri bærinn sinn“, sagði Manni. „Er hann ekki að skrökva því?“ „Jú, hann sagði það að gamni sínu“. Nú kom Haraldur aftur til okkar og fylgdi okkur að þröngri sprangu í berginu. „Hér eru nú aðaldyrnar á híbýlum mínum“, sagði hann brosandi. Hann beygði sig langt niður og gekk inn. Við fórum á eftir, og Tryggur var alltaf á hælunum á okkur. Þegar við voram komnir spottakorn inn, rétti Har- aldur báðar hendur aftur fyrir sig og sagði: „Réttið þið mér hendurnar, drengir. Það er dimmt fllc&imofgunlfaffÍAu — Hvern þeirra eigum við að velja??? — Hefurðu ekki nóg með þinn brotna handlegg.... — Grugle, grugle grugle ... þýðir það að ég eigi að bakka eða stfga á bremsurnar????? Láttu þér ekki bregða, — þetta er auka hraðlyftan....

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.