Morgunblaðið - 15.06.1974, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.06.1974, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JUNl 1974 | iÞRðTTAFRÉTTIB MORGBBIBLAflSmiS Fjörugur leik- ur 1 úrhellinu Fram og ÍA gerðu jafntefli 1:1 JAFNTEFLI 1:1 voru mjög svo sanngjörn úrslit í leik Fram og Akurnesinga 1 1. deildar keppni fslandsmótsins 1 knattspyrnu á Laugardalsvellinum 1 fyrrakvöld. Mörkin hefðu með réttu getað orðið fleiri, þar sem bæði liðin fengu góð marktækifæri, sem ekki nýttust. Mikil kaflaskipti voru 1 leiknum, en þegar á heild- ina er litið virtust Skagamenn fvið sterkari aðilinn, og sérstak- lega á kafla f fyrri hálfleik og 1 byrjun seinní hálfleiks sýndi liðið ljómandi góða knattspyrnu. Leikurinn var hinn skemmtileg- asti á að horfa, nokkuð opinn og 1 honum mikill hraði og barátta, en þegar Ieið á hálfleikinn tóku hin slæmu vallarskilyrði að setja sinn svíp á hann, en úrhellisrigning var megin hluta leiksins og voru Ieikmennirnir farnir að vaða for- ina 1 skóvörp áður en lauk. Fyrstu 15 mfnútur leiksins voru nær algjörlega f eigu Fram- liðsins, sem sýndi þá oft mjög góð tilþrif og skapaði sér hvert tæki- færi af öðru. Aðeins eitt þeirra bar árangur, en það var á 10. mfnútu leiksins, er Eggert Stein- grfmsson tók hornspyrnu frá hægri. Spyrna hans var mjög góð og beint á höfuð Jóns Péturs- sonar, sem skallaði knöttinn óverjandi f netið hjá Skagamönn- um. Með meiri árvekni hefðu Skagamenn átt að geta komið f veg fyrir markið, en allt um það, vel var að þvf staðið af hálfu Framara. Á næstu mfnútum náðu Framarar svo gullnum tækifær- um til þess að auka við forskot sitt. Þannig átti Kristinn Jörunds- son t.d. skot af mjög stuttu færi á 13. mfnútu en það lenti í Davfð markverði lA og eftir baráttu f teignum var hættunni afstýrt. Ekki var minni hætta við Skaga- markið á 16. mlnútu, er Fram tókst að leika vörn þeirra afar grátt. Þeirri sóknarlotu lauk með þvf, að Ásgeir Elfasson spyrnti framhjá opnu markinu af stuttu færi. En smátt og smátt náðu Akur- nesingar betri tökum á leiknum. Þeim tókst að ná öllum völdum á vallarmiðjunni og það var það, sem dugði til. Framlínumcnn liðsins eru svo afar fljótir og hættulegir, og brátt fór að mynd- ast hætta við Frammarkið. Ekki heppnaðist þó að nýta þá mögu- leika, sem gáfust. Á 40. mfnútu var dæmd vfta- spyrna á Fram. Knötturinn hafði borizt upp kantinn vinstra meginn og þar átti Skagamaður fyrirsendingu alveg út við enda- mörk. Sigurbergur Sigsteinsson slæmdi hendi f knöttinn og þegar f stað var dæmd vftaspyrna. Þetta var nokkuð strangur dómur, en réttlætanlegur. Teitur Þórðarson tók spyrnuna og skoraði af miklu öryggi. Eftir þetta jöfnunarmark Skagamanna áttu flestir von á þvf, að þeim tækist að sigra f leiknum og f byrjun seinni hálf- leiks styrktust menn f þeirri trú, Texti: Steinar J. Lúðvfksson. Mynd: Ragnar Áxelsson. en þá sýndi Skagaliðið Sannkall- aða gullaldarknattspyrnu, þar sem knötturinn gekk frá manni til manns. En Framararnir vörð- ust vel og skynsamlega, þannig að Skagamönnum tókst ekki að skapa sér afgerandi færi, þrátt fyrir yfirburði sfna í spilinu. Eftir að þannig hafði gengið um hrfð jafnaðist leik- urinn skyndilega og eftir fyrsta stundarfjórðung seinni hálfleiks verður ekki annað sagt en að Fram hafi haft f fullu tré við Skagamennina og færi þeirra til marka jafnvel hættulegri. Þegar leið að lokum leiksins leystist hann upp f hálfgert þóf, enda auðséð að leikmennirnir voru orðnir örþreyttir. Það er ekkert efamál, að lið Ákurnesinga er mjög gott um þessar mundir og leikur öllu áferðarfallegri knattspyrnu en önnur fslenzk lið. Það kom hins vegar á óvart, að úthaldið virtist ekki vera meira en hjá Fram, og reyndar sáust sumir leikmanna liðsins tæpast í seinni hálfleik. Bezti maður liðsins f leiknum var hinn ungi Karl Þórðarson og þá fyrst og fremst fyrir það hversu sendingar hans voru góðar og vandaðar. Það heyrði til undan- tekninga ef hann skilaði knettin- um frá sér til annars en samherja og hvað eftir annað átti hann gull- fallegar sendingar til samherja sinna inn f eyður f Framvörninni. Þarna er á ferðinni piltur, sem hefur auga fyrir þvf, sem er að gerast á vellinum og lfkams- burðir hans og þroski eru nú miklu meiri en var t.d. f fyrra. Þá átti Jón Aifreðsson einnig góðan leik, cn hið sama má segja um hann og Karl, að spyrnur hans eru mjög hreinar og vandaðar, og dugnaður og yfirferð hans á vell- inum er geysimikil. Á hinum skæðu markaskorurum liðsíns, Teiti og Matthfasi, bar hins vegar ekki mikið f leiknum, enda gættu Framararnir þeirra mjög vel. Framlíðið kom mjög vel út úr þessum leik og þá sérstaklega miðverðir liðsins, og tengiliðir, sem börðust frábærlega vel. Landsliðsmaðurinn Guðgeir Leifsson, sem verið hefur helzti máttarstólpi Framliðsins f sumar, lék ekki með liðinu að þessu sinni, en það merkilega var, að skarð hans tókst að fylla. I sóknarleik Fram var að þessu sinni meiri ógnun en verið hefur til þessa, og munaði þar miklu um Eggert Steingrfmsson. Eggert átti mjög góðan leik til að byrja með, og er greinilega „tekniskur“ og laginn leikmaður. Hann virtist hins vegar ekki hafa mikið út- hald, og sást lftið f seinni hálf- leiknum. Fór svo, að Jóhannes Átlason, þjálfari Fram skipti honum út af. Marteinn Geirsson var annars maðurinn, sem upp úr stóð f Framliðinu, og átti nú einn af sfnum stórleikjum. Þáttur Arna Stefánssonar f markinu má heldur ekki gleymast, en hann greip oft vel inn f leikinn og bjargaði m.a. tvisvar sérstaklega glæsilega. I STUTTU MÁLI: Islandsmótið 1. deild: Laugardalsvöllur 13. júní. Crslit: FRAM — ÍA 1:1 (1:1) Minningarleikur um Rúnar A MIÐVIKUDAGINN f næstu viku fer fram á Laugardalsvellin- um minningarleikur um landsliðsmanninn unga, Rúnar Vil- hjálmsson, sem lézt af slysförum f landsliðsferð fyrir nokkrum árum. Bikarmeistarar Fram mæta Breiðabliki f minningarleikn- um og verður fróðlegt að sjá hvað Blikarnir, sem Ifklegir eru tíl sigurs f 2. deild, gera gegn 1. deildar liðinu. FRÍ-skokkið FRl-skokkið hefst formlega f Reykjavfk á þriðjudaginn f næstu viku klukkan 17.30 á Ármannsvellinum við Sigtún. Állir skokkar- ar eru hvattir til að mæta, en þegar er vitað um ýmsa, unga sem aldna, sem ætla að vera með f skokkinu frá byrjun. Þjóðhátíðarmót í frjálsum ÞJOÐHÁTIÐáRMÓTIÐ f frjálsum fþróttum fer fram á Laugar- dalsvellinum á morgun og á mánudag. Keppt verður f mörgum greinum báða dagana og allt bezta frjálsfþróttafólk landsins, sem mögulega getur, tekur þátt f mótinu. Haukar stálu stigum af Blikunum ÞAÐ sannaðist enn einu sinni f fyrrakvöld, að allt getur gerzt í knattspyrnunni. Þá léku Haukar gegn Breiðabliki og öllum á óvart fóru Haukar með sigur af hólmi. Skoraði Logi Eyjólfsson eina mark leiksins f fyrri hálfleiknum. Breiðabliksmenn sóttu mun meira allan leikinn, en tókst ekki að skora og það eru jú mörkin, sem tala, en ekki spilið úti á vellinum eða fjöldi sóknarlota. Verðlaun fyrir Árbæjarhlaup ÁRBÆJARHLAUP Fylkis fór fram fimm sinnum sfðastliðinn vetur og var góð þátttaka f öllum hlaupunum, mest um 140 ungmenni. Til að eiga rétt til viðurkenninga þurfti hver kepp- andi að vera með þrisvar sinnum, en þrfr efstu f hverjum aldursflokki fá afhent verðlaun. Verða þau afhent 17. júnf f sambandi við þjóðhátfðarhöld f Árbæjarhverfi. Heimsmet hjá pólskri PÓLSKA stúlkan Irina Szewinska setti nýlega nýtt heimsmet f 200 metra hlaupi. Hún rann skeiðið á réttum 22 sekúndum og bætti með þvf met a-þýzku stúlkunnar Renötu Stecher um sekúndubrot. HUNDBLAUTIR setja þeir Asgeir Elfasson og Jón Alfreðsson undir sig hausinn og storma gegn úrhellinu f baráttunni um knöttinn f leiknum f fyrrakvöld. Mark Fram: Jón Pétursson á 10. mín. Mark IA: Teitur Þórðarson á 40. mín. Dómari: Ragnar Magnússon. Hann dæmdi röggsamlega og komst allvel frá leiknum þegar á heildina er litið. Það, sem helzt mátti að finna, var að Ragnar var stundum ekki nógu nákvæmur í dómum sínum. Ahorfendur: 1564, sem er metað- sókn að 1. deildar leik í sumar. LIÐ FRAM: Árni Stefánsson 3, Hlöðver Rafnsson 2, Ómar Arason 2, Gunnar Guðmundsson 3, Marteinn Geirsson 4, Sigurbergur Sigsteinsson 2, Asgeir Elfasson 2, Kristinn Jörundsson 1, Rúnar Gfslason 1, Jón Pétursson 3, Eggert Steingrfmsson 2, Sfmon Kristjánsson (varamaður) 1, Snorri Hauksson (varamaður) 1. LIÐ lA: Davfð Kristjánsson 2, Björn Lárusson 3, Benedikt Valtýsson 2, Þröstur Stefánsson 2, Jón Gunnlaugsson 2, Eyleifur Hafsteinsson 2, Karl Þórðarson 3, Jón Alfreðsson 3, Teitur Þórðarson 2, Haraldur Sturlaugsson 2, Matthfas Hallgrfmsson 2. V-Þjóðverjarnir komnir af stað EINS og við mátti búast sigruðu Vestur-Þjóðverjar lið Chilebúa f fyrsta leik liðanna ú úrslitum Heimsmeistarakeppninnar. (Jrslitin urðu 1:0, og skoraði hinn snjalli bakvörður, Paul Breitner, markið f fyrri hálfleiknum. Leikurinn fór fram á Ólympfu- leikvanginum í Berlín að við- stöddum 80 þúsund áhorfendum, og milljónir fylgdust með leiknum f útvarpi og sjónvarpi. Vitanlega voru bjartsýnir þýzkir áhorfendur í meirihluta á vell- inum, og er Breitner skoraði fyrsta mark heimsmeistarakepp- innar á 14. mínútu leiksins, urðu gifurleg fagnaðarlæti á áhorf- endapöllunum. Lengi á eftir hljómaði söngur fólksins: „Þýzka- land, Þýzkaland, Þýzkaland". Mark Breitners var stórglæsi- legt. Þrumuskot af 25 metra færi lenti f markhorninu hægra megin uppi við slá, og þrátt fyrir góða tilburði Vallejo f marki Chile átti hann ekki möguleika á að verja. Tveimur minútum siðar var Breitner aftur á ferðinni, en nú tókst Vallejo að koma í veg fyrir mark með glæsilegri markvörslu. Þá var komið að markakóngnum Gerd Mueller að reyna sig, en Vallejo varði vel skot hans frá vftateigi. Chilemenn áttu einnig sín tæki- færi, Ahuamada komst í gegn í fyrri hálfleiknum, en skot hans fór rétt framhjá markinu. I sfðari hálfleiknum þéttu Chilemenn vörn sína, og sókn Þjóðverja þyngdist að mun og hafði hún þó verið þung fyrir. Um miðjan hálf- leikinn var Mueller brugðið á Bakvörðurinn Breitner, sem skoraði fyrsta mark f úrslitum heimsmeistarakeppninnar og tryggði liði sfnu V-Þjóðverjum fyrsta sigurinn. miðju vallarins, en þar sem knötturinn fór til Hoeness var ekkert dæmt. Hoeness, sem er mikill spretthlaupari, hljóp vörn Chile af sér, komst 1 dauðafæri, en á síðustu stundu tókst varnar manni að renna sér fyrir knöttinn og bjarga. Mark Breitners var eina markið, sem skorað var í leiknum, en þó hefðu Þjóðverjar getað gert fleiri miðað við tæki- færi. Chilemenn voru í rauninni dæmdir til að tapa þessum leik, þó svo þeir léku alls ekki illa. Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.